Morgunblaðið - 20.04.2021, Page 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2021
✝
Bryndís Alma
Brynjólfs-
dóttir fæddist í
Reykjavík 4.
nóvember 1932.
Hún lést 13. apríl
2021.
Foreldrar Bryn-
dísar voru Indíana
Jónsdóttir, f.1900,
d. 1982, og Brynj-
ólfur Jónas Gunn-
arsson, d. 1932.
Fósturfaðir Jóhann Einar Guð-
mundsson, f. 1905, d. 1980.
Hálfbróðir, samfeðra, Magnús
Kjartan Brynjólfsson, f. 1929,
d. 1992. Hálfsystur, sam-
mæðra: Anna Jóhannsdóttir, f.
1936, Jónína Lilja Jóhanns-
dóttir, f. 1937, d. 2015, og El-
ínrós Jóhannsdóttir, f. 1941, d.
1964.
Eiginmaður Bryndísar var
Oddur Benediktsson, f. 1935,
d. 2013. Foreldrar hans voru
Tómassína Sigurrós Tómas-
dóttir (Ása Fjalldal), f. 1913,
d. 1984, og Benedikt Oddsson,
f. 1913, d. 1970. Bryndís og
Oddur kynntust ung er hún
var kaupakona í Árnesi við
Ísafjarðardjúp og hann á
Melgraseyri. Þau giftu sig 29.
október 1956. Börn þeirra eru:
1) Ása, f. 1956. Börn hennar:
Hulda Jenny Kjartansdóttir, f.
1977. Maki Carlos Anderes
Mejia, f. 1979. Dagný Harð-
ardóttir, f. 1988, sambýlis-
maður Svanur Sigurðsson, f.
1992. Helena Harðardóttir, f.
1989, dóttir hennar Hrafney
Ása Daníelsdóttir, f. 2020.
Díana Alma Helgadóttir, f.
1997. 2) Axel, f. 1958. Börn
hans og Ásgerðar Jónsdóttur:
Jón Ásgeir, f. 1992, Tómas, f.
1995, og Bene-
dikt, f. 2001. 3)
Laufey, f. 1958.
Maki Bogi Jóns-
son, f. 1958. Börn
þeirra: Fríða, f.
1984, unnusti
Pétur Arnórsson,
f. 1979. Börn
þeirra: Bogi
Hrafn, f. 2013, og
Petra Björk, f.
2015. Oddur, f.
1986, kvæntur Margréti Eddu
Yngvadóttur. Börn þeirra
Benedikt Þór, f. 2010, Laufey
Anna, f. 2011, og Kristín
Fríða, f. 2018. Jón Örn, f.
1989, sambýliskona Bjarklind
Thor, f. 1971. Axel, f. 1991,
sambýliskona Jenny Hrund
Hauksdóttir, f. 1991. Björk, f.
1992, sambýlismaður Anders
Aanesen, f. 1994. 4) Díana, f.
1960, sambýlismaður Gunnar
S. Hrólfsson, f. 1959. Börn
þeirra: Bryndís Alma, f. 1987,
sambýlismaður Andreas Sinn,
f. 1981. Börn þeirra: Elías
Thor, f. 2017, og Rafael
Thor, f. 2020. Brynjar Thor,
f. 1991. Alexandra, f. 1993.
Bryndís flutti til Reykja-
víkur og vann á saumastofu í
Hafnarfirði. Síðan á mat-
sölustað og þá í búsáhalda-
verslun. Hún tók að sér að
sauma úlpur fyrir Hagkaup
er börnin voru lítil. Vann síð-
an á Hrafnistu og Sjálfsbjörg.
Bryndís opnaði sólbaðsstofu,
þar sem hún vann ein og var
opið frá átta á morgnana til
miðnættis, ásamt því að sinna
heimilinu.
Bryndís Alma verður jarð-
sungin í Árbæjarkirkju í dag,
20. apríl 2021, klukkan 13.
Elsku amma okkar er fallin frá
og dýrmætar minningar streyma
fram. Eftir að afi kvaddi árið
2013 varð söknuðurinn mikill hjá
ömmu. Hún var kletturinn hans
afa og hann var kletturinn henn-
ar enda var ástin sterk hjá þeim.
Þær stundir sem hún sagði
okkur frá æskuárunum fyrir
vestan lifa hlýtt í minningum
okkar. Frá skólaárunum á Ísa-
firði og þau sumur sem hún fór í
sveit. Sumarið sem við ferðuð-
umst á æskuslóðir ömmu á
Drangsnesi var mjög lærdóms-
ríkt fyrir okkur krakkana. Að sjá
hve mikið var haft fyrir hlutun-
um hér á árum áður, enda stopp-
aði amma aldrei ef verk var að
vinna. Alltaf með prjóna eða
hekklunál við höndina í fallegu
sólstofunni í húsinu sem afi
byggði. Aldrei rykkorn sjáanlegt
og garðurinn eins og garðyrkju-
meistari hafði tekið hann í gegn.
Þegar amma bauð í afmæli sást
varla í borðdúk svo mikið var af
kökum og öðrum kræsingum.
Heita súkkulaðið hennar ömmu
var töfrum líkast og við vorum
farin að hlakka til mörgum dög-
um fyrir afmælisveislu hjá ömmu
ef við vissum að heita súkkulaðið
yrði á boðstólum.
Ferðalög til útlanda voru í
miklu uppáhaldi hjá ömmu.
Ferðin sem við systurnar fórum
með henni og mömmu fyrir
nokkrum árum er í miklu uppá-
haldi. Það var erfitt að trúa því að
hún væri við áttræðisaldur þegar
hún þrammaði um götur London
skoðandi söfn, verslanir, kaffihús
og markaði, þvílík var orkan og
krafturinn í henni. En þannig var
amma, mikill dugnaðarforkur.
Alltaf var hún amma tilbúin að
hjálpa. Þegar fjölgaði í systkina-
hópnum okkar flaug hún til Sví-
þjóðar, þegar við bjuggum þar,
til að hjálpa til á heimilinu fyrstu
vikurnar. Ef henni var boðið í
veislu var hún mætt nokkrum
klukkutímum á undan öðrum til
að létta undir. Hún var með
græna fingur og hjálpaði mikið
við að halda görðunum fínum hjá
börnum sínum.
Ömmu leið best þegar hún var
með fjölskylduna í kringum sig
og vildi aldrei vera ein.
Það er mikil huggun að vita að
mamma hélt utan um hana nótt-
ina sem hún kvaddi þennan heim
og síðustu dagana var hún um-
vafin barnabörnum og börnum
sínum. Síðustu dagana var hún
orðin mjög veikburða og vildi
helst snúa sér að myndinni af afa
eins og hún væri að bíða eftir að
stundin kæmi að þau hittust á ný
hinum megin við móðuna miklu.
Fríða, Oddur, Jón Örn,
Axel og Björk.
Fyrstu kynni mín af Bryndísi
voru vorið 1983. Ég hafði nýlega
kynnst konunni minni, Laufeyju
dóttur hennar. Laufey bauð mér
síðla kvölds heim til foreldra
sinna. Ég var mjög kvíðinn og
vissi ekki við hverju ég mætti bú-
ast. Þegar ég kom að heimili for-
eldra hennar blasti við mér
glæsilegt einbýlishús í Hléskóg-
um 1, sem þau byggðu. Gengum
við inn um jarðhæðina. Kom ég
fyrst að sjónvarpsholi. Þar fyrir
voru Axel, bróðir Laufeyjar, og
Oddur faðir hennar. Báðir búnir
að vinna langan vinnudag. Ég
heilsaði með titrandi röddu og
fékk stutt og skýr svör til baka:
„Sæll, Oddur heiti ég,“ „sæll, Ax-
el heiti ég.“ Ég stóð síðan kyrr og
hálfvandræðalegur og vissi ekk-
ert hvað ég átti að gera, en þá
kom Bryndís Alma brosandi og
kynnti sig og sagði hlýlega:
„Komdu inn í eldhús og vertu vel-
kominn.“ Ísinn var brotinn. Mér
leið strax betur. Klukkan var
23.30 og mér til undrunar var
boðið upp á kaffi og kræsingar
sem hún hafði búið til. Allur kvíði
hvarf eins og dögg fyrir sólu. Ég
spurði hvert væri tilefnið. Hún
svaraði: „Við höfum alltaf kvöld-
kaffi og með því.“
Okkar kynni ná því 38 ár til
baka. Bryndís hefur verið okkur
hjónum ómetanlegur stuðningur.
Við hjónin vorum 10 ár í Svíþjóð
og eignuðumst fjögur af okkar
fimm börnum þar. Við þurftum
verulega á aðstoð að halda við
fæðingu barna okkar og kom hún
í hvert sinn til Svíþjóðar fyrir-
varalaust. Hún hjálpaði okkur
líka við ýmsar framkvæmdir sem
við höfum staðið í og sýndi
óhemju dugnað og þrautseigju.
Þreyta stoppaði hana ekki.
Ég minnist hennar af hlýhug.
Það eru forréttindi að hafa fengið
að kynnast Bryndísi, og notið
samveru hennar og aðstoðar.
Blessuð sé minning hennar.
Allir sem þér unnu þakkir gjalda
ástúð þinni handan blárra tjalda
opið standi óðdauðleikans svið.
Andinn mikli gefi þér sinn frið.
(Guðrún Jakobsdóttir)
Bogi.
Bryndís Alma
Brynjólfsdóttir
Atvinnuauglýsingar 569 1100
Viðkomandi þarf að hafa góða þekkingu og færni á hljóðfærin, vera fær í
mannlegum samskiptum og hafa ánægju af að vinnameð börnum. Þá þarf
viðkomandi að verametnaðarfullur, áreiðanlegur og áhugasamur.
Hægt er að búa til 100% stöðu fyrir fjölhæfan einstakling sem getur kennt
á nokkur hljóðfæri.
Skólinn hefur þrjár starfsstöðvar, á Skagaströnd, Blönduósi og Húnavöllum
og eru nemendur skólans um 100. Kennt er á öll helstu hljóðfæri og stór hluti
nemenda kemur á grunnskólatíma í kennslustundir. Um er að ræða stöðu
fyrir einn eða fleiri einstaklinga, það fer eftir þekkingu umsækjenda.
tonhun.is
Tónlistarskóli A-Húnavatnssýslu óskar eftir að ráða
kennara á tré- ogmálmblásturshljóðfæri, gítar, bassa og
slagverk frá september 2021
Tónlistarkennarar Hæfniskröfur: Tónlistarkennara-
menntun eða haldgóð tónlistar-
menntun sem nýtist í starfi.
Laun: Samkvæmt kjarasamningi Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga og FÍH.
Nánari upplýsingar:Hugrún Sif skóla-
stjóri skólans í síma 868 4925 eða hjá
tonhun@tonhun.is.
Umsóknarfrestur er til ogmeð 30.
apríl. Umsóknir og ferilskrár skilist á
tonhun@tonhun.is
Fjölbreytt tækifæri á Norðurlandi vestra
Raðauglýsingar
Tilkynningar
Mat á umhverfisáhrifum
Álit Skipulagsstofnunar
Allt að 2.500 tonna framleiðsla af laxi og laxa-
seiðum á ári í eldisstöð Laxa Eignarhalds-
félags ehf. við Laxabraut, Þorlákshöfn
Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum sam-
kvæmt lögum nr. 106/2000. Álitið liggur frammi hjá Skipulagsstofnun,
Borgartúni 7b, Reykjavík. Álitið og matsskýrslu Laxa Eignarhaldsfélags
er einnig að finna á vef stofnunarinnar www.skipulag.is.
Smáauglýsingar
Dýrahald
Snabbi innikisi týndur Snabbi er
2ja ára grábröndóttur fress sem hvarf
12.apríl í 105 Rvk. Ef þið sjáið hann
hringið í S 845-9795 (Heiða). SNABBI
IS LOST! IF SEEN CONTACT 8459795
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur.
Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Bílar
Toyota Verso Live. 5/2016
7 manna. Ekinn aðeins 80 þús km.
Sjálfskiptur. Kemur frá góðu heimili
og er með topp þjónusta sögu.
Verð 2.680.000,-
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 12–18 virka daga.
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur
Laga ryðbletti á
þökum og tek að
mér ýmis smærri
verkefni
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
með
morgun-
"&$#!%
✝
Egill Val-
geirsson fædd-
ist í Reykjavík 7.
maí 1996. Hann
varð bráðkvaddur á
heimili sínu 8. apríl
2021. Foreldrar
hans eru Þórunn
Sigurðardóttir og
Valgeir Ásgeirsson.
Bróðir hans er Sig-
urður, f. 16. júlí
1994, sambýliskona
hans er Sunna Björk Karlsdóttir.
Bróðir samfeðra er Valur Rafn,
sambýliskona hans er Díana
Björk Olsen.
Egill bjó á Kleppsvegi 36 í
Reykjavík til sex ára aldurs, þá
flutti hann til Hveragerðis. Hann
var við nám við
VMA á Akureyri og
FSU á Selfossi.
Hann var í
skátafélaginu
Stróki og var alltaf
mikill skáti.
Egill var mikill
dýravinur og hans
helstu áhugamál
voru mannkynssaga
og lestur bóka.
Útför Egils fer
fram frá Hveragerðiskirkju í
dag, 20. apríl 2021, klukkan 13.
Útförinni verður streymt á
https://promynd.is/egill
Hlekk á streymi má einnig
finna á:
https://www.mbl.is/andlat
Elsku bróðir, mágur og
frændi.
Verndarenglunum okkar
fjölgaði daginn sem þú kvaddir
okkur.
Erfitt er að útskýra fyrir
litlum dreng, bróðursyni þínum,
en við vitum að Egill okkar er
kominn til himna og passar okk-
ur þar.
Þú fallegi góði drengur, alltaf
varstu að hugsa um þá sem voru
í kringum þig.
Minningarnar okkar verða
ávallt vel geymdar perlur.
Sofðu rótt góði drengur, þú
verður okkur alltaf við hlið.
Sjáumst seinna, við sendum ást
og yl.
Sigurður Valgeirsson,
Sunna Björk Karlsdóttir
og Adam Ingi Sigurðsson.
Egill Valgeirsson
Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn-
arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Minningargreinar