Morgunblaðið - 20.04.2021, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2021
70 ára Ólafur fæddist
í Borgarnesi en ólst
upp í Reykjavík og býr
í Hólahverfi í Breið-
holti. Hann er með BA-
próf í íslensku og
sagnfræði frá HÍ. Ólaf-
ur var kennari í Lauga-
skóla í Dalasýslu 1976-83 og íslensku-
kennari í Fjölbrautaskólanum við Ármúla
1985-2018.
Maki: Guðlaug Björg Björnsdóttir, f.
1950, lyfjafræðingur hjá Lyfjastofnun.
Stjúpdóttir: Áslaug Helgadóttir, f. 1970,
hún á fjögur börn.
Foreldrar: Jón Benediktsson, f. 1923, d.
2019, símsmiður, og Kristólína Ólafs-
dóttir, f. 1930, fv. iðnverkakona, búsett í
Reykjavík.
Ólafur Hjörtur
Jónsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þú hefur verið of góð/ur við
sjálfa/n þig því þú átt erfitt með að ná upp
afköstum eftir fríið. Finndu út hvað það er
sem þú virkilega vilt.
20. apríl - 20. maí +
Naut Loksins er allt komið í þann farveg
sem þú vildir og þú sérð árangur erfiðis
þíns. Styrkur þinn mun leiða þig áfram og
ryðja öllum hindrunum úr vegi.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Þú hefur alveg burði til þess að
ráða fram úr erfiðu dæmi sem þér verður
falið í dag. Talaðu beint frá hjartanu.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Það er kominn tími til að slaka á og
hafðu engar áhyggjur því heimurinn ferst
ekki rétt á meðan. Ósætti brýst upp á yfir-
borðið, en það stendur stutt.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Það er alltaf gaman að koma öðrum
skemmtilega á óvart. Taktu þér góðan tíma
til að slaka á. Heilsan skiptir máli.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Gættu þess að tala tæpitungulaust
svo enginn þurfi að fara í grafgötur um
hvað það er sem þú vilt. Líttu í kringum þig
og sjáðu hvað lífið er í raun dásamlegt og
gaman að taka þátt í því.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú
eyðir peningum í dag. Láttu söguna kenna
þér, þú þarft ekki að finna upp hjólið.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Varastu að taka allt trúanlegt
sem þér er sagt um aðra. Hugsaðu þig
tvisvar um áður en þú skellir hjartanu í lás.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Ágreiningur milli þín og ann-
arrar manneskju gæti breyst í alvarlegar
deilur í dag. Skrifaðu, málaðu, syngdu, allt
eftir þínu höfði, og þú munt yngjast um
mörg ár!
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þú færð hverja hugmyndina á
fætur annarri en gengur illa að gera þær
allar að raunveruleika. Nú þarftu að bretta
upp ermar og skella þér í vorverkin í garð-
inum.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þú færð tækifæri til að auka við
menntun þína. Stökktu á það. Gakktu þó
ekki fram af þér.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Vertu raunsær í peningamálum og
láttu ekki freistast til þess að slaka á
klónni. Þú þráir ævintýri í líf þitt og það
bíður handan hornsins.
kláraði þar sérnámið í heimilislækn-
ingum. Hann var þar yfirlæknir við
Heilbrigðisstofnun Suðausturlands
1998-2004. „Það var mjög skemmti-
legur en einnig krefjandi tími.
Hornafjörður var þá reynslusveit-
arfélag þannig að stjórnun og skipu-
lag heilbrigðisþjónustunnar var með
meira sjálfstæði en víðast annars
staðar og var gaman að taka þátt í
því uppbyggingarstarfi sem þá átti
sér stað. Hornfirðingar voru og eru
með eindæmum gestrisnir og taka
aðkomufólki vel og eftir veru okkar
þar þá teljum við fjölskyldan okkur
vera hálfgildings Hornfirðinga og
eignuðumst við þar góða vini.
Hornafjörður er sérlega fallegur
staður og víðfeðmt læknishérað, m.a.
fór maður reglulega í læknisvisitasíu
á heilsugæsluselið á Hofi í Öræfum
en þangað eru 100 km frá Hornafirði.
Eins fór maður marga eftirminnilega
björgunarleiðangra á Vatnajökul og í
fjölmargar sjúkraflugsferðir áður en
komið var á formlegri læknamönnun
í sjúkraflugi frá FSA á Akureyri.
Maður lenti ósjaldan í því að stökkva
í útkall og komast ekki aftur heim til
sín fyrr en eftir einn og allt að þrjá
sólarhringa.“
Eftir 10 ár á Hornafirði fluttist
fjölskyldan aftur til Reykjavíkur á
vormánuðum 2004 þar sem Baldur
starfaði sem heimilislæknir við
Landhelgisgæslunnar, sem er eftir-
minnilegur tími. Ég var smá tíma
köfunarlæknir á eyju í Miðjarðarhaf-
inu og er það eina læknisstarfið sem
ég hef stundað sem ekki var er-
ilsamt.“ Baldur var um tíma mikið að
spá í sérnám í bráðalækningum eða í
handarskurðlækningum enda starf-
aði hann mikið á slysadeildinni á
þessum árum. „Ég hneigðist þó að
lokum að heimilislækningum og sér-
lega eftir að hafa kynnst því að starfa
sem landsbyggðarlæknir.“
Baldur byrjaði snemma á ferlinum
sem afleysingalæknir á Höfn í
Hornafirði og líkaði þar mjög vel og
fékk fasta stöðu þar í júní 1995 og
B
aldur Pétur Thorstensen
fæddist 20. apríl 1961 í
Reykjavík og ólst upp í
Stigahlíð 16 við ástríkt
uppeldi. „Hlíðarnar
voru barnmargt og fjörugt hverfi. Ég
var Valsari eins og sæma þótti í
Hlíðahverfinu og hef síðan haldið
með rauðum liðum eins og Sindra á
Hornafirði og Liverpool. Ég bjó að
því að komast snemma í sveit og var
tíu sumur á Barði í Miðfirði hjá syst-
ur minni Evu og manni hennar heitn-
um, Böðvari Sigvaldasyni, sem var
mikill höfðingi. Ég fékk þar gott at-
læti og mikla reynslu sem ég hefði
ekki fyrir nokkurn mun viljað missa
af.“ Eftir 16 ára aldurinn starfaði
Baldur mörg sumur við ýmis störf
hjá BP (sem síðan varð OLÍS) í
Laugarnesi og fyrstu háskólaárin
starfaði hann á sumrin hjá Plast-
prenti.
Baldur gekk í Hlíðaskóla og síðan í
Menntaskólann við Hamrahlíð og út-
skrifaðist þaðan sem stúdent frá
náttúrufræðibraut 1982. „Eftir
menntaskóla var ég mjög tvístígandi
um hvort fyrir valinu yrði jarðfræði
eða læknisfræði og tók ákvörðun
nánast á tröppunum á HÍ á innskrift-
ardegi að velja læknisfræðina og hef
ekki séð eftir því þótt jarðfræðin
hefði eflaust einnig orðið spennandi.“
Hann útskrifaðist sem cand.med. frá
Háskóla Íslands 30.6. 1990 og hlaut
almennt lækningaleyfi 4.12. 1991 og
sérfræðingsleyfi í heimilislækningum
6.4. 1998.
Starfsferillinn
Baldur starfaði á náms- og kandi-
datstímanum á ýmsum sjúkrastofn-
unum og víða úti á landi. Eftir að
lækningaleyfi var komið starfaði
hann mest á Borgarspítalanum sem
síðar varð að Sjúkrahúsi Reykjavíkur
og tók þar stóran hluta sérfræði-
námsins. „Á þeim árum var skemmti-
legur rígur á milli hinna þriggja
sjúkrahúsa í Reykjavík sem voru
Landspítalinn, Borgarspítalinn og
Landakot. Ég var semsagt „Bogga-
maður“ en líkaði þó einnig mjög vel á
Landspítalanum. Hlaut góða reynslu
á hinum ýmsu deildum þar og var
m.a. um tíma læknir í þyrlusveit
heilsugæsluna í Grafarvogi næstu 10
árin eða fram til 2014 að hann gerðist
heimilislæknir við heilsugæsluna í
Salahverfi. „Hvorir tveggja mjög
góðir vinnustaðir og starfsandinn á
Salastöðinni er með eindæmum góð-
ur.“ Jafnframt þeim störfum hefur
Baldur starfað sem læknir á Lækna-
vaktinni sem nú er í Austurveri og á
Læknavaktarbílnum og auk þess
sem læknir á hjúkrunarheimilinu
Eir. „Eitthvað hefur maður komið
nálægt félagsstörfum þessu viðkom-
andi og var um tíma í stjórn Félags
íslenskra heimilislækna og auk þess
innifelur starfið í sér heilmikla
kennslu og þróunarstörf.“
Áhugamálin
Áhugamál Baldurs hafa verið t.d.
að fara á tónleika, útivist, veiði og
ferðalög innanlands sem utan. „Ég
komst á bæði EM í Frakklandi með
syni mínum og á HM í Moskvu með
eiginkonunni og eru það eftirminni-
legar ferðir. Á Hornafjarðarárunum
vorum við í skemmtilegum ferðahóp
sem fór í margar skemmtilegar reis-
ur um landið með sína ferðavagna og
fjör og eins stunduðum við áður ferð-
ir á breyttum jeppa upp á Vatnajökul
og víðar. Þær eru orðnar ótal hring-
ferðirnar um landið og eins höfum við
farið víða um hálendið. Um tíma vor-
um við í golfinu en höfum lítið sinnt
því vegna anna síðustu árin en mögu-
lega verður gerð bragarbót á því þar
sem við erum nú komin með sum-
arbústað á Flúðum. Það er mikill
sælureitur og í röltfæri við golfvöllinn
þar. Við dveljum þar eins oft og við
getum og ekki síður að vetri en
sumri.
Við fjölskyldan reynum samt að
fara sem mest í ferðalög innanlands á
sumrin með okkar ferðavagn og
reynum helst ekki að ferðast erlendis
yfir stutta sumarið okkar. Ómissandi
eru árlegar Veiðivatnaferðir með
kærum kollegum mínum. Þá iðka ég
badminton tvisvar í viku eða með
skemmtilegum félagsskap sem
nefndur er Hrollaugur í höfuðið á
landnámsmanni Hornfirðinga. Covid
hefur náttúrlega sett sitt mark á allt
þetta og ekki síður á vinnuna mína en
öllu má aðlagast.“
Baldur P. Thorstensen heimilislæknir – 60 ára
Hjónin Baldur og Halldóra stödd við Arnarstapa á Snæfellsnesi.
Hornafjarðarárin eftirminnileg
Að Fjallabaki Gengið í Jökulgili.
30 ára Lilja fæddist í
Reykjavík og ólst þar
upp og í Stykkishólmi.
Hún býr í Bökkunum í
Breiðholti. Lilja er óp-
erusöngkona frá Tón-
listarskólanum í
Reykjavík, með BA-
próf í þýsku og þýðingarfræði frá HÍ og er
meistaranemi í kennslufræði við HÍ. Lilja
vinnur í leikskólanum Regnboganum og er
í Kór Íslensku óperunnar.
Maki: Babacar Gueye, f. 1972 í Senegal,
lærði lögfræði og endurskoðun.
Stjúpsonur: Franklin Amadou, f. 2018.
Foreldrar: Hólmfríður Friðjónsdóttir, f.
1964, kennari við Fjölbrautaskóla Snæfell-
inga, söngkona og kórstjóri, og Walter Rie-
del, f. 1960, d. 2018, kokkur í Þýskalandi.
Lilja Margrét
Riedel
Til hamingju með daginn
Hafnarfjörður Nói Guðmunds-
son fæddist 24. maí 2020 kl.
20.50. Hann vó 3.405 g og var 51
cm langur. Foreldrar hans eru
Guðmundur Helgason og Yrsa
Stelludóttir.
Nýr borgari