Morgunblaðið - 20.04.2021, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 20.04.2021, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2021 DANMÖRK Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is „Ringköping sýndu mér fyrst áhuga í desember á síðasta ári þegar þeir settu sig í samband við umboðsmann minn,“ sagði hin 24 ára gamla Elín Jóna Þorsteinsdóttir, landsliðs- markvörður Íslands í handknattleik, í samtali við Morgunblaðið. Elín Jóna mun leika með Ringköp- ing í dönsku úrvalsdeildinni í hand- knattleik á komandi leiktíð eftir þrjú ár í herbúðum Vendsyssel en Vend- syssel féll úr dönsku úrvalsdeildinni á dögunum. „Ég var lítið að pæla í einhverjum félagsskiptum á þessum tímapunkti enda var ég eingöngu að einbeita mér að því að hjálpa Vendsyssel að halda sæti sínu í deildinni. Þegar það varð ljóst að við værum fallin úr deildinni fór af stað ákveðið ferli milli umboðsmanns míns og Ringköping. Þegar Ringköping tryggði sér svo sæti í dönsku úrvals- deildinni var samkomulagið svo gott sem í höfn,“ bætti Elín við. Á ýmislegt eftir Elín var eftirsótt af öðrum liðum þegar ljóst varð að hún myndi yf- irgefa Vendsyssel. „Það voru nokkur lið á Íslandi sem settu sig í samband við mig og vildu forvitnast um það hvort ég væri mögulega á heimleið. Eins voru lið í öðrum löndum sem settu sig í sam- band við mig en þegar öllu er á botn- inn hvolft þá var ég ekki tilbúin að koma heim til Íslands. Mér líður ótrúlega vel í Danmörku og það hefur verið virkilega gaman að spila í dönsku úrvalsdeildinni. Kórónuveirufaraldurinn hefur sett stórt strik í reikninginn hérna í Dan- mörku og mér finnst ég ekki hafa náð að upplifa allt það sem danska úrvalsdeildin hefur upp á að bjóða. Ég var orðin virkilega spennt fyrir því að spila í þessu umhverfi fyrir framan fullt af áhorfendum en vegna faraldursins hefur verið áhorf- endabann í Danmörku. Ég á þess vegna ýmislegt eftir hérna.“ Lærdómsríkur tími Markvörðurinn gekk til liðs við Vendsyssel frá Haukum sumarið 2018, þá 22 ára gömul. „Ég átti frábæra tíma hjá Vend- syssel og liðið er auðvitað bara í dönsku B-deildinni þegar ég fer fyrst út árið 2018. Það var mikið um breytingar á meðan ég var þarna og ég var með nokkra þjálfara sem dæmi. Það var fullt af stelpum sem komu og fóru en ég ákvað að framlengja samning minn við félagið í fyrra því liðið var á leið í dönsku úrvalsdeild- ina. Ég er gríðarlega þakklát félag- inu fyrir allt sem það gerði fyrir mig á þremur árum og ég lærði mjög mikið á tíma mínum þar. Það kom til greina að vera áfram hjá félaginu og þau vildu halda mér. Á sama tíma skildu þau það vel að ég vildi spila áfram í dönsku úrvals- deildinni.“ Áskorun í Danmörku Markvörðurinn ætlar sér stóra hluti en ítrekar að hún sé alsæl í Danmörku. „Markmiðin mín eru fyrst og fremst að halda áfram að bæta mig í handbolta, spila í sterkri deild og við sterkustu liðin. Mér finnst Danmörk og deildarkeppnin hérna gríðarlega heillandi. Ég fíla bæði stemninguna, handboltann, leikmennina og leik- stílinn hérna og eins og staðan er í dag þá er ég ekki að horfa eitthvað út fyrir Danmörku heldur meira þá á að spila fyrir sterkustu liðin í land- inu. Það er mikil áskorun að spila hérna, leikmennirnir eru frábærir og flestir landsliðsmenn hjá sínum þjóð- um. Hraðinn í leikjunum er mikill og tilfinningin þegar maður ver boltann er algjörlega geggjuð, nánast ólýs- anleg. Ég sanna það fyrir sjálfri mér í hvert einasta skipti sem ég ver skot að ég geti vel spilað hérna og það er svo magnað eitthvað. Ég held að ein af ástæðum þess að mér gekk alltaf betur og betur, eftir því sem leið á tímabilið, var bara þessi tilfinning sem fylgdi því að verja frá öllum þessum frábæru leik- mönnum. Það eru líka margir frá- bærir markmenn í þessari deild sem ég lít mikið upp til og það er frábært að fá tækifæri til þess að vera í sama umhverfi og þær,“ bætti Elín Jóna við í samtali við Morgunblaðið. Ólýsanleg tilfinning - Landsliðsmarkvörðurinn Elín Jóna Þorsteinsdóttir samdi við Ringköping - Hefur ekki náð að upplifa allt sem danska úrvalsdeildin hefur upp á að bjóða Ljósmynd/Robert Spasovski Landsliðið Elín Jóna Þorsteinsdóttir átti góðan leik gegn Slóveníu í Lju- bljana á laugardaginn þar sem hún varði tólf skot í marki Íslands. Eins og staðan er í dag er ég í kringum 120. sætið á heimslist- anum en ég þarf að komast á mót til þess að fá stig og hækka mig á list- anum. Því miður er lítið af mótum í gangi þessa dagana vegna kórónu- veirufaraldursins og ég hef bara farið á eitt mót á árinu til þessa sem er ekki mikið. Það hefur verið draumur síðan ég var lítill strákur að komast á Ól- ympíuleikana og vonandi getur maður horft til baka einn daginn stoltur af því að hafa tekið þátt í Ól- ympíuleikunum,“ sagði Marinó. „Þú þarft að vera í þrjátíu efstu sætum heimslistans til þess að kom- ast inn á Ólympíuleikana eins og staðan er í dag,“ sagði Marinó Kristjánsson, landsliðsmaður Ís- lands í snjóbrettum, í Dagmálum, frétta- og menningarlífsþætti Morgunblaðsins. Marinó var sex ára gamall þegar hann byrjaði að æfa fimleika en tíu ára gamall sneri hann sér alfarið að snjóbrettaíþróttinni. Þá varð hann fyrsti Íslending- urinn til þess að taka þátt á HM í snjóbrettum í Aspen í Bandaríkj- unum í síðasta mánuði en hann er einugis tvítugur. „Ísland gæti líka fengið úthlutað kvóta fyrir sæti í snjóbrettakeppn- unum á Ólympíuleikunum 2022 í Peking þannig að það er alltaf möguleiki. Lengi dreymt um Ólympíuleikana Ljósmynd/SKÍ HM Marinó tók þátt á HM í Aspen í Bandaríkjunum fyrir hönd Íslands. Leeds og Liverpool skildu jöfn, 1:1, á Elland Road í ensku úrvalsdeild- inni í knattspyrnu í gærkvöldi. Liv- erpool er í sjötta sæti deildarinnar með 53 stig og Leeds í tíunda sæti með 46 stig. Segja má að úrslitin hafi verið vatn á myllu liðanna þriggja sem eru rétt fyrir ofan Liverpool: Leic- ester City, West Ham United og Chelsea. Úr því sem komið er verð- ur barátta þessara liða um 3. og 4. sæti mjög áhugaverð. Til þessa hef- ur þótt mikilvægt að tryggja sér sæti í Evrópukeppni. Hvernig það verður í þetta skiptið er erfitt að segja til um að svo stöddu. Liver- pool og West Ham eiga sex leiki eft- ir en Leicester og Chelsea sjö leiki. Sadio Mané skoraði fyrra mark leiksins á 31. mínútu eftir góðan undirbúning frá Trent Alexander- Arnold og reyndist það eina mark fyrri hálfleiks. Spænski varnarmaðurinn Diego Llorente jafnaði með föstum skalla eftir hornspyrnu frá Jack Harrison á 87. mínútu. sport@mbl.is AFP 1:1 Diego Llorente fyrir miðju fagnar hér jöfnunarmarki sínu í gær. Liverpool fékk eitt stig á Elland Road Kannski verða tilburðirnir sem nú eru uppi við að stofna svokallaða „ofurdeild“ (hér eftir skrifuð með litlum staf og innan gæsalappa) það besta sem hefur hent fótboltann sem íþrótt í langan tíma. Þegar tólf risar á brauðfótum ætla að reyna að bjarga eigin skinni eftir gegndarlaust tap vegna kórónuveirunnar undan- farna tólf mánuði með því að sölsa meginþorra sjónvarps- tekna af íþróttinni til sín eru góð- ar líkur á því að hinn almenni áhorfandi, á velli sem í sjónvarpi, segi: Hingað og ekki lengra. Fótboltinn getur svo auð- veldlega þrifist og átt bjarta framtíð án þessara tólf sjóræn- ingjafélaga. Þau geta hins vegar ekki þrifist án fótboltans. Knattspyrnuforystan í Evrópu þarf að standa í lappirnar næstu daga og vikur, ásamt knattspyrnusamböndunum í stærstu ríkjum Evrópu, og sam- einast um að kæfa þessa „ofur- deildartilburði“ í fæðingu. Og senda félögin tólf út í kuldann ef þau ætla að þráast við að halda fyrirætlunum sínum til streitu. Fótboltinn hefur sem íþrótt verið á rangri leið í mörg ár. Eftir að viðskiptajöfrar í Bandaríkj- unum og við Persaflóann fóru að kaupa stóru félögin á Englandi og víðar í Evrópu og dæla í þau peningum hefur íþróttin fjar- lægst upprunann jafnt og þétt. Núna er tækifæri til að snúa dæminu aðeins við. Vinda ofan af vitleysunni og færa fótboltann nær rótum sínum. Nær fólkinu á götunni, fólkinu sem kemst ekki lengur á völlinn vegna þess að það er of dýrt. Ég er ánægður með stóru félögin í Þýskalandi, Frakklandi og Portúgal sem vilja ekki vera með í þessum skrípaleik þar sem allt snýst um peninga og ekki er lengur hugsað um „áhorfendur“, heldur „neytendur“. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Eitt ogannað _ Enska félagið Tottenham Hotspur rak í gær knattspyrnustjórann José Mourinho en hann hafði stjórnað lið- inu í sautján mánuði. Tottenham er í 7. sæti úrvalsdeildarinnar og var slegið út í 16 liða úrslitum Evrópudeild- arinnar en á að mæta Manchester City í úrslitaleik enska deildabikarsins um næstu helgi. Julian Nagelsmann hjá RB Leipzig, Brendan Rodgers hjá Leic- ester og Scott Parker hjá Fulham hafa verið orðaðir við starfið en Ryan Ma- son stýrir liðinu fyrst um sinn _ Guðmundur Þ. Guðmundsson, landsliðsþjálfari karla í handknattleik, hefur valið átján leikmenn fyrir leikina þrjá í undankeppni EM í lok apríl og byrjun maí. Hópinn er að finna á mbl.is/sport/handbolti. _ Íþróttasamband fatlaðra mun senda fimm fulltrúa á Evrópumeist- aramót IPC í frjálsum íþróttum 1.-5. júní næstkomandi. Mótið fer fram í Póllandi. Fulltrúar Íslands verða: Pat- rekur Andrés Axelsson og Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir úr FH, Ingeborg Eide Garðarsdóttir og Hulda Sigur- jónsdóttir úr Ármanni og Stefanía Da- ney Guðmundsdóttir úr Eik.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.