Morgunblaðið - 20.04.2021, Page 28

Morgunblaðið - 20.04.2021, Page 28
Ljósmynd/Sigurður Stefán Jónsson Þrymskviða Donna Cruz og Blær Jóhannes- dóttir leikkonur í hlutverkum sínum. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Við ætlum að minnast þessa merka dags, að fyrir nákvæmlega fimmtíu árum, 21. apríl 1971, komu fyrstu handritin aftur heim frá Danmörku til Íslands. Í fyrsta kassanum var Konungsbók eddukvæða, sem má segja að sé flottasta bókin, því í henni er efni sem er hvergi annars staðar að finna. Á hátíðinni ætlum við að kynna þennan dýrgrip fyrir grunnskólanemum og þann fjársjóð sem við eigum öll saman í þessum handritum,“ segir Ólafur Egill Egilsson en hann er handrits- höfundur og leikstjóri handritaheimkomuhá- tíðar sem haldin verður í Hörpu á morgun, miðvikudag. Verkefni Ólafs Egils er að miðla efni þessarar dýrustu bókar landsins til grunnskólanema og munu ýmsir listamenn og skemmtikraftar taka höndum saman um það á hátíðinni. Dagskráin verður á RÚV og henni verður streymt til allra grunnskóla á landinu kl. 10 á morgun. Þegar Ólafur Egill er spurður að því hvort börn séu opin fyrir þessu efni, segir hann að vissulega séu sennilega fáir krakkar að rýna í handritin sjálf, en að þau þekki í ýmsum myndum það efni sem sprettur upp úr bók- inni eða eru endursagnir á þessum gömlu sögum. „Til dæmis úr bíómyndum eins og The Avengers og fleiri slíkum, líka úr tölvu- leikjum, teiknimyndinni um Þór og svo mætti lengi telja. Þetta er heill heimur og hann lifir góðu lífi í dag, hann hefur gengið í endurnýj- un lífdaga með ýmsum formerkjum. Við ákváðum að setja saman dagskrá sem fjallar um hinar ýmsu birtingarmyndir þessa arfs okkar í dag eins og hann birtist krökkum, frekar en nákvæmlega það sem stendur í gömlu handritunum, þó við förum auðvitað líka í það.“ Þór í kjól til að endurheimta hamar Ólafur Egill segist vera með einvalalið með sér til að gera hátíðina skemmtilega. „Ég valdi fólk út frá aldri þeirra sem eiga að njóta efnisins, þetta er listafólk sem markhópurinn ætti að þekkja vel. Steiney Skúladóttir, uppistandari og allrahanda skemmtikraftur, heldur utan um dagskrána og er sögumaður og þarna koma fram mið- aldafréttamennirnir sem krakkarnir þekkja, Snorri Másson og Jakob Birgisson. Við feng- um líka til liðs við okkur Beggu og Mikka, sem gera Krakkaskaupið frábæra, og tónlist- arkonan unga, Gugusar, flytur nýtt lag sem hún samdi upp úr Völuspá. Donna Cruz og Blær Jóhannsdóttir eru líka með í hópnum, báðar frábærar leikkonur.“ Ólafur Egill segir að Steiney, Mikki og Begga, ásamt Donnu Cruz, ætli að leika Þrymskviðu. „Þar segir frá því þegar Þór fer í kjól til að endurheimta hamarinn sinn úr Jötun- heimum, en í þeirri sögu er frábær boð- skapur um að til dæmis sé yfirleitt betra að vera tilbúin/n til að prófa eitthvað nýtt. Stundum getur það reddað málunum að ein- hver skelli sér í kjól eða umbreyti sér með öðrum hætti, endurskoði sig. Þetta er líka um það að hver og einn þarf að bera ábyrgð á sínum hlutum, til dæmis hamrinum sínum og því að endurheimta hann. Sagan er einnig áminning um að það er ekki sniðugt að skipta á manneskju og hlut, eða ástargyðju, en það stendur til að skipta á Freyju og hamrinum, en það mansal er reyndar stopp- að af.“ Stundum þarf að berja í borðið Þegar Ólafur Egill er spurður að því hvort eitthvað af þessu efni sé mögulega vafasamt fyrir börn, til dæmis senan með Loka þar sem guðirnir pissa hver á annan, segir hann að það sé einmitt eitt af því sem sé svo skemmtilegt við þennan hugmyndaheim, að hann sé ekki pólitískt réttur. „Kjarninn í þessum sögum er þó alltaf sammannlegur, það er það sem skiptir máli, burtséð frá tíma og ólíkum siðvenjum, og hann lifir. Þessi sena með Loka fjallar um það að stundum þarf að berja í borðið og segja hlutina eins og þeir eru, jafnvel þó um sé að ræða guði eða merkilegt fólk, enginn er yfir það hafinn að þurfa stundum að fá orð í eyra og heyra gagnrýni. Loki er mikill hrekkjalómur, hann er að stríða og fer kannski fram úr sér þarna í lokasennu, en um leið er kannski einhver sannleiksbroddur í því sem hann er að segja. Krakkar tengja ágætlega við slíka persónu sem eitthvert fútt er í.“ Ímyndunarafl gott á tímum ragnaraka Eitt af atriðum hátíðarinnar felst í því að Steiney spjallar við allskonar fólk um tengsl þess við norrænu gömlu guðina og þeirra ótrúlegu ævintýri. Meðal annars talar hún við Ævar vísindamann, Kára í Íslenskri erfðagreiningu, Vigdísi forseta, Bassa Maraji og fleiri. „Við þekkjum öll þennan sagnaheim og getum sótt í þessar gömlu sögur kraft og innblástur, þó við séum ekki að hugsa um hann á hverjum degi. Þetta er partur af því hver við erum, leynt og ljóst, og hvaðan við komum, og þetta er lifandi menningararfur, með einum eða öðrum hætti. Ég held að við höfum náð að setja saman lifandi og skemmtilega dagskrá, sem líka minnir krakkana á að við eigum öll saman þennan arf og það er um að gera að láta þessar sög- ur örva ímyndunaraflið til sköpunar, sem er ekki lítils vert á þessum tímum. Ekki veitir af til dæmis að geta ímyndað sér að hlutirnir geti orðið skemmtilegri og betri heldur en þeir eru akkúrat þessa stundina, þegar ham- farir og heimsfaraldrar og önnur ámóta ragnarök dynja yfir.“ Heill heimur sem lifir góðu lífi í dag - Ólafur Egill Egilsson leikstýrir handritaheimkomuhátíð sem haldin verður í Hörpu á morgun - Tónlistarkonan unga, Gugusar, flytur á hátíðinni nýtt lag sem hún samdi upp úr Völuspá Morgunblaðið/Eggert Leikstjórinn „Kjarninn í þessum sögum er þó alltaf sammannlegur, það er það sem skiptir máli, burtséð frá tíma og ólíkum siðvenjum, og hann lifir,“ segir Ólafur Egill Egilsson. 28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2021 Flestum viðburðum sem áttu að vera á hinni árlegu hátíð Myrkum músíkdögum í vikunni hefur verið aflýst vegna veirufaraldursins. Tveir viðburðir verða þó og sá fyrri, málþing um bandaríska tón- skáldið Anthony Braxton, verður haldið í dag kl. 18 og því streymt á Facebook. Er málþingið á vegum Myrkra músíkdaga, International Contemporary Ensemble og Listaháskóla Íslands en á morgun, 21. apríl, verða síðan haldnir tón- leikar í streymi með International Contemporary Ensemble & Skerplu Ensemble ásamt gestum þar sem flutt verða verk eftir Braxton auk þess sem frumflutt verður nýtt verk eftir Bergrúnu Snæbjörnsdóttur. Þátttakendur á málþinginu um verk Braxtons eru flautuleikarinn Berglind María Tómasdóttir, saxó- fónleikarinn Darius Jones, hljóð- listakonan Fay Victor, fiðluleik- arinn Josh Modney, stjórnandinn James Fei og slagverksleikarinn og listræni stjórnandinn Ross Karre, ásamt meðlimum International Contemporary Ensemble. Mál- þingið verður í streymi á facebook- síðu Myrkra músíkdaga og heima- síðu hátíðarinnar. Anthony Braxton (f. 1945) er frá Chicago og þykir hafa verið eitt af byltingarkenndustu tónskáldum síðustu hálfrar aldar og fjölbreyti- leiki verka hans sagður eiga sér nær enga hliðstæðu í samtíma- tónlist. Hefur hann leitt fjölda hópa og verkefna sem talin hafa verið leiðandi í tónlistarnýsköpun. Hann er sagður afar vel metinn í tilraunatónlistarsamfélaginu fyrir byltingarkennd gæði í verkum sín- um og fyrir leiðbeiningar og inn- blástur sem hann hefur veitt kyn- slóðum yngri tónlistarmanna. Braxton var undir ólíkum áhrifum allt frá John Coltrane til Karlheinz Stockhausen en hefur búið til ein- stakt tónlistarkerfi og afar fjöl- breytileg verk. Fjallað um Anthony Braxton á málþingi Tónskáldið Málþingið um Braxton í dag er á Myrkum músíkdögum. 78% landsmanna á degi hverjum ... ... og rúmlega 92% vikulega. * Vissir þú að miðlar Árvakurs ná til um * G a llu p Te lm a r 4 Q 2 0 2 0 ÁRVAKUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.