Morgunblaðið - 20.04.2021, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
FRANCESMcDORMAND
MYND EFTIR CHLOÉ ZHAO
PEOPLE’S CHOICE AWARD
TORONTO FILM FESTIVAL
SIGURVERARI
GOLDEN LION BEST FILM
VENICE FILM FESTIVAL
SIGURVERARI
EVENING STANDARD
THE GUARDIAN
TOTAL FILM
THE DAILY TELEGRAPH
TIME OUT
EMPIRE
BESTA MYNDIN
BESTALEIKONAN ÍAÐALHLUTERKI
Frances McDormand
BESTI LEIKSTJÓRI
Chloé Zhao
6
ÓSKARS
TILNEFNINGAR
MEÐAL ANNARS
®
94%
96%
99%BESTA MYNDIN Sýnd með íSlenSku og enSku tali
94%
Vinsælasta mynd ársins í bíó á Heimsvísu!
Stórmynd sem allir verða að sjá í bíó.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Eins og þeir vita sem reynt hafa er
bæði róandi og gott að gleyma sér
yfir góðu púsluspili. Einn þeirra er
tónlistarmaðurinn Andri Ásgrímsson
sem gaf í febrúar út breiðskífu með
skemmtilegum titli, Tónlist til að
púsla við eða Jigsaw Puzzle Music
eins og hún heitir á ensku. Plötuna
má finna bæði á Spotify og vef Band-
camp og var hún einnig gefin út í tak-
mörkuðu upplagi á vínil.
Andri hefur bæði starfað sem sóló-
listamaður og með hljómsveitunum
Leaves og Náttfara auk þess að fara
fyrir eigin sveit, Rifi. Með henni gaf
hann út plötuna Yfir djúpin dagur
skín árið 2017 þar sem hann söng auk
þess að leika á gítar og semja öll lög
en fyrsta sólóplatan kom út sjö árum
fyrr, árið 2010, og nefndist sú Orr-
ustan við Esjuna og var án söngs.
Tónlist til að púsla við er nokkuð
frábrugðin fyrri plötum Andra, eins
og segir í tilkynningu, og segir þar
ennfremur að lagt hafi verið upp með
að gera þægilega, kósí plötu sem
hægt væri að sofna við í síðdegis-
blundinum eða púsla við á kvöldin.
Grípandi titill
„Ég hef dálítið verið í því undan-
farin tvö ár, hef fundið dálitla hug-
leiðslu í púslinu,“ segir Andri þegar
hann er spurður hvort hann púsli
mikið. „Ég datt inn á þennan titil
fyrst í hálfgerðu gríni en fannst hann
svo grípandi.“
Andri er spurður að því hvað hann
hafi lagt upp með við gerð plötunnar
og segir hann pælinguna hafa verið
að gera kósí plötu, þægilega og með
litlu áreiti. „Mig hefur alltaf langað til
að fá djassaðan fíling þannig að hann
var inni í konseptinu líka og kontra-
bassa og Magnús,“ segir Andri og á
þar við trymbilinn góða Magnús
Trygvason Eliassen. Freysteinn
Gíslason sá um kontrabassaleikinn og
Arnljótur Sigurðsson lék listir sínar á
þverflautu.
Djassinn er eitthvað alveg nýtt fyr-
ir Andra sem segist alltaf hafa kunn-
að að meta djass en aldrei farið alla
leið. „Ég spilaði bara eins og ég spila
og fékk aðallega djassinn frá hinum,“
segir Andri um upptökurnar á plöt-
unni en hann er höfundur allra laga
og leikur á Martin D-17m-gítar og
Kawai K300-píanó. Arnar Guðjóns-
son, félagi Andra úr Leaves, sá um
hljóðblöndun og eftirvinnsla var í
höndum Emils Ásgrímssonar.
Hófst rétt fyrir Covid
Um tímann sem tók að gera plöt-
una, semja lögin og taka upp, segir
Andri að hann hafi ekki verið langur.
Vinnan hafi byrjað rétt fyrir Covid og
henni lokið í fyrrahaust.
Andri er að lokum beðinn að setja
sig í spor gagnrýnanda og gagnrýna
eigin plötu. Hvað myndi hann segja
um hana væri hann gagnrýnandi?
„Ég myndi segja að hún væri mjög
þægileg og fín plata að hlusta á,
skemmtilegir „díteilar“ á henni. Hún
er djassskotin og svo er flott hljóm-
borðssánd, gítarleikurinn í forgrunni
og píanó. Þetta er náttúrlega bara
fimm stjörnur,“ svarar hann kíminn.
Hugleiðsla í púslinu
- Andri Ásgrímsson sendir frá sér Tónlist til að púsla við
- Djassstemning og lítið áreiti á þægilegri hljómplötu
Ljósmynd/Dóra Dúna
Hugarró Andri Ásgrímsson segist hafa fundið hugarró í púsluspilum og hef-
ur nú gefið út breiðskífu sem fer vel við þá róandi tómstundaiðju.
Zuhaitz Akizu, forstöðumaður Tækniminjasafnsins á
Seyðisfirði, og Ágústa Kristófersdóttir, framkvæmda-
stjóri safneignar Þjóðminjasafnsins, flytja hádegis-
fyrirlestur í dag klukkan 12 um afleiðingarnar af aur-
skriðunum sem féllu á Seyðisfjörð í desember 2020 og
hrifu meðal annars með sér stóran hluta Tækniminjasafn-
ins. Fyrirlesturinn fer fram í fyrirlestrasal Þjóðminja-
safnsins og verður einnig streymt í gegnum Teams.
Ágústa mun fjalla um aðkomu Þjóðminjasafns, annarra
safna og opinberra aðila að björgun og ræðir hlutverk
höfuðsafnsins og viðbrögð við hamförum, eins og segir í
tilkynningu, og Zuhaitz Akizu lýsir afleiðingum aurskriðanna á safnið og
safnkostinn og ræðir hin ólíku skeið björgunaraðgerða allt frá fyrstu dög-
unum fram til dagsins í dag. Hann mun einnig gera grein fyrir grisjun safn-
kostsins í kjölfar hamfaranna og reifa framtíðarhorfur safnsins. Boðið verð-
ur upp á umræður í kjölfar erindanna og er fyrirlesturinn haldinn í samvinnu
við námsbraut í safnafræði í Háskóla Íslands. Vegna fjöldatakmarkana er
nauðsynlegt að bóka sæti í síma 530-2202.
Fjalla um afleiðingar aurskriðanna
Zuhaitz Akizu
Leikkonan Helen McCrory er látin,
52 ára að aldri. Á farsælum ferli
sínum lék hún á sviði, í sjónvarps-
efni og kvikmyndum og má m.a.
nefna kvikmyndirnar The Queen,
The Special Relationship og nokkr-
ar um Harry Potter. Þá lék hún í
sjónvarpsþáttunum Peaky Blinders
og His Dark Materials, svo fáeinir
séu nefndir.
Eiginmaður McCrory, leikarinn
Damian Lewis, tilkynnti andlátið á
Twitter og að eiginkona hans hefði
glímt við krabbamein. Hún hefði
dáið líkt og hún lifði; óttalaus. Þau
kynntust þegar þau léku saman í
leikritinu Five Gold Rings og giftu
sig árið 2007.
Afar fáir vissu af veikindum
McCrory og kom andlát hennar því
verulega á óvart. Hafa fjölmargir
leikarar og leikstjórar minnst leik-
konunnar og lýst henni sem örlátri,
góðhjartaðri og spaugsamri.
McCrory hlaut fjölda tilnefninga
og verðlauna á ferli sínum og þótti
afbragðsleikkona.
Látin Helen McCrory var af velskum og
skoskum ættum en ólst upp í London.
McCrory látin af völdum krabbameins
Hljómsveitarstjórinn heimskunni
Gustavo Dudamel verður næsti tón-
listarstjóri Parísaróperunnar og
segja fjölmiðlar ráðningu hans vera
mikinn sigur fyrir hinn nýja fram-
kvæmdastjóra óperuhússins, Alex-
ander Neef.
Dudamel er frá Venesúela og
hlaut tónlistarmenntun sína í El
Sistema, hinu fræga tónlistar-
skólakerfi landsins þar sem fátæk
börn fá ókeypis klassíska tónlistar-
menntun. Hann er líklega þekktasti
hljómsveitarstjóri heims í dag og
nær frægð hans langt út fyrir heim
klassískrar tónlistar. Dudamel er
listrænn stjórnandi Fílharmóníu-
hljómaveitarinnar í Los Angeles og
gegnir þeirri stöðu áfram, samhliða
hinni nýju stöðu sinni í París.
Stjórnandinn Gustavo Dudamel.
Dudamel verður tónlistarstjóri í París