Morgunblaðið - 20.04.2021, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 20.04.2021, Blaðsíða 32
Efni í þætti kvöldsins: Kolbrún Baldursdóttir borgarfulltrúi hefur talsvert látið hagsmunamál eldri borgara til sín taka og hún ræðir m.a. um hvað hægt er að gera af hálfu Reykjavíkurborgar þegar kemur að sveigjanlegri vinnutíma sem myndi hugsanlega halda fleirum lengur á vinnumarkaði, stuðla að auknum tekjum ríkis og sveitarfélaga og um leið auka á ánægju þeirra eldri borgara sem vilja vinna lengur en almennt tíðkast. Inga Kristjánsdóttir og Íris Gunnarsdóttir hjá Mulier Fortis fræða áhorfendur um náttúrulyf sem virka vel á augnþurrk og leggangaþurrk hjá konum. Einnig er fjallað um mikilvægi notkunar á handspritti en vörulína þeirra Númer Eitt hefur notið mikilla vinsælda frá upphafi heimsfaraldur- sins. Þá er einnig fjallað um mikilvægi notkunar steinefnasalta sem viðhalda rakajafnvægi í líkamanum. Björgvin Halldórsson varð sjötugur þann 16. apríl og af því tilefni var rætt við hann á fjölum Borgar- leikhússins rétt fyrir afmælistónleikana sem fram fóru sama dag þar sem stórsöngvarinn rifjaði upp tónlistarferilinn á þessum merku tímamótum. Umsjónarmaður er Sigurður K.Kolbeinsson Dagskráin á Hringbraut Lífið er lag Fréttir, fólk og menning á Hringbraut og hringbraut.is kl. 21.00 á Hringbraut í kvöld Kolbrún Baldursdóttir Björgvin Halldórsson Samsýning á verkum nemenda 15 leik- og grunnskóla í Reykjavík verður opnuð í Listasafni Reykjavíkur í dag. Yfirskrift sýningarinnar er „LÁN – Listrænt ákall til náttúrunnar“. Verkin eru sýnd í porti og fjölnota sal Hafnarhússins og í fundar- herbergi Kjarvals- staða. Sýningin er afrakstur sam- starfs um 800 barna við fjöl- marga listamenn, vísindafólk og kennara í leikskólum og grunnskólum í borginni. Meðal markmiða verkefnisins var að styrkja sjálfsmynd nemenda, gagnrýna hugsun og trú þeirra á eigin getu, ýta undir nýsköpun og stuðla að skapandi kennsluháttum. Sýningin stendur yfir næstu fimm daga og er aðgangur að henni ókeypis fyrir fullorðna í fylgd með börnum. Verk nemenda 15 leik- og grunn- skóla sýnd í Listasafni Reykjavíkur ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 110. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Óhætt er að segja að sprengju hafi verið kastað inn í knattspyrnuheiminn í fyrrakvöld þegar tólf af öfl- ugustu félögum Evrópu tilkynntu að þau ætluðu að sameinast um stofnun nýrrar „ofurdeildar“ í evrópska karlafótboltanum. Viðbrögðin hafa verið gríðarlega sterk og félögunum hefur nú verið hótað brottrekstri úr mótum og leikmönnum þeirra keppnisbanni. »26 Gríðarlega sterk viðbrögð við áformum um ofurdeild í fótbolta ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Frænkurnar Sonja Ida Kristins- dóttir og María Anna Þorsteins- dóttir hafa það fyrir sið að fara á kaffihús á þriðjudögum, en þar sem þær sækjast eftir hnallþórum, pönnukökum eða vöfflum með rjóma er oft erfitt að finna stað við hæfi. „Sonja vill ekki þessar holl- ustukökur, sem yfirleitt eru í boði, heldur rjómatertur eins og voru á Hressingarskálanum í gamla daga,“ segir María Anna. María Anna sinnti vel einstæðri móður sinni sem dó 78 ára. Eftir að Sonja, sem er 87 ára móðursystir Maríu Önnu, varð ekkja fyrir nokkrum árum segist María Anna hafa heimsótt hana til að stytta henni stundir. „Við vorum að fletta myndaalbúmum og rifja upp gamla tíma, en henni kippir í kynið, finnst ekki gaman að húka inni heldur vill fara eitthvað, alveg eins og mamma og amma voru.“ Sonja hafi viljað fara á kaffihús og í kjölfarið hafi kaffihúsaferðirnar orðið fastur lið- ur vikulega undanfarin um fimm ár. Aldraðir og umhyggja Mikilvægt er að huga að öldr- uðum og María Anna segir að stund með þeim sé vel varið. Fólk telji sig oft ekki hafa tíma en það sé of seint að hugsa um eldri borgara eftir að þeir eru fallnir frá. „Gamla fólkið á það skilið að reynt sé að hafa ofan af fyrir því í stað þess að það sitji eitt heima.“ Hún leggur áherslu á að börn og barnabörn Sonju hugsi vel um hana og hún sé viðbót við þá umhyggju. „Við Sonja náum vel saman, hún er skemmtileg og við getum slegið á létta strengi.“ Sonja ólst upp á Laugaveginum og lítur á gamla miðbæinn sem sitt svæði, þótt hún hafi lengi búið í Garðabæ og undanfarin tvö ár á Hrafnistu þar í bæ. „Hún vill helst fara á kaffihús á Laugaveginum eða nágrenni en aðgengið er svo erfitt og ómögulegt er fyrir hana að ganga með göngugrind langa leið úr bílastæðahúsi,“ segir María Anna. „Við getum því ekki sótt kaffistaði, þar sem ekki er hægt að leggja bíl, og því förum við á staði sem eru í grennd við bílastæði.“ Kringlan og Smáralind verða oft- ar en ekki fyrir valinu. „Þar eru næg bílastæði og aukinheldur fær Sonja lánaðan hjólastól í verslunar- miðstöðvunum. Því getum við notað ferðina, kíkt í búðir og kynnt okkur nýjustu fatatískuna í leiðinni.“ Þær hafi þó orðið fyrir vonbrigðum með nýjustu vortískuna. „Kjólarnir sem við höfum skoðað eru ekki fallegir, of víðir og stórir fyrir okkar smekk en þeir passa kannski á ungar og grannar konur.“ Café Milanó er uppáhaldsstaður þeirra, en það er erfitt að gera þeim til hæfis. „Skammtarnir eru stórir og við báðar matgrannar, þannig að við verðum oft að skipta einni sneið á milli okkar,“ segir María Anna og bætir við að það sé ekki alslæmt, því það kosti minna. „Við förum líka oft í Súfistann í Hafnarfirði og fáum belgískar vöfflur á veitingastaðnum Álftanes Kaffi.“ María Anna segir skiljanlegt að framboð á rjómatertum og öðru slíku sé ekki mikið á kaffihúsum, því ekki sé hægt að geyma þær í marga daga eins og fyrrnefndar heilsutegundir. „Napóleonskökur virðast heyra sögunni til og hnall- þórur með rjóma sjást varla lengur fyrir heilsuvörum, en við höfum augun opin og ég hef beðið um ábendingar á Facebook.“ Hnallþórur með rjóma - Fá ekki bílastæði í miðbæ Reykjavíkur og fara því annað Á Café Milano Sonja Ida Kristinsdóttir og María Anna Þorsteinsdóttir. Á Álftanesi Kaffi Frænkurnar gæða sér á góðgæti með rjóma.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.