Morgunblaðið - 21.04.2021, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2021FRÉTTIR
Snjallari lausnir í
greiðslumiðlun á
Íslandi
Fjártæknilausnir Rapyd bjóða þér
upp á snjallari greiðslumiðlun.
Við bjóðum upp á fjölmargar
greiðsluleiðir og virðisaukandi
þjónustur sem henta þínum
rekstri. Við setjum þjónustu
við söluaðila í fyrsta sæti.
Vertu í sambandi
558 8000 | hallo@rapyd.net | rapyd.net/is
Einfaldari
Snjallari
Betri
Leyfðu okkur að
þjónusta þig.
VIKAN Á MÖRKUÐUM
AÐALMARKAÐUR
Mesta lækkun
REITIR
-2,45%
67,80
Mesta hækkun
KVIKA
+2,72%
21,73
S&P 500 NASDAQ
-2,21%
13.728,394
-1,06%
4.126,23
-1,77%
6.859,87
FTSE 100 NIKKEI 225
21.10.'20
Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær.
66,34
-1,83%
29.100,38
20.4.'21
70
30
BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu)
41,73
GULLVERÐ ($/únsu)
1.1.'21 20.4.'21
1.500
1.774,9
2.000
1.893,1
Verð sjávarafurða hefur staðið í
stað en olían hækkað í verði. Fyrir
vikið hafa viðskipakjör á þennan
mælikvarða gefið eftir, enda þarf
að greiða meira fyrir olíuna við
veiðar.
Þetta kemur fram í greiningu
Analytica fyrir ViðskiptaMoggann.
Niðurstöðurnar eru sýndar á
tveimur gröfum hér til hliðar.
Eins og sjá má hefur verð
sjávarafurða farið hækkandi á öld-
inni en olíuverðið sveiflast mikið.
Verð á olíu er nú undir meðallagi á
öldinni en er hátt miðað við lægstu
gildi í kórónuveirufaraldrinum.
Áfram útlit fyrir hátt verð
Friðleifur Friðleifsson, deildar-
stjóri hjá Iceland Seafood Inter-
national, segir verð sjávarafurða
hafa verið sögulega hátt und-
anfarið.
„Það hefur verið gífurlega hátt
verð á afurðum og líklegt að svo
verði áfram. Mögulega gæti orðið
örlítil verðlækkun í ferskum fiski
út af auknu framboði Norðmanna.
Annars eru allar afurðir í góðum
málum. Við erum til dæmis nýkom-
in úr loðnuvertíð sem gaf mikið
fyrir þjóðarbúið,“ segir Friðleifur.
Markaðurinn með sjávarafurðir
hafi verið sterkur í kórónuveiru-
faraldrinum sem muni meðal ann-
ars birtast í tölum yfir aflaverð-
mæti í mars síðastliðnum.
Spurður hvaða áhrif tilslakanir á
samkomutakmörkunum muni hafa
á eftirspurn erlendra veitingahúsa
segir Friðleifur að þær muni gjör-
breyta stöðunni. „Þá sérstaklega í
Suður-Evrópu. Til dæmis eru
hnakkastykki dýrasti hlutinn af
dýrustu tegundinni okkar, sem er
þorskur, hvort sem þau eru fersk
eða frosin. Það er dýrasta afurðin
sem Íslendingar framleiða og mikið
af henni fer á veitingastaði. Þegar
veitingahúsageirinn opnast – meðal
annars á Spáni, í Portúgal, á Ítalíu
og á Grikklandi – munum við sjá
góða eftirspurn og sterkan markað.
Stígandi í Bandaríkjunum
Við erum þegar farin að sjá já-
kvæð teikn í Bandaríkjunum en
þar er samfélagið hægt og bítandi
að opnast hraðar eftir sam-
komutakmarkanir en við bjugg-
umst við. Sala á sjávarafurðum í
gegnum faraldurinn hefur verið
glettilega góð. Skýringin er að
hluta að það hefur tekist að vega
upp minni sölu til veitingahúsa með
smásölunni.
Þá höfum við lítið fundið fyrir
áhrifum faraldursins í Austur-
Evrópu en viðskipti með
uppsjávarafla hafa gengið mjög vel.
Við fengum mjög sterka loðnu-
vertíð inn í markað sem var gal-
tómur; það hafði ekki verið fram-
leiðsla í tvö ár og svo kemur góð
vertíð og við sjáum hæsta verð fyr-
ir loðnuafurðir í langan tíma.
Hærra en fyrir makrílafurðir og
síldarafurðir til að mynda,“ segir
Friðleifur sem kveðst bjartsýnn á
að salan aukist þegar veitingahúsa-
geirinn kemur inn af meiri krafti í
sumar.
Friðleifur kveðst aðspurður með-
al annars byggja þetta á samtölum
við erlenda viðskiptavini en bjart-
sýni sé farið að gæta meðal þeirra.
Þær væntingar taki ekki síst mið af
áætlunum um bólusetningu en sal-
an muni aukast eftir því sem fleiri
mega sækja veitingahús ytra.
Sterkur markaður í Bretlandi
Hvað snertir Bandaríkin sé
reiknað með að markaðurinn verði
kominn í fullan gang með haustinu.
Útlit sé fyrir þokkalega sölu til
veitingahúsa vestanhafs í sumar.
Heilt yfir hafi markaðurinn með
fisk og franskar í Bretlandi staðið
upp úr og almennt gangi salan á
fiski til Bretlands mjög vel þessa
dagana.
Loks segir Friðleifur aðspurður
að aukið framboð á flugi til Banda-
ríkjanna í sumar muni styrkja söl-
una. Þá sérstaklega ef það bætist
við nýir áfangastaðir.
Verðsveiflur en bjart yfir
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Verðhlutfall sjávarafurða
annars vegar og olíu hins
vegar hefur sveiflast mikið
undanfarið. Hins vegar
gætir vaxandi bjartsýni á
erlendum mörkuðum.
Janúar 2000 til febrúar 2021, vísitala janúar 2015 = 100
Verðhlutfall sjávarafurða og Brent-hráolíu
200
175
150
125
100
75
50
25
0
'00 '01 '02 '03 '04 '05 '06 '07 '08 '09 '10 '11 '12 '13 '14 '15 '16 '17 '18 '19 '20 '21
Heimildir: Hagstofa Íslands,
Seðlabanki Íslands, Refinitiv, Analytica
Vísitala sjávarafurða í USD, jan. 2015 = 100 Verð á Brent-hráolíu í USD/fat
Verðvísitala sjávarafurða og verð á Brent-hráolíu
140
120
100
80
60
40
20
0
'00 '01 '02 '03 '04 '05 '06 '07 '08 '09 '10 '11 '12 '13 '14 '15 '16 '17 '18 '19 '20 '21
Heimildir: Hagstofa Íslands,
Seðlabanki Íslands, Refinitiv, Analytica
Yngvi
Harðarson
Friðleifur
Friðleifsson
LYFSALA
Ólafur Adolfsson lyfsali segir mikil
tækifæri fólgin í kaupunum á
Reykjavíkur Apóteki á Seljavegi.
Einnig á hann
Apótek Vestur-
lands á Akranesi
og Apótek Ólafs-
víkur, sem verður
rekið undir hatti
Apóteks Vestur-
lands.
Ólafur og með-
eigendur seldu
Högum 90% hlut
í Reykjavíkur Apóteki árið 2019 en
hann hélt eftir 10% eignarhlut í fé-
laginu. Hann hefur nú keypt til baka
90% hlut. Þá seldu Hagar rekstur
Reykjavíkur Apóteks í Skeifunni til
Lyfju en smásölurisinn opnaði það
apótek árið 2020 eftir kaupin á 90%
hlut í Reykjavíkur Apóteki árið
2019.
Skortur á bílastæðum
Ólafur segir framkvæmdir hafa
sett strik í reikninginn hjá Reykja-
víkur Apóteki á Seljavegi. Við upp-
byggingu íbúða gegnt apótekinu, og
endurbyggingu gamla Héðinshúss-
ins í hótel, hafi verið þrengt að um-
ferð og skortur verið á bílastæðum.
Borið hafi á því að viðskiptavinir hafi
ekið í Skeifuna til að geta verslað við
Reykjavíkur Apótek.
Ólafur segir að þegar apótekið á
Seljavegi hafi náð sér á strik komi til
greina að opna fleiri apótek.
„Þá ekki síst til að mæta þeirri
grimmu samkeppni sem er á mark-
aðnum og kröfunni um hagræðingu
og stærðarhagkvæmni. Við sjáum
tækifæri í nýjum staðsetningum í
Reykjavík og munum mögulega
bæta við tveimur apótekum,“ segir
Ólafur sem á vörumerkið Reykja-
víkur Apótek.
Fín rekstrareining
„Seljavegurinn hefur verið fín
rekstrareining. Við erum eina sjálf-
stæða apótekið í Vesturbæ Reykja-
víkur en það hefur staðið okkur fyrir
þrifum að engin bílastæði hafa verið
fyrir okkar viðskiptavini um hríð.
Nú er búið að taka götuna í gegn og
við horfum fram á bjartari tíma,“
segir Ólafur. baldura@mbl.is
Íhugar tvö ný
Reykjavíkur Apótek
Ólafur
Adolfsson