Morgunblaðið - 21.04.2021, Side 8

Morgunblaðið - 21.04.2021, Side 8
Fyrir rösku ári, í mars 2020, fjallaði ég um 15 ára gamalt Glenlivet French Oak Reserve og fræddi les- endur um hrífandi ávaxta- og hnetutóna þessa vel heppnaða Speyside-viskís. Við sama tækifæri benti ég á hve dapurlegt það væri að af þeim fjór- tán tegundum sem Glenlivet fram- leiðir væri aðeins ein – Founder‘s Reserve – í boði hjá Vínbúðunum. Er gaman frá því að segja að síðan þá hefur vörunúmerum Glenlivet hjá ÁTVR fjölgað um 100% svo að Íslendingum standa núna tvær gerðir til boða! Founder‘s Reserve er á sínum stað en viðbótin er 12 ára Glenlivet Double Oak og er merkilegt nokk seld í lítraflöskum. Er úrvalið enn betra í fríhöfninni þar sem má finna þrjár sérútgáfur frá framleiðand- anum, en þar eru aftur á móti ekki fáanlegar staðalútgáfurnar tvær sem seldar eru í Vínbúðunum. Óhætt er að kalla 12 ára Glen- livet góða viðbót við íslensku viskí- flóruna enda á margan hátt eins klassískt viskí og hugsast getur. Flaskan er snotur en karamellu- ljósgylltur liturinn ögn gervilegur. Um nefið leika sætir tónar í bland við ögn af súrum ávöxtum, nýslegnu grasi, og gott ef ekki vott af kardi- mommu. Sopinn er í sætara lagi, eikin nokkuð sterk án þess að vera römm, og þróast yfir í kanil-, krydd- og vanillutóna. Eftirbragðið er heitt og meðallangt, eikin áfram í fyrsta sæti en ávaxtatónar komast að. Eins og með margar skemmti- legri viskítegundir bætast við nýjar víddir með hverjum sopa. Eikin mætir fyrst á sviðið, síðan taka ávextirnir við, og undir lokin mild karamella. Bragðið er aðgengilegt og virðist í fyrstu einfalt, en dýptin kemur smám saman í ljós. Skrifar fram- leiðandinn bragðgæðin m.a. á það að viskíið þroskast fyrst í hefð- bundnum evrópskum eikartunnum en er svo fært yfir í tunnur úr bandarískri eik sem mýkja viskíið og bæta vanillu við bragðflóruna. Eins klassískt viskí og hugsast getur HIÐ LJÚFA LÍF 8 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2021SJÓNARHÓLL M eð frumvarpi um lögfestingu svokall- aðrar tilgreindrar séreignar skv. kröfu Alþýðusambands Íslands (ASÍ) eru algjörlega virtar að vettugi athugasemdir meirihluta hagsmunaaðila, sem lögðu fram um- sagnir um frumvarpsdrögin árið 2019. Í þessum athugasemdum bentu þeir á að hinum nýju lagaákvæðum fylgdi aukið flækjustig, dýrara lífeyriskerfi og skerðing á valfrelsi sjóðfélaga. Fyrirkomulagi lífeyrisréttinda tuga þúsunda sjóðfélaga raskað Frumvarpið felur m.a. í sér að sjóðfélögum lífeyrissjóða skuli vera heimilt að ráðstafa mót- framlagi launagreiðanda, allt að 3,5 prósentu- stigum af 15,5% skylduiðgjaldi, í svokallaða til- greinda séreign sem við útgreiðslu skerðir ekki ellilífeyri almannatrygginga. Samhliða þeirri breytingu er gerð sú breyting á útgreiðslum annarra tegunda séreignar en viðbótarlífeyr- issparnaði, að þær muni skerða ellilífeyrinn (sjá töflu). Að öllum líkindum leiðir þetta til þess að stærsti hluti sjóðfélaga lífeyrissjóða ráðstafi 3,5% iðgjaldinu í tilgreinda séreign. Slík breyt- ing raskar fyrirkomulagi lífeyrisréttinda hjá tugum þúsunda sjóð- félaga, sem í dag ráð- stafa 3,5% iðgjaldinu í frjálsa séreign, sem samkvæmt frumvarp- inu mun skerða ellilíf- eyrinn. Með því að greiða iðgjöldin í til- greinda séreign er val- frelsi og sveigjanleiki sjóðfélaganna í út- greiðslum skert veru- lega. Ráðstöfun 3,5% iðgjalds í viðbótarsparnað í stað tilgreindrar séreignar væri betri fyrir sjóðfélaga en hún er ekki heimil skv. frumvarp- inu. Þrengri útborgunarreglur tilgreindrar séreignar Hvers vegna væri betra fyrir sjóðfélaga að ráðstafa 3,5% iðgjaldinu í viðbótarsparnað frek- ar en í tilgreinda séreign? Ástæðan er m.a. sú að þrengri útborgunarreglur gilda fyrir til- greinda séreign en viðbótarsparnað. Tilgreind séreign er ekki laus fyrr en frá 62 ára aldri sjóð- félaga og laus til útborg- unar á að lágmarki fimm árum skv. frumvarpinu. Viðbótarsparnaður og frjáls séreign er aftur á móti laus frá 60 ára aldri og laus til útgreiðslu skv. óskum sjóðfélaga. Stjórnvöldum og ASÍ hefur margoft verið bent á að fyrir sjóðfélaga er mun hagstæðara að ráð- stafa 3,5% iðgjaldi í viðbótarsparnað með rýmri útborgunarreglum af því að aðstæður fólks eru mismunandi. Í mörgum tilvikum getur hentað sjóðfélögum betur að taka séreignina út tveim- ur árum fyrr en gert er ráð fyrir í frumvarpinu og á styttri tíma en fimm árum. Einnig hefur verið bent á að auðvelt er að halda 3,5% iðgjald- inu í viðbótarsparnaði aðgreindu frá 4%-6% við- bótarsparnaðinum í tölvukerfum sjóðanna yrðu gerðar kröfur um slíkt. Aukið flækjustig með tilgreindri séreign Eitt af því sem hefur þótt ámælisvert við líf- eyriskerfið er hversu flókið það er. Aukið flækjustig torveldar fólki að skilja lífeyris- kerfið, gerir sjóðfélögum erfiðara um vik að taka ákvarðanir um ráðstöfun og útgreiðslur sparnaðarins, skaðar ímynd lífeyriskerfisins og dregur almennt úr áhuga fólks á lífeyrissparn- aði. Önnur ástæða þess að betra sé að bjóða sjóð- félögum að ráðstafa 3,5% iðgjaldinu í viðbót- arsparnað er að lögfesting tilgreindrar sér- eignar felur í sér að lífeyriskerfið verður einmitt flóknara að óþörfu. Viðbótarsparnaður hefur verið við lýði frá 1999 og launafólk þekkir almennt vel þær reglur sem um hann gilda og því væri tilvalið að nýta hann fyrir 3,5% iðgjald- ið. Þannig ættu sjóðfélagar auðveldara með að taka ákvarðanir og átta sig á uppbyggingu á líf- eyrissparnaði sínum á sama tíma og sveigj- anleiki og valfrelsi í útgreiðslum yrði aukið hjá sumum en varðveitt hjá öðrum eftir því hvaða lífeyrissjóðs þeir greiða til. Með frumvarpinu verða til fimm tegundir séreignar sem um gilda mismunandi reglur varðandi útborgun, skerðingar á lífeyri al- mannatrygginga og húsnæðiskaupa- og lánaúr- ræði eins og sjá má í töflunni hér á eftir. Lesendum kann að þykja erfitt að skilja efni töflunnar en það endurspeglar það flækjustig sem nú er fyrirhugað að bjóða sjóðfélögum líf- eyrissjóða, lífeyrissjóðunum og öðrum hags- munaaðilum upp á. Það er þó jákvætt að núver- andi lög og frumvarpið heimila sjóðfélögum að ávaxta allar tegundir séreignar hjá vörsluaðila að eigin vali. ASÍ fer gegn hagsmunum launafólks Fjármálaráðherra sagði í umræðum um frumvarpið að það væri ágætishugmynd að launafólk ætti að hafa val um að setja 3,5% ið- gjaldið í viðbótarsparnað og hann hefði ekkert á móti því en ASÍ væri því mótfallið. Svo virðist sem ASÍ sé með lífeyriskerfið í algjörri gíslingu og stjórnvöld fái ekki neitt við ráðið. Vald ASÍ yfir lífeyriskerfinu vekur furðu í ljósi þess að aðeins sjö af 21 lífeyrissjóði eru á samningssviði ASÍ og SA og bæði eignir og árleg iðgjöld þess- ara sjö sjóða standa undir minna en helmingi af eignum og árlegum iðgjöldum allra lífeyris- sjóða. Óhætt er að halda því fram að flestir hinna 14 lífeyrissjóða og vörsluaðila séreign- arsparnaðar séu mótfallnir lögfestingu til- greindrar séreignar og kysu að sjóðfélagar þeirra gætu ráðstafað 3,5% iðgjaldinu í viðbót- arsparnað. Í raun er umhugsunarvert að ASÍ berjist fyrir breytingum sem skerða frelsi launafólks til að ákveða fyrirkomulag á úttekt sparnaðar síns, auk þess að beita sér fyrir því að þvinga fram neikvæðar breytingar á upp- byggingu lífeyrissparnaðar hjá lífeyrissjóðum sem ekki eru á forræði þeirra. Að framansögðu má sjá hversu mikilvægt það er að Alþingi beri gæfu til að hafna ákvæð- um frumvarpsins um lögfestingu tilgreindrar séreignar – lífeyriskerfinu og öllu launfólki til heilla og hagsbóta. LÍFEYRISMÁL Arnaldur Loftsson, framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins Flækjustig aukið og valfrelsi launafólks skert ” Með því að greiða ið- gjöldin í tilgreinda sér- eign er valfrelsi og sveigjanleiki sjóðfélag- anna í útgreiðslum skert verulega. Tegund séreignar og mismunandi reglur Viðbótar- sparnaður* Frjáls séreign** Tilgreind séreign*** Bundin séreign*** Erfða- séreign Laus til útgreiðslu – aldur sjóðfélaga 60 ára 60 ára 62 ára 60-85 ára Alltaf Skerðir lífeyri almannatrygginga Nei Já Nei Já Já Má nýta í fyrstu fasteignakaup og lánagreiðslur í 10 ár Já Nei Já Nei Nei Má nýta í fasteignar- kaup og lánagreiðslur til júlí 2023 Já Nei Nei Nei Nei *Iðgjald sem nemur 2-4% frá sjóðfélaga og 2% frá launagreiðanda, samtals 4-6%. **Iðgjald sem hluti af 15,5% skylduiðgjaldi annars vegar og viðbótarmótframlag launagreiðanda umfram 2% hinsvegar. ***Hluti af 15,5% skylduiðgjaldi. Heimild: Frjálsi lífeyrissjóðurinn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.