Morgunblaðið - 21.04.2021, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2021 11FRÉTTIR
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Vatnagörðum 14 104 Reykjavík
litrof@litrof.is 563 6000
Sterkari
saman
í sátt við
umhverfið
Á dögunum var gerð breyting á skipuriti
og framkvæmdastjórn Sjóvár og var Sig-
ríður Vala gerð að framkvæmdastjóra fjár-
mála og upplýsingatækni hjá trygginga-
félaginu. Fram undan eru ýmsar áskoranir
enda samkeppnin á tryggingamarkaði
hörð, rekstrarumhverfið krefjandi og
tækniþróunin ör.
Hverjar eru helstu áskoranirnar
í rekstrinum þessi misserin?
Það er nýr veruleiki að ávaxta fjármagn í
lágvaxtaumhverfi líkt og við búum við í dag
en ávöxtun fjármagns er stór og mik-
ilvægur hluti af starfsemi okkar. Þá eru að
eiga sér stað miklar og örar breytingar í
tækniumhverfinu sem og á þörfum við-
skiptavina og okkar áskorun að finna og
nýta réttu lausnirnar til þess að halda
áfram að þróa þjónustuleiðir sem bæta
heildarupplifun viðskiptavina okkar sem
nú eru þeir ánægðustu á íslenskum vá-
tryggingamarkaði. Í svona umhverfi felast
að mínu mati mikil tækifæri.
Hver var síðasti fyrirlesturinn
sem þú sóttir?
Eftirminnilegasti fyrirlesturinn sem ég
sá í vetur var án efa þegar ég hlustaði á
Harper Reed á vegum Origo þar sem hann
fór yfir hvernig gervigreind getur bætt ár-
angur fyrirtækja og er gott dæmi um svið
sem er í mikilli sókn en aðgengi fyrirtækja
að þeirri tækni er alltaf að verða meira með
tilheyrandi tækifærum. Frábær fyrirlestur
enda Harper litríkur karakter og skemmti-
legur framsögumaður.
Hvaða bók hefur haft mest
áhrif á hvernig þú starfar?
Bókin Ride of a Lifetime eftir Robert
Iger sem stýrði Walt Disney svo farsæl-
lega í gegnum mikla umbreytingu er mér
ofarlega í huga. Jafnframt bókin Shoedog
eftir Phil Knight stofnanda Nike þar sem
svo vel kemur í ljós hvað þarf til að byggja
upp stórfyrirtæki og vörumerki. Aðdáun
mín á dugnaði og elju frumkvöðla eins og
Phils minnkaði síst við lesturinn.
Hvernig heldurðu þekkingu þinni við?
Ég vinn með mörgu öflugu og reyndu
fólki sem ég er alltaf að læra eitthvað af.
Hugsa að ég sæki mest af minni faglegu
þekkingu til þeirra.
Hugsarðu vel um líkamann?
Já ég geri það, legg mikið upp úr því að
taka frá tíma fyrir hreyfingu sem og að
huga að mataræðinu. Það á ekki vel við mig
að halda sama prógrammi lengi, því hjóla ég
inni á veturna, dreg hlaupaskóna fram á
vorin og er í og með alltaf að reyna að fara
meira í jóga með misgóðum árangri. Þátt-
taka í hlaupa- eða hjólamótum hefur reynst
mér ágæt hvatning til að halda dampi í æf-
ingum.
Hvert væri draumastarfið ef þú
þyrftir að finna þér nýjan starfa?
Ég hugsa að ég myndi velja eitthvað sem
tengdist heilsu og hreyfingu, hef alltaf haft
mikinn áhuga á þeim vettvangi.
Hvað myndirðu læra ef þú fengir
að bæta við þig nýrri gráðu?
Hafandi klárað „raungreinaskammtinn“
myndi ég finna mér eitthvað sem tengist
mannlegri heðgun. Mér finnst jákvæð sál-
fræði til dæmis áhugavert svið sem ég væri
mikið til í að kynnast betur.
Hvað gerirðu til að fá orku
og innblástur í starfi?
Ég les bækur og hlusta á hlaðvörp við/
eftir fólk sem hefur áhugaverða sögu að
segja eða hefur náð langt á sínu sviði, hlusta
m.a. mikið á viðtöl við framúrskarandi
íþróttafólk.
SVIPMYND Sigríður Vala Halldórsdóttir framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni hjá Sjóvá
Vandi að ávaxta fjármagn í lágvaxtaumhverfi
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Sigríður Vala segir tækniumhverfið og þarfir viðskiptavina tryggingafélaga breytast hratt.
NÁM: Stúdentspróf frá Verzl-
unarskóla Íslands 2003; BS í iðn-
aðarverkfræði frá HÍ 2006; MS í
iðnaðarverkfræði frá University of
Minnesota 2008; löggiltur verð-
bréfamiðlari 2009
STÖRF: Sérfræðingur og síðar
verkefnastjóri í fyrirtækjaráðgjöf
Íslandsbanka 2008-2015;
forstöðumaður viðskiptastýringar
Creditinfo 2015-2016; forstöðu-
maður hagdeildar Sjóvár 2016-
2021, framkvæmdastjóri fjármála
og upplýsingatækni frá 2021. Sit
auk þess í stjórn hjá HS Veitum
og Sýn.
ÁHUGAMÁL: Hreyfing og útivera,
aðallega á hjóli eða hlaupum og
þá helst utanvegar. Toppurinn
þegar tekst að gera þetta í góðum
félagsskap. Svo förum við fjöl-
skyldan mikið saman á skíði á
veturna. Eldamennskan er farin að
höfða meira og meira til mín og
þeim fjölgar alltaf góðu stund-
unum í eldhúsinu.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Gift Arnari
Gauta Reynissyni og saman eig-
um við tvö börn, Eddu Björk og
Halldór.
HIN HLIÐIN
FJÁRMÁLAEFTIRLIT
Fjármálaeftirliti Seðlabanka Ís-
lands bárust 163 tilkynningar um
skortstöður í 13 fyrirtækjum á
skipulegum verðbréfamarkaði í
fyrra. Þetta kemur fram í nýbirtri
skýrslu Seðlabankans sem nefnist
Fjármálaeftirlit 2021 og er ný
skýrsla sem bankinn hyggst gefa út
árlega til þess að tryggja „viðeig-
andi gagnsæi um störf og áherslur
innan bankans á sviði fjármálaeft-
irlits með því að skýra frá því
hvernig bankinn vinnur að þeim
verkefnum sem Seðlabanka Íslands
er falið í lögum [...] og upplýsa eft-
irlitsskylda aðila um helstu
áherslur í yfirstandandi verkáætl-
un,“ eins og það er orðað í frétt á
vef bankans sem fylgdi útgáfu rits-
ins.
Viðmiðum breytt tímabundið
Tilkynningum um skortstöður
fjölgaði mjög á árinu 2020 miðað við
árið 2019 og nefnir bankinn að það
skýrist m.a. af því að tímabundnar
breytingar voru gerðar á viðmið-
unarmörkum um hvenær tilkynna
skuli um töku skortstöðu. Þannig
var ákveðið að þeir sem tækju
skortstöður yrðu að tilkynna þegar
staða þeirra færi yfir eða félli undir
viðmiðunarmörk sem næmu 0,1% af
útgefnu hlutafé félags. Til viðbótar
þurfti samkvæmt reglunum að
senda tilkynningu í hvert sinn sem
nettóskortstaða breyttist um 0,1%
umfram fyrrnefnd mörk. Ákvörð-
unin fól í sér að viðmiðunarmörkin
á Íslandi voru 0,1% í stað 0,2%. Frá
og með 20. mars 2021 færðust við-
miðunarmörkin að nýju í 0,2%.
Líkt og meðfylgjandi tafla sýnir
voru 53 af 163 tilkynningum sem
bárust í fyrra tengdar skorstöðum
sem voru á bilinu 0,1-0,2%. Sé tillit
tekið til þess fjölgaði skortstöðu-
tilkynningum um 16 frá árinu 2019
þegar þær voru 94.
Flestar voru tilkynningarnar í
september eða 23. Þá voru þær 20 í
apríl, júní og október. Fæstar voru
þær í febrúar eða þrjár talsins.
ses@mbl.is
Tilkynningar til Seðla-
bankans um skortstöðu
2019 2020
Fjöldi
tilk.
Fjöldi
tilk.
Þar af á bilinu
0,1-0,2%
Jan. 6 9 0
Feb. 7 3 0
Mars 21 13 1
Apríl 9 20 8
Maí 9 14 4
Júní 0 20 7
Júlí 0 9 4
Ágúst 3 8 4
Sept. 14 23 8
Okt. 14 20 7
Nóv. 5 14 4
Des. 6 10 6
Alls 94 163 53
H
ei
m
ild
:
F
já
rm
ál
a-
ef
tir
lit
ið
Skortstöður teknar í 13 fyrirtækjum
á skipulegum verðbréfamarkaði 2020
Morgunblaðið/Ómar
Seðlabankinn fer nú með fjármála-
eftirlit eftir sameiningu við FME.
Atvinna