Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.04.2021, Qupperneq 10
FERÐALÖG
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.4. 2021
gangandi og alltaf var eitthvað nýtt
að sjá og upplifa. Nýir gígar höfðu
opnast, aðrir höfðu lognast út af og
hraunbreiðan stækkaði ört. Allt í einu
hafði hraun runnið yfir göngustíginn
sem aðeins örfáum dögum áður hafði
verið iðandi af fólki. Sífellt voru ný
sjónarhorn; aftur og aftur sat maður
agndofa og fann hitann frá hrauninu.
Í fjórða sinn ákvað blaðamaður að
hann þyrfti að skella sér í þyrluflug og
skrásetja það rækilega í máli og
myndum fyrir Morgunblaðið. Hringt
var í ungan flugmann, Armas Nökkva
Salsola, sem flýgur fyrir þyrlu-
fyrirtækið Heli Austria. Armas tók vel
í þá beiðni blaðamanns að fá að sitja í
eina ferð, enda stundum eitt sæti laust
sem ekki selst. Það var því glaður
blaðamaður sem brunaði Krýsuvíkur-
veginn á þriðjudaginn var í blíðskap-
arveðri til fundar við þyrluna.
Skyldleikinn uppgötvast
Á bílaplaninu beið hafnfirsk fjöl-
skylda, spennt að komast að gosinu.
Hjónunum Garðari Hannessyni og
Jóhönnu Gísladóttur, báðum á níræð-
isaldri, hafði verið boðið í flug af
dætrunum Björk og Lindu Garðars-
dætrum. Starfsmaður Heli Austria
raðaði fólkinu faglega um borð þar
sem Armas sat glaðlegur við stýrið og
heilsaði. Þegar allir voru spenntir í
beltin, með grímu og heyrnartól,
tókst þyrlan á loft og sveif mjúklega í
átt að gosinu. Brátt mátti sjá reykinn
milli fjalla og svo blasti dýrðin við;
gígar í röðum, hraun og sjóðandi heit
frussandi kvika.
Armas tók smá útsýnisflug yfir og
lenti svo fimlega. Við bröltum út úr
þyrlunni og horfðum yfir dýrðina.
Hjónin höfðu eitt sinn séð Heklu-
gos, en aldrei áður farið í þyrlu.
„Það er æðislegt; mig hefur alltaf
langað að fara í svona litla vél,“ segir
Jóhanna.
Dæturnar höfðu heldur ekki áður
farið í þyrlu.
„Ég lokaði augunum, ég var smá
hrædd. Ég tók nokkrar myndir en
lokaði svo augunum,“ segir Björk og
hlær.
Hvernig finnst ykkur að sjá gosið?
„Meiriháttar, stórkostlegt. Það er
gaman að hafa komist þetta; ekki
seinna vænna,“ segir Linda.
Armas og Jóhanna spjalla heil-
mikið og við hin förum að forvitnast
um umræðuefnið. Komið hafði í ljós
að þau væru náskyld.
„Langafi hans og pabbi minn voru
bræður,“ segir Jóhanna.
„Það þurfti eldgos til að komast að
þessu!“ segir Linda og hlær.
Erfitt að slíta fólk frá
Þyrluflugmaðurinn Armas er 27 ára
Hafnfirðingur, sonur gullsmiðanna
þekktu Siggu og Timos. Hann var
orðinn þyrluflugmaður 21 árs, árið
2015, og veit fátt skemmtilegra.
Blaðamaður rölti með honum niður
að hrauni þar sem hann náði í glænýj-
an hraunmola fyrir elsta farþegann,
hinn 87 ára Garðar. Á meðan tókum
við tal saman.
„Ég tók einkaflugmanninn sautján
átján ára. Það eru flugmenn í fjöl-
skyldunni og bróðir mömmu er í
Gæslunni. Mér fannst þetta allt mjög
spennandi þannig að það má segja að
flugið hafi verið draumur minn
snemma,“ segir Armas, sem starfar í
dag hjá Heli Austria Iceland, en
fyrirtækið er austurrískt og starfar
mikið í Mið-Evrópu.
„Ég hef verið að vinna fyrir þau á
Grikklandi síðustu tvö sumur, að
ferja ferðamenn á milli eyjanna. Það
er ótrúlega gaman að fljúga,“ segir
Armas og segir nú ríkja gósentíð fyr-
ir þyrluflugmenn. Hann viðurkennir
að það sé brjálað að gera.
„Maður hefði næstum þurft smá
aðlögun,“ segir Armas og hlær.
„Það hefur ekki verið mikið að gera
síðustu mánuði og svo allt í einu
springur allt. En það er frábært,
bæði fyrir fyrirtækin og okkur flug-
menn. Ég er búinn að fara yfir hundr-
að ferðir síðan gosið hófst. Í hverri
ferð eru fjórir til fimm farþegar
þannig að þetta eru mörg hundruð
manns sem ég hef flogið með að gos-
inu,“ segir hann.
„Ég kom hingað strax á fyrsta degi
og hef flogið næstum daglega, með
smá pásum. Gosið hefur breyst svo
mikið og það er orðið alveg svakalega
stórt miðað við hvernig þetta var í
byrjun,“ segir Armas en hann er að
upplifa sitt fyrsta eldgos á ævinni.
„Ég var enn að læra þegar gaus í
Holuhrauni. Ég missti af því og er bú-
inn að bíða spenntur. Þetta er alveg
magnað,“ segir Armas og segir far-
þega yfirleitt mjög þægilega.
„Farþegar eru yfirleitt nokkuð ró-
legir. Erfiðast er kannski að slíta þá
frá gosinu, enda er auðvelt að gleyma
sér við að horfa á það. En ég hef þol-
inmæði fyrir því,“ segir hann og er
greinilegt að honum finnst gaman í
vinnunni; hann er sannarlega í
draumadjobbinu.
„Já, þetta er ekki sem verst!“ segir
Armas og bendir á eldspúandi eld-
fjöllin í Geldingadölum.
„Þetta er ágætis skrifstofa!“
Þyrluflug er hentugt fyrir þá sem ekki komast gangandi að gosinu og fyrir alla þá sem vilja leyfa sér smá munað.Armas tekur sig vel út við stýrið.
Útsýnið úr þyrlu er engu líkt. Þar fær maður sjónarhorn fuglsins fljúgandi og sér vel yfir allt svæðið. Vel mátti sjá kvikuna skjótast upp úr gígunum með látum.
Kauptu næluna á blarapril.is
Einhverfa er alls konar
Ég á erfitt
með að
tilfinningar