Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.04.2021, Qupperneq 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.04.2021, Qupperneq 12
VIÐTAL 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.4. 2021 „Ég hafði oft hugsað um að binda enda á Prinsinn þannig að í raun var þetta gott tækifæri. En ég hef samt alveg leyft honum að lifa að hluta. Ég hef ver- ið að gera músík, taka eitt og eitt gigg og er enn í samstarfi við frábæra listamenn um alls konar verkefni,“ segir Svavar, öðru nafni Prins Póló. Morgunblaðið/Ásdís H ann gengur undir listamanns- nafninu Prins Póló en heitir fullu nafni Svavar Pétur Ey- steinsson. Og þótt hliðarsjálfið sé Prinsinn er maðurinn sem situr á móti blaðamanni með kaffibollann sinn enginn prins. Hann er venjulegur fjölskyldu- faðir, eiginmaður, bulsuframleiðandi, ferða- þjónustubóndi, listamaður og nemi í ljós- myndun. Sem lenti í því að krabbamein bankaði upp á. Veikindin urðu til þess að Svavar lagði kór- ónuna á hilluna en tónlistin er þó aldrei langt undan. Annað slagið dustar hann rykið af gull- kórónunni úr pappa og skellir á höfðuðið, en þessa dagana á ljósmyndun hug hans allan. Já, og grafísk hönnun, myndlist, Havarí og síðast en ekki síst fjölskyldan. Svavar hefur áður ekki viljað tjá sig opinber- lega um veikindi sín, en segist nú tilbúinn. Hann hefur sætt sig við orðinn hlut og nýtur dagsins sem aldrei fyrr. Heillaðist af pönki Svavar er Breiðhyltingur og sleit þar barns- skónum, en sumrunum eyddi hann austur á fjörðum í sveit hjá afa sínum og ömmu. „Ég fæddist í Bökkunum en flutti fimm ára í Hólana þar sem mamma og pabbi byggðu hús. Það var dásamlegt að alast þarna upp, í hverfi sem var að fæðast,“ segir Svavar og segir að sköpunarþörfin hafi snemma farið að segja til sín. „Ég hafði gaman af því að teikna og var kom- inn í kvikmyndagerð tíu, tólf ára, en pabbi átti átta millimetra vél sem við frændur fengum lánaða. Við tókum upp kvikmyndir og sendum filmur í framköllum til útlanda. Þetta voru leiknar myndir; morðsögur og alls konar,“ segir Svavar og brosir. List í ýmsu formi var í hávegum höfð á heim- ilinu en faðir Svavars, eðlisfræðingurinn Ey- steinn Pétursson, var liðtækur á ýmis hljóð- færi. Móðir hans, Aldís Hjaltadóttir, er einnig listræn. „Mamma er tækniteiknari og bæði hún og pabbi höfðu alltaf mikinn áhuga á list og tónlist. Ég er alinn upp við klassíska tónlist og pabbi spilaði á harmóniku og píanó og söng mikið. Það var til nóg af hljóðfærum á heimilinu til að grípa í og ég var mikið að glamra,“ segir Svavar og segist hafa lært á gítar í tvo vetur. „Svo hélt ég bara áfram að glamra. Ég heill- aðist mest af pönki til að byrja með, þar sem sköpunargleði og drifkraftur ræður ríkjum,“ segir hann og segist hafa hlustað á íslenska ný- bylgju og Sex Pistols sem unglingur. Ég er fæddur alkóhólisti Svavar segist hafa farið í uppreisn á unglings- árunum en hann byrjaði snemma að drekka. „Ég var mjög friðsæll fram að unglings- árunum, en þau ár voru frekar erfið. Ég var aldrei feiminn krakki; frekar opinn, en lokast mjög á unglingsárunum. Það var ekkert sem kom fyrir mig; ég kem úr mjög vernduðu um- hverfi, alinn upp af umhyggjusömum foreldrum og það voru engin vandamál í kringum mig. En ég lokaðist bara á þessum tíma. Ég og vinir mínir fórum saman í uppreisn; gegn skólanum, foreldrum og umhverfinu. Við byrjuðum ungir að drekka og fara að heiman, sem okkur fannst voða sniðugt á þeim tíma. Við vildum vera sjálf- stæðir og fannst við fullorðnir; fannst við mega allt og geta allt og að allir aðrir væru hálfvitar. Ég veit eiginlega ekki af hverju þessi umturnun varð í mínu lífi, en eitthvað tengist það því að byrja að drekka og það verða einhver hughvörf. Ég fann fyrir áður óþekktu frelsi við það að neyta áfengis og ég sótti þá í það aftur og aftur. Svo varð það að lífsstíl og allt annað var kjaft- æði,“ segir Svavar og segist fljótt hafa verið farinn að drekka um hverja helgi. Svavar segist hafa notað áfengi til að opna sig en áttaði sig á því síðar að hann hafði í raun verið að skvetta olíu á eld. „Við drykkju jókst kvíðinn og þá drakk mað- ur meira, þannig að þetta varð vítahringur. Í dag væri litið á þetta sem alvarlegt vandamál en í þá daga komust krakkar upp með þetta,“ segir hann. „Ég held ég sé fæddur alkóhólisti og hvaðan það kemur veit ég ekki. Það er ekki alkóhólismi í minni fjölskyldu og ég er ekki alinn upp við áfengi. En mér fannst áfengi rosalega spenn- andi og alveg frá því ég var lítill hafði ég gíf- urlegan áhuga á öllu sem tengdist því. Að hella í sig um helgar varð svo hluti af lífinu alveg fram yfir þrítugt. Ég var alltaf í einhverju partí Ég er ekki í óttanum Prins Póló þekkja flestir, enda þjóðþekktur tónlistarmaður sem glatt hefur landann með óvenjulegri tónlist og skemmtilegum textum. Prinsinn, sem heitir Svavar Pétur Eysteinsson, greindist í árslok 2018 með fjórða stigs krabbamein í vélinda og lagði hann þá kórónuna á hilluna. Svavar er þó síður en svo búinn að leggja árar í bát og vinnur jöfnum höndum að myndlist, ljósmyndun og tónlist. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is ’ Það er ekki alkóhólismi í minni fjölskyldu og ég er ekki alinn upp við áfengi. En mér fannst áfengi rosalega spennandi og alveg frá því ég var lítill hafði ég gífurlegan áhuga á öllu sem tengdist því. Að hella í sig um helgar varð svo hluti af lífinu al- veg fram yfir þrítugt. %

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.