Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.04.2021, Page 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.04.2021, Page 17
það að koma sér á braut eyðileggingar ózonlagsins. Tveir efnafræðingar hófu að rannsaka málið og sáu í hvað stefndi. Á þessum tíma hafði enginn vís- indamaður nokkurn áhuga á hamfarahlýnun enda ekki komið að henni. Sem var nú eins gott, því mikið var flogið fram og til baka á ráðstefnur og bifreiða- framleiðsla gekk vonum framar og púströr þóttu táknræn fyrir heilbrigð hestöfl í þjónustu mannkyns. Enda þótti ekkert slíkt hafa neitt með það að gera að heimurinn væri um það bil að fara að tortíma sjálf- um sér tæpum þremur áratugum eftir seinni heims- styrjöld, en nú með því að eyðileggja ózonlagið, sem fæstir höfðu heyrt nefnt. Kjarnorkuváin var ekki langt undan en varð þó að bíða um hríð vegna ózon- óttans. Það sýnir best hversu ógnir við mannkynið geta dulbúist vel, vegna þess að það sem ekki síst stefndi heimsbyggðinni í glötun voru bæði spreybrús- ar með svitalyktareyði og ísskápar heimilanna og aðrar gerðir kælitækja! Fréttamenn, sem eiga að vera öryggisventill og upplýstir gagnrýnendur lýðsins, eru jafnan hinir fyrstu sem hoppa á vagna heimsenda, eigi þeir leið fram hjá þeim. Þeir sviku ekki ózonlagið frekar en annað. Ózonlagið var í mörg ár fyrsta og síðasta lagið fyrir og eftir fréttir allra þeirra fjölmiðla sem vildu láta taka sig alvarlega. Það tekst þeim reyndar iðu- lega, þótt baráttuefnin verði stundum hálfgerð að- hlátursefni síðar meir. En þá eru hinir vökulu varð- menn fyrir löngu komnir annað. Pínlegur heimsendir En vísindaheimurinn komst smám saman í ákveðin vandræði með ózonlagið og endalok heimsins vegna þess. Aðeins 14 eða 15 árum eftir að ógnunin mikla var uppgötvuð og viðurkennd var haldin ráðstefna í Montreal sem lauk málinu formlega með gildistöku tveimur árum síðar. Vísindamenn hafa síðan flykkst á ráðstefnur á tveggja ára fresti eða svo til að taka stöðuna og sann- færa sig um að „aðgerðaáætlun“ sem enginn utan hópsins gæti vitað um hvað snýst, gangi vel. En sein- ustu upplýsingar segja að „vandinn“ fari jafnt og þétt minnkandi og að ózonlagið geti séð um sig sjálft, ef það er orðalagið, upp úr árinu 2070 eins og það hafði gert frá örófi alda, allt þar til 1973. Árið 2070 verða allir þeir vísindamenn sem undanfarin 25 ár hafa far- ið á stöðuráðstefnur um ózonlagið algjörlega hættir því og flestir komnir í himnanna rann og því einkar vel staðsettir til áframhaldandi eftirlits. Þessi heims- endir tókst því vel. Það var spítt í hann verulegu fjár- magni á meðan óttinn var bærilega áberandi. Í fram- haldinu tók það heiminn nokkur ár að telja sér trú um að í næsta kafla myndi hann allur farast í kjarnorku- styrjöld. Voru víða byggð rammgerð virki neð- anjarðar með löngum göngum til að bestu menn mannkyns mættu hírast þar á meðan lýðurinn, sem á ekkert gott skilið frekar en fyrri daginn, mátti brúka svörtu heimilisregnhlífina sér til varnar á válegum tíma. Leyniruna á réttum stað En Joe Biden hélt sem sagt fund með valdaspírunum mestu um hamfarahlýnunina. Nú er Biden sá maður sem vestan hafs á síðasta orðið um að senda kjarnorkuflaugar með sprengju- oddum í austurátt, og eins hversu langt. Það er í rauninni mjög traustvekjandi að Joe Biden fari með þetta vald og Hunter haldi í hönd hans. Í þeim fjöl- mörgu kvikmyndum, þar sem þetta áhyggjuefni kem- ur við sögu, þarf forseti Bandaríkjanna iðulega á ögurstundinni stóru að stimpla inn talnarunu, sem hann einn hefur lagt á minnið. Og þeir sem hafa séð til Joe Bidens seinustu miss- erin eru algjörlega sannfærðir um að sá endapunkt- ur muni ekki verða mannkyninu að því fjörtjóni sem ætla mætti. Best væri að leiðin að takkanum væri um 20 tröppur upp á við eða svo og þá ættu allir að vera öruggir, og það jafnvel áður en Biden tekur að rifja upp stafarununa, að þetta verður „happy end“ eins og í fyrrnefndum myndum. Þeir voru ólíkir forsetinn núverandi og fyrirrenn- arinn því að Trump átti dálítið erfitt með að fara nið- ur tröppur, svo þetta, eins og annað, gekk svona upp og niður hjá þeim. Duttu flestir í fjarfundastiganum En fjarfundur valdamanna um hamfarahlýnun gekk ekki snurðulaust fyrir sig og skilaði ekki miklu þótt leiðtogarnir læsu stuttan pistil um það hvernig hver og einn ætlaði að bjarga heiminum undan steikjandi hita framtíðar. Fundarboðendur sem og Douglas Brinkley sagnfræðingur, sérfróður í bandarískri for- setasögu, sögðu að vissulega hefði loftslagsráðstefna Bidens verið, sem fjarfundur, sögulegur atburður. En þeir viðurkenndu að á daginn kom að að jafnvel valdamestu menn veraldar gætu lent í svipuðum vanda og Jóna og Gvendur, en fjarfundabúnaður leikur þau hjón iðulega grátt á veirutímum. „Aldrei áður hefur verið stofnað til slíks alþjóðlegs fundar á allra efsta þrepi þess,“ sagði Brinkley en bætti þó við „að óneitanlega hafi verið með ólík- indum hversu vanbúin tæknin hafi reynst til verks- ins. Hvernig megum við ímynda okkur að við séum fær um að leysa ógn hamfarahlýnunar þegar við virðumst ófær um þá tækni að tengja helstu þjóð- arleiðtoga veraldar saman til að funda um slíkt verk- efni?“ Ógleymanlegur fundur sem allir vilja gleyma Opnunarræður Bidens forseta og Harris varaforseta voru alteknar af vandræðalegum endurómi og berg- máli svo hvert orð sem þau sögðu var endurtekið a.m.k. í tvígang. Virtust upptökutæki og hátalarar tengjast svo ólánlega að svo ankannalega fór. Sérlega vandræðalegt var það svo þegar Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kynnti Pútín for- seta til sögunnar sem næsta ræðumann. En þá birt- ist Macron forseti Frakklands á öllum skermum þátttakenda og flakkaði svo í skiptum við Pútín inn og út af skerminum og var til þess tekið að Pútín mætti þessum „inn og út um gluggann“-dansi með ískaldri þögn! Honum var ekki skemmt. Ekki tók betra við þegar Xi Jinping forseti Kína hóf mál sitt. Þá leið langur tími þar til túlkur tók að snúa þeirri ræðu yfir á ensku svo upphafsræðan var fyrir löngu farin hjá í hvert skipti þegar þýðingin dúkkaði upp. Og ekki er líklegt að upplitið hafi verið beysnara varðandi yfirfærslur á önnur tungumál. Brinkley sagðist gera ráð fyrir að misheppnað fyrirkomulagið eitt og sér yrði talið til þess fallið að draga mjög úr líkum þess að nokkur árangur yrði færður til bókar eftir þennan fund. „Það er auðvitað þannig að fundir æðstu manna eru ætlaðir til óform- legra funda þeirra, enda gerir enginn neitt með upp- lesna ræðustúfa úr púlti. Út úr slíku kemur aldrei neitt sem sætir tíðindum. En okkur ætti þó að vera óhætt að segja að þessi fundur hafi sennilega verið betri en enginn fundur!“ Morgunblaðið/Ásdís 25.4. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.