Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.04.2021, Blaðsíða 18
Ég hef lengi velt því fyrir mér hversvegna verslun eins og Attikk hafialdrei verið til hér á landi. Maður
sér þetta víðast hvar annars staðar erlend-
is og eru það alltaf búðirnar sem eru efstar
á mínum ToDolista í utanlandsferðum,“ seg-
ir Ýr og bendir á að Attikk sé bæði verslun og
vefverslun sem selur hágæða notaðar hönn-
unar og merkjavörur. Vörurnar flytja Ýr og fé-
lagar inn eða selja í umboðssölu.
Búðarferðir í uppáhaldi erlendis
„London er uppáhaldsborgin mín og ekki aðeins
vegna næturlífsins eða menningarinnar, heldur
akkúrat vegna þess að þar leynist heill haugur
af álíka verslunum og Attikk. Þegar ég fer utan
þá sníð ég dagana mína í kringum versl-
unarferðir í þessar búðir og ætlaði einmitt að
kíkja áður en Covid19 tók fyrir allar utanlands-
ferðirnar,“ segir Ýr.
„Að vísu eru til verslanir á Íslandi sem selja
notaðar flíkur og þar leynast stundum gersem-
ar frá stórum vörumerkjum. Attikk hins vegar
sérhæfir sig í sölu á þessum eftirsóttu vörum og
tryggir að viðskiptavinir séu að kaupa ekta
merkjavöru. Viðtökurnar hafa líka verið ótrú-
lega góðar og margir hverjir sem labba inn til
okkar lýsa yfir því hversu lengi þeir hafi beðið
eftir þessum vettvangi. Það sem mér finnst best
við Attikk er að þú getur bæði komið til okkar í
leit að merkjavöru en þú getur líka loksins gefið
merkjavörum nýtt líf án flækjustigsins sem
fylgir því að selja merkjavöru sem einstaklingur
á Facebook eða Instagram.“ Neyðin kennir
naktri konu að spinna og þegar Ýr komst ekki
utan í verslunarferðir vegna kórónuveirunnar
stofnaði hún einfaldlega verslun á Íslandi.
„Mér kom hugmyndin svo sem ekki beint í
hug heldur var löngunin í ferðatakmörkunum
sökum Covid19 svo mikil að ég fór að velta
þessu svolítið mikið fyrir mér. Ég er ekki aðdá-
andi þess að versla á netinu erlendis frá – þar
leynist svo mikið af aukagjöldum þegar varan
er komin til landsins og biðin getur verið svo
löng. Svo getur það verið svo ótrúlega
svekkjandi að fá vöruna loksins í hendurnar
og þá kannski passar hún ekki.“
Allt gerðist mjög hratt
Ýr heldur áfram: „Ég minntist þá á það í mat-
arboði með fjölskyldunni hvað það vantaði
svona verslun á Íslandi og viku seinna stofn-
uðum við einkahlutafélag. Þetta fór úr ástríðu-
fullu samtali um löngun mína í nýja Pradatösku
yfir í fjármögnun, innkaup, skilmálagerðir,
leigusamning, viðskiptaáætlanir og fleira á örfá-
um dögum.
Ég held að það hafi kannski liðið tvær vikur
frá því að við stofnuðum fyrirtækið þangað til
við vorum byrjuð að smíða og innrétta versl-
unina á Laugaveginum. Það var tímafrekast af
öllu, þrjóskan í okkur að vilja smíða allt sjálf frá
grunni; afgreiðsluborðið, spegla og mátunar-
klefa. Það var samt vel þess virði og kom út al-
veg eins og við höfðum ímyndað okkur.
Þetta gerðist allt rosalega hratt og varð mjög
fljótt að raunveruleika. Ég og unnusti minn er-
Louis Vuitton Musette
Tango-töskuna fékk Ýr að gjöf.
Elskar notaðar
merkjavörur
Umræða um nýja Pradatösku þróaðist út í það að Ýr Guðjohnsen Erlingsdóttir
stofnaði verslunina Attikk fyrr á þessu ári en verslunin selur notaðar merkjavörur.
Ýr sem er aðeins 21 árs var vön að kaupa notaðar merkjavörur erlendis áður en
kórónuveiran skall á og saknaði þess fara í svipaðar verslanir hérlendis.
Guðrún Selma Sigurjónsdóttirgudrunselma@mbl.is
Ýr í Burberrygollu við buxur sem
hún keypti í Hjálpræðishernum.
Taskan er notuð frá Fendi og fékk Ýr
hana í tvítugsafmælisgjöf.
Dragtin er í miklu uppáhaldi hjá Ýr en
hún keypti hana notaða í Hjálpræðis-
hernum. Við dragtina er hún með tösku
frá Prada sem kærasti Ýrar keypti í AT-
TIKK og gaf henni í afmælisgjöf.
Gallabuxurnar eru vintage Levi’s 501
buxur keyptar í London.
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.4. 2021
TÍSKA