Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.04.2021, Síða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.04.2021, Síða 22
V ið lifum á stafrænum tímum og það endurspeglast einnig í því hvernig fólk fylgist með tímanum. Undanfarin ár hafa æ fleiri látið símann duga til þess að gá hvað klukkan er, fyrir nú utan hin notin öll, að geta stillt marga vekjara, sett upp tíma svo eggin harðs- jóði ekki og þar fram eftir götum. Það er því kannski ekki skrýtið þótt hefðbundin úr séu ekki lengur á hverjum úlnlið. Margir hafa auðvitað fengið sér snjallúr, en þau eru ekki síður notuð til þess að fygjast með hreysti og heilbrigði. Samt er það nú svo að enn má finna úraverslanir og það sem meira er: þeim geng- ur alveg ágætlega að selja hefðbundin úr, sem einhver gæti kallað tímaskekkjur! Ástæðan er sjálfsagt sú, að öðrum þræði eru slík úr munaðarvara, skartgripir, iðulega slegin góðmálmum og dýrum steinum, tímalausir hönnunargripir, sem fólk setur upp spari. Það segir kannski sína sögu að síðastliðin ár hefur salan rokið upp á úraöskjum, sem taka 5-20 úr. Af því að til er fólk sem safnar þeim, eins og aðrir safna málverkum, dýrum veigum eða þaðan af skrýtnari hlutum. Velflest úr eru merkjavara, en það eru ekki allir Rolexar jafnir. Sum úr eru tíma- laus klassík, meðan önnur ámóta – jafnvel sjaldgæfari og miklu dýrari – ná því ekki. Það er erfitt að segja til um hvar skilur milli feigs og ófeigs í því, flest er það huglægt, jafnvel hend- ing. Kannski það megi einfaldlega segja að bestu og tímalausustu tímaskekkjurnar séu auðþekkt- ar og áberandi á hógværan hátt, jafnvel þvert yfir salinn á úlnliði og hálffalin af ermastúku. Hér á síðunni má sjá nokkur slík úr og jafnvel upprennandi klassík. Hefbundin úr með vélrænu úrverki eru tæki síðan úr iðnbylt- ingu og ættu með réttu að vera horfin. En það er öðru nær, því slík listasmíð heillar enn marga, safnara sem munaðarseggi. 22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.4. 2021 LÍFSSTÍLL Patek Philippe Nautilus Þetta úr rammar mjög inn úra- hönnun áttunda áratugarins, en það var teiknað af Gérald Genta (hannaði einnig Royal Oak frá Piguet). Patek hefur smíðað urmul undursam- legra úra, en Nautilus, sem heitir eftir kafbáti Nemo kapt- eins úr hugarheimi Jules Vernes, er sennilega mest afgerandi. Og Patek tilkynnti fyrir skömmu að framleiðslunni yrði senn hætt, svo verðið á þeim hefur rokið upp. Jaeger-LeCoultre Reverso Reverso-úrið var upp- haflega smíðað að beiðni pólóleikara á Indlandi, sem vildu óbrjótandi armbands- úr til þess að bera í keppni. Úrsmiðirnir áttu í miklum erfiðleikum með það, þar til einn fékk þá hugljómun að snúa mætti því við, þannig að í leik sneri bakið út og glerið inn. Og ekki er verra að á það má grafa kveðju gefand- ans, merki pólóklúbbsins eða hvað annað. Breguet Classique Tourbillon Þetta er ekki aðeins ákaflega fal- legt úr, heldur með verk- fræðilega sögu í forgrunni. Abraham Louis-Breguet tók út einkaleyfi á hinu sýnilega sigurverki árið 1801, en það vegur gegn þyngdarafl- inu. Við bætast hinir ein- kennandi vísar hans og tölur, sem gera þetta að sögu- legum grip, þótt nýr sé. Omega Speedmaster Það er varla hægt að undirstrika nægilega hversu vel hannað Omega Speed- master er og hví- líkt verkfræðilegt undur þar er á ferð. Það var hannað 1957 og svo vel, að 12 árum síðar var það notað á tunglinu, getur þolað gríðarmikla hröðun og hnjask, gríðarleg segulsvið og já, fínlegt tunglrykið. TAG Heuer Carrera Carreran kom fram 1953 og var smíðað fyrir kappakst- ursmenn eða aðra ámóta íþróttamenn, þar sem hraði og álag fylgjast að. Þessi útgáfa er eilítið stílfærð út- gáfa og er á sinn hátt stílhreinni en frum- gerðin. Og silfurslegin eins og hún. Vacheron Constantin Fiftysix Vacheron hefur smíðað úr í 250 ár, svo það er ávallt áhugavert þegar ný úr koma þaðan. Hér er enginn sjens tek- inn, heldur er þetta „nýja“ úr til- brigði við stef frá 1956, sem er vitaskuld byltingar- kennt á sinn hátt. En eitthvað sér- stakt við það. Cartier Tank Louis Cartier lét hanna þetta úr fyrir skriðdrekaherdeild- irnar sem héldu óvinahern- um í skefjum frá París í fyrri heimsstyrjöldinni og þess vegna er það kallað Tank. Það hefur frá fyrsta degi notið ómældra vinsælda hjá þjóðhöfðingjum og kvik- myndastjörnum, íþrótta- mönnum sem aðalsfólki. Seg- ir sína sögu að bæði Muham- med Ali og Andy Warhol báru það vel. Blancpain Fifty Fat- homs Barakuda Nú orðið er auðvelt að verða sér úti um góð kafaraúr fyrir ekki of mikla peninga, þótt fæstum sé þeim nokkru sinni dýft í kalt vatn. Þetta er hins vegar alvörukaf- araúr, upphaflega smíðað fyrir sérsveitir kafara franska flotans 1957, þótt Barakuda sé raunar útgáfa fyrir þýska kollega þeirra. Audemars Piguet Royal Oak Royal Oak er auð- þekkjanlegt á færi, hin átthyrnda, skrúfaða skífa sér til þess. Það var hannað 1972 en náði sér virki- lega á strik sem úr fyrir „áttuna“, sem við hin nefnum níunda áratuginn. Með því var búinn til nýr stíll og raunar mótaði hann alla hönn- un Piguet upp frá því. Hermès Gal- op d’Hermès Fóki fyrirgefst þótt það haldi að hér sé endur- lífguð 100 ára hönnun á ferð hjá Hermès, en hún er ekki nema tveggja ára gömul og engu lík. Við blasir að þetta er úr allra alvöruhesta- manna eða -kvenna, enda í laginu eins og ístað, og stærðin ekki bundin við eitt kyn umfram annað. Ef það er ekki nógu dýrt þá getur Hermès selt þér arm- bönd í stíl. Rolex Oyster Perpetual 41 Rolex er þekktasta mun- aðarúragerð heims og þetta ein- falda úr er rót ætt- artrésins þar á bænum. Öll önnur Rolex- úr eru ein- hvers konar tilbrigði eða snún- ingur af þessu úri. Það er einfalt að sjá, en hönnunin má heita fullkomin, ein- föld en geometrísk, 20. öldin í öllu sínu veldi. IWC Portugieser Portúgalinn frá IWC hefur verið svo að segja óbreyttur áratugum sam- an, enda nánast fullkomnun í arm- bandsúri. Það var hannað fyrir tvo portúgalska kaupmenn á fjórða áratugnum og þótti þá í stærsta lagi, en það má segja að Portúgalinn hafi breytt smekk manna um það, en á stríðsárunum komu stórar skífur raunar í góðar þarf- ir. Það verður vafalaust óbreytt eftir aðra átta áratugi. Zenith Chronomaster Sport Zenith sýnir að það er vel hægt að búa til nýja klassík, en framleið- andinn var fyrstur á markað með hárnákvæman tímastilli, sem dugar til þess að taka tíma þótt sitthvað gangi á. Það var afrek ár- ið 1969 og er það í raun enn, þegar allt innvolsið er vélrænt og þarf að verja fyrir tregðu, hröðun og þyngdarafli. Tímalausar tímaskekkjur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.