Fréttablaðið - 07.10.2021, Blaðsíða 15
Fjármálafyrirtæki hafa
mikilvægu hlutverki
að gegna við að sporna
gegn því samfélagslega
meini sem peninga-
þvætti er.
Peningaþvætti er því miður ekki
bara eitthvað sem við sjáum í reyf-
arakenndum bíómyndum, heldur
er það raunverulegt mein í okkar
samfélagi. Íslensk fjármálafyrirtæki
hafa á liðnum árum varið auknu
fjármagni og vinnu til að sporna
við peningaþvætti og eins og mikið
hefur verið fjallað um í fjölmiðlum
er ekkert ríki eyland í þeirri baráttu.
Þannig hefur verklag verið bætt
samhliða því sem lög og reglur hafa
tekið framförum, nýr hugbúnaður
tekinn í notkun og síðast en ekki
síst hefur starfsfólk fengið þjálfun
við að koma auga á viðskipti eða
aðra gjörninga sem kunna að fela í
sér peningaþvætti.
Einföld skilgreining á peninga-
þvætti er þegar illa fengið fé er látið
líta löglega út og þannig nýtt í lög-
mætum viðskiptum. Einfalt dæmi
er einyrki sem fær laun fyrir svarta
vinnu millifærð á reikning sinn.
Uppruni slíks fjár er þá skattalaga-
brot. Öllu alvarlegri dæmi geta svo
verið einstaklingur sem leggur ágóða
af fíkniefnasölu inn á reikning sinn
eða jafnvel aðili sem kemur greiðslu
fyrir vændi inn á reikning þoland-
ans. Flóknari peningaþvættisbrot
geta svo átt sér stað til dæmis í gegn-
um langa og flókna eigendakeðju
lögaðila, jafnvel staðsettra víða um
heim, þar sem fjármunir eru fluttir
úr einum vasa í annan til að hylja
uppruna þeirra sem getur til dæmis
verið skipulögð glæpastarfsemi.
Peningaþvætti er því raunveruleg
ógn sem á sér stað í þeim tilgangi að
koma ágóða af hvers kyns lögbrotum
inn í „kerfið“ og flétta hann þannig
saman við lögmæt viðskipti.
Á íslensk fjármálafyrirtæki (sem
og f leiri aðila, til dæmis lögmenn,
fasteignasala og hverja þá sem hafa
með tiltekna umsýslu fjármuna
að gera), er lögð mikilvæg ábyrgð
og skyldur. Þeim ber að sporna við
peningaþvætti í starfsemi sinni í
hvaða mynd sem það getur tekið á
sig. Til þess þurfa þau að búa yfir
öf lugum vörnum, svo sem eftir-
litskerfum og árvökulu starfsfólki.
Reynslan hefur sýnt að engin ein
nálgun, aðferð eða kerfi getur leyst
allt framangreint af. Hið mannlega
auga getur numið hegðun sem eftir-
litskerfi grípa ekki og öfugt.
Ein af mikilvægustu vörnum fjár-
málafyrirtækja gegn peningaþvætti
á sér stað við upphaf viðskiptasam-
bands. Væntanlegur viðskiptavinur
er þá, í samræmi við þær reglur sem
stjórnvöld setja, látinn sanna á sér
deili og svara spurningum um ýmis
atriði sem nýtast fjármálafyrirtækj-
unum við eftirlit sitt. Þetta ferli
þekkjum við sem „áreiðanleika-
könnun“ (e. „KYC“ sem stendur fyrir
„know your customer“). Skiljanlegt
er að væntanlegum viðskiptavinum
þyki allar þessar spurningar og
formlegheit hvimleið, þreytandi og
jafnvel tilhæfulaus, en allt er þetta
hluti af mikilvægum vörnum fjár-
málakerfisins við að úthýsa ágóða
af lögbrotum og í samræmi við
þau skilyrði sem löndin í kringum
okkur hafa sett í alþjóðlegri baráttu
gegn peningaþvætti.
Fjármálafyrirtæki hafa mikilvægu
hlutverki að gegna við að sporna
gegn því samfélagslega meini sem
peningaþvætti er. Einnig er mikil-
vægt að viðskiptavinir þeirra, bæði
einstaklingar og lögaðilar, geti verið
þess fullvissir að varnirnar séu í
lagi, því samfélagið í heild sinni
nýtur góðs af því að viðskipti með
fjármagn fari fram með löglegum
hætti. Slíkt eykur trúverðugleika
fjármálakerfisins og gerir fjármála-
fyrirtækjum auðveldara fyrir að
þjóna viðskiptavinum sínum með
betri og skilvirkari hætti – jafnvel
þó svo spurningaflóðið í upphafi
viðskiptasambands geti á stundum
virst framandi. n
Peningaþvætti
á mannamáli
Rut Gunnarsdóttir,
regluvörður
Íslandsbanka
FIMMTUDAGUR 7. október 2021 Skoðun 15FRÉTTABLAÐIÐ