Fréttablaðið - 07.10.2021, Blaðsíða 13
Landskjörstjórn gaf út kjörbréf
eftir að hafa komist að þeirri
niðurstöðu að ekki hefði verið
sýnt fram á að meðferð kjör
gagna og endurtalning atkvæða í
Norðvesturkjördæmi hefði verið
samkvæmt lögum.
Þó að landskjörstjórn úrskurði
ekki um gildi kosninga getur
hún tekið afstöðu til þess hvort
annmarkar hafi verið á fram
kvæmdinni. Það gerði hún þegar
kosningar til stjórnlagaþings voru
kærðar til Hæstaréttar 2011.
Óvissa
Alþingi tekur nú í fyrsta skipti
við kjörbréfum með efasemdum
landskjörstjórnar um að fram
kvæmd endurtalningar í einu
kjördæmi hafi fullnægt lagaskil
yrðum í veigamiklum atriðum.
Og niðurstaðan hefur skiljanlega
verið kærð.
Þetta hefur valdið óvissu um
hverjir eru réttkjörnir alþingis
menn. Slík réttaróvissa, sem snýr
að sjálfri undirstöðu lýðræðisins,
er fordæmalaus.
Hvaða frávik eru leyfileg?
Þorsteinn
Pálsson
n Af Kögunarhóli ÁgalliÓlafur Jóhannesson vék að þeim
ágalla í riti sínu Stjórnskipun
Íslands, sem út kom 1960, að
Alþingi skæri sjálft úr um gildi
eigin kjörbréfa. Vandamálið er því
löngu þekkt, en breytir ekki hinu
að fara verður að gildandi stjórn
skipunarreglum.
Þingið þarf ekki að eyða miklum
tíma í rannsóknir. Það á fyrst og
fremst að meta lagarök málsaðila,
kærenda og dómsmálaráðuneytis,
sem er æðsti framkvæmdavalds
hafinn, sem ber ábyrgð á fram
kvæmd kosninganna.
Verulegir annmarkar á fram
kvæmd kosninga eru forsenda
ógildingar. Helsta fordæmið þar að
lútandi er ákvörðun Hæstaréttar
um ógildingu kosninga til stjórn
lagaþings.
Fordæmi
Í því tilviki komst Hæstiréttur
að þeirri niðurstöðu að í fimm
atriðum hefðu verið annmarkar á
framkvæmd kosninganna og þar
af verulegir í tveimur. Annar veru
legu annmarkanna laut að því að
umboðsmenn voru ekki kallaðir
til.
Í Norðvesturkjördæmi varð ein
mitt misbrestur á viðveru umboðs
manna.
Hæstiréttur ógilti stjórnlaga
þingskosninguna með tilvísun í
öll fimm atriðin. En hann tók ekki
beint afstöðu til þess hvort annað,
eða bæði atriðin þar sem ann
markar voru verulegir, hefði dugað
til sömu niðurstöðu.
Alltént hefur Hæstiréttur sett
það skýra fordæmi að misbrestur
á viðveru umboðsmanna telst vera
verulegur annmarki.
Traust
Þá vaknar sú spurning hvort brot
á lögum um vörslu kjörgagna milli
talningar og endurtalningar teljist
vera verulegur annmarki.
Af fordæmi Hæstaréttar má ráða
að ekki þarf að sýna fram á að líkur
standi til að átt hafi verið við kjör
gögnin á þessum tíma.
Reglurnar eru settar til þess að
skapa traust. Sé ólögmæt meðferð
kjörgagna líkleg til að veikja traust
ætti annmarkinn að teljast veru
legur samkvæmt fordæminu.
Lagarök
Þegar kærur vegna stjórn laga
þings kosninganna komu til
ákvörðunar í Hæstarétti, færðu
landskjörstjórn og dómsmála
ráðuneytið fram lögfræðileg rök
fyrir því að kæruefnin ættu ekki að
leiða til ógildingar.
Hæstiréttur hafnaði hins vegar
rökum þeirra.
Á sínum tíma kom ýmsum
á óvart hversu strangar kröfur
Hæstiréttur gerði. Alþingi getur þó
ekki horft fram hjá þeim afdráttar
lausu fordæmum nú.
Dómsmálaráðuneytið
Landskjörstjórn hefur þegar lýst
því yfir að ekki hafi verið sýnt
fram á að farið hafi verið að lögum
við endurtalninguna. Ósennilegt
er því að hún andmæli lagarökum
kærenda eins og 2011.
Framkvæmd kosninga heyrir
undir dómsmálaráðuneytið.
Alþingi verður því að kalla eftir
lagarökum þess eins og Hæstirétt
ur gerði, varðandi gildi kosninga til
stjórnlagaþings.
Mesta spennan er að sjá hver þau
verða. Helsta spurningin er hvaða
lærdóm ráðuneytið dregur af því
að Hæstiréttur hafnaði lagarökum
þess 2011. Þetta er því mikilvægara
að ekki er ólíklegt að meirihluti
þingmanna halli sér á endanum
að lagarökum dómsmálaráðu
neytisins.
Andmæli dómsmálaráðuneytið
ekki ógildingarkröfunum er erfitt
að sjá að Alþingi eigi annan kost
en að fallast á þær.
Uppkosning?
Komi til uppkosningar hafa
kjósendur í Norðvesturkjördæmi
vitneskju um úrslit í öðrum kjör
dæmum. Þetta er mikill ágalli. En
hann getur ekki haft áhrif á lög
fræðilegt mat á því hvort kosning
skuli ógilt eða ekki.
Lög mæla einfaldlega fyrir um
að uppkosning skuli fara fram, ef
þeir verulegu annmarkar voru á
framkvæmd kosninganna að þeir
leiði til ógildingar.
Það er svo önnur spurning hvort
Alþingi getur takmarkað ógilding
una við síðari talninguna þannig
að sú fyrri gildi. Um það eru ekki
eins skýr fordæmi. n
Solihull nálgunin byggir á heildrænni aðferðarfræði fyrir foreldra og fagaðila þar sem markmiðið er að auka skilning
á tilfinningalegri og andlegri heilsu barna. Námskeiðin nýtast öllum þeim sem koma að uppeldi og umönnun barna.
SOLIHULL NÁMSKEIÐ Í BOÐI
GEÐVERNDARFÉLAG
ÍSLANDS
TVEGGJA DAGA GRUNNNÁMSKEIÐ,
VAL UM TVÆR DAGSETNINGAR:
a) 12. okt. og 2. nóv., kl. 9-16
b) 16. og 30. nóv., kl. 9-16
Hámark 12 þátttakendur í hvort skipti.
Leiðbeinendur:
Elísabet Sigfúsdóttir, félagsráðgjafi og fjölskyldu
fræðingur og Gunnlaug Thorlacius félagsráðgjafi
AÐ SKILJA ÁFÖLL
1. nóvember, kl. 9-16
Leiðbeinandi:
Anna María Jónsdóttir
geðlæknir
HEILAÞROSKI
29. nóvember, kl. 9-13
Leiðbeinandi:
Anna María Jónsdóttir
geðlæknir
TENGSLAMYNDUN
15. nóvember, kl. 9-16
Leiðbeinandi:
Anna María Jónsdóttir
geðlæknir
Námskeiðsgjald
Tveggja daga grunnnámskeið: 59.000 kr.
Önnur námskeið: 29.000 kr.
Tryggðu þér sæti í tíma!
Skráning á www.gedvernd.is
eða með netpósti á gedvernd@gedvernd.is
FIMMTUDAGUR 7. október 2021 Skoðun 13FRÉTTABLAÐIÐ