Fréttablaðið - 07.10.2021, Blaðsíða 17
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
FIMMTUDAGUR 7. október 2021
Þórdís Helgadóttir er hæfileikarík skáldkona með sterka rödd og rómantískan fatastíl. Kjóllinn er úr Maiu og jakkann fann hún á fatamarkaði. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Gæti aldrei verið stílhrein
Þórdís Helgadóttir er með tvær bækur í jólabókaflóði þessa árs, annars vegar ljóðabókina
Tanntöku, sem hún gefur út á vegum Forlagsins, og skáldsöguna Olíu, sem hún skrifar í
samstarfi við fimm aðra höfunda sem skrifa undir nafninu Svikaskáld. 2
Flytjendur, frá vinstri: Þorleifur Gaukur,
Tómas, Leifur og Magnús. MYND/AÐSEND
starri@frettabladid.is
Óskalög hlustenda verða flutt
á hádegistónleikum í Borgar-
bókasafninu Grófinni í dag, í
Gerðubergi í Breiðholti á morgun
föstudag og loks í Spönginni í
Grafarvogi á laugardag.
Tónleikarnir eru hluti af tón-
leikaröðinni Jazz í hádeginu, og
nú eru það fastagestir tónleika-
raðarinnar sem fá að velja lögin
en á síðustu tónleikum gafst þeim
kostur á að skrifa niður óskalög.
Fjöldi fjölbreyttra og skemmtilegra
óskalaga barst skipuleggjendum
tónleikanna en bróðurpartinn
af þeim má flokka sem íslensk og
erlend dægurlög. Tónleikarnir í
dag og á morgun hefjast klukkan
12.15 og standa yfir til 13. Tónleik-
arnir á laugardag hefjast klukkan
13.15 og standa yfir til 14.
Djass í hádeginu
Flytjendur eru Þorleifur Gaukur
Davíðsson sem spilar á munn-
hörpu, Tómas Jónsson spilar á
píanó, Magnús Trygvason Eliassen
á slagverk og Leifur Gunnarsson
spilar á kontrabassa.
Tónleikaröðin Jazz í hádeginu
hefur getið sér gott orð undanfarin
sjö ár og var meðal annars tilnefnd
til Íslensku tónlistarverðlaunanna
fyrr á þessu ári.
Aðgangur er ókeypis.
Nánari upplýsingar má finna
á Facebook-síðu Borgarbóka-
safnsins. n
Óskalög
hlustenda leikin á
hádegistónleikum