Fréttablaðið - 07.10.2021, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 07.10.2021, Blaðsíða 32
Notuð voru lögmál dansins til að koma öllum þáttum sögunn- ar til skila á táknrænan en þó sannfærandi hátt. DANS Rómeó og Júlía Þjóðleikhúsið Danshöfundar og listrænir stjórnendur: Erna Ómarsdóttir og Halla Ólafsdóttir Tónlist: Sergei Prokofiev, Skúli Sverrisson – Watching Water Leikmynd: Chrisander Brun Leikmunir: Erna Ómarsdóttir, Ernst Backman, Halla Ólafsdóttir Búningar: Karen Briem og Sunneva Ása Weisshappel Hljóð: Baldvin Þór Magnússon Ljós: Fjölnir Gíslason Dansarar: Ásgeir H. Magnússon, Charmene Pang, Emilía B. Gísladóttir, Erna Gunnarsdóttir, Félix U. Alejandre, Saga Sigurðardóttir, Shota Inoue, S. Andrean Sigurgeirsson, Una B. Bjarnadóttir, Védís Kjartansdóttir Sesselja G. Magnúsdóttir Rómeó og Júlía eftir Shakespeare hefur verið kölluð ástarsaga allra tíma. Hryllingssaga úr heimi feðra- veldisins væri þó kannski frekar réttnefni því í henni eru barna- brúðir viðurkennd leið til að við- halda valdi og drengir eru aldir upp við að bardagar, hefndir og dauði séu eðlilegur hluti af samfélaginu. Í sögunni er Júlía komin á gift- ingaraldurinn þrettán ára gömul og vart farin að hafa á klæðum. Hún er saklaus og nánast barnsleg enda á hún á að vera óspjölluð fyrir verðandi eiginmann sinn, mun eldri mann. Fyrir tíma getnaðar- varna voru barneignir óhjákvæmi- legir fylgifiskur kynlífs svo skírlífi tryggði engin börn. Rómeó, líklega einhverjum árum eldri en Júlía, á aftur á móti að kynnast lífi karl- mannsins. Að geta barist og haldið heiðri með blóðhefndum er hluti af því og að kynna sér og æfa sig í kyn- lífi hjá þar til gerðum konum –barn- eignir þeirra eru ekki umfjöllunar- efni í þessari sögu frekar en annars staðar. Í veruleika og söguheimi Shakespeares er því ekki pláss fyrir smáskot unglinga sem eru að upp- götva eigin líkama eftir breytingar kynþroskaaldursins og nýjar og spennandi kenndir. Hvað þá ef fjölskyldur þeirra berjast á bana- spjótum um áhrif og völd. Lögmál dansins Það er ekki okkar að dæma samfélög fyrri tíma en algjörlega okkar að skoða þau á gagnrýninn hátt út frá okkar siðgæði. Dansverkið Rómeó og Júlía eftir Ernu Ómarsdóttur og Höllu Ólafsdóttur, sem frum- sýnt var af Íslenska dansflokknum á Stóra sviði Borgarleikhússinn föstudaginn 1. október, náði á sterkan hátt að sýna okkur söguna með gleraugum okkar samtíma og siðgæðis. Notuð voru lögmál dans- ins til að koma öllum þáttum sög- unnar til skila á táknrænan en þó sannfærandi hátt. Bardagasenur á milli ættanna birtast í hráu ofbeldi, spörkum og kýlingum, þar sem karlar berir að ofan blésu sig út eins og hanar í slagsmálum. Líkamsbeit- ing þeirra endurspeglaði neikvæða karlmennskuímynd þar sem hroki, yfirgangur og kynferðislegar hreyf- ingar eins og árásargjarnir mjaðm- ahnykkir voru áberandi. Óbeisluð veisluhöld þar sem kynferðislegar langanir fengu útrás voru sett á svið. Mitt í þessu öllu birtist ástin í blíðlegri nærveru að reyna að lifa af og sakleysið að finna sér farveg í hörðum heimi. Frumlegir búningar Erna og Halla eru trúar sögunni og nota til þess tónlist Sergei Proko- viev sem grunn að uppfærslunni. Fyrir þá sem horft hafa á ballett- inn við þá tónlist eru senurnar auðþekkjanlegar og stemmingin í hverri þeirra kemst vel til skila þó útfærslan sé gjörólík. Dansinn og líkamleg tjáning er góður miðill til að koma öllu því tilfinningagalleríi sem er í sögunni til skila en krefst um leið sterkrar danssmíði einhvers sem höfundarnir kunna að nýta sér til fulls. Val á hreyfingum, notkun rýmisins og samspil dansaranna varð að vera vel útfært til að merk- ingin kæmist til skila og þar vantaði ekkert upp á. Í bland við ögrandi og frumlega búninga og stílhreina og sterka leikmynd tókst danssköpun- in einstaklega vel. Flæðið í verkinu var gott og hvað eftir annað urðu til töfrandi augnablik sem heill- uðu áhorfandann. Meira að segja á meðan myndum var varpað á skjá í seinni hlutanum, greinilega nýttar til sviðskiptingar, hélst stemmingin og heildarflæðið en ljós og reykur hjálpuðu þar til. Mikill hraði Eitt af því sem var áhugavert við dansinn var að hefðbundin kyn- hlutverk voru þurrkuð út. Enginn einn var Júlía eða þá Rómeó heldur tjáði hópurinn þau og tilveru þeirra sem heild. Kvendansararnir voru jafn útbelgdir bardagaseggir og karldansararnir. Val á hreyfiforða var áhugavert. Í upphafi verksins voru sterkar vísanir í ballett, fág- aðan og ljóðrænan með yfirstéttar- brag en þegar líða fór á sýninguna og sagan varð alvarlegri fór lík- amsbeitingin að verða gróteskari, dansararnir færðust nær gólfinu og dýrslegri líkamstjáning kom í ljós. Allir hlutar verksins voru gífurlega krefjandi fyrir dansarana. Hraðinn var mikill og nánast engin pása því allir voru á sviðinu nær allan tím- ann. Dansararnir stóðu vel undir væntingum allir sem einn og unnu saman sem smurð vél. Rómeó og Júlía er heils kvölds ballett með hléi þar sem sagan af unglingunum sem ekki máttu eigast vegna valdabrölts fjölskyldna sinna er sett fram á frumlegan og sterkan hátt. Í dansverkinu er ekki síður ein- blínt á það samfélag og menningu sem sagan fjallar um en ástir ein- staklinganna. Eitthvað sem talar að mínu mati mun sterkar til sam- tímans. ■ NIÐURSTAÐA: Áhrifamikil sýning þar sem dansformið er nýtt til að koma stórum tilfinningum og válegum atburðum til skila á snilldarlegan hátt. Verkið er bæði kröftugt og á köflum ofsafengið en einnig viðkvæmt og fallegt. Ástar- eða hryllingssaga Dansararnir stóðu vel undir væntingum allir sem einn og unnu saman sem smurð vél. MYND/HÖRÐUR SVEINSSON Reykjavík barnanna er stór og vegleg bók sem tekur sig alvarlega og stendur fyllilega undir því. BÆKUR Reykjavík barnanna Margrét Tryggvadóttir og Linda Ólafsdóttir Útgefandi: Iðunn Fjöldi síðna: 97 Brynhildur Björnsdóttir Margrét Tryggvadóttir og Linda Ólafsdóttir eiga að baki sérdeilis farsælt samstarf sem meðal annars skilaði okkur Íslandsbók barnanna árið 2016 sem bæði hlaut Barna- bókaverðlaun Reykjavíkur og Fjör uverðlaunin það árið auk þess að vera tilnefnd til Íslensku bók- m e n n t a v e r ð - launanna í f lokki barnabóka. Nú róa þær á svipuð mið með bókinni Reykja- vík barnanna þar sem saga Reykja- víkur er sögð í aðgengilegu máli og sérstaklega þó myndum allt frá því fyrir land- nám og f ram á ok kar daga. Bókin er að sjálfsögðu ekki bara fyrir börn sem búa í Reykjavík heldur skemmtileg heimild um líf á Islandi í fortíðinni, hvernig þéttbýli myndast og þorp verða til. Á hverri opnu er nýtt umfjöllunarefni, ýmist sögulegir viðburðir, yfirlit yfir ein- staka borgarhluta og kennileiti eða þjónustu á borð við íþróttafélög og sundlaugar. Þá eiga bæði skólp- leiðslur og draugagangur sína kafla, svo dæmi séu tekin um það á hversu mörgum sviðum borgarlífs er snert í bókinni. Reykjavík barnanna er stór og vegleg bók sem tekur sig alvarlega og stendur fyllilega undir því. Það má samt ekki misskilja þessa fullyrð- ingu á þann veg að hún sé leiðinleg, þvert á móti eru umfjöllunarefnin afskaplega fjölbreytt og ekki síður fróðleg fyrir full- orðna lesendur en börn. Tex t i Ma r- grétar Tryggva- dóttur er vel skrifaður, fróð- legur og hæfi- lega einfaldur fyrir yngri les- endur en það eru my ndir Lindu Ólafsdóttur sem gera Reykjavík barnanna að því l ist averk i sem hún er. Á hverri opnu eru málverk í takt við textann sem lýsa fjöl- breyttu mannlífi þar sem sífellt er hægt að finna nýjar sögur og ævin- týri og auka þannig við almennan textann með einstökum sögum. Reykjavík barnanna er fjársjóður fyrir litla og stóra grúskara þar sem þeir geta lifað sig inn í fyrri tíð, velt fyrir sér skipulagsmálum og atvinnuvegum, hvernig borg verður til og hvernig hún þróast og mótast enda er lesendum bent á það í for- mála að hafa samband við borgar- fulltrúa og taka þannig þátt í að móta borgina til framtíðar. ■ NIÐURSTAÐA: Einstaklega fallegt og fróðlegt stórvirki um borgarlíf og sögu fyrir börn og önnur fróð- leiksfús. Reykjavík okkar allra kolbrunb@frettabladid.is A! Gjörningahátíð hefst í dag, fimmtudaginn 7. október, klukkan 20 í Listasafninu á Akureyri og stendur til sunnudags. A! er fjög- urra daga alþjóðleg gjörningahátíð sem haldin er árlega og nú í sjöunda sinn. Ókeypis er inn á alla viðburði. Dagskrána má sjá á listak.is. Sérstök dómnefnd valdi úr inn- sendum umsóknum listamanna og eru fjölbreyttir gjörningar og leik- hústengd verk af öllum toga á dag- skránni. Þátttakendur eru ungir og upprennandi listamenn, ásamt reyndum og vel þekktum gjörn- ingalistamönnum og leikhúsfólki. Að þessu sinni fara gjörningarnir fram í Listasafninu á Akureyri, Menningarhúsinu Hofi, Deiglunni, Mjólkurbúðinni, Eyjafjarðarsveit og á Ketilkaffi. Listamennirnir sem koma fram í ár eru: Þóra Sólveig Bergsteinsdóttir og Liv Nome, Anna Richardsdóttir, Egill Logi Jónasson, Sigtryggur Berg Sigmundsson, Snorri Ásmundsson, Brák Jónsdóttir, Steinunn Gunn- laugsdóttir, Hymnodia, Elisabeth Raymond, Amber Smits og Niklas Niki Blomberg, Hombre Rural og Libia Castro, Ólafur Ólafsson og Töfrateymið. ■ Gjörningar á Akureyri Árleg gjörningahátíð hefst á Akureyri í dag. 24 Menning 7. október 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 7. október 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.