Fréttablaðið - 07.10.2021, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 07.10.2021, Blaðsíða 36
Tryggðu þér áskrift á stod2.is Við viljum vera hjá þér með körfuboltann Njósnari hennar hátignar Elísabetar II., James Bond, er einu og hálfu ári of seinn þegar hann snýr loks aftur í bíó í No Time to Die, sem er svanasöngur Daniels Craig í hlutverki Bonds, sem mætir til leiks án númersins 007 sem hann hefur misst í hendur konu. toti@frettabladid.is James Bond hefur oft látið að­ dáendur sína bíða eftir sér en sennilega hafa þeir aldrei verið jafn óþreyjufullir þar sem frumsýna átti 25. Bond­myndina, No Time to Die, í apríl á síðasta ári áður en öfl sem sjálfur James Bond ræður ekkert við slepptu Covid­19 lausu yfir heims­ byggðina. No Time to Die er fimmta og síð­ asta Bond­mynd leikarans Daniels Craig, sem þó virðist hafa ætlað að kveðja með heilmiklum hvelli og stæl eftir að hafa lýst því yfir, eftir fjórar myndir, að hann væri spennt­ ari fyrir því að skera sig á púls en leika Bond enn einu sinni. Hann dró þessi orð síðar til baka og fátt bendir til annars en að hann muni kveðja með heilmiklum hvelli og stæl. Gagnrýnendur hafa tekið No Time to Die fagnandi, auk þess sem ákveðið mynstur í Bond­ myndum Craigs bendir eindregið til þess að þessi mynd eigi að vera góð. Craig fór feykivel af stað með frá­ bærri endurræsingu myndabálks­ ins í Casino Royale 2006. Síðan kom hin ömurlega Quantum of Solace, sem hlýtur að teljast með allra slök­ ustu Bond­myndunum. Þá blandaði eðalleikstjórinn Sam Mendes sér í málið með glæsilegri 50 ára afmæl­ isveislu myndabálksins í Skyfall, en missti síðan dampinn í Spectre sem olli nokkrum vonbrigðum, þannig að samkvæmt þessu er komið að góðri Bond­mynd. Það leyndi sér varla að Daniel Craig hundleiddist í Spectre, sem benti til þess að hann ætlaði að kveðja Bond með hangandi hendi. No Time to Die hefst eiginlega í beinu framhaldi af bæði Spectre og afstöðu leikarans að henni lokinni. Nokkur ár eru síðan Bond kom erkióvini sínum, Blofeld, undir manna hendur. Bond er hættur störfum hjá MI6 og nýtur eftirlaun­ anna á Jamaíka og hefur því eðli­ lega verið sviptur kennitölunni 007 og leyfinu til að drepa, þegar gamall félagi, Felix Later frá CIA, fær hann til þess að taka upp fyrri hætti í einu endanlegu lokaverkefni. Að hafa hendur í hári Safin, snar­ bilaðs náunga, sem venju sam­ kvæmt ætlar að tortíma heiminum. Rami Malek leikur sótraftinn þann og er hvergi nærri jafn geðþekkur og Freddie Mercury, sem Malek lék með tilþrifum fyrir nokkrum árum. n Bond verður ekki í hel komið Daniel Craig dregur Bond út úr kófinu og kveður að því loknu. MYND/AÐSEND Sjöfaldur Moore Af þeim sex leikurum sem hafa tekið hlutverk Bonds að sér birtist Roger Moore í sjö myndum og heldur enn metinu, þar sem Daniel Craig lætur staðar numið við fimm. Moore eyddi 4.348 dögum sem 007 en Craig toppar hann í dagatalinu með 4.348 daga eftir No Time to Die. Afkastamikill morðingi Talnaglöggum telst til að James Bond hafi drepið um 405 skúrka og fúlmenni í myndabálkinum frá því Sean Connery reið á vaðið í Dr. No 1962. Pierce Brosnan hefur reynst banvænasti Bondinn, með 135 dráp í aðeins fjórum myndum. George Lazenby náði fimm manns í sinni einu mynd, Timothy Dalton 23 í tveimur myndum. Roger Moore kom 90 manns í gröfina og sálgaði til dæmis aðeins einum, manninum með gylltu byssuna, í sam- nefndri mynd. Ungfrú 007 No Time to Die þykir ganga lengst, hingað til, í viðleitninni til þess að hrista karlrembuslepjuna af Bond enda almennt talið löngu tímabært að hann stígi báðum fótum yfir í 21. öldina. Merkingarbærasta breytingin að þessu sinni er að flytja einkanúmer Bonds yfir á Nomi, sem Lashana Lynch leikur, enda ærðust einhverjir óstöðugir við þetta. Barbara Broccoli, fram- leiðandi myndanna, segir löngu tímabært að fólk átti sig á og kyngi því að tímarnir eru breyttir og bendir á að fyrsta bókin um Bond var skrifuð 1952 og að fyrsta myndin hafi komið út 1962. Nauðgari hennar hátignar Cary Fukunaga, leikstjóri No Time to Die, talar enga tæpitungu þegar hann gerir upp skugga- lega fortíð Bonds í gömlu mynd- unum og segir hann í raun hafa verið nauðgara í elstu mynd- unum. Þannig að þótt uppruna- legi Bondinn, Sean Connery, sé enn sá besti að margra mati, þola myndir hans nútímavið- horf illa og Fukunaga nefnir til dæmis atriði í Thunderball þar sem ágengur Bond tekur nei engan veginn sem svar og fær sitt fram með ýtni og yfirgangi. „Þetta myndi ekki ganga í dag.“ Alltaf blindfullur James Bond er annálaður ofdrykkjumaður og engin hætta á öðru en að í raunveruleikanum væri lifrin í honum handónýt, taugakerfið í henglum og hann sjálfsagt dauður úr drykkju. Daniel Craig er drykkfelldasti Bondinn hingað til, eftir að hafa sturtað í sig 85 áfengiseiningum í fjórum myndum. Hann er til dæmis með 26 drykki í Casino Royale og vitaskuld mest í brenndum vínum. Einna helst vodka martini, hristum en ekki hrærðum. Craig tók hins vegar upp á að sulla í Heineken-bjór í Skyfall og Spectre sem þótti næstum jafn alvarlegt stílbrot og að úthluta konu 007. Hristur, hrærður, dauður. Erkifjandinn Bond hefur tekist á við halarófu af mikil- mennskubrjáluðum illmennum í gegnum tíðina og þótt margir vilji meina að hinn gull- óði Goldfinger sé besti Bond-skúrkurinn getur enginn annar en Ernst Stavro Blofeld, stofnandi S.P.E.C.T.R.E., talist hinn eini sanni erkióvinur. Blofeld kemur fyrir í nokkrum bókum og myndum þar sem hann er eftir- minnilegastur í You Only Live Twice í meðförum Donalds Pleasence þar sem hann strauk hvíta kettinum ofan í óvirkum eldfjallagíg í Japan. Christoph Waltz tók síðast ágætis snúning á Blo- feld í Spectre, vitaskuld, og eitthvað mun skína í rúnum rist smetti hans í No Time to Die. LÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 7. október 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.