Fréttablaðið - 07.10.2021, Blaðsíða 16
16 Íþróttir 7. október 2021 FIMMTUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 7. október 2021 FIMMTUDAGUR
Hlutirnir gerast hratt á gervi
hnattaöld. Ári eftir að Ísland
var mínútum frá sæti á EM er
leikmannahópur karlalands
liðs Íslands gjörbreyttur.
kristinnpall@frettabladid.is
FÓTBOLTI Óhætt er að segja að það
verði breytt landslag þegar Ísland
mætir Armeníu annað kvöld. Hér
á árum áður var yfirleitt hægt að
áætla hvaða fjórtán leikmenn koma
við sögu hverju sinni, en staðan
er gjörbreytt og kynslóðaskiptin í
karlalandsliðinu ör í ljósi aldurs og
vandamála leikmanna utan vallar.
Ellefu mánuðir eru liðnir síðan
Ísland var nokkrum mínútum frá
því að komast á sitt þriðja stórmót í
röð, en af þeim ellefu leikmönnum
sem byrjuðu leikinn þann daginn
eru tveir í leikmannahópnum
fyrir leikinn gegn Armenum og af
þeim fimmtán sem komu við sögu
í Búdapest eru fjórir í landsliðshóp
í dag. Ísland á enn veika von um að
komast áfram í umspilið fyrir HM í
Katar á næsta ári, en verkefnið snýst
frekar um að móta nýtt lið og undir
búa komandi kynslóðir fyrir næstu
undankeppnir. ■
Gamla bandið virðist farið af sviðinu
Níu af ellefu leikmönnum sem byrjuðu leikinn í Ungverjalandi og ellefu af fimmtán sem komu við sögu í Búdapest eru ekki lengur í hópnum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Nafnarnir Birkir Már og Birkir eru í hópnum og þremur
leikjum frá leikjameti Rúnars Kristinssonar.
Pressan eykst
á Arnari Þór
Viðarssyni sem
hefur þurft að
taka á ýmsum
málum utan
vallar. Fjögur
stig eftir sex
leiki er rýr upp-
skera en tveir
sigrar á heima-
velli gætu lagað
stöðuna.
Aðeins einn formlega hættur
Af þeim níu leikmönnum sem eru fjarverandi í
þessu landsleikjahléi frá síðasta ári er aðeins
einn þeirra, Hannes Þór Halldórsson, búinn
að gefa það út að landsliðsferlinum sé lokið.
Kári Árnason, Ragnar Sigurðsson og Rúnar Már
Sigurjónsson voru ekki valdir af þjálfarateym-
inu í þetta verkefni og Alfreð Finnbogason,
Jóhann Berg Guðmundsson og Hörður Björg-
vin Magnússon eru frá vegna meiðsla. Þá er
Gylfi Þór Sigurðsson enn í farbanni á Englandi
á meðan lögreglan í Man chester rannsakar
meint brot hans og Aron Einar Gunnarsson var
ekki valinn í hópinn vegna utanaðkomandi
aðstæðna að sögn þjálfarateymisins, sem
ráðfærði sig við Vöndu Sigurgeirsdóttur,
nýkjörinn formann KSÍ, og fráfarandi stjórn,
áður en það ákvað að velja ekki Aron í hópinn
vegna ásakana sem ganga á netinu.
Þá gáfu Kolbeinn Sigþórsson, Hólmar Örn
Eyjólfsson og Sverrir Ingi
Ingason ekki kost á sér
í leikinn gegn Ungverja-
landi, en Ögmundur
Kristinsson og Jón Daði
Böðvarsson voru ekki
valdir í hópinn.
Tæplega helmingi fleiri leikir
Í aðdraganda leikjanna gegn Rúmeníu og Ungverjalandi
voru átta leikmenn í byrjunarliði Íslands sem höfðu
verið í stóru hlutverki á báðum stórmótunum.
Guðlaugur Victor Pálsson, Hörður Björgvin Magnús-
son og Rúnar Már Sigurjónsson höfðu allir spilað
tuttugu landsleiki eða fleiri. Samanlagður fjöldi lands-
leikja leikmanna Íslands þegar flautað var til leiksloka
í Búdapest var alls 906.
Aðeins þrír leikmenn í núverandi leikjahóp
hafa leikið 35 leiki eða fleiri og er hópurinn í
heild sinni með 482 leiki. Það eru tæplega 47
prósentum færri leikir en í leikmannahópnum
sem mætti Ungverjum fyrir ellefu mánuðum.
Af þessum 482 leikjum eiga þrír leikmenn
hópsins í kvöld, nafnarnir Birkir Már og Birkir og
Ari, 283 leiki.
Fjarvera Arons
Einars hefur
vakið mikla
athygli á sam-
skiptamiðlum
en Arnar ákvað
að skilja Aron
eftir utan hóps
eftir viðræður
við stjórn KSÍ.
kristinnpall@frettabladid.is
ÍSHOKKÍ Kvennalandsliðið í íshokkí
hefur í dag leik á öðru stigi undan
mótsins fyrir Vetrarólympíuleikana
í Peking 2022 þar sem efsta lið riðils
ins kemst áfram á lokastig undan
keppninnar. Takist kvennalands
liðinu að komast á Ólympíuleikana
yrði það í fyrsta sinn sem Ísland
sendir lið til þátttöku á Vetrar
ólympíuleikunum í íshokkíi.
Riðillinn átti upprunalega að fara
fram í Gangneung í SuðurKóreu
en vegna samkomutakmarkana í
landinu var ákveðið að mótið skyldi
haldið í Bretlandi. Bretar verða því
á heimavelli í riðlinum og byrjar
Ísland á leik gegn heimaliðinu í
kvöld. Fyrr um daginn mætast Sló
venía og SuðurKórea sem eru með
Íslendingum í riðli.
Af þessum þjóðum er Ísland neðst
á styrkleikalista Alþjóðaíshokkí
sambandsins, í 31. sæti, en Suður
Kórea er efst í 17. sæti. ■
Hefja keppni í
undankeppni ÓL
Frá æfingu kvennalandsliðsins.
kristinnpall@frettabladid.is
HANDBOLTI Kvennalandsliðið í
handbolta mætir Svíþjóð í fyrsta
leik Íslands í undankeppni EM 2022
ytra í dag, en fyrir fram er Svíþjóð
með sterkasta lið riðilsins. Ísland
leikur tvo leiki í þessum landsleikja
glugga, þann seinni gegn Serbíu um
helgina. Síðasta lið riðilsins er tyrk
neska landsliðið.
Hafdís Renötudóttir glímir við
smávægileg meiðsli og er Saga Sif
Gísladóttir til staðar ef Hafdís verð
ur ekki leikfær í tæka tíð.
Tvö lið fara áfram í lokakeppnina
sem fer fram í NorðurMakedóníu,
Slóveníu og Svartfjallalandi á næsta
ári, en þá verða tíu ár liðin frá því að
íslenska kvennalandsliðið komst
síðast á stórmót í handbolta.
Rut Arnfjörð Jónsdóttir, leikmað
ur KA/Þórs, leikur tímamótaleik í
dag þegar hún verður tíunda konan
sem leikur hundrað landsleiki fyrir
kvennalandsliðið. ■
Mæta sterkasta
liði riðilsins í dag
Jóhann
Berg
Meiddur
Alfreð
Meiddur
Gylfi
Þór
Ekki í hóp
Hörður
Björgvin
Meiddur
Ragnar
Ekki í hóp
Birkir
Í hópnum
Rúnar
Már
Ekki í hóp
Kári
Hættur
Guðlaugur
Victor
Í hópnum
Hannes
Þór
Hættur
Aron
Einar
Ekki í hóp
kristinnpall@frettabladid.is
FÓTBOLTI Framk væmdarstjór i
Barcelona, Ferran Reverter, skaut
föstum skotum á fyrrum stjórn
endur félagsins í viðtali þar sem han
sagði að ef Barcelona hefði verið
eðlilegt fyrirtæki hefði það verið
tekið til gjaldþrotaskipta í apríl.
Reverter sakaði fyrrum stjórn um
eyða peningi umfram getu...
„Þegar við tókum við í mar s sáum
við að félagið var tæknilega gjald
þrota. Ef þetta hefði verið almennt
fyrirtæki hefði Barcelona orðið
gjaldþrota og leyst upp,. kom fram
í viðtalinu.“ ■
Barcelona var á
barmi gjaldþrots
Hver tekur við hönskunum?
Hannes Þór Halldórsson kveður sviðið eftir að hafa átt
stöðuna um margra ára skeið. Hannes er besti mark-
vörður í sögu Íslands og skarðið sem hann skilur eftir
sig er stórt. Rúnar Alex Rúnarsson hefur setið á hliðar-
línunni undanfarin ár og beðið eftir tækifærinu.
Ekki er öruggt að Rúnari takist að eigna sér stöðuna
nú þegar Hannes er hættur. Ungu mennirnir Elías Rafn
Ólafsson og Patrik Sigurður Gunnarsson, gera tilkall
til þess að fá tækifærið í þessu verkefni. Elías
Rafn hefur orðið að stjörnu með danska liðinu
Midtjylland á undanförnum vikum. Stór hluti
knattspyrnuáhugafólks vill sjá Elías fá tækifæri.
Á sama tíma hefur Patrik Sigurður staðið sig vel
í Noregi. Rúnar Alex sem er í eigu Arsenal var
lánaður til OH Levuven í Belgíu á dögunum en á
eftir að spila sinn fyrsta leik.