Morgunblaðið - 03.05.2021, Side 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. MAÍ 2021
Mark32net
skrifborðsstóll
Fjölstillanlegur skrifborðsstóll
með netbaki og bólstraðri setu.
Fjöldi áklæða í boði.
VORTILBOÐ
30%
afsláttur
68.957 kr. með örmum
60.255 kr. án arma
Verð m. vsk.
3. maí 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 123.84
Sterlingspund 172.21
Kanadadalur 100.85
Dönsk króna 20.118
Norsk króna 15.029
Sænsk króna 14.717
Svissn. franki 136.01
Japanskt jen 1.1367
SDR 177.8
Evra 149.6
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 183.6078
Hrávöruverð
Gull 1768.8 ($/únsa)
Ál 2432.0 ($/tonn) LME
Hráolía 68.33 ($/fatið) Brent
« Warren Buffett
og Charlie Munger,
stjórnendur Berks-
hire Hathaway, voru
brattir á árlegum
hluthafafundi fé-
lagsins sem haldinn
var um helgina.
Hefur reksturinn
batnað til muna svo
félagið skilaði 11,7
milljarða dala
hagnaði á fyrsta ársfjórðungi en var á
sama tímabili í fyrra rekið með 49,7
milljarða dala tapi. Að sögn FT munar
þar ekki síst um hækkun hlutabréfa-
verðs fyrirtækja sem Berkshire á stóran
hlut í, t.a.m. Apple og Bank of America,
en einnig hefur árið gengið vel hjá fyr-
irtækjum sem mynda kjarnastarfsemi
Berkshire, s.s. hjá tryggingafélaginu
Geico og lestarflutningafélaginu BNSF.
Buffett varaði hluthafa við áhrifum
vaxandi verðbólgu. „Við sjáum að tölu-
verð verðbólga er að eiga sér stað,“
sagði hann. „Við höfum hækkað hjá okk-
ur verðið og [birgjar] okkar hafa hækkað
verðið á því sem þeir selja okkur, og
[markaðurinn] er að sætta sig við það.“
Bætti Buffett við að verðhækkanir
muni halda áfram. „Fólk er með peninga
í vasanum og fúst að borga hærra verð
fyrir hlutina.“ ai@mbl.is
Buffett væntir tölu-
verðrar verðbólgu
Warren
Buffett
STUTT
t.d. haft rýmra um heimaskrifstof-
una.“
Neyslumynstrið ætti að
breytast með haustinu
Hefur fasteignaverð leitað hratt
upp á við og segir Halldór að nýj-
ustu tölur sýni 8,9% hækkun á und-
anförnum tólf mánuðum. Hann
væntir þess að verð húsnæðis haldi
áfram að hækka á þessu ári en
hægi á hækkuninni með haustinu.
„Eftir því sem fleiri eru bólusettir
og lífið kemst í eðlilegra horf grun-
ar mig að hugur fólks muni leita
annað og neyslumynstrið taka
breytingum. Þá gæti það slegið
verulega á þróunina ef stýrirvextir
seðlabankans hækka vegna aukinn-
ar verðbólgu enda hafa margir
kaupendur nýtt sér lága vexti til að
hækka skuldsetningu sína og lán
með breytilegum vöxtum hafa verið
einkar vinsæl sem eykur næmni
heimila fyrir vaxtahækkunum.“
Á móti kemur að eftir því sem at-
vinnulífið réttir úr kútnum, at-
vinnuleysi minnkar og ferðamönn-
um fjölgar vex eftirspurn, t.d. eftir
Airbnb-íbúðum og allt mun þetta
styðja við markaðinn. „Hins vegar
er ósennilegt að við sjáum mjög
mikið innstreymi vinnuafls til
landsins strax enda sýndu fólks-
flutningatölur að fólk streymdi ekki
frá landinu í faraldrinum í neinu
teljandi mæli. Þótt umsvifin í at-
vinnulífinu muni aukast eftir því
sem líður á árið erum við ekki endi-
lega að sjá hópa fólks koma hingað
til lands í leit að vinnu, og þar með
húsnæði, líkt og gerðist þegar hag-
kerfið rétti úr kútnum eftir banka-
hrunið, enda mikið af ónýttu vinnu-
afli fyrir í landinu núna,“ útskýrir
Halldór og spáir því að hækkun
fasteignaverðs á ársgrundvelli gæti
farið upp í 12-14% áður en mark-
aðurinn tekur að kólna með haust-
inu.
Mikið framboð nýrra eigna
hægði ekki á markaðinum
Í samfélagsumræðunni hafa
margir fullyrt að mikil þörf sé fyrir
fleiri nýjar íbúðir til að framboð og
eftirspurn nái jafnvægi. Spjótin
hafa einkum beinst að sveitarfélög-
unum á höfuðborgarsvæðinu og þau
verið gagnrýnd fyrir að ýta upp
fasteignaverði með takmörkuðu
framboði á byggingalóðum og háu
lóðaverði. Halldór segir skiptar
skoðanir um hve mikið framboð
nýrra eigna þarf að vera til að við-
halda jafnvægi, og eins hve mikil
uppsöfnuð þörf hefur myndast á
markaðinum. „Í fyrra komu 2.500
fullkláraðar íbúðir inn á höfuðborg-
arsvæðinu sem er langt yfir með-
altali undanfarinna ára. Engu að
síður virðist þetta mikla framboð
ekki duga til að mæta eftirspurn
sem gæti skýrst af því að of lítið
hafi verið byggt á undanförnum ár-
um,“ útskýrir hann en bætir við að
það sé vandasamt fyrir verktaka að
finna hárrétt jafnvægi í framboði
íbúðarhúsnæðis. „Þær eignir sem
eru að koma á markaðinn á þessu
ári eru eignir sem ákveðið var að
ráðast í að byggja fyrir u.þ.b.
tveimur árum og þau húsbygginga-
verkefni sem ráðist er í í dag verða
framboð ársins 2023. Byggingartími
íbúða gerir verktökum því erfiðara
fyrir að tímasetja framboðið rétt.“
Seljendur í góðri stöðu
Morgunblaðið/Golli
Skortur Í augnablikinu eru aðeins um 800 íbúðir auglýstar til sölu á höf-
uðborgarsvæðinu sem er 60% minna en á sama tíma í fyrra.
- Takmarkað framboð og lágir vextir hita upp fasteignamarkaðinn - Sérfræð-
ingur væntir allt að 14% hækkunar á ársgrundvelli - Róast með haustinu
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Töluverður hiti einkennir fasteigna-
markaðinn um þessar mundir og
birtist m.a. í því að sölutími íbúða
er mun styttri en í venjulegu ár-
ferði og hátt hlutfall íbúða selst yfir
ásettu verði.
Halldór Kári Sigurðarson er hag-
fræðingur hjá fasteignasölunni
Húsaskjóli og
höfundur nýlegr-
ar greiningar á
þróun markaðar-
ins. Hann segir
seljendur standa
vel að vígi í þessu
árferði og spili
þar saman sögu-
lega lágir vextir
og takmarkað
framboð á eign-
um. „Á höfuð-
borgarsvæðinu eru t.d. aðeins um
800 eignir auglýstar til sölu um
þessar mundir sem er 60% minna
en á sama tímabili fyrir ári. Þetta
skýrir að hluta þá staðreynd að frá
því mælingar hófust hefur það að-
eins gerst einu sinni að hærra hlut-
fall fasteigna seldist yfir ásettu
verði.“
Reiknast Halldóri til að auk lítils
framboðs eigna og hárra vaxta þá
hafi það líka ýtt undir seljenda-
markað að í kórónuveirufaraldrin-
um hefur dregið úr neyslutækifær-
um fólks. „Hjá þeim sem ekki hafa
orðið fyrir atvinnumissi hefur far-
aldurinn í sumum tilfellum orðið til
þess að sparnaður hefur safnast
upp fyrst ekki var hægt að fara til
útlanda eða njóta skemmtanalífsins.
Að auki fannst sumum að sér
þrengt í faraldrinum sem skapaði
löngun til að stækka við sig og geta
Halldór Kári
Sigurðarson
Ralf Brandstaetter, sem stýrir fólks-
bílaframleiðslu Volkswagen, segir
bílaframleiðendur sjá fram á áfram-
haldandi skort á hálfleiðurum á kom-
andi mánuðum. Reuters hefur eftir
Brandstaetter að eldsvoði sem kom
upp í verksmiðju japanska hálfleið-
araframleiðandans Renesas og kulda-
kastið sem lamaði Texas-ríki fyrr á
árinu hefði minnkað framboð af hálf-
leiðurum enn frekar og aukið á erf-
iðleika fyrirtækja sem hafa þurft að
glíma við hálfleiðaraskort frá því
snemma í kórónuveirufaraldrinum.
Vandann má rekja til þess að í upp-
hafi faraldursins sáu bílaframleiðend-
ur fram á mikinn samdrátt í sölu og
skáru því niður pantanir á tölvukubb-
um. Um leið varð kippur sölu á raf-
tækjum, m.a. vegna aukinnar fjar-
vinnu, sem þýddi fleiri hálfleiðara-
pantanir frá þeim geira. Þegar
bílamarkaðurinn tók við sér á ný
stóðu bílaframleiðendur frammi fyrir
því að hálfleiðaraverksmiðjur önnuðu
ekki eftirspurn. Mjög kostnaðarsamt
er fyrir framleiðendur að auka fram-
boð á hálfleiðurum og því standa
kaupendur frammi fyrir því að slegist
er um þá hálfleiðara sem í boði eru.
Í tilviki Volkswagen hefur vöntun á
tölvukubbum þýtt að minnka hefur
þurft framleiðslu sem nemur 100.000
bílum.
Skorturinn hefur haft áhrif víðar
og áætlar Apple að vandinn muni
valda röskun á framleiðslu iPad og
Mac-tölva og spjaldtölva og minnka
sölutekjur félagsins um 3-4 milljarða
dala á öðrum ársfjórðungi, að því er
Washington Post greinir frá. Svipaða
sögu er að segja t.d. af snjallsíma- og
sjónvarpstækjasölu Samsung og
vinnuvélaframleiðandanum Caterpill-
ar. Hjá Ford er áætlað að minnka
þurfi bílasölu um sem nemur 1,1 millj-
ón ökutækja vegna vöntunar á tölvu-
kubbum. Væntir bandaríski bílarisinn
þess að vandinn nái hámarki á öðrum
árfjórðungi en ástandið fari batnandi
eftir því sem liður á seinni helming
ársins. ai@mbl.is
AFP
Flöskuháls Skorturinn hefur rask-
að framleiðslu bíla og raftækja.
Áfram skortur
á hálfleiðurum
- VW, Ford, Apple
og fleiri í vanda