Morgunblaðið - 03.05.2021, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 03.05.2021, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. MAÍ 2021 Atvinnuauglýsingar Álnabær Verslunarstarf Starfskraftur óskast í verslun okkar í Síðumúla 32, Reykjavík. Vinnutími frá kl. 10-18 eða kl. 13-18 alla virka daga. Áhugasamir sendi umsókn á ellert@alnabaer.is Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Kraftur í KR kl. 10.30, rútan fer frá Vesturgötu kl. 10.10, Grandavegi 47 kl. 10.15 og Afla- granda kl. 10.20. Útskurður kl. 13. Kaffi kl. 14.30-15.20. Vegna fjölda- takmarkana þarf að skrá sig í viðburði hjá okkur. Grímuskylda er í Samfélagshúsinu, gestir bera ábyrgð á að koma með eigin grímu og passa uppá sóttvarnir. Upplýsingar í síma 411 2702. Allir velkomnir. Árskógar Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-14. Leikfimi með Hönnu kl. 10. Opin vinnustofa kl. 9 -12. Handavinnuhópur kl. 12-16. Enskukennsla kl. 14. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.30- 15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. Grímuskylda og það þarf að skrá sig í viðburði eða hópa. Sími 411 2600. Boðinn Myndlist með leiðbeinanda kl. 13. Munið sóttvarnareglur. Sundlaugin er opin frá kl. 13.30-16. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.10-11. Opin Listasmiðja kl. 9-12. Ganga kl. 10. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Tálgun með Valdóri kl. 13-15.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Garðabær Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13. Stólajóga í Jónshúsi kl. 10 og 11. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 12.40. Zumba í sal í kjallara Vídalínskirkju kl. 16.30. Vatns- leikfimi Sjálandi kl. 14 og 14.40. Áfram skal gæta að handþvotti og smitvörnum og virða 2 metra. Ahugið grímuskylda. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Jóga með Kristrúnu kl. 9.15. Minningahópur kl. 10.30. Jóga með Ragnheið Ýr á netinu kl. 11.15. Stólaleikfimi 13.30. Göngu- hópur – lengri ganga kl. 13.30. Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga kl. 8.30 í Borgum. Morgunleikfimi útvarpsins kl. 9.45 og gönguhópur Korpúlfa kl. 10. Gengið frá Borgum, inni í Egilshöll og frá Grafarvogskirkju. Dansleikfimi með Auði Hörpu kl. 11 í Borgum. Prjónað til góðs og frjáls skartgripagerð kl. 13 í Borgum.Tréútskurður á Korpúlfsstöðum kl. 13 í dag. Línudans með Guðrúnu kl. 14 í Borgum. Minnum á grímuskyldu og sóttvarna- reglur. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is með morgun- !$#"nu Amma ruddi erf- iðan veg fyrir aðra og var okkur bros- andi leiðarljós í líf- inu. Hún smellpassaði undir væng- inn hans afa frá Ameríku til Vest- fjarða og var endalaus uppspretta hláturs, hlýju og jákvæðni. Minningarnar eru mýmargar og þakklætið algjört. Amma heyrði það sem ósagt var. Hún veitti athygli innri manni. Sigurbjörg Hervör Guðjónsdóttir ✝ Sigurbjörg Hervör Guð- jónsdóttir fæddist 27. janúar 1931. Hún lést 2. apríl 2021. Útför Her- varar fór fram 30. apríl 2021. Hún samgladdist á góðum stundum með lífsglöðum dansi og þegar ég var dapur strauk hún mér um vang- ann. Hún umvafði mig skilyrðislausri væntumþykju. Ástin hennar ömmu var hlý og kröfulaus. Blessuð sé minning hennar. Guðmundur Egill Árnason og Sigfús Jóhann Árnason. Sigurbjörg Hervör Guðjóns- dóttir, fyrrum formaður Félags heyrnarlausra og einn stofnenda þess, er látin, 90 ára að aldri. Hún lést á föstudaginn langa umvafin ást og kærleika fjölskyldu sinnar og eiginmanns síns, Guðmundar Egilssonar. Hervör var einstök kona og markaði djúp spor í sögu Félags heyrnarlausra, hún var formaður félagsins um árabil ásamt því að hafa átt sæti í mörg- um nefndum og kom þar á meðal á fót norrænu samstarfi heyrnar- lausra og þau hjón voru heiðurs- félagar Félags heyrnarlausra. Hervöru var ávallt annt um félag- ið og lagði áherslu á að hugsa vel um félagið og gefast aldrei upp í baráttunni, var hún meðal annars fyrsta heyrnarlausa konan á Ís- landi sem fékk bílpróf. Hjónin Hervör og Guðmundur tóku á sig fórnir til að félagið gæti eignast sitt eigið félagsheimili. Í kringum Hervöru var alltaf gleði og já- kvæðni og minnast margir hennar með hlýju og væntumþykju, þegar hún var ung stúlka í heimavist Heyrnleysingjaskóla þar sem ung börn komu í skólann og söknuðu foreldra sinna sárt, tók Hervör þau að sér og veitti þeim hlýju og ást. Minning hennar mun lifa í sögu Félags heyrnarlausra. Stjórn og starfsfólk Félags heyrnarlausra sendir eiginmanni Hervarar, Guðmundi Egilssyni, og börnunum Bryndísi, Magnúsi, Ragnheiði, Guðjóni og Maríu og fjölskyldu þeirra okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Hún var hetja, dugnaðarforkur, yfirveguð og úrræðagóð, ætíð í hlutverki hins sterka. Sönn fyrirmynd, trúföst og ráðagóð. Viðmótið elskulegt og nærveran notaleg. Hún jós af digrum sjóði umhyggju og kærlæeika sem virtist óþrjótandi. Ósérhlífin máttarstólpi sem ástæða er til að minnast með þakklæti og hlýju. (Sigurbjörn Þorkelsson) Fyrir hönd Félags heyrnar- lausra, Heiðdís Dögg Eiríksdóttir, formaður. Minningar og andlát Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar sem eru aðgengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur lesið minningargreinar á vefnum. Á vefnum er að finna upplýsingar um þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber að höndum og aðrar gagnlegar upplýsingar ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina. ww.mbl.is/andlát Minningargreinar Hægt er að lesa minningargreinar, skrifa minningargrein ogæviágrip. Þjónustuskrá Listi yfir aðila og fyrirtæki sem aðstoða þegar andlár ber að höndum. Gagnlegar upplýsingar Upplýsingar og gátlisti fyrir aðstandendum við fráfall ástvina Minningarvefur á mbl.is Ómar, Ómar minn! Þannig eru mínar fyrstu minn- ingar um Hauk mág minn, þar sem hann kallaði til mín, fjögurra ára guttans sem hafði haft einhverjar slæmar draumfarir og Haukur var að vekja mig af þeim. Ég fékk oft að heyra þessa lýsingu og smá háðsglósur með, þannig var Haukur, skemmtilegur. Guðlaug systir mín og Hauk- ur hafa gengið sömu götu nán- Haukur Ottesen ✝ Haukur Otte- sen fæddist 29. maí 1953. Hann lést 8. apríl 2021. Útför- in fór fram í kyrr- þey. ast í þann tíma sem ég hef munað eftir mér og Haukur er því fyrir löngu og hefur raunar frá fyrsta degi verið stór hluti af okkar fjölskyldu. Það var alltaf stutt í bros, hnyttin tilsvör, hlátur og gleði í kringum Hauk. Hann gat líka verið alvarlegur, traustur og ákveð- inn. Það hefur verið gott að vera samferða Hauki. Öll samskipti hrein og bein, málin rædd, alltaf jákvæður og sagði sína skoðun. Keppnisskapið í Hauki var aðdáunarvert, ekki nóg með að hann hafi spilað hundruð leikja með KR í bæði handbolta og fótbolta, heldur var hann búinn að taka það með á golfvöllinn líka. Við spiluðum ekki oft golf saman, en þó nokkur skipti og hann vann nú oftast holurnar. Ef ég var að vinna holu, þá tal- aði gamli sig í gang og mig úr gangi og oftast heppnaðist það hjá honum. Og keppnisskapið kom í ljós í veikindunum, það var ekki gefist upp fyrr en í fulla hnefana. Það eru margir KR-ingar í fjölskyldunni, en Haukur sá al- harðasti. Það var alltaf gaman að ræða KR, Haukur hafði mikl- ar skoðanir, var ekki alltaf sátt- ur en áfram KR var málið. Það verður ekki skilið við Hauk Ottesen án þess að nefna hvað hann sinnti sínu fólki vel. Foreldrum sínum, ömmu Guð- ríði og nú síðustu ár tengda- móður sinni svo einhverjir séu nefndir, hefur hann ávallt verið tilbúinn að gefa tíma. Kíkja við í einn kaffibolla og ræða málin, passa upp á allt væri í lagi og vera til staðar, þetta verður ekki fullþakkað. Það er stórt skarð hoggið í okkar raðir. Svo ég vitni í orð eins sonar míns þegar ég til- kynnti honum andlát Hauks: „Þar er stór karakter fallinn frá.“ Það eru orð að sönnu, Haukur var stór karakter sem hafði mikil áhrif á umhverfi sitt. Hann þurfti ekki alltaf að hafa hæst í margmenni, en í sínum innsta hring var hann stærstur, bestur og flottastur. Elsku Gulla, Ester, Biggi og Hildur og krakkarnir. Sendi ykkur mínar innilegustu samúð- arkveðjur. Foringinn er farinn til nýrra heimkynna en skilur eftir sig djúp spor. Minningarn- ar eru óþrjótandi og góðar eftir því. Ómar Geir Þorgeirsson. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar Íslensku þjónustufyrirtækin eru á finna.is ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS VEISTU UM GÓÐAN RAFVIRKJA?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.