Morgunblaðið - 03.05.2021, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 03.05.2021, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. MAÍ 2021 Sumarbústaðurinn 2007-bólan fór ekki fram hjá okkur frekar en öðrum. Þrátt fyrir tak- markaðan efnahag tókum við þátt í þenslufylliríinu. Við keyptum okkur nýjan Benz-jeppa á erlendum lánum og svo gamlan sumarbústað í Húsa- felli, líka á lánum hjá Frjálsa fjár- festingarbankanum af öllum fjár- málafyrirtækjum. Já, við tókum full- an þátt í þessu. Bústaðurinn sem við keyptum var gamall og hafði þjónað hlut- verki sínu sem verkalýðsbú- staður fyrir stéttarfélag á landsbyggðinni. Hann hafði látið á sjá svo að það þurfti að taka til hendinni. Þetta var skemmtilegt verkefni og mér fannst að við ættum skilið að komast út á land eins og aðrir. Það var ótrúlegt en stundum keyrðum við fram og til baka í bústaðinn á einum og sama deginum, því við stunduðum vinnu í Reykjavík. Þarna var ég stundum einn og gerði þá ekkert nema að drekka og velta mér upp úr eymd minni, ég át líka ótæpilega og var orðinn yfir 90 kg að þyngd sem var mér ekki eðlislægt. Þetta var ótrú- legt líf hjá manni sem var ekki orðinn 30 ára gamall. Í bústaðnum fór gamall vinur að heimsækja mig, vinurinn sem sat á öxlinni og sagði mér að lífið væri einskis virði og það væri ekkert eftir annað en að binda enda á það. Ég hugleiddi oft að fara upp á jökulinn og láta mig hverfa eða kasta mér í jökulána sem rann þar hjá. Ég hugs- aði líka um að fara upp á Kaldadal og binda enda á allt þar þannig að eng- inn vissi neitt. Mér fannst ég vera kominn í vonlausa stöðu, feitur, lyfjaður, búinn að brenna allar brýr að baki mér hvað vini og fjölskyldu varðaði og sambandið við Lárus komið í ógöngur. Um leið sannfærði ég sjálfan mig um að þetta væri kannski ekki allt mér að kenna því það væru allir svo vondir við mig. Ég var sem sagt kominn í mikla sjálfs- vorkunn og sjálfsniðurrif – og óregl- an var komin á yfirsnúning. Eitt skiptið sumarið 2008, þegar ég var í þessu hugarástandi, kom dá- lítið fyrir. Ég fór í göngu síðla kvölds eins og ég gerði oft og Lárus beið heima í bústað á meðan að dunda sér eitthvað. Ég var í miklu tilfinninga- uppnámi þetta kvöldið. Ég hafði ákveðið að ganga að Hraunfossum og Barnafossi sem voru ekki langt frá. Þegar þangað kom tók ég ákvörðun um að hér væri komið að því, ég myndi ekki geta beðið lengur, ég ætlaði mér að binda enda á lífið. Ég stóð lengi við fossana og horfði niður. Eftir hverju ert þú að bíða? hugsaði ég allan tímann, eftir hverju ert þú að bíða? Í þann mund sem doðinn kom yfir mig og ég var að fara að kasta mér fram af bjarginu niður í ána þá kom bíll keyrandi. Ég rankaði við mér og leit til hliðar og kom þá auga á eldri hjón. Þetta voru túristar. Mér varð litið til konunnar og fór að hugsa um ömmu mína ein- hverra hluta vegna. Um leið fann ég að ég gat þetta ekki, þetta var ekki ég. Ég lagðist niður í mölina og gaf mér augnablik til að hugsa um líf mitt. Hvað er að gerast hjá mér? Hvers vegna missi ég svona stjórn á öllu? hugsaði ég og ákvað að halda til baka. Á leiðinni í bústaðinn hugsaði ég um lífið og tilveruna. Þetta var bjart kvöld í júnímánuði og það var heitt, öll náttúran var að lifna við eft- ir veturinn. Ég mætti upp í bústað og lét eins og ekkert væri. Ég þagði og lét eins og ég væri bara of drukkinn, sem var jú líka reyndin. Hús andanna Síðla árs 2007 var komið að tíma- mótum hjá foreldrum mínum. Þau voru komin fast að sjötugu og faðir minn hafði greinst með krabbamein. Húsið góða á Langholtsveginum var orðið of stórt fyrir þau og komið að viðhaldi sem þau réðu ekki við. Þau höfðu ákveðið að tímabært væri að minnka við sig og festu kaup á nýrri íbúð. Það gekk hins vegar illa að selja og í marga mánuði gerðist ekk- ert. Það styttist óðfluga í afhendingu nýju íbúðarinnar og allt útlit var fyr- ir að þau sætu uppi með báðar fast- eignirnar. Þetta hvíldi á þeim og í meðvirkni minni datt mér það snjall- ræði í hug að við Lárus myndum kaupa Langholtsveginn af þeim. Íbúðin okkar í Stigahlíð var mun söluvænni, enda tókst okkur að selja hana hratt og með miklum hagnaði, þökk sé fasteignabólunni sem þá var í hámarki. Þetta auðveldaði okkur vitaskuld kaupin. Margir höfðu orð á því við okkur að þetta væri ekki góð fjárfesting. Langholtsvegurinn væri gamaldags og óspennandi gata. Húsin þar væru mörg hver byggð af vanefnum og alls ekki fýsileg. Þá kallaði húsið sjálft á viðhald. Ég var samt ótrúlega spenntur fyrir þessu, enda kallaði garðurinn á mig eins og hann hafði svo oft gert. Hann var nú kominn í órækt, enda höfðu foreldrar mínir hvorki þrek né getu til þess að sinna honum sem skyldi. Ég sé núna að meðvirkni mín lék líka stóra rullu í þessari ákvörðun. Ég gat gengið í augun á foreldrum mínum með þessu, verið stóri og sterki sonurinn sem kom þeim til bjargar. Lárus var aftur á móti ekki spenntur fyrir þess- ari fjárfestingu. Hann var samt tilbú- inn til þess að líta á þetta sem skref upp á við, mögulegan stökkpall fyrir okkur upp í draumaeinbýlishúsið seinna meir. Á þessum tíma var sam- band okkar mjög brothætt. Ég var enn á fullu í neyslu og meðvirkni lék okkur báða grátt. Ég hamaðist kvöld og nætur við að mála og koma húsinu í þokklegt stand fyrir flutninginn. Við fluttum svo vorið 2008, korteri fyrir hrun. Óveðursskýin voru byrj- uð að hrannast upp í efnahagslífinu en við vorum bjartsýnir þrátt fyrir allt. Þegar við höfðum komið okkur fyrir hófst ég handa í garðinum. Ég tók upp gömul beð og kom öllu í stand. Saman stungum við upp gamla matjurtagarðinn sem var undirlagður rótum hárra trjáa. Það var erfiðisvinna, enda höfðum við ekki önnur verkfæri en gömul hand- verkfæri, fjögurra álna fork og gaml- ar rótarklippur. En þetta var gefandi og skemmtilegt. Enn á ný var komið fólk í húsið til að rækta matjurtir. Við vorum kannski ekki þessi hefð- bundna fjölskylda en í okkar huga vorum við þó fjölskylda. Um leið og ég byrjaði að vinna í garðinn mínum gamla náði ég ákveðinni hugarró. Þetta var ástand sem ég þekkti frá því að ég var krakki og notaði garð- inn til að græða, sjá eitthvað dafna í huga sem var fullur af gremju, reiði og ótta. Barnið var aftur komið í kunnug- legt umhverfi sem það hafði ótaloft áður farið í til að gleyma sér. En það var sitthvað meira á kreiki í húsinu. Ef til vill hrófluðum við Lár- us við einhverju þegar við tókum upp matjurtagarðinn því fleira fór á stjá. Eitthvert kvöldið fór ég í samkvæmi á vegum skattstofunnar og á meðan var Lárus einn heima. Í miðri veisl- unni hringdi Lárus í uppnámi. Hann sagðist verða að sækja mig og að hann gæti ekki verið einn heima. Mér brá auðvitað og skildi hvorki upp né niður. Þegar hann kom var hann miður sín en ég vildi fá skýr svör um hvað hefði komið fyrir. Hann sagði mér að hann hefði farið í sturtu skömmu eftir að ég fór í sam- kvæmið. Í sturtunni heyrir hann að það er kveikt á græjunum niðri í stofu og spiluð tónlist frekar hátt. Hann hugsaði með sér að partíið hefði verið leiðinlegt og ég hlyti að vera kominn heim. Hann vefur hand- klæði utan um sig og fer niður. Á Langholtsveginum er stofan inn af skála og tvær leiðir þar á milli, þann- ig að maður sér inn í stofuna á tveim- ur stöðum úr skálanum. Þegar Lárus kemur niður í skálann verður hann ekki var við mig og renna á hann tvær grímur. Hann kallar þá á mig: Sævar. Þá slokknar á græjunum. Það var enginn í húsinu nema hann. Eftir þetta hringdi ég í gamla vin- konu mína og bað hana um að koma heim til að leita skýringar á þessu öllu, enda sér hún lengra en nef hennar nær. Hún sagði mér að sonur gömlu hjónanna sem byggðu húsið hefði vitjað æskuheimilisins. Þau hjónin voru fallin frá og því eflaust eitthvað sem var í húsinu. Það var beðið fyrir honum og hann beðinn um að fara, enda ekkert lengur í hús- inu honum tengt. En hann virtist ekki vilja fara, eitthvað hélt aftur af honum. Ég ákvað að setja mig í sam- band við systur hans sem var búsett í Svíþjóð og spyrjast fyrir um hann og fjölskylduna. Að lokum komst ég í samband við barnabarn, drenginn sem hafði fæðst eftir voveiflegt and- lát sonarins. Eftir það var ákveðið að dóttir þeirra hjóna kæmi í heimsókn og hún myndi ræða við mig á þeirra gamla æskuheimili. Og skömmu síðar kom hún. Það var mjög sérstakt að hitta hana, eins og við værum á einhvern hátt tengd. Ég sagði henni alla sólar- söguna og hún sagði mér sína sögu og sögu fjölskyldunnar sem hafði reist húsið, sögu foreldra sinna og bróður. Það fylgdi þessum fundi ákveðinn léttir og í reynd uppgjör fyrir hana og eflaust bróður hennar. Húsið var hús hins liðna, hús and- anna sem tengdust því, og þetta var uppgjör um líf og dauða, þroska, sigra og ósigra. Við heyrðum aldrei aftur í henni né urðum varir við neitt í húsinu eftir þetta. Ég fékk þó þau skilaboð frá vinkonu minni að ég ætti að varðveita húsið og gera það sem ég gæti til að viðhalda heiðri þess því þetta væri ekki bara hús heldur heimili minninga. Ég skildi þessi skilaboð vel. Mitt síðasta verk með dóttur þeirra hjóna var að skoða garðinn sem allir virtust hafa átt þátt í að rækta og geymdi ljúfsárar minn- ingar, trega, sorg og huggun. […] Sjálfsvorkunn og sjálfsniðurrif Bókarkafli | Í bókinni Barnið í garðinum eftir þá Sævar Þór Jónsson og Lárus Sigurð Lárusson er rakin saga Sævars, átakanleg saga manns sem tekst að snúa erf- iðum uppvexti upp í þroska og kærleika. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Upprisa Sævar Þór Jónsson sigraðist á áföllum fortíðarinnar með því að horfast í augu við þau.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.