Morgunblaðið - 03.05.2021, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. MAÍ 2021
BREIÐABLIK – KR 0:2
0:1 Óskar Örn Hauksson 11.
0:2 Kennie Chopart 15.
M
Jason Daði Svanþórsson (Breiðabliki)
Gísli Eyjólfsson (Breiðabliki)
Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðabliki)
Óskar Örn Hauksson (KR)
Stefán Árni Geirsson (KR)
Kennie Chopart (KR)
Grétar Snær Gunnarsson (KR)
Kristinn Jónsson (KR)
Atli Sigurjónsson (KR)
Arnór Sveinn Aðalsteinsson (KR)
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson – 7.
Áhorfendur: 200, uppselt.
VÍKINGUR R. – KEFLAVÍK 1:0
1:0 Sölvi Geir Ottesen 18.
M
Þórður Ingason (Víkingi)
Erlingur Agnarsson (Víkingi)
Sölvi Geir Ottesen (Víkingi)
Pablo Punyed (Víkingi)
Kristall Máni Ingason (Víkingi)
Sindri Kristinn Ólafsson (Keflavík)
Joey Gibbs (Keflavík)
Ástbjörn Þórðarson (Keflavík)
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson – 7.
Áhorfendur: 200, uppselt.
FYLKIR – FH 0:2
0:1 Steven Lennon (víti) 25.
0:2 Matthías Vilhjálmsson 48.
M
Ásgeir Eyþórsson (Fylki)
Guðmundur Kristjánsson (FH)
Guðmann Þórisson (FH)
Hjörtur Logi Valgarðsson (FH)
Steven Lennon (FH)
Matthías Vilhjálmsson (FH)
Rautt spjald: Unnar Steinn Ingvarsson
(Fylki) 36.
Dómari: Erlendur Eiríksson – 8.
Áhorfendur: 200, uppselt.
STJARNAN – LEIKNIR R. 0:0
M
Haraldur Björnsson (Stjörnunni)
Heiðar Ægisson (Stjörnunni)
Brynjar Gauti Guðjónsson (Stjörnunni)
Daníel Laxdal (Stjörnunni)
Tristan Freyr Ingólfsson (Stjörnunni)
Guy Smit (Leikni)
Arnór Ingi Kristinsson (Leikni)
Brynjar Hlöðversson (Leikni)
Bjarki Aðalsteinsson (Leikni)
Dagur Austmann Hilmarsson (Leikni)
Daniel Finns Matthíasson (Leikni)
Rautt spjald: Einar Karl Ingvarsson
(Stjörnunni) 87. mín.
Dómari: Helgi Mikael Jónasson – 6.
Áhorfendur: Um 200.
HK – KA 0:0
M
Birkir Valur Jónsson (HK)
Martin Rauschenberg (HK)
Guðmundur Júlíusson (HK)
Ívar Örn Jónsson (HK)
Brynjar Ingi Bjarnason (KA)
Steinþór Már Auðunsson (KA)
Jonathan Hendrickx (KA)
Rodrigo Gómez (KA)
Dómari: Pétur Guðmundsson – 6.
Áhorfendur: 200, uppselt.
_ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og
greinar – sjá mbl.is/sport/fotbolti.
FÓTBOLTINN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
KR hélt uppteknum hætti þegar lið-
ið heimsótti Breiðablik í 1. umferð
úrvalsdeildar karla í knattspyrnu,
Pepsi Max-deildarinnar, á Kópa-
vogsvöll í Kópavogi í gær.
Leiknum lauk með 2:0-sigri KR
en liðin mættust þrívegis á síðustu
leiktíð þar sem KR hafði betur í öll
skiptin og þetta var því fjórði sigur
Vesturbæinga í röð gegn Blikum
síðan Óskar Hrafn Þorvaldsson tók
við þjálfun Kópavogsliðsins.
KR-ingar byrjuðu leikinn af krafti
og voru komnir í 2:0-eftir fimmtán
mínútna leik með mörkum frá þeim
Óskari Erni Haukssyni og Kennie
Chopart.
Þrátt fyrir að Blikar hafi verið
meira með boltann í leiknum voru
þeir aldrei líklegir til þess að skora
og það var fyrst og fremst deyfð sem
einkenndi liðið nánast frá fyrstu
mínútu.
„KR-ingar mættu talsvert
ákveðnari til leiks og settu strax
pressu á Blika. Eftir aðeins fimm
mínútur höfðu þeir fengið þrjár
hornspyrnur sem þeir náðu þó ekki
að gera sér mat úr,“ skrifaði Gunnar
Egill Daníelsson m.a. í umfjöllun
sinni um leikinn á mbl.is.
_ Óskar Örn Hauksson, fyrirliði
KR-inga, skoraði sitt 81. mark í
efstu deild en hann hefur nú skorað
átján tímabil í röð í deildinni.
Fyrirliðinn Sölvi Geir Ottesen
reyndist hetja Víkinga úr Reykjavík
þegar liðið tók á móti Keflavík á Vík-
ingsvelli í Fossvogi í gær.
Sölvi Geir skoraði sigurmark
leiksins á 19. mínútu með skalla en
honum lauk með 1:0-sigri Víkinga.
„Keflvíkingar þurftu að hrista af
sér ákveðinn hroll sem einkenndi lið-
ið í upphafi leiks. Gestirnir komust
hvorki lönd né strönd gegn skipu-
lögðu og góðu Víkingsliði framan af
leik. Það var því algjörlega verð-
skuldað þegar reynsluboltinn Sölvi
Geir skoraði fyrsta mark leiksins í
fyrri hálfleik,“ skrifaði Jóhann Ingi
Hafþórsson m.a. í umfjöllun sinni
um leikinn á mbl.is.
Lykilmenn á skotskónum
FH fer vel af stað á tímabilinu og
vann 2:0-sigur gegn Fylki á Würth-
vellinum í Árbænum á laugardaginn.
Það voru þeir Steven Lennon og
Matthías Vilhjálmsson sem skoruðu
mörk FH-inga hvor í sínum hálf-
leiknum en Fylkismenn léku einum
manni færri frá 35. mínútu þegar
Unnar Steinn Ingvarsson fékk að
líta sitt annað gula spjald og þar
með rautt í sínum fyrsta leik með
Fylki í efstu deild.
„FH náði hægt og örugglega und-
irtökunum og sóknir þyngdust á
meðan Fylkismenn börðust áfram,
ekki ánægðir með að missa mann af
velli. Þrátt fyrir að vera einum
manni fleiri náðu FH-ingar ekki að
keyra Fylkismenn í kaf, en sjálfir
náðu þeir engu biti í sóknina,“ skrif-
aði Stefán Stefánsson m.a. í umfjöll-
un sinni um leikinn á mbl.is.
_ Steven Lennon hélt uppteknum
hætti frá síðasta tímabili þar sem
hann skoraði 17 mörk í 18 leikjum en
hann var á góðri leið með að bæta
markamet efstu deildar þegar
keppni var hætt í lok október.
_ Matthías Vilhjálmsson skoraði
sitt fyrsta mark fyrir FH í efstu
deild í tæp tíu ár en hann var síðast
á skotskónum gegn Fylki, í Árbæn-
um, 1. október 2011 þegar FH vann
5:3-sigur.
Nýliðar Leiknis úr Reykjavík eru
komnir með sitt fyrsta stig í deild-
inni í ár eftir nokkuð óvænt jafntefli
gegn Stjörnunni á Samsung-
vellinum í Garðabæ á laugardaginn.
Hvorugu liðinu tókst að koma
knettinum í netið og markalaust
jafntefli því niðurstaðan en leikurinn
var tíðindalítill framan af.
„Leikmenn liðanna fóru varfærn-
islega af stað í deildinni. Leikurinn
var ansi hægur og minnti svolítið á
leiki á undirbúningstímabili. Að því
sögðu felst ekki gagnrýni á liðin eða
leikmennina. Eftir stopult og skrítið
undirbúningstímabil er ekki heigl-
um hent að mæta til leiks og sýna
glimrandi spilamennsku í fyrsta
leiknum,“ skrifaði Kristján Jónsson
m.a. í umfjöllun sinni um leikinn á
mbl.is.
_ Einar Karl Ingvarsson lék sinn
fyrsta leik fyrir Stjörnuna í efstu
deild en hann hefur einnig leikið
með Val og FH í úrvalsdeildinni.
Hann var í byrjunarliði Stjörnunnar
en fékk að líta beint rautt spjald á
87. mínútu fyrir brot á Sóloni Breka
Leifssyni.
KA gerði sitt þrettánda jafntefli í
síðustu nítján leikjum þegar liðið
heimsótti HK í Kórinn á laugardag-
inn.
Líkt og í Garðabæ lauk leiknum
með markalausu jafntefli en á með-
an Akureyringar voru sterkari að-
ilinn í leiknum voru það HK-ingar
sem fengu hættulegustu marktæki-
færi leiksins.
„Í heildina séð eru úrslitin sann-
gjörn. KA var sterkari aðilinn, sótti í
það minnsta mun meira en skapaði
sér nánast engin marktækifæri gegn
vel skipulögðum varnarleik HK-
inga. HK fékk hins vegar tvö bestu
færin, hvort í sínum hálfleik,“ skrif-
aði Víðir Sigurðsson m.a. í umfjöll-
un sinni um leikinn á mbl.is.
KR-ingar með
hreðjatak á
Breiðabliki
Morgunblaðið/Eggert
Blikabanar Kennie Chopart og Óskar Örn Hauksson fagna marki þess síð-
arnefnda á Kópavogsvelli í gær en þeir voru báðir á skotskónum fyrir KR.
- Átta lið af tólf liðum úrvalsdeild-
arinnar eiga enn þá eftir að skora mark
Pepsi Max-deild karla
HK – KA.................................................... 0:0
Fylkir – FH............................................... 0:2
Stjarnan – Leiknir R................................ 0:0
Breiðablik – KR........................................ 0:2
Víkingur R. – Keflavík ............................. 1:0
Mjólkurbikar karla
2. umferð:
Vestri – KFR ............................................ 1:0
Þróttur R. – Víkingur Ó........................... 1:3
Kári – Skallagrímur ................................. 5:1
Dalvík/Reynir – KF......................... 2:3 (frl.)
Þróttur V. – Grótta................................... 1:3
Völsungur – Hamrarnir........................... 9:1
Fjarðabyggð – Sindri............................... 0:2
Víðir – Fram ............................................. 0:2
KFS – Kría................................................ 4:0
Kórdrengir – ÍBV 3:3 (frl., 5:6 eftir víta-
spyrnukeppni)
Álafoss – Njarðvík.................................... 0:5
Leiknir F. – Höttur/Huginn.................... 3:0
Grindavík – Hvíti riddarinn..................... 3:0
Stokkseyri – Haukar................................ 0:7
Mjólkurbikar kvenna
2. umferð:
KR – HK.................................................... 2:0
Afturelding – Haukar .............................. 3:1
FH – ÍR ................................................... 10:1
Fjölnir – Víkingur R ................................ 1:2
Augnablik – ÍA ......................................... 4:2
Sindri – Einherji....................................... 5:0
SR – Álftanes............................................ x:x
England
Everton – Aston Villa.............................. 1:2
- Gylfi Þór Sigurðsson lék fyrstu 82 mín-
úturnar fyrir Everton.
Newcastle – Arsenal ............................... 0:2
- Rúnar Alex Rúnarsson var ekki í leik-
mannahópi Arsenal.
Crystal Palace – Manchester City.......... 0:2
Brighton – Leeds...................................... 2:0
Chelsea – Fulham..................................... 2:0
Tottenham – Sheffield United ................ 4:0
Staða efstu liða:
Manch. City 34 25 5 4 71:24 80
Manch. United 33 19 10 4 64:35 67
Leicester 34 19 6 9 61:39 63
Chelsea 34 17 10 7 53:31 61
Tottenham 34 16 8 10 60:38 56
Liverpool 33 15 9 9 55:39 54
Aston Villa – West Ham .......................... 0:0
- Dagnýju Brynjarsdóttur var skipt af
velli á 5. mínútu uppbótartíma.
Ítalía
Napoli – San Marino................................ 5:0
- Guðný Árnadóttir lék allan leikinn fyrir
Napoli. Lára Kristín Pedersen var ónot-
aður varamaður.
B-deild:
Brescia – SPAL........................................ 3:1
- Birkir Bjarnason lék allan leikinn fyrir
Brescia og skoraði. Hólmbert Aron Frið-
jónsson var ekki í leikmannahópnum.
Rússland
CSKA Moskva – Ufa ................................ 1:1
- Arnór Sigurðsson lék fyrri hálfleikinn
fyrir CSKA. Hörður Björgvin Magnússon
er frá keppni vegna meiðsla.
Holland
Waalwijk – AZ Alkmaar ......................... 1:3
- Albert Guðmundsson lék allan leikinn,
skoraði mark og lagði upp annað.
Pólland
Lech Poznan – Stal Mielec ..................... 1:2
- Aron Jóhannsson lék fyrstu 65 mínút-
urnar fyrir Lech Poznan.
Danmörk
Randers – Bröndby ................................. 4:2
- Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn
og skoraði fyrir Bröndby.
B-deild:
Fredericia – Silkeborg............................ 0:1
- Elías Rafn Ólafsson lék allan leikinn fyr-
ir Fredericia.
- Patrik Gunnarsson lék allan leikinn fyrir
Silkeborg. Stefán Teitur Þórðarson fór
meiddur af velli á 33. mínútu.
Bandaríkin
New England – Atlanta United ............. 2:1
- Arnór Ingvi Traustason lék fyrstu 73
mínúturnar fyrir New England.
Philadelphia Union – New York City ... 0:2
- Guðmundur Þórarinsson lék fyrstu 76
mínúturnar fyrir New York City.
Svíþjóð
Halmstad – Gautaborg............................ 1:1
- Kolbeinn Sigþórsson lék allan leikinn
fyrir Gautaborg.
Hammarby – Häcken .............................. 1:1
- Jón Guðni Fjóluson lék allan leikinn fyr-
ir Hammarby.
- Valgeir Lunddal Friðriksson var ónot-
aður varamaður hjá Häcken. Oskar Tor
Sverrisson var ekki í leikmannahópnum.
Eskilstuna – Rosengård.......................... 0:2
- Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik-
inn fyrir Rosengård.
Hammarby – Örebro............................... 5:0
- Berglind Rós Ágústsdóttir lék fyrstu 86.
mínúturnar fyrir Örebro. Cecilía Rán Rún-
arsdóttir var ónotaður varamaður.
B-deild:
Helsingborg – Eskilstuna ....................... 1:0
- Böðvar Böðvarsson lék allan leikinn fyr-
ir Helsingborg.
50$99(/:+0$
_ Chelsea mun mæta Barcelona í úr-
slitum Meistaradeildar Evrópu kvenna
í knattspyrnu eftir að hafa unnið 4:1
sigur gegn Bayern München í síðari
leik liðanna í undanúrslitum keppn-
innar í gær. Chelsea er þar með komið
í úrslitaleik keppninnar í fyrsta skipti í
sögu félagsins. Fyrri leikurinn í Münc-
hen fór 2:1 fyrir Bayern og lengi vel
stefndi í framlengingu þegar staðan
var einmitt 2:1, Chelsea í vil. Pernille
Harder og Fran Kirby skoruðu fyrir
Chelsea á lokakaflanum og tryggðu
liðinu sigur og
samtals 5:3 sigur í
rimmunni. Karól-
ína Lea Vilhjálms-
dóttir var ónot-
aður varamaður
hjá Bayern. Fyrr í
gær tryggði
Barcelona sér
sæti í úrslita-
leiknum með því að slá París St.
Germain út samanlagt 3:2. Chelsea og
Barcelona mætast því í úrslitaleik í
Gautaborg.
_ Fresta þurfti stórleik Manchester
United og Liverpool í ensku úrvals-
deildinni í knattspyrnu í gær. Hópur
manna sem gáfu sig út fyrir að vera
stuðningsmenn Manchester United
höfðu komið saman fyrir utan hótelið
þar sem lið Untied dvaldi og mót-
mæltu eignarhaldinu á félaginu. Var
það einnig gert fyrir utan aðal-
leikvang félagsins, Old Trafford. Svo
fór að um tvö hundruð manns tókst
að komast inn á leikvanginn og inn á
völlinn í gær þegar enn var nokkuð í
að liðin myndu mæta til leiks. Hafði
það að líkindum úrslitaáhrif á að
leiknum skyldi vera frestað en ný dag-
setning liggur ekki fyrir.
_ Gareth Bale var allt í öllu þegar
Tottenham valtaði yfir Sheffield Unit-
ed í ensku úrvalsdeildinni í London í
gær. Leiknum lauk með 4:0-sigri Tott-
enham en Bale gerði sér lítið fyrir og
skoraði þrennu í leiknum. Son Heung-
min skoraði einnig fyrir Tottenham.
_ Víkingur
Reykjavík varð um
helgina tvöfaldur
Íslandsmeistari
þegar karla- og
kvennalið félags-
ins unnu 1. deild
karla og kvenna í
borðtennis. Karla-
lið Víkings sigraði
lið BH frá Hafnarfirði í úrslitaleik, 3:1.
Liðið er skipað Inga Darvis, Magnúsi
Hjartarsyni og Daða Guðmundssyni.
Kvennalið Víkings sigraði A-lið KR í úr-
slitaleik, 3:1. Liðið er skipað Nevenu
Tasic, Lóu Zink, Agnesi Brynj-
arsdóttur og Stellu Kristjánsdóttur.
_ Valur vann sterkan 66:58 útisigur
gegn Haukum í Domino’s-deild kvenna
Eitt
ogannað