Morgunblaðið - 03.05.2021, Side 32

Morgunblaðið - 03.05.2021, Side 32
Karítas Ríkharðsdóttir karitas@mbl.is Hólmfríður Una Kristjánsdóttir fagnaði 90 ára afmæli sínu 12. apríl síðastliðinn. Una, eins og hún er ávallt kölluð, keyrir enn þá bílinn sinn þrátt fyrir stöðug mótmæli afkomenda, fer í daglega göngutúra og syngur með kirkjukórnum í Raufarhafnarkirkju. „Ég fer að minnsta kosti í einn göngutúr á dag, í alla vega 45 mín- útur. Svo fer ég í leikfimi fyrir eldri borgara, en hún hefur legið niðri í Covid-ástandinu,“ segir Una í sam- tali við Morgunblaðið. Slær garðinn og hengir út þvottinn Nágrannar Unu segja að um leið og geri gott veður sé þvotturinn hennar kominn út á snúru hjá henni og hún mætt í garðinn. „Já ég slæ lóðina, svo þvæ ég þeg- ar spáir góðu. Ég vil ekki þurrkara. Ég hengi út til að fá loft í þvottinn,“ segir Una. Upphaflega stóð til að halda stóra veislu til að fagna tímamótunum en vegna Covid-faraldursins, sem hefur reyndar aldrei náð til Raufarhafnar, þurfti að taka nokkra snúninga á skipulagi veislunnar. Úr varð að veisla var haldin í holl- um þar sem nokkrir afkomendur komu í einu. „Ég ætlaði ekkert að gera annað en bara labba hérna um eins og ég er vön að gera, svo varð sú gamla að slá í kökur og halda veislu. Það var bara veisla í fjóra daga, en ekki margir í einu,“ segir Una. Una er fullbólusett og var því óhrædd við að fá gesti. Meðal gjafa sem Una fékk var æðardúnsæng frá Icelandic Eider. Una kveðst hin ánægðasta með sængina og segir hana nánast svífa yfir sér. „Og það er langömmubarnið mitt sem saumaði sængina, því hann er æðarbóndi má segja, í Fljótunum.“ Þá fékk Una úr frá syni sínum og tengdadóttur þar sem hún var farin að sjá illa á úrið sem hún fékk frá frystihúsinu þegar hún var búin að vinna þar í 25 ár. Úrið er þó í góðu standi. Kvíðir mest að hætta að keyra Una segir ekki finna mikið fyrir aldrinum. Hún þarf þó að fara á hverju ári inn á Húsavík og láta endurnýja ökuskírteini sitt, sem hún segir bara vera peningaplokk, enda ekkert að sjóninni hennar. „Ég kvíði því þó mest að missa prófið, ég verð að geta farið út í búð. Þó að ég þurfi ekki mikið fyrir mig eina, þá þarf að komast í búðina,“ segir Una. Ljósmynd/Katrín Guðrún Æðardúnn Hólmfríður Una með æðardúnssængina góðu sem hún fékk í afmælisgjöf. Hún segir hana svífa yfir sér. Finnur ekkert fyrir því að vera orðin 90 ára - Keyrir enn þrátt fyrir mótmæli barna og barnabarna MÁNUDAGUR 3. MAÍ 123. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. KR-ingar hefja Íslandsmót karla í knattspyrnu með nokkrum glæsibrag. KR vann Breiðablik 2:0 í Smár- anum en Breiðabliki var spáð sigri á Íslandsmótinu af forráðamönnum og fyrirliðum liðanna. Segja má að KR- ingar hafi tekið upp þráðinn þar sem frá var horfið í fyrra hvað varðar leikina gegn Breiðabliki. Liðin mætt- ust þrívegis á síðustu leiktíð þar sem KR hafði betur í öll skiptin og þetta var því fjórði sigur Vesturbæinga í röð gegn Blikum. Nýliðar Leiknis náðu í stig í Garðabæ þar sem þeir gerðu jafntefli gegn Stjörnunni. »27 KR-ingar með tak á Blikum um þessar mundir í knattspyrnunni ÍÞRÓTTIR MENNING Íslenska óperan mun endur- sýna óperuna La traviata í nóvember 2021 í Hörpu og Hofi í samstarfi við Menning- arfélag Akureyrar. Samkvæmt upplýsingum frá Íslensku óp- erunni mun þetta „verða í fyrsta sinn sem þessar stofn- anir starfa saman og einnig verður þetta fyrsta óperusýn- ingin í hinu frábæra tónlistarhúsi Hofi á Akureyri. Óperan hætti fyrir fullu húsi í Hörpu eftir sex upp- seldar sýningar árið 2019 og fékk hún einstakar við- tökur áhorfenda og frábæra dóma innanlands og erlendis og hefur verið leigð út til nokkurra erlendra óperuhúsa,“ segir í tilkynningu. Þar segir einnig að það kemur í hlut Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands (SN) að annast hljóðfæraleik í sýningunni en hljómsveitin stendur að kvikmyndatónlistarverkefninu SinfoniaNord í Hofi. Þetta mun einnig vera í fyrsta sinn sem hljóm- sveitin tekur þátt í uppfærslu Íslensku óperunnar. La traviata sýnd í Hofi í nóvember

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.