Morgunblaðið - 17.05.2021, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.05.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. MAÍ 2021 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Koma hefði mátt í veg fyrir skemmdir sem urðu á flugvél, sem lenda þurfti í hliðarvindi á Reykja- víkurflugvelli, hefði vélin getað nýtt flugbraut sem nýlega hefur verið lokað. Efnishrúgu og hindrunum hefur verið komið fyrir á aflagðri flugbrautinni. Matthías Sveinbjörns- son, formaður Flugmálafélags Ís- lands, segir að hindranirnar séu ekki í þágu öryggis, enda útiloki þær að unnt sé að nota brautina í neyðar- tilvikum. „Vélin sem þarna átti í hlut lenti á braut sem var í notkun en vegna þess að það var hliðarvindur á þeirri braut lenti hún í vandræðum, skemmdist illa og þurfti að fara í miklar viðgerðir í kjölfarið,“ segir Matthías. Hann tekur undir sjónarmið flug- manna sem hafa bent á að hindr- anirnar skapi hættu á svæðinu. „Við höfum ekki séð svona hindranir á öðrum flugvöllum. Mölin gerir það að verkum að það er erfitt að opna brautina ef á þarf að halda. Okkur finnst þetta svo mikill óþarfi því þetta er ekki í anda flugvirkja og ekki í þágu öryggis,“ segir hann. „Við gerðum alvarlegar athuga- semdir við þetta á sínum tíma vegna þess að það var notast við gallaðar verkfræðiskýrslur til stuðnings ákvörðuninni,“ segir Ingvar Tryggvason, formaður öryggis- nefndar Félags íslenskra flugmanna. „Það er búið að gera þessa flug- braut ónothæfa fyrir almennan rekstur en það er líka búið að gera hana ónothæfa til að nota í neyðar- tilfellum,“ segir Ingvar og telur slíkt óeðlilegt. Framkvæmdastjóri innanlands- flugvalla Isavia sagði við Morgun- blaðið á laugardag að svæðið sem um ræddi væri ekki lengur flugbraut og ekki skilgreint sem slíkt á kortum. Þarna væri um að ræða aflagt svæði. Haugurinn sem lægi á brautinni væri malbiksfræs sem væri geymt til síðari notkunar og stæði um 50 metra frá endamörkum svæðisins. Lokun flugbrautar skapi hættu - Koma hefði mátt í veg fyrir skemmdir á vél Morgunblaðið/Árni Sæberg Haugurinn Flugmenn telja þessa tilhögun geta skapað hættu í neyð. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra sagði í samtali við mbl.is í gær að Ísland myndi taka þátt í sameiginlegu ákalli alþjóðasamfélagsins um að komið skuli á vopnahléi hið fyrsta milli Ísraels og Palest- ínu. Óviðunandi sé að á hverjum degi látist óbreyttir borgarar og börn. Guðlaugur Þór mun mæta fyrir utanríkisnefnd Alþingis í dag til að ræða stöðuna fyrir botni Miðjarðarhafs. Sagði Guðlaugur Þór að Ísland myndi ekki ráðast í þvingunar- eða refsiaðgerðir gegn Ísrael eins og kall- að hefur verið eftir hér á landi. „Ég hef ekki heyrt hugmyndir á alþjóða- vettvangi um að setja eigi á viðskipta- þvinganir. Og við Íslendingar munum auðvitað halda áfram að beita okkur fyrir mannréttindamálum og höfum gert það í mannréttindaráðinu svo eftir er tekið,“ sagði Guðlaugur Þór og bætti við að Ísland hefði ekki tekið þátt í slíkum aðgerðum nema með öðrum þjóðum, enda myndu þær aldrei bíta neitt nema í samstarfi við önnur lönd. „Það sem er líklegast til árangurs að mínu mati og þeirra kollega minna sem ég hef rætt við er að alþjóða- samfélagið sendi skýr skilaboð um að semja skuli um vopnahlé. Um þetta þarf samfélag þjóða að vera sameinað enda hefur það lítið upp á sig að hvert ríki taki sértæka afstöðu hvert fyrir sig.“ Ísland reiðubúið til aðstoðar Guðlaugur Þór ræddi við utanríkis- ráðherra Noregs, Ine Marie Eriksen Søreide, á laugardaginn um Ísrael og Palestínu. Guðlaugur segist hafa lýst því yfir að Ísland væri boðið og búið til þess að aðstoða ef á þyrfti að halda, þá við mögulegar friðarumleitanir eða annað slíkt. „Við skipum okkur auðvitað í hóp þeirra fjölmörgu bandalagsþjóða okkar sem kallað hafa eftir því að vopnahlé verði sett á. Það er meðal þess sem ég sagði við utanríkis- ráðherra Noregs auk þess sem ég tjáði henni að ef Ísland gæti eitthvað gert myndum við leggja þau lóð sem við gætum á vogarskálarnar.“ oddurth@mbl.is Vopnahléi komið á sem fyrst - Ísland mun ekki ráðast í refsiaðgerðir Guðlaugur Þór Þórðarson „Þetta gekk vonum framar,“ segir Bjarni Ólafur Guðmundsson tónleikahaldari um hina árlegu Eyjatónleika, sem fram fóru í Silfurbergi í Hörpu á laugardaginn. Tónleikunum var streymt á net- inu, en einnig máttu nokkrir áhorfendur vera í salnum. „Listamennirnir höfðu orð á því hversu gaman það var að fá loksins að stíga á svið, og munaði öllu að fá fólk í salinn og viðbrögð þess beint í æð,“ segir Bjarni Ólafur. Þetta var í tíunda sinn sem tónleikarnir voru haldnir, og segir Bjarni Ólafur að af því tilefni hafi einnig verið tekin nokkur lög „af meginland- inu“, eins og Eyjamenn kalla Ísland. Fram komu listamenn á borð við Sigríði Beinteinsdóttur, Jón Jónsson, Friðrik Dór og Katrínu Halldóru, sem hér sést syngja ásamt stórsveit sem Jón Ólafsson stýrði. Hægt verður að nálgast tónleikana hjá Sjónvarpi Símans frá og með deginum í dag. Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson Breytir öllu að fá viðbrögðin beint í æð Andrés Magnússon andres@mbl.is Þrátt fyrir að eldsvoði hafi orðið við Haðarstíg síðastliðið sumar og íbúar þar vakið athygli borgaryfirvalda á afleitum brunavörnum þar bólar ekkert á endurbótum við stíginn sem fyrirhugaðar voru 2018 og 2019. Altjón varð í íbúð sem þar brann nú á fimmtudag. „Við höfum ekki fengið svar eftir ítrekun á bréfi okkar, en fyrir tveim- ur árum var okkur sagt að endurbót- um við götuna hefði verið frestað án skýringa,“ segir Halla Sólveig Þor- geirsdóttir, formaður Samtaka íbúa við Haðarstíg. Haðarstígur er göngustígur, ein þrengsta gata Reykjavíkur og ill- mögulegt að koma stórum slökkvi- liðsbíl þangað. Þar er enginn bruna- hani, sem torvaldar enn slökkvistarf í þessum þéttbýla reit, þar sem húsin standa áföst hvert öðru. Halla Sólveig kveðst engar skýr- ingar hafa fengið á því hvers vegna endurbætur við stíginn hafi tafist, en þar sé a.m.k. fjárskorti um að kenna. Hún segir að fram að því hafi íbú- arnir verið ánægðir með aðkomu borgarinnar, sem hafi haft þá með í ráðum og m.a. tekið tillit til óska barna í götunni. Ástand götunnar sé orðið mjög bágborið, en við ónýtar brunavarnir verði ekki unað. „Við höldum samtalinu við borgar- yfirvöld áfram, en við skiljum ekki þessa frestun,“ segir Halla Sólveig. Borgin svarar engu - Bréfum íbúa við Haðarstíg ósvarað - Brunavarnir í ólestri - Enginn brunahani í götunni - Ekkert bólar á endurbótum Ljósmynd/SHS Haðarstígur Íbúð brann við Haðarstíg, en aðkoman er þröng. PON er umboðsaðili PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður Sími 580 0110 | pon.is Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna! GÆÐI OG ÞJÓNUSTA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.