Morgunblaðið - 17.05.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. MAÍ 2021
Í skýrslu sem unnin var fyrir sjáv-arútvegsráðherra um stöðu og
horfur í íslenskum sjávarútvegi er
margt áhugavert að finna. Í kafla
um gjaldtöku í sjávarútvegi segir
að auðlindaskattar séu fátíðir um
heiminn. Auðlindaskattur hafi ver-
ið lagður á þegar kvótakerfið var
tekið upp á Nýja-Sjálandi fyrir
meira en þremur áratugum en
hann hafi síðar verið lagður af og
tekið upp gjald sem eigi að standa
undir beinum kostnaði. Á Græn-
landi sé ýmiskonar gjaldtaka, en
endurskoðun fiskveiðilöggjafar-
innar standi nú yfir. Í Færeyjum
hafi fyrir fáeinum árum verið hald-
in uppboð á aflaheimildum, en nú
hafi ný stjórnvöld á eyjunum hætt
við uppboðin.
- - -
Þar með eru upp talin dæmin umslíka skattheimtu í sjávar-
útvegi í heiminum, en hann er hins
vegar víða mikið niðurgreiddur og
eins og fram hefur komið er Ísland
eina ríkið í OECD sem niðurgreiðir
greinina ekki. Í skýrslunni er jafn-
framt bent á að aðrar þjóðir fram-
leiði mun meiri fisk en við og að ís-
lensk fyrirtæki séu ekki stór miðað
við sjávarútvegsfyrirtæki annarra
landa.
- - -
Þá segir: „Sú staðreynd að ís-lensku sjávarútvegsfyrirtækin
geta staðist samkeppnina jafn vel
og raun ber vitni er annars vegar
merki um góða stjórn fiskveiða og
fjárhagslegan styrk sjávarútvegs á
Íslandi en einnig um bágt ástand í
fiskveiðum annars staðar.“
- - -
Þrátt fyrir þetta er samfellt tal ísumum stjórnmálaflokkum hér
um að hækka sértæka skatta á sjáv-
arútveginn. Hvað gengur þeim til?
Ísland sér á báti
STAKSTEINAR
Morgunblaðið/Börkur Kjartansson
• Verð frá: 250.000 m/vsk.
• Stærðir 3-600 persónueiningar
• Ekkert rafmagn
• Meira en 2ja þrepa hreinsun
• Verð frá 510.000 m/vsk.
• Stærðir 3-1500 persónueiningar
• Rafræn vöktun (valkvæmt)
• Getur hreinsað eColi allt að 99,9%
INNIFALIÐ Í VERÐI
ANAEROBIX HREINSIVIRKI
með síu yfir 90% hreinsun
ONE2CLEAN HREINSISTÖÐ
allt að 99% hreinsun
• Þægilegar í uppsetningu og lítið viðhald
• Fyrir sumarhús, heilsárshús, hótel o.fl.
• Engar siturlagnir – fyrirferðarlítil
• Mikið pláss fyrir seyru
• CE vottað
• Uppfylla kröfur til hreinsunar á viðkvæmum
svæðum t.d við Þingvallavatn
• Afhending á verkstað innan
100km frá Reykjavík
• Drengöng með gátlúgu sem tryggja að vökvi
komist óhindrað út í jarðveg
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Nokkuð var um þjófnaði og innbrot
í gær samkvæmt dagbók lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu. Um
klukkan 12:30 var t.d. tilkynntur
þjófnaður úr verslun í miðbænum,
en gerendur, sem voru þrír, voru
farnir af vettvangi þegar lögregla
birtist. Skömmu síðar sáu vegfar-
endur til þriggja manna stela raf-
magnsvespu í miðbænum, en þeir
höfðu klippt á hjólalás sem var fest-
ur í hjólið. Lögregla fann mennina
nokkru seinna og reyndust þetta
sömu aðilar og í þjófnaðarmálinu
stuttu áður.
Nokkuð um þjófnaði
og innbrot í gær
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Nokkuð hefur borið á frásögnum og
hviksögum af því að fólk, sem bólu-
sett hafi verið með bóluefni Astra-
Zeneca, hafi ekki komist inn til
Bandaríkjanna og verið snúið við á
landamærunum á þeim forsendum.
Morgunblaðinu hefur ekki tekist
að staðfesta slíka frásögn, enda
ganga þær þvert á hið almenna
ferðabann sem Bandaríkin hafa sett,
þar á meðal á Íslendinga. Á því eru
þó ýmsar undanþágur, en bólusetn-
ing skiptir þar ekki máli.
„Ferðatakmarkanir til Bandaríkj-
anna eru enn í gildi, óháð því hvort
fólk er bólusett eða ekki,“ segir Pat-
rick Geraghty, talsmaður banda-
ríska sendiráðsins í Reykjavík, í
svari til Morgunblaðsins.
„Hins vegar eru ýmsar undanþág-
ur á almenna banninu, þar á meðal til
maka bandarískra borgara,“ segir
hann og bætir við að allir ferðamenn
til landsins, hvort sem þeir hafi verið
bólusettir eða ekki, þurfi að framvísa
nýju neikvæðu PCR-prófi eða vott-
orði um yfirstaðin veikindi.
„Okkur er ekki kunnugt um að
landamæraverðir athugi hvort far-
þegar til landsins séu bólusettir,“
segir Geraghty. Hafi menn undan-
þágu frá almenna ferðabanninu megi
þeir koma til landsins, hvort sem
þeir eru bólusettir eða ekki, svo
framarlega sem þeir fullnægja öllum
öðrum skilyrðum til landvistar.
Í leiðbeiningum sóttvarnastofnun-
ar Bandaríkjanna (CVC) um ferða-
lög er fólki eindregið ráðlagt frá
ferðalögum nema það hafi verið
bólusett með bóluefnum, sem fengið
hafi leyfi bandaríska lyfjaeftirlitsins
(FDA) eða Alþjóðaheilbrigðisstofn-
unarinnar (WHO). Bóluefni Astra-
Zeneca hefur bráðaleyfi WHO.
Bandaríkjaferð
ekki háð bóluefni
- Ferðabann enn í gildi óháð bólusetningu
CBP
Bandaríkin Undanþágur eru athug-
aðar við komuna en bóluefni ekki.