Morgunblaðið - 17.05.2021, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 17.05.2021, Blaðsíða 12
BAKSVIÐ Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Franski tryggingarisinn Axa upp- lýsti um helgina að starfsstöðvar fé- lagsins í Asíu hefðu orðið fyrir gagnagíslatökuárás tölvuþrjóta. Árásin náði til útibúa Axa í Taílandi, Malasíu, Hong Kong og á Filipps- eyjum, að því er Financial Times greinir frá. Athygli vekur að fréttir af árásinni berast skömmu eftir að Axa tilkynnti að félagið myndi ekki lengur bjóða frönskum viðskiptavinum sínum upp á gagnagíslatökutryggingar. Slíkar tryggingar bæta fórnarlömbum tölvuárása tjónið af að greiða tölvu- þrjótum lausnargjald til að fá aftur aðgang að gögnum sínum og tölvu- kerfum. Að sögn FT á árásin að hafa átt sér stað áður en Axa upplýsti um breytinguna á tryggingaframboði fé- lagsins í Frakklandi. Axa, sem er í hópi fimm stærstu tryggingafélaga Evrópu, ákvað fyrr í mánuðinum að hætta að selja þessar tryggingar á Frakklandsmarkaði og bregðast þannig við ábendingum þarlendra löggæslu- og tölvu- öryggisstofnana, en gagnrýnendur hafa bent á að gagnagíslatökutrygg- ingar kunni að auka á vandann og herða tölvuþrjóta í árásum sínum. Greiðslur eins og olía á eld AP greinir frá aðgerðaáætlun sem Hvíta húsið gaf út í lok apríl þar sem bent er á að með því að greiða tölvu- þrjótum lausnargjald sé verið að efla þá, ýta undir frekari glæpastarfsemi og jafnvel fjármagna starf hryðju- verkahópa. AP hefur eftir Brett Callow, tölvuöryggissérfræðingi hjá Emsisoft, að fyrirtæki og stofnanir virðist viljugri að greiða tölvuþrjót- um lausnargjald ef greiðslan kemur ekki beint úr þeirra eigin vasa. „Eina leiðin til að rjúfa þennan vítahring er að stöðva fjárstreymið – og að hætta að greiða út tryggingakröfur vegna gagnagíslatöku kann að gera gæfu- muninn,“ sagði Callow. Er skemmst að minnast tölvuárás- ar sem gerð var á kerfi Colonial-olíu- leiðslunnar í Bandaríkjunum. Vegna árásarinnar þurfti að loka olíuleiðsl- unni og olli það miklum röskunum á eldsneytismarkaði á austurströnd Bandaríkjanna. Var lokað í tæpa viku og lauk með því að stjórnendur Colonial greiddu þeim sem að árás- inni stóðu lausnargjald að upphæð 75 bitcoin, jafnvirði um það bil fimm milljóna bandaríkjadala. Hafa bandarískir embættismenn í kjölfar- ið hvatt til þess að veita viðbótarfjár- magn til stofnana og sveitarfélaga svo þau geti bætt tölvuvarnir sínar. Náðu í viðkvæmar upplýsingar Í árásinni á Axa var notast við svo- kallaðan Avaddon-hugbúnað og voru það tölvuþrjótarnir sem greindu fyrst frá árásinni með færslu sem þeir birtu á huldunetinu. Þar sögðust þeir hafa náð að koma höndum yfir þrjú terabæt af gögnum frá trygg- ingafélaginu. Gögnin hafa m.a. að geyma persónugreinanlegar upplýs- ingar um viðskiptavini Axa, þar á meðal heilsufarsupplýsingar og upp- lýsingar um tryggingakröfur þeirra. Axa á eftir að sannreyna fullyrð- ingar tölvuþrjótanna en segir að ef rétt reynist að þeir hafi komist yfir viðkvæmar upplýsingar verði gripið til viðeigandi ráðstafana og við- skiptavinum veittar þær upplýsingar og stuðningur sem þeir þurfa. Axa fórnarlamb tölvuárásar MARCO BERTORELLO / AFP Skotmark Tryggingarisinn Axa er nýjasta fórnarlamb tölvuþrjóta. Æ styttra virðist á milli stórra tölvuárása. Klípa » Deilt er um hvort fyrirtæki auki á vandann með greiðslu lausnargjalds. » Árásin á Colonial-olíu- leiðsluna gerði tölvuþrjóta fimm milljónum dala ríkari. » Axa ákvað fyrr í mánuðinum að hætta sölu gagnagíslatöku- trygginga í Frakklandi. » Árásin á Axa nær til starf- semi félagsins í fjórum Asíu- löndum. » Alvarlegar tölvuárásir virð- ast vera að færast í vöxt. - Félagið hafði skömmu áður ákveðið að hætta sölu gagnagíslatökutrygginga í Frakklandi - Vaxandi umræða um að best sé að greiða ekki lausnargjald 12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. MAÍ 2021 Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt 17. maí 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 124.47 Sterlingspund 175.31 Kanadadalur 102.65 Dönsk króna 20.292 Norsk króna 15.075 Sænsk króna 14.903 Svissn. franki 137.79 Japanskt jen 1.1391 SDR 179.16 Evra 150.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 182.5999 Hrávöruverð Gull 1833.5 ($/únsa) Ál 2422.5 ($/tonn) LME Hráolía 67.0 ($/fatið) Brent « Markaðsgreinandi Wells Fargo spáir því að á komandi áratug muni banda- rískir bankar fækka starfsfólki um 200.000 eða sem nemur 10% stöðu- gilda. FT greinir frá þessu og segir að ef rétt reynist muni það marka nýja stefnu fyrir greinina en fjöldi starfa í bandaríska bankageiranum hefur hald- ist n.v. óbreyttur við tveggja milljóna markið undanfarinn áratug. Telur Wells Fargo að fækka þurfi störfum til að bæta rekstrarafkomu bankanna og um leið gera þá betur í stakk búna til að bregðast við breyttri neytendahegðun. Má reikna með að störf í bankaútibúum og þjónustu- verum séu í mestri hættu og stemmir það við spá bandaríska atvinnumála- ráðuneytisins sem áætlar að störfum afgreiðslufólks í bönkum muni fækka um 15% næsta áratuginn. Bendir wells Fargo á að tækni- framfarir og innreið fleiri aðila á lána- markaði verði líklega til þess að saxist á hefðbundin viðskiptasvið bankanna en fyrirtæki eins og PayPal og Amazon eru í hópi þeirra sem hafa verið að gera sig meira gildandi á markaði með ýmiss konar fjármálaþjónustu. Til að viðhalda samkeppnishæfni sinni verði bankar því að reiða sig meira á snjallar og sjálf- virkar lausnir og um leið halda starfs- mannafjölda í lágmarki. ai@mbl.is 200.000 störf hverfi í bandarískum bönkum STUTT Rishi Sunak fjármálaráðherra Bret- lands hyggst að svo stöddu ekki taka þátt í verkefni ríkisstjórnar Jo- es Bidens um að ríki heims taki höndum saman um 21% lágmarks- skatt á hagnað fyrirtækja. Vill Sunak að Banda- ríkin geri fyrst breytingar á reglum um skatt- lagningu alþjóð- legra tæknirisa svo tryggt sé að þau greiði skatta sína í þeim lönd- um þar sem tekj- urnar verða til, frekar en í heima- landi sínu. FT hefur eftir ráðherranum, sem stýrir G7-hópnum um þessar mund- ir, að hann myndi vilja taka þátt í samstarfi um lágmarksskatt svo fremi sem samstarfið verði víðtæk- ara og tryggi að fyrirtæki greiði ekki skatta sína „í Kaliforníu þegar þá ætti að greiða í Bretlandi“. Ríkisstjórn Bidens liggur á að koma á samkomulagi um lágmarks- skatt og hækka fyrirtækjaskatta heima fyrir og vilja breskir embætt- ismenn nota tækifærið til að gera úrbætur á rótgrónum alþjóðlegum skattareglum svo að alþjóða- fyrirtæki verði skattlögð í þeim löndum þar sem sala fer fram frek- ar en þar sem þau hafa höfuð- stöðvar sínar. 500 milljóna stafrænn skattur Hefur skattlagning hagnaðar al- þjóðlegra fyrirtækja af sölu staf- rænnar þjónustu í Bretlandi verið þarlendum stjórnvöldum sérstakur þyrnir í augum. Snemma á síðasta ári var ákveðið að leggja nýjan skatt á stafræna þjónustu og áætlað að nýi skatturinn verði til þess að árlegur skattareikningur banda- rískra fyrirtækja af starfsemi þeirra í Bretlandi hækki um sem nemur u.þ.b. 500 milljónum punda. Sunak hefur lofað að leggja nýja skattinn niður ef tekst að koma á milliríkjasamningi sem kveður á um breytta skattlagningu alþjóðlegrar stafrænnar þjónustu. Er reiknað með að Sunak freisti þess að hækka skatta á fyrirtæki upp í 25% árið 2023 en til saman- burðar eru skattar á Írlandi mun hóflegri eða aðeins 12,5%. ai@mbl.is Bíða með að styðja samráð - BNA lagi skattlagningu tæknirisa Rishi Sunak

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.