Morgunblaðið - 17.05.2021, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 17.05.2021, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. MAÍ 2021 Það var einn síð- sumarsdag í lok 9. áratugarins að ég var að rölta um göt- ur borgarinnar. Allt í einu gekk ég fram á skilti við hús sem tilheyrði ferða- málaráði og þar stóð að nú stæði yfir áheyrnarpróf leiðsöguskól- ans á erlendum málum. Þar sem ég hafði um skeið bú- ið í Svíþjóð og hafði náð ágætis tökum á því máli sló ég til og fór inn. Þarna tók ég ein örlagarík- ustu spor lífsins því nokkrum dögum síðar var ég mættur í ✝ Ragnar Alex- ander Þórsson fæddist 28. júlí 1958. Hann and- aðist 11. apríl 2021. Útför Ragnars fór fram 3. maí 2021. Menntaskólann í Kópavogi í fyrsta tíma Leiðsöguskól- ans. Þarna var kom- inn saman stór hóp- ur, yfir 60 manns ef ég man rétt. Eins og oft er þá gætir ákveðinnar feimni og hlédrægni þegar svo margir koma saman án þess að þekkjast. En einn var sá maður sem strax við fyrstu kynni skar sig úr. Feimni og hlédrægni var nokkuð sem ekki var til í orða- forða þess manns. Hann kynnti sig sem Ragnar Þórsson og var komin með uppeldisbróður sín- um Ólafi Auðunssyni til að læra til leiðsögumanns. Þeir voru búsettir á Selfossi en höfðu alist upp á Skeiðunum. Við náðum vel saman og hafði ég strax mög mikla ánægju af þessum kynnum. Það þynntist í hópnum í skól- anum og vorum við held ég bara rúmlega 20 sem kláruðum. Sum okkar komu lítið að leið- sögn en önnur gerðu þetta að aðalstarfi. Ég hef verið mikið starfandi en tekið góðar pásur á milli og sinnt öðru. Ragnar tók hins vegar alveg frá byrjun starf- ið mjög föstum tökum. Hann var ofboðslega duglegur og mér fannst hann alltaf vera að. Þegar ég hugsa til Ragnars þá koma orð móður minnar upp í hugann, en hún sagði að maður ætti að tala hátt, skýrt og lýta- laust. Ekki þannig að Ragnari lægi hátt rómur en hann hafði þessa skýru rödd sem náði í gegn. Einnig hafði Ragnar sérstakt lag á að segja skemmtilega frá og koma með sinn vinkil á hlutina og þótt maður væri ekki alltaf sam- mála þá var bara svo gaman að heyra hvað Ragnar hafði að segja að maður gat ekki annað en hlustað og brosað. Hann var algjör snillingur í að sjá það spaugilega í tilverunni. Þau skipta sennilega hundruðum skiptin sem ég hef setið á Geysi eða Gullfossi í hádegishléinu á Gullhringnum og hlustað á frá- sagnir Ragnars og þegar hann var í essinu sínu átti tíminn það til að líða alltof hratt. Ragnar gerði ökuleiðsögn að sínu starfi. Hann var mikið snyrtimenni og ég man aldrei eftir honum nema í skjannahvítri skyrtu. Skyrtan var svo hvít að maður gat séð langar leiðir hver það var sem var undir stýri. Þá vissi maður einnig að nú yrði há- degið fljótt að líða. Nú er genginn sögumaður af guðs náð. Ég vil þakka Ragnari fyrir frábæra viðkynningu og allar stundirnar sem hann hefur stytt mér. Ég á virkilega eftir að sakna míns hressa vinar. Jón Örn Kristleifsson. Ragnar Þórsson Það er þungt yfir mér þessa dagana þar sem ég kveð góðan vin. Síðustu daga hef ég verið að rifja upp kynni okkar og eftir sitja góðar minningar og hugs- unin um hlýja brosið hans. Það var eitt sinn á unglingsárunum, að ég var staddur sem oftar við gamla Fram-völlinn undir Stýri- mannaskólanum. Það stóð yfir fótboltaleikur, þar sem Fram og Valur áttust við, líklega var þetta 3. flokkur. Það var fallegt veður og rykið rauk upp af mal- arvellinum, þar sem ungu fót- boltamennirnir tókust á. Þetta er mér minnisstætt vegna þess að þarna sá ég Gulla í fyrsta sinn. Miðað við félaga sína var hann stór og stæltur strákur. Þarna stóð hann á stuttbuxum á réttum stað á vellinum, á milli stanganna á markinu. Hann varði markið af miklu áræði og hörku, kastaði sér á milli stang- Guðlaugur Björgvinsson ✝ Guðlaugur Björgvinsson fæddist 16. júní 1946. Hann lést 4. maí 2021. Útför hans fór fram 14. maí 2021. anna og blóð lagaði úr sárum á hnjám hans. Þarna var keppnismaður að verki sem gaf allt sitt í leikinn. Guðlaugur var þannig alla sína ævi, bæði í leik og starfi, lagði sig fram af mikilli ósér- hlífni. Ég kynntist Guðlaugi fyrst í gamla Versló á Grundarstígnum. Hann lék knattspyrnu í yngri flokkum með Val með góðum árangri. Ég var í yngri árgangi í skólanum en við náðum að spila saman fótbolta ásamt mörgum góðum köppum, því skólinn sendi keppnislið m.a. til að etja kappi við skólann í Bifröst. Gulli hélt alla tíð mikla tryggð við sitt gamla lið Val. Árin liðu og heilladísirnar sáu til þess að leiðir okkar lágu sam- an á ný. Mér bauðst að koma til starfa hjá MS þar sem Guðlaug- ur var við stjórnvölinn. Samstarf okkar Guðlaugs stóð yfir í tugi ára og verkefnin voru spennandi og krefjandi. Guðlaugur var far- sæll yfirmaður og treysti starfs- fólki sínu til að vinna verkin og hafa frumkvæði. Hann var skemmtilegur og með ríka kímnigáfu sem ávallt var skammt undan. Á þessum árum efldist vinskapurinn og við áttum góðar stundir saman í TBR og spreyttum okkur í badminton. Við lögðum stund á stangveiði ásamt eiginkonum okkar Ragn- heiði og Þórunni og svo eru skíðaferðirnar til Austurríkis ógleymanlegar. Þær eru margar góðar minn- ingarnar með Gulla. Það er sorg- legt að vita að heilsa hans fór sí- fellt versnandi síðustu árin. Þá yfirgaf Þórunn þennan heim um aldur fram og skyggði þetta mik- ið á lífsgæði vinar míns. Blessuð sé minning þeirra beggja. Um leið og ég kveð minn gamla vin og félaga votta ég dætrum Guðlaugs og öllum ást- vinum í fjölskyldu hans mína dýpstu samúð og bið Guð að vera með þeim á þessum erfiða tíma. Baldur Jónsson. Kær æskuvinur og traustur vinur gegnum tíðina Gulli Björg- vins hefur hvatt þessa jarðvist- .Leiðir okkar Gulla lágu saman í barnaskóla og síðan í gagn- fræðaskóla Austurbæjar.Eftir það skildu leiðir hvað skóla- göngu varðaði,fórum í sitt hvora áttina en það breytti litlu hvað vináttuna snerti.Sameiginlegt áhugamál okkar á þessum ung- lingsárum var knattspyrnan, báðir félagar í knattspyrnufélag- inu Val,og lékum saman í yngri flokkum félagsins fórum meðal annars til Danmerkur þar sem siglt var með Dronning Alex- andrine út og heim með Gull- fossi.Á þessum árum var ekki mikið um ferðalög til útlanda og var þessi ferð mikið ævintýri fyrir okkur.Það er margs að minnast frá okkar unglingsárum en stutt var á milli heimilanna en Gulli bjó á Miklubraut 42 en ég á Eskihlíð 9. Alls staðar var hægt að setja upp sparkvelli og fyrir utan Valssvæðið var Klambrat- únið helsti keppnisvöllurinn. Þar voru settir upp leikir á milli gatna og nálægra hverfa.Alltaf var mikið fjör og tilhlökkun i kringum þessa leiki.Nú er öldin önnur.Oft kom ég á Miklubraut- ina og alltaf var tekið vel á móti mér af foreldrum Gulla sæmd- arhjónunum Björgvini og Ástu. Eftir því sem árin liðu og við Gulli í ábyrgðarstöðum hvor á sínu sviði voru samskiptin ekki eins mikil og áður en vissum þó alltaf hvor af öðrum og héldum sambandi með t.d afmælis og jólakveðjum.Það er oft þannig að eiga góðan og traustan vin þarf ekki alltaf að vera daglegur sam- gangur. Þegar ég nú kveð þenn- an æskuvin minn hrúgast upp minningar frá mótunarárum okkar og allar eru þær jákvæðar og fallegar. Ég votta dætrum Gulla, systur og fjölskyldum þeirra mína dýpstu samúð og bið Guð að styrkja þau í sorginni. Hvíl í friði minn kæri vinur. Lárus Loftsson Elsku Sigga mín er látin. Við kynntumst í píanókennaradeild Tónlistarskólans haustið 1967. Sigga hafði þá verið í skólanum í mörg ár, en ég hafði þá hætt í skólanum eftir að hann flutti í Skipholtið og var í einka- kennslu eftir það. Að koma inn í skólann var mikið ævintýri en líka margt nýstárlegt. Við vorum þrjár í bekknum, ég, Guðrún Guðmundsdóttir og Sigga, og það var dásamlegt að kynnast þessum stelpum. Sigga var af- skaplega hlý og hjálpleg mann- eskja og það fékk ég svo sann- arlega að finna strax á fyrsta degi. Við Sigga hittumst oft eftir skólatíma og komum heim til hvor annarrar, heimilið hennar var yndislegt og foreldrar henn- ar voru dásamlegar manneskjur. Við vorum þó nokkur sem út- skrifuðumst úr skólanum vorið 1969 og alltaf var það Sigga sem hóaði okkur saman á stór- afmælum, án hennar hefði það farið fram hjá okkur og við ekki átt okkar góðu stundir saman. Nú sé ég að við áttum 50 ára út- skriftarafmæli 2019 og það bara Sigríður Sveinsdóttir ✝ Sigríður Sveinsdóttir fæddist 27. nóv- ember 1946. Hún lést 18. apríl 2021. Útför fór fram 3. maí 2021. rann fram hjá okk- ur, því að Sigga mín var veik. Eftir að Sigga og Guðmundur kynnt- ust fóru þau bráð- lega að huga að byggingu einbýlis- húss. Þau fengu lóð en þá vantaði arki- tekt. Og þá kom Rúnar minn til sög- unnar en hann teiknaði húsið þeirra í Strýtuseli 7. Samstarfið við þau gekk af- skaplega vel. Við vorum flutt er- lendis, en það kom ekki að sök því þau skoðuðu teikningarnar sem hann sendi þeim af þeirri ná- kvæmni og yfirvegun sem þeim einum var lagið og þegar við hringdumst á, þá var allt á hreinu hvað þau vildu. Sigga var mikil félagsvera og formaður Félags tónlistarskóla- kennara um árabil og var í mörg- um stjórnum og nefndum fyrir okkur tónlistarkennara. Það var mikil gæfa fyrir okkur að hafa Siggu í brúnni í öll þessi ár. Hún var heilsteypt manneskja og var föst fyrir á sinn rólega og yfir- vegaða hátt ef á þurfti að halda, en hún var líka góður hlustandi og tók rökum. Ég þakka henni allt það góða starf sem hún vann fyrir okkur tónlistarkennara og alla hennar hlýju og tryggð við mig. Elskulegum dætrum henn- ar votta ég mína dýpstu samúð. Brynja Guttormsdóttir. ✝ Birgir Ragn- arsson fæddist í Reykjavík 22. nóv- ember 1956. Hann lést á bráðadeild Landspítala 26. apr- íl 2021. Foreldrar hans eru Ragnar Jónsson. f. 22.12. 1931 og Greta Jón- asdóttir, f. 19.9. 1933, d. 5.8. 2018, bændur á Brúsa- stöðum. Alsystir Birgis er Krist- rún, f. 28.7. 1962 og hálfsystkini Gerður, f. 28.3. 1950, Hrönn, f. 8.10. 1952 og Sigfús, f. 16.3. 1954, Kristinsbörn. Birgir ólst upp á Brúsastöðum við hefðbundin sveitastörf, gekk í barnaskólann á Ljósafossi og var í heimavist eins og tíðkaðist á þeim tíma. Hann fór í gagn- fræðaskólann í Vestmanna- eyjum, en kláraði í Hagaskóla. Hann fór seinna í Iðnskól- ann að læra prent- iðn og lauk sveins- prófi 1992. Birgir kvæntist Elínu Traustadótt- ur, f. 28.12. 1960, þann 10.6. 1982. Þau skildu. Dóttir þeirra er Júlía, f. 2.4. 1982. Birgir las mikið og aflaði sér fróðleiks víða, hann söng í kór um tíma, æfði badminton og hafði mikinn áhuga á íþróttum almennt. Birgir vann síðustu ár hjá Matfugli uns hann varð að hætta vegna veikinda. Síðustu árin bjó hann í þjónustuíbúð að Hlaðhömrum. Útförin fór fram í kyrrþey frá Lágafellskirkju 6. apríl 2021. Dagur líður, fagur, fríður, flýgur tíðin í aldaskaut. Daggeislar hníga, stjörnurnar stíga stillt nú og milt upp á himinbraut. Streymir niður náð og friður, nú er búin öll dagsins þraut. (Valdimar Briem) Elsku pabbi. Nú ertu kominn á betri stað og erfiðleikarnir að baki. Það er ekki auðvelt að eiga við þennan mikla heilsubrest sem þú glímdir við síðustu ár. Þrátt fyrir það kvartaðir þú aldrei og tókst á við þínar aðstæður með æðruleysi sem er ekki öllum gef- ið. Sorgin að missa þig er mikil en ég leita huggunar í því að nú þjá- ist þú ekki lengur. Þegar við sát- um saman og fórum yfir lífs- hlaupið þitt rifjuðust upp góðu stundirnar sem þú áttir og fyrir veikindin eltir þú draumana þína. Það er gott að eiga góðu minning- arnar eftir. Hvíl í friði elsku pabbi. Þín Júlía. Birgir Ragnarsson Kveðjum okkar elstu systur eftir langvinn veikindi. Ljósmóðir, það lýsir henni svo vel bæði í lífi og starfi. Alltaf brosandi eins og sólin, geislandi fögur bæði innan sem utan. Tók stóran þátt í fæðingu barna okkar, einnig hjá systur- dóttur sinni Hrafnhildi. Snillingur var hún í eldhúsinu, elskaði ítalskan mat, handavinn- an lék í höndum hennar, bæði prjóna- og saumaskapur. Naut sín í lestri rómantískra bóka og las hún aðallega á ensku. Uppáhaldsrithöfundur hennar var Santa Montefiore. Þóra fór sem au-pair til Am- eríku í nóvember 1971 og eftir María Jóna Hreinsdóttir ✝ María Jóna Hreinsdóttir fæddist 11. febrúar 1953. Hún lést 1. apríl 2021. Útförin fór fram 8. apríl 2021. áramót kom Maja einnig sem au-pair og kveikti það áhuga okkar á að ferðast, því upplif- unin var mikil fyrir ungar konur kom- andi úr 5.000 manna samfélagi á Akra- nesi yfir í margra milljóna samfélag. Það eru afar ólíkir heimar. Í nokkur ár bjuggu Maja og Þóra saman ásamt tveggja ára dóttur Þóru, henni Hrafnhildi. Við fórum á ferðakynningar- kvöld á bingó og vann Þóra þriggja vikna ferð til Sikileyjar fyrir einn og það vildi þannig til að samstarfskona Þóru vann líka slíka ferð en vildi selja miðann sinn og Maja keypti hann og út fórum við. Fyrsta kvöldið hitti Maja sinn lífsförunaut hann Saro. Það má segja að hann hafi ver- ið hennar happdrættisvinningur. Áfram heldur ævintýraþráin, komin með tvö börn, Mariu og Giuseppe (Peppino) og ákveða þau að flytja til Sikileyjar keyr- andi á Lödunni sinni fullri af far- angri með viðkomu hjá Írisi í Hamborg. Dvölin á Sikiley var styttri en áætlað var og fluttu þau heim aft- ur. Synir Bryndísar, Alex og Kristófer, sem búa á Englandi komu í nokkur skipti yfir sum- artímann og dvöldu hjá Maju og Saro, Alex í sumarvinnu, Krist- ófer í fríi. Við systur heimsóttum Bryn- dísi til Englands á aðventunni. Þessar ferðir voru dásamleg- ar, mikið verslað, hlegið og borð- að. Stundum farið á tónleika eða í leikhús. Þetta voru dýrmætar stundir og við nutum samverunn- ar í botn. En svo kom að ekki var lengur hægt að fara með Maju til út- landa, þar sem sjúkdómurinn taugahrörnun tók yfir og þá kom Bryndís til okkar í staðinn. Maja varð amma í fyrsta skipt- ið í janúar á þessu ári, þar sem Peppino og Anna Lilja eignuðust son, frumburðinn sinn. Mikil gleði er að Maja fékk að upplifa að vera amma og ljómaði hún þegar sá litli kom í heimsókn. Ástar- og saknaðarkveðjur, þínar systur, Þóra, Bryndís og Íris. Elsku eiginmaður minn, pabbi, tengdapabbi, afi og langafi, INGIMUNDUR GUNNAR HELGASON, Bylgjubyggð 14, Ólafsfirði, lést föstudaginn 7. maí. Útförin fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju föstudaginn 21. maí klukkan 14.00. Arndís Friðriksdóttir Sigríður Ingimundardóttir Jón Hjörtur Sigurðsson Arndís Lilja Jónsdóttir Ágúst Örn Jónsson Malín Mist Jónsdóttir Aþena Mist Ágústsdóttir Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, INGVAR SVEINBJÖRNSSON, lést á heimili sínu í Vesturbæ Reykjavíkur sunnudaginn 16. maí. Eygló Óskarsdóttir Óskar Örn Ingvarsson Kjartan Ingvarsson Ágúst Ingvarsson Sólborg Erla Ingvarsdóttir Skúli Ingvarsson makar og barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.