Morgunblaðið - 17.05.2021, Blaðsíða 27
á 21. mínútu áður en Caroline Hansen
skoraði fjórða markið á 36. mínútu.
Kvennalið Barcelona var stofnað árið
1988 en liðið lék einnig til úrslita í
Meistaradeildinni árið 2019 þar sem
það tapaði 4:1 fyrir Lyon í úrslitaleik í
Búdapest.
_ Leicester varð enskur bikarmeistari
í fyrsta sinn í sögu félagsins þegar lið-
ið lagði Chelsea að velli í úrslitaleik á
Wembley í London á laugardaginn.
Leiknum lauk með 1:0-sigri Leicester
en það var Youri Tielemans sem skor-
aði sigurmark leiksins á 63. mínútu.
Belginn fékk þá boltann utan teigs, lét
vaða á markið, og boltinn söng í net-
inu. Þetta var í fimmta sinn sem Leic-
ester leikur til úrslita um enska bik-
armeistaratitilinn
en liðið lék síðast
til úrslita tímabilið
1968-69 þegar
það tapaði 1:0 fyr-
ir Manchester City
á Wembley.
_ Kúluvarparinn
Erna Sóley Gunn-
arsdóttir bætti eigið Íslandsmet í
kúluvarpi á svæðismeistaramóti í
Murfreesboro í Tennesse í Bandaríkj-
unum í gær. Erna kastaði kúlunni 16,77
metra og bætti eigið Íslandsmet um
fimm sentímetra en kastið skilaði
henni öðru sæti á mótinu. Maia Camp-
bell frá Texas-háskóla vann mótið með
kast upp á 17,33 metra. Erna á bæði
Íslandsmetið innan- og utanhúss en
hún kastaði lengst 16,95 metra inn-
anhúss í vetur. Erna keppir fyrir Rice
University þar sem hún er að klára
annað árið sitt.
_ Hamar og KA eru í vænlegri stöðu
eftir fyrstu leiki sína í undanúrslitum
Íslandsmóts karla í blaki sem fram
fóru í gær. Hamar vann 3:1-sigur
gegn Vestra á Ísafirði og þá vann KA
3:1-sigur gegn HK á Akureyri. Liðin
mætast á nýjan leik á miðvikudaginn
kemur en vinna þarf tvo leiki til þess
að tryggja sér sæti í úrslitum Íslands-
mótsins. Fari svo að Vestri eða HK
vinni síðari leikinn verður spiluð gull-
hrina til þess að knýja fram sigurveg-
ara.
_ Willum Þór Will-
umsson reyndist
hetja BATE Borisov
þegar hann kom inn
af varamanna-
bekknum og skoraði
sigurmarkið í 3:2-
sigri liðsins gegn
Rukh Brest í hvít-
rússnesku úrvals-
deildinni á laugardaginn. Willum Þór
kom inn á á 67. mínútu í stöðunni 1:2 fyr-
ir Rukh Brest en hann skoraði sigurmark
leiksins á 83. mínútu. Um var að ræða
fyrsta deildarmark hans á tímabilinu en
áður var hann búinn að skora tvö mörk í
fimm bikarleikjum. BATE er eftir sigurinn
í þriðja sæti deildarinnar með 20 stig,
níu stigum á eftir toppliði Shakhter.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. MAÍ 2021
Selfoss er með fullt hús stiga á toppi
úrvalsdeildar kvenna í knattspyrnu,
Pepsi Max-deildarinnar, eftir 3:1-
sigur gegn Stjörnunni á Jáverks-
vellinum á Selfossi í 3. umferð deild-
arinnar á laugardaginn.
Þetta var fyrsti heimaleikur Sel-
fyssinga á tímabilinu. Liðið er með
níu stig í efsta sætinu en Stjarnan
bíður ennþá eftir sínum fyrsta sigri í
deildinni og er með eitt stig í níunda
og næstneðsta sætinu.
_ Þá unnu Íslandsmeistaraefnin í
Val 1:0-sigur gegn Fylki á Origo-
vellinum á Hlíðarenda þar sem Mist
Edvardsdóttir skoraði sigurmark
Valskvenna á 25. mínútu. Valskonur
eru í öðru sæti deildarinnar með sjö
stig. Fylkiskonur eru á botni deild-
arinnar án stiga en liðið á leik til góða
á hin lið deildarinnar eftir að leik liðs-
ins gegn Tindastól í annarri umferð-
inni var frestað vegna kórónuveiru-
faraldursins.
_ Íslandsmeistarar Breiðabliks
unnu mikilvægan 3:1-sigur gegn Þór/
KA á Kópavogsvelli þar sem Agla
María Albertsdóttir skoraði tvívegis
fyrir Blika. Blikar eru með sex stig í
þriðja sæti deildarinnar en Þór/KA er
með þrjú stig í sjöunda sætinu.
_ Þá unnu nýliðar Tindastóls sinn
fyrsta leik í efstu deild þegar liðið
fékk ÍBV í heimsókn á Sauðárkróks-
völl. Leiknum lauk með 2:1-sigri
Tindastóls en Tindastóll er með fjög-
ur stig í fjórða sæti deildarinnar og á
leik til góða á liðin fyrir ofan sig. ÍBV
er í fimmta sætinu með þrjú stig.
_ Þá gerðu Keflavík og Þróttur úr
Reykjavík 2:2-jafntefli á HS Orku-
vellinum í Keflavík. Keflavík er með
tvö stig í áttunda sæti deildarinnar en
Þróttarar eru í sjötta sætinu með
þrjú stig.
Selfyssingar með
fullt hús stiga
- Breiðablik og Valur á beinu brautina
Morgunblaðið/Sigurður Ragnarsson
Tvenna Agla María sækir að marki
Þórs/KA á Kópavogsvelli.
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
HS Orkuvöllur: Keflavík – KA................. 18
Norðurálsvöllur: ÍA – Stjarnan........... 19.15
Kórinn: HK – FH ................................. 19.15
Meistaravellir: KR – Valur.................. 19.15
Mjólkurbikar kvenna, 3. umferð:
OnePlus-völlur: Álftanes – Grindavík 19.15
Boginn: Hamrarnir – Völsungur......... 19.15
Kaplakriki: FH – Víkingur R .............. 19.15
KÖRFUKNATTLEIKUR
Undanúrslit kvenna, annar leikur:
Dalhús: Fjölnir – Valur........................ 18.30
Blue-höllin: Keflavík – Haukar ........... 20.30
Umspil karla, undanúrslit, fyrsti leikur:
Hveragerði: Hamar – Selfoss.............. 19.15
Ísafjörður: Vestri – Skallagrímur....... 19.15
Í KVÖLD!
Úrslitakeppni karla
8-liða úrslit, fyrsti leikur:
Stjarnan – Grindavík............................ 90:72
Keflavík – Tindastóll ............................ 79:71
Þór Þ. – Þór Ak..................................... 95:76
Valur – KR.................................... (frl.) 98:99
Umspil kvenna
8-liða úrslit, annar leikur:
Vestri – Njarðvík.................................. 48:92
_ Njarðvík vann einvígið, samanlagt 2:0.
Tindastóll – ÍR...................................... 36:68
_ ÍR vann einvígið, samanlagt 2:0.
Hamar/Þór – Ármann.......................... 67:76
_ Ármann vann einvígið, samanlagt 2:0.
Stjarnan – Grindavík............................ 69:95
_ Grindavík vann einvígið, samanlagt 2:0.
57+36!)49,
Olísdeild karla
Grótta – Þór .......................................... 27:21
Stjarnan – Valur ................................... 31:28
Haukar – FH ........................................ 34:26
KA – ÍBV............................................... 29:27
Afturelding – ÍR ................................... 33:27
Selfoss – Fram...................................... 32:28
Staðan:
Haukar 20 17 1 2 596:482 35
FH 19 11 4 4 561:526 26
Selfoss 20 11 2 7 526:504 24
Stjarnan 20 10 3 7 576:552 23
ÍBV 20 11 1 8 586:560 23
Valur 20 11 1 8 580:540 23
Afturelding 20 10 2 8 537:541 22
KA 19 8 6 5 511:492 22
Fram 20 8 2 10 528:525 18
Grótta 20 5 4 11 513:536 14
Þór Ak. 20 4 0 16 446:555 8
ÍR 20 0 0 20 470:617 0
Olísdeild kvenna
8-liða úrslit, annar leikur:
Stjarnan – ÍBV ..................................... 26:29
_ ÍBV vann einvígið, samanlagt 2:0.
Haukar – Valur..................................... 22:28
_ Valur vann einvígið, samanlagt 2:0.
Umspil kvenna
Undanúrslit, annar leikur:
Fjölnir/Fylkir – HK ............................. 17:28
_ HK vann einvígið, samanlagt 2:0.
ÍR – Grótta............................................ 23:22
_ Staðan í einvíginu er jöfn, 1:1.
Þýskaland
RN Löwen – Erlangen ........................ 26:30
- Ýmir Örn Gíslason skoraði tvö mörk fyr-
ir Löwen.
Coburg – Flensburg ............................ 25:29
- Alexander Petersson var ekki í leik-
mannahópi Flensburg.
Magdeburg – Leipzig.......................... 33:34
- Ómar Ingi Magnússon skoraði níu mörk
fyrir Magdeburg en Gísli Þorgeir Krist-
jánsson er frá keppni.
Kiel – Balingen .................................... 38:34
- Oddur Gretarsson skoraði fjögur mörk
fyrir Balingen.
Danmörk
Úrslitakeppnin, 1. riðill:
GOG – Bjerringbro/Silkeborg .......... 37:35
- Viktor Gísli Hallgrímsson varði fimm
skot í marki GOG.
SönderjyskE – Kolding....................... 39:29
- Sveinn Jóhannsson skoraði fjögur mörk
fyrir SönderjyskE.
- Ágúst Elí Björgvinsson varði þrjú skot í
marki Kolding.
Úrslitakepnin, 2. riðill:
Aalborg – Holstebro............................ 36:38
- Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aal-
borg.
- Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði sex
mörk fyrir Tvis Holstebro.
Skjern – Skanderborg ........................ 26:25
- Elvar Örn Jónsson skoraði eitt mark fyr-
ir Skjern.
Sviss
8-liða úrslit:
Kadetten – Bern .................................. 24:27
- Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Kadetten
sem leiðir 2:1 í einvíginu.
Frakkland
Aix – Chambéry................................... 29:28
- Kristján Örn Kristjánsson skoraði fjög-
ur mörk fyrir Aix.
%$.62)0-#
TINDASTÓLL – ÍBV 2:1
1:0 María Dögg Jóhannesdóttir 32.
2:0 Hugrún Pálsdóttir 51.
2:1 Clara Sigurðardóttir 79.
M
Bryndís R. Haraldsdóttir (Tindastóli)
María D. Jóhannesdóttir (Tindastóli)
Jacqueline Altschuld (Tindastóli)
Hugrún Pálsdóttir (Tindastóli)
Murielle Tiernan (Tindastóli)
Liana Hinds (ÍBV)
Hanna Kallmaier (ÍBV)
Dómari: Valdimar Pálsson – 9.
Áhorfendur: Ekki leyfðir.
VALUR – FYLKIR 1:0
1:0 Mist Edvardsdóttir 25.
M
Bergdís Fanney Einarsdóttir (Val)
Mist Edvardsdóttir (Val)
Arna Eiríksdóttir (Val)
Dóra María Lárusdóttir (Val)
Elín Metta Jensen (Val)
Tinna Brá Magnúsdóttir (Fylki)
Kolbrún Tinna Eyjólfsdóttir (Fylki)
María Eva Eyjólfsdóttir (Fylki)
Dómari: Steinar Berg Sævarsson – 6.
Áhorfendur: Um 150.
KEFLAVÍK – ÞRÓTTUR R. 2:2
1:0 Aerial Chavarin 10.
1:1 Shea Moyer 53.
1:2 Elísabet Freyja Þorvaldsdóttir 56.
2:2 Amelía Rún Fjeldsted 67.
M
Natasha Anasi (Keflavík)
Anita Lind Daníelsdóttir (Keflavík)
Aerial Chavarin (Keflavík)
Dröfn Einarsdóttir (Keflavík)
Amelía Rún Fjelsted (Keflavík)
Andrea Rut Bjarnadóttir (Þrótti)
Katherine Cousins (Þrótti)
Elísabet Freyja Þorvaldsdóttir (Þrótti)
Shea Moyer (Þrótti)
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir (Þrótti)
Dómari: Jóhann Atli Hafliðason – 8
Áhorfendur: 55.
SELFOSS – STJARNAN 3:1
1:0 Anna María Friðgeirsdóttir 32.
1:1 Betsy Hassett 52.
2:1 Unnur Dóra Bergsdóttir 63.
3:1 Hólmfríður Magnúsdóttir 66.
M
Guðný Geirsdóttir (Selfossi)
Anna María Friðgeirsdóttir (Selfossi)
Eva Núra Abrahamsdóttir (Selfossi)
Brenna Lovera (Selfossi)
Hólmfríður Magnúsdóttir (Selfossi)
Unnur Dóra Bergsdóttir (Selfossi)
Ingibjörg L. Ragnarsd. (Stjörnunni)
Betsy Hassett (Stjörnunni)
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason – 8.
Áhorfendur: 131.
BREIÐABLIK – ÞÓR/KA 3:1
1:0 Agla María Albertsdóttir 32
2:0 Agla María Albertsdóttir 51.
2:1 Sandra Nabweteme 56.
3:1 Tiffany McCarthy 62.
M
Agla María Albertsdóttir (Breiðabliki)
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir (Breiðabliki)
Tiffany McCarty (Breiðabliki)
Kristín Dís Árnadóttir (Breiðabliki)
Áslaug M. Gunnlaugsd. (Breiðabliki)
Harpa Jóhannsdóttir (Þór/KA)
Colleen Kennedy (Þór/KA)
Hulda Björg Hannesdóttir (Þór/KA)
Dómari: Sigurður Óli Þórleifsson – 8.
Áhorfendur: Um 100.
Haukar urðu deildarmeistarar í
þrettánda sinn í sögu félagsins þeg-
ar liðið vann stórsigur gegn ná-
grönnum sínum FH í úrvalsdeild
karla í handknattleik, Olísdeildinni,
á Ásvöllum í Hafnarfirði í 20. umferð
deildarinnar um helgina.
Leiknum lauk með 34:26-sigri
Hauka sem voru fimm mörkum yfir í
hálfleik, 17:12, en Haukar eru með
35 stig í efsta sæti deildarinnar þeg-
ar tveimur umferðum er ólokið í
deildinni. FH-ingar koma þar á eftir
með 26 stig en liðið á leik til góða á
Hauka.
_ Selfoss er komið í þriðja sæti
deildarinnar eftir fjögurra marka
sigur gegn Fram í Hleðsluhöllinni á
Selfossi, 32:28.
Selfoss er með 24 stig í þriðja sæti
deildarinnar eftir tuttugu spilaða
leiki, stigi meira en Stjarnan, ÍBV
og Valur. Framarar eru svo gott
sem úr leik í baráttunni um sæti í úr-
slitakeppninni en liðið er með 18 stig
í níunda sæti deildarinnar, fjórum
stigum minna en KA, sem á leik til
góða á Framara.
_ KA er með örlögin í sínum
höndum eftir þýðingarmikinn
tveggja marka sigur gegn ÍBV í KA-
heimilinu á Akureyri, 29:27.
KA þarf nú eitt stig úr síðustu
þremur leikjum sínum til þess að
gulltryggja sæti sitt í úrslitakeppn-
inni en liðið er í áttunda sæti deild-
arinnar með 22 stig. ÍBV missteig
sig hins vegar illa og er nú jafnt
Stjörnunni og Val með 23 stig í
fimmta sætinu.
_ Stjarnan skaust upp fyrir Val í
fjórða sætið með 31:28-sigri gegn
Valsmönnum í TM-höllinni í Garða-
bæ en Valsmenn eru með 23 stig í
sjötta sætinu.
_ Afturelding átti ekki í teljandi
vandræðum með ÍR á Varmá í Mos-
fellsbæ og vann fimm marka sigur,
33:27, en Afturelding er með 22 stig í
sjöunda sæti deildarinnar og þarf
stig til að tryggja sæti í úrslita-
keppninni. ÍR er á botni deild-
arinnar án stiga.
_ Þá er Þór frá Akureyri fallinn
úr deildinni eftir 27:21-tap gegn
Gróttu í Hertz-höllinni á Seltjarn-
arnesi en Þórsarar eru með átta stig
í ellefta sætinu en Grótta er öruggt
með sæti sitt í deildinni með 14 stig í
tíunda sætinu.
Meistarar í
þrettánda sinn
- Grótta tryggði sætið og felldi Þór
ÍBV og Valur tryggðu sér sæti í
undanúrslitum Íslandsmóts kvenna
í handknattleik í gær.
Valur vann öruggan sex marka
sigur gegn Haukum á Ásvöllum í
Hafnarfirði þar sem Lovísa Thomp-
son fór mikinn.
Leiknum lauk með 28:22-sigri
Vals en Lovísa skoraði átta mörk í
leiknum og var markahæsti leik-
maður vallarins.
Valur vann einvígið afar sann-
færandi 2:0 en liðið mætir Fram í
undanúrslitum Íslandsmótsins.
Þá voru þær Harpa Valey Gylfa-
dóttir og Hrafnhildur Hanna Þrast-
ardóttir drjúgar fyrir ÍBV þegar
liðið vann þriggja marka sigur
gegn Stjörnunni í TM-höllinni í
Garðabæ.
Harpa Valey og Hrafnhildur
Hanna skoruðu átta mörk hvor fyr-
ir ÍBV sem vann 29:26-sigur en ÍBV
leiddi 13:10 í hálfleik.
ÍBV vann einvígið 2:0 og mætir
deildarmeisturum KA/Þórs í und-
anúrslitum en undanúrslitin hefjast
sunnudaginn 23. maí.
Morgunblaðið/Eggert
Öflug Haukar réðu ekkert við Lovísu Thompson í Hafnarfirðinum í gær.
ÍBV og Valur örugg-
lega í undanúrslitin