Morgunblaðið - 17.05.2021, Side 13

Morgunblaðið - 17.05.2021, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. MAÍ 2021 rússnesku geimferðastofnuninni Roskosmos. Leikararnir tveir og aðrir starfsmenn mynd- arinnar munu í sumar gangast undir stífa þjálfun til að búa sig undir geimdvölina, m.a. verður byggð eftirlíking af Alþjóðlegu geim- stöðinni fyrir æfingarnar. Til stendur að flytja kvikmyndaliðið með Sojuz MS-19- geimfari sem skotið verður á loft frá Baikon- or-geimferðamiðstöðinni 5. október. „Óskið okkur góðrar ferðar,“ sagði Peresild í instagramfærslu. Rússneska ríkissjónvarpsstöðin Channel 1 og Dmitrí Rogozin, forstjóri Roskosmos, munu framleiða myndina. Konstantin Ernst, forstjóri Channel 1, segir að kvikmyndin sé viðamikið verkefni, sem verði vonandi til að endurvekja áhuga og ástríðu rússnesku þjóð- arinnar fyrir mönnuðum geimferðum. Roskosmos boðaði einnig að á hennar veg- Guðmundur Sv. Hermannsson gummi@mbl.is Rússar tilkynntu í síðustu viku að til standi í haust að taka í fyrsta skipti upp leikna kvik- mynd í fullri lengd úti í geimnum. Einnig ætla Rússar síðar á árinu að flytja sérvitran japanskan auðjöfur til Alþjóðlegu geimstöðv- arinnar. Geimferðaáætlun Rússa staðnaði eftir að Sovétríkin liðu undir lok en þeir eru nú sagðir vilja gera sig gildandi á því sviði á ný og keppa um geimferðamenn við Bandaríkin og athafnamanninn Elon Musk. Rússneska geimkvikmyndin hefur fengið vinnuheitið Áskorun. Leikkonan Julia Pere- sild og leikarinn og leikstjórinn Klim Shio- penko munu fara með aðalhlutverk í mynd- inni, að því er kemur fram í tilkynningu frá um yrði japanski milljarðamæringurinn Yus- aku Maezawa fluttur til geimstöðvarinnar í desember ásamt aðstoðarmanni. Maezawa, sem er 45 ára, auðgaðist á smá- sölu á netinu. Hann segist ætla að gera heim- ildarmynd um dvöl sína í geimnum og birta hana á youtuberás sinni. Hann mun í júní hefja undirbúning fyrir ferðina í þjálfunar- miðstöð skammt frá Moskvu. Gert er ráð fyr- ir að hann dveljist í geimstöðinni í 12 daga og hann áformar að fara einnig í ferð umhverfis tunglið árið 2023 um borð í Starship-geimfari sem SpaceX, fyrirtæki Elons Musks, hefur smíðað. Alls hafa átta „geimferðamenn“ heimsótt Alþjóðlegu geimstöðina síðan slíkar ferðir hófust árið 2001. Tímaritið Forbes segir að geimfarmiði kosti á bilinu 20-35 milljónir dala, jafnvirði 2,5-4,4 milljarða króna. AFP/ NASA/ROSKOSMOS Geimstöð Það verður gestkvæmt í Alþjóðlegu geimstöðinni í haust og vetur þegar kvikmyndaleikarar og athafnamenn taka sér far þangað með rússneskum geimflaugum. AFP Geimferðamaður Japaninn Yusaku Maezawa hyggur á tvær geimferðir á næstu misserum. Kvikmyndaleikarar á leiðinni út í geim - Rússar vilja endurvekja áhuga þjóðarinnar á mönnuðum geimferðum með geimkvikmynd Alls létust 42 í loftárásum Ísraels- manna á Gaza-svæðinu í gær. Er það mesta mannfall á einum degi í átökum Ísraels og Palestínu, sem nú hafa staðið í heila viku. Á þeim tíma hafa minnst 197 fallið á Gaza-svæð- inu í loftárásum á sama tíma og tíu hafa fallið í Ísrael vegna eldflauga- skota frá Hamas-samtökunum. Benjamin Netanyahu forsætis- ráðherra Ísraels lýsti því yfir í gær að loftárásir Ísraelsmanna myndu halda áfram eins lengi og þörf væri á til að tryggja endalok eldflaugaárás- anna frá Gaza-svæðinu. Antonio Guterres, framkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði í gær að ofbeldið fyrir botni Miðjarð- arhafs væri „stórhneykslanlegt“ og skoraði á bæði Hamas-samtökin og Ísraelsmenn að láta af árásunum. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fundaði í gær um ástandið en lítið kom út úr þeim fundi. Kínverjar, sem nú fara með forsæti í ráðinu, sökuðu Bandaríkjastjórn um að hafa komið í veg fyrir að sameig- inleg ályktun ráðsins næði fram að ganga, en Bandaríkjamenn segjast vera í viðræðum við alla aðila um hvernig best sé að stilla til friðar í átökunum. Réðust að leiðtoga Hamas Meðal skotmarka Ísraelsmanna í gær var heimili Yahya Sinwar, póli- tísks leiðtoga Hamas-samtakanna á Gaza-svæðinu, en ekki var vitað um örlög hans í gær. Þá felldu Ísraelar 13 hæða hús, sem m.a. hýsti skrifstofur Al Jaz- eera-sjónvarpsstöðvarinnar og AP- fréttastofunnar. Segja Ísraelsmenn að byggingin hafi verið lögmætt skotmark þar sem hún hafi hýst njósnadeild palestínskra hryðju- verkasamtaka. AP-fréttastofan kall- aði hins vegar eftir óháðri rannsókn á loftárásinni, en starfsmenn hennar og Al Jazeera fengu klukkutíma til að forða sér áður en húsið var fellt. Ekkert vopnahlé enn í augsýn - Loftárásir „eins lengi og þörf er á“ AFP Árásir Netanyahu segir að árásirnar muni vara eins lengi og þörf krefur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.