Morgunblaðið - 17.05.2021, Síða 25

Morgunblaðið - 17.05.2021, Síða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. MAÍ 2021 „ÉG ER EKKERT FYRIR ÞAÐ AÐ NÍÐA SKÓINN Á FÓLKI. ÉG LÆT SKÖLLÓTTA, NAUTHEIMSKA OG FORLJÓTA APAKÖTTINN AÐSTOÐARMANN MINN UM ÞAÐ.“ „ÉG SKIL EKKI ÞETTA BULL – EN ÞÚ?“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að sigla saman undir stjörnuhimni. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÞETTA ER SORGAR- SVIPURINN MINN ÞÚ LÍTUR FÁRÁNLEGA ÚT ÞÚ LÍTUR FÁRÁNLEGA ÚT Æ, ELSKU KARLINN. HÉR ER NAMMI BÍDDU! REYNDU FYRST AÐ RÆÐA VIÐ ÓVININA! HUM?ÓKEI, BRÓÐIR ÓLAFUR! GEFIST UPP EÐA HLJÓTIÐ VERRA AF!FÉLAGAR, UNDIRBÚIÐ ÁRÁS! LÚÐI Agnes Veronika Guðmundsdóttir, f. 3.5. 1889, d. 21.3. 1976, húsmóðir í Bolungavík. Börn Helgu og Gunnars eru 1) Agnar Halldór Gunnarsson, f. 23.1. 1953, bóndi og fyrrverandi oddviti á Miklabæ í Blönduhlíð. Maki: Dalla Þórðardóttir, prófastur á Miklabæ í Blönduhlíð. Synir þeirra eru Trost- an, f. 1981, og Vilhjálmur, f. 1985, og barnabörnin eru tvö; 2) Kristín Gunnarsdóttir, f. 12.8. 1954, d. 30.6. 2014, kennari í Keflavík: Maki: Benedikt Ketill Kristjánsson versl- unarmaður. Börn þeirra eru Ragn- hildur Helga, f.1973, Kristján Heið- berg, f. 1977, og Aron Ívar, f. 1995. Barnabörnin eru átta; 3) Ósk Gunn- arsdóttir, f. 26.12. 1956, kennari í Kópavogi. Barnsfaðir: Haukur Þor- valdsson sölumaður. Dóttir þeirra er Agnes Veronika, f.1981. Barnabörn- in eru þrjú. Systkini Helgu: Jón, f. 1911, d. 2003, Magnús, f. 1912, d. 1997, Her- mann, f. 1913, d. 1980, Guðrún, f. 1914, d. 1997, Elín, f. 1916, d. 2013, Þorbjörg f. 1918, d. 2016, Magnea, f. 1919, d. 2000, Ingigerður, f. 1921, d. 2018, stúlka f. 1922, d. 1922, Óskar f. 1923, d. 1924, Svanlaug f. 1924, d. 2007, Ingibjörg f. 1925, búsett á Sel- fossi, Hrefna, f. 1927, búsett í Reykjavík, Óskar f .1929, d. 2013. Hálfsystir Helgu var Laufey, f. 1920, d. 2019. Foreldrar Helgu voru hjónin Kristín Jónsdóttir, f. 16.5. 1886, d. 2. 9. 1971, húsfreyja á Blesastöðum, og Guðmundur Magnússon, f. 11.5. 1878, d. 20.10. 1972, bóndi á Blesa- stöðum. Helga Guðmundsdóttir Ingveldur Ófeigsdóttir húsmóðir í Vorsabæ Eiríkur Hafliðason bóndi í Vorsabæ Helga Ragnhildur Eiríksdóttir yfirsetukona í Vorsabæ Jón Einarsson bóndi í Vorsabæ á Skeiðum Kristín Jónsdóttir húsfreyja á Blesastöðum Vilborg Ketilsdóttir húsfreyja á Syðri- Brúnavöllum Einar Eggertsson bóndi á Syðri-Brúnavöllum á Skeiðum Sigríður Sturlaugsdóttir húsfreyja á Reykjum Eiríkur Eiríksson bóndi, hreppstjóri og dannebrogsmaður á Reykjum á Skeiðum. Guðrún Eiríksdóttir húsfreyja á Votumýri Magnús Sigurðsson bóndi á Votumýri á Skeiðum Guðrún Gísladóttir húsfreyja á Votumýri Sigurður Guðmundsson bóndi á Votumýri Úr frændgarði Helgu Guðmundsdóttur Guðmundur Magnússon bóndi á Blesastöðum á Skeiðum Ingólfur Ómar Ármannsson sendimér póst á miðvikudag þar sem segir: „Ég skrapp upp í Borgarfjörð í gærmorgun og er sauðburður sum- staðar vel á veg kominn og þar mátti sjá á nokkrum bæjum kindur ásamt lömbum sínum og einn og einn hrafn á sveimi. En þannig varð kveikjan að þessari vísu: Hoppa lömb um laut og börð létt og kvik í spori. Sveimar yfir sauðahjörð soltinn hrafn að vori. Svo er hér ein að gamni en hún er af ólíkum toga. Leiktu þér við ljóðaspil lífs með gleðifuna. Láttu fögnuð, ást og yl auðga tilveruna.“ Í „Limru-skjóðu“ Hafsteins Reykjalín Jóhannessonar er ort um „Vorið í pólitík 2013“: Kosningar kjósendur vilja, koma á frelsi og skilja að klórir þú mér þá klóra ég þér og kenni þér gróðann að hylja. Í „Kvöldglettum“ Óskar Þorkels- dóttur er „Kosningaspá“: Kosningar harðar við heyjum, horfur er erfitt að segjum. Þá staðreynd má sjá við stjórn munum fá með rándýrum ráðherragreyjum. „Hananú. – Fuglalimrur“ er bók Páls Jónassonar í Hlíð. Þar er limr- an „Fagurt syngur svanurinn í Sól- eyjar-Hlíð“. Frá bakkanum svanirnir synda, en sól skin á efstu tinda því risinn er dagur úr rökkrinu fagur með töfraspil tóna og mynda. Í „Ljóðum úr leiðöngrum“ eftir Sturlu Friðriksson er sagt frá „Kast- alagöngu við Signu í rigningu“: Við plömpum í hasti og pústum, paufumst og böslum í þústum og öslum í sudda og rigningarrudda til að komast að kastalarústum Í „Árleysi alda“ segir Bjarki Karlsson frá „nokkrum val- inkunnum sómamönnum úr upp- sveitum Árnessýslu“: Þegar Guðmundur bóndi í Grafningi gleypti í sig þrjú tonn af jafningi fékk sveitin að kynnast að seint myndi finnast í Grafningi Guðmundar jafningi. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Úr Borgarfirði og enn tínast til limrur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.