Morgunblaðið - 17.05.2021, Síða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. MAÍ 2021
Lilja Sigurðardóttir er einn af okk-
ar helstu glæpasagnasmiðum og
hefur vakið athygli hér heima og
erlendis. Í samtali við Árna Matt-
híasson í þættinum Dagmál, sem
aðgengilegur er á mbl.is, sagði hún
frá því að hún hefði hafið sinn rit-
höfundarferil með því að taka þátt í
glæpasagnasamkeppni. Hún tók sér
svo hlé frá glæpasögunum um tíma
til að læra að skrifa fyrir leikhús og
í dag eru handritsskrif snar þáttur
af hennar skrifum.
Lilja segist haga vinnu sinni svo
að hún nái að vinna eina skáldsögu
á ári og handrit að fjórum til fimm
sjónvarpsþáttum. „Það er mikill
blómi í því og allar þessar streymis-
veitur hafa kallað fram eftirspurn
og náttúrlega covidið gerði það að
verkum að það er komið svona það
sem er kallað „content gap“, það
vantar efni vegna þess að það var
lítið framleitt meðan á faraldrinum
stóð. Það er því mikið að fara í
framleiðslu og mikið að gerast í því.
Þetta er annað ferli, það er svo
ofboðslega löng tímalína, það er
mjög erfitt fyrir þolinmæðina, það
reynir á, en ég er að skrifa sjón-
varpsútgáfu af Sjálfstæðu fólki eft-
ir Halldór Laxness ásamt Baltasar
Kormáki. Við erum reyndar búin að
vera að dúlla við það lengi og það
er ágætt að vinna það hægt, þetta
batnar með hverjum mánuðinum
sem líður. Við förum inn í það öðru
hvoru og þetta er að þróast fallega
og stefnir í að vera mjög gott sjón-
varpsefni, eiginlega ótrúlega gott.
Maður hugsar bara torfbær og
kindur en þetta er svo svakalega
magnað fjölskyldudrama, þetta
verður bara frábært í sjónvarpi
held ég, en þetta er líka kvíðvæn-
legt vegna þess að það liggur við að
hver einasti Íslendingur sé með
skoðun á þessu verki og á þessum
persónum og allir eru með sína
mynd af þeim. Ég er búin að fá
nokkur bréf með leiðsögn,“ segir
Lilja og hlær. „Þannig að það er
bókað að það verða ekki allir
ánægðir, en þetta er eitthvað sem
ég held að sé gott að fólk takist á
við.“
Svakalega magnað
fjölskyldudrama
Glæpir Lilja Sigurðardóttir er einn af helstu glæpasagnasmiðum Íslands.
- Lilja Sigurðardóttir vinnur að
sjónvarpsútgáfu af Sjálfstæðu fólki
Voruppboð stóru fjölþjóðlegu upp-
boðshúsanna Sotheby’s og Christie’s
voru lífleg í síðustu viku en eftir að
hafa hingað til boðið myndlistarverk
upp á netinu meðan á veirufaraldr-
inum hefur staðið var aftur tekið að
bjóða gestum inn í uppboðshúsin, að
viðhöfðum stífum sóttvörnum – þótt
flest boð í verk hafi komið gegnum
síma. Og safnarar voru viljugir og
áhugasamir, einkum um samtíma-
listaverk, og fékkst hátt verð fyrir
fjölmörg verk.
Bæði uppboðshús fengu firnahátt
verð fyrir kröftug málverk eftir
Jean-Michel Basquiat. Hjá Christie’s
fengust 93 milljónir dala, rúmlega
11,5 milljarðar kr., fyrir verkið In
This Case (1983) en hjá Sotheby’s
greiddi hæstbjóðandi 50,8 milljónir
dala, 6,3 milljarða kr., fyrir Versus
Medici (1982).
Hæsta verð sem fengist hefur fyr-
ir verk eftir Elizabeth Peyton, sem
sýndi í Kling & Bang í Marshall-
húsinu fyrir þremur árum, var greitt
fyrir portrett hennar af David Bowie
(2012). Hæsta boð var tvær milljónir
dala, einni milljón yfir hæsta verð-
mati. Þá fengust 2,6 milljónir dala
fyrir málverk eftir Raymond Petti-
bon, No Title (Deeper above all …)
(2011), og 867 þúsund dalir fyrir nán-
ast nýtt verk, The Arrival (2019), eft-
ir pakistanska Bandaríkjamanninn
Salman Toor en sýningu á verkum
hans er nýlokið í Whitney-safninu í
New York.
Verk eftir huldulistamanninn
Banksy eru áfram vinsæl og voru
12,9 milljónir dala, 1,6 milljarðar kr.,
greiddar fyrir frekar lítið málverk
eftir hann, Love is in the Air (2005).
Margir buðu í málverk Roberts
Colescotts, George Washington
Carver Crossing the Delaware: Page
from an American History Textbook
(1975), en hið nýja safn Lucas Mus-
eum of Narrative Art bauð best, 15,3
milljónir dala. Safnið er stofnað af
George Lucas, leikstjóra fyrstu Star
Wars-kvikmyndanna, og verður opn-
að í Los Angeles eftir tvö ár.
Á uppboðunum með módernískri
myndlist voru verk eftir Monet, Céz-
anne og Picasso áberandi. Helst bar
til tíðinda að rómað vatnaliljuverk
eftir Monet, Le Bassin aux nymph-
éas (1917-19), var selt fyrir 70,4 millj-
ónir dala, um 8,7 milljarða kr. Þá var
kyrralíf eftir Cézanne, Nature
morte: pommes et poires (1888-90),
selt fyrir 19,9 milljónir dala, nær tvo
og hálfan milljarð króna.
Kraftur 11,5 milljarða króna kostaði
In This Case eftir Basquiat.
Vatnaliljur Hátt verð var greitt á uppboði Sotheby’s fyrir Le Bassin aux
nymphéas eftir Claude Monet, 70,4 milljónir dala, um 8,7 milljarðar kr.
Rándýr Basquiat-verk
- Hátt verð fyrir
myndlistarverk
á uppboðum
AFP
Sögulegt Safn sem George Lucas stofnaði hreppti málverk Roberts
Colescotts sem sýnir George Washington sigla yfir Delaware-fljótið.