Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.05.2021, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.5. 2021
ELDINGAR
L auga rna r í Rey k javí k
Fyrir
líkama
og sál
w w w. i t r. i s
S ý num hve r t öð ru t illit s s e mi og
virðum 2 m e t ra f ja rlægða rmörk in
U
pplýst var á föstudaginn
að um 350 Saiga-
antilópur, sem eru í
bráðri útrýmingarhættu, hefðu
drepist í Kasakstan, að því er tal-
ið er af völdum eldingar. Menn
fundu hræin á grónu flatlendi í
vesturhluta landsins. Antilópur
fjölga sér gjarnan á þessum árs-
tíma en Saiga eru frægar fyrir
óvenjulegt og þrútið nef sitt. Í yf-
irlýsingu frá umhverfisráðuneyti
Kasakstans kemur fram að elding
sé líklegasta skýring dauðsfall-
anna en ummerki fundust þar um
á hræjunum. AFP-fréttaveitan
greinir frá.
Samkvæmt „rauðum lista“ Al-
þjóðlegu náttúruverndarsamtak-
anna (IUCN) er Saiga-stofninn í
hópi þeirra fimm antilópustofna
sem eru í mestri útrýmingarhættu
en aðeins munu vera um 124 þús-
und stálpuð dýr eftir.
Langflest þeirra er að finna í
Kasakstan en einnig í Rússlandi
og Mongólíu. Aðeins eru sex ár
síðan um 200 þúsund dýr, sem var
vel yfir helmingur heildarstofnsins
á þeim tíma, drápust af völdum
svæsinnar nefbakteríu sem dreifði
sér í óvenju miklum hita og raka.
Saiga-antilópunum stafar þess
utan stöðug ógn af veiðiþjófum en
mikil eftirspurn er eftir hornum
þeirra vegna lyfs sem lengi hefur
verið framleitt í Kína. Yfirvöld í
Kasakstan hafa sagt veiðiþjófum
stríð á hendur eftir að þeir urðu
tveimur landvörðum að bana árið
2019.
Rannsókn hafin á
Indlandi
Eldingum virðist hafa lostið niður
víðar en á fimmtudaginn var skýrt
frá því að alla vega átján fílar á
Indlandi hefðu orðið þeim að bráð.
Í gær fyrirskipuðu yfirvöld á hinn
bóginn rannsókn á málinu eftir að
málsmetandi náttúruverndarsinni,
Soumyadeep Datta, lýsti efasemd-
um um að kenningin um eld-
inguna gæti staðist. Það mat
byggir hann á ljósmyndum sem
birtar hafa verið á samfélags-
miðlum.
Hjörðin sáluga fannst í Kandali-
skóglendinu í Assamríki sem til
stendur að friða. Það voru um-
sjónarmenn skógarins sem tjáðu
AFP-fréttaveitunni að fílarnir
hefðu orðið fyrir eldingu.
„Skýringin á dauða fílanna gæti
verið eitrun,“ sagði Datta við
AFP. „Við verðum að bíða eftir
niðurstöðum krufningar sem fara
mun fram innan tíðar.“
Hópur dýralækna og embættis-
manna stefndi skónum á vettvang
á föstudaginn, ásamt Parimal
Shuklabaidya, skógar- og um-
hverfismálaráðherra Assam.
Nær 30 þúsund fílar eru á Ind-
landi, eða um 60% allra villtra fíla
í Asíu.
Það verður æ algengara að
menn verði fílum að bana og öfugt
enda ágangur þeirra fyrrnefndu í
skóglendi alltaf að aukast.
Urðu fílar og antilópur eldingu að bráð?
Grunur leikur á að
elding hafi orðið 350
antilópum í bráðri
útrýmingarhættu að
fjörtjóni í Kasakstan
fyrir helgina og að
minnsta kosti 30
fílum á Indlandi.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
AFP
AFP
Menn huga að fílshræi í
Assamríki á Indlandi en
grunur leikur á að elding
hafi orðið því að aldurtila.
Saiga-antilópurnar eru
auþekkjanlegar á breiðu
og óvenjulegu nefinu.
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VEISTU
UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?