Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.05.2021, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.5. 2021
KNATTSPYRNA
Þ
egar Þjóðarsleggjan sjálf (þ.
Bomber der Nation) gerði sitt
fertugasta mark fyrir Bayern
München í Búndeslígunni á einu og
sama tímabilinu horfðu fremstu
sparkskýrendur þessa heims hver á
annan, klóruðu sér bak við hægra
eyrað og sammæltust um að slíkt af-
rek yrði aldrei unnið aftur. Ég meina,
leikirnir voru bara 34. Og ekki til siðs
að framlengja, fremur en endranær í
deildarleikjum. Við erum vitaskuld að
tala um goðsögnina Gerd Müller eða
Gerði í Múla, eins og við getum kinn-
roðalaust kallað kappann eftir að
mörkin milli nafna kvenna og karla
voru máð út hér um slóðir. Ekki satt,
Sigríður bóndi?
Á þeim 49 árum sem síðan eru liðin
hefur ekki þótt ástæða til að rengja
hið faglega mat sparkskýrendanna –
þar til nú. Sú ótrúlega staða er nefni-
lega komin upp í Búndeslígunni að
Pólverjinn Robert Lewandowski, eða
Róbert Lifandisósköp, eins og Djúp-
menn kalla hann í daglegu tali, er bú-
inn að gera 39 mörk fyrir Bæjara á
leiktíðinni sem er að ljúka, í aðeins 27
leikjum. Segi ég og skrifa, eins og
Samúel Örn forðum. Og enn eru tveir
leikir óleiknir. Sá fyrri er gegn Frei-
burg á útivelli í dag, laugardag, og
líkurnar á því að met Müllers falli eða
verði að minnsta kosti jafnað eru yfir-
gnæfandi. Slík hefur siglingin á Pól-
verjanum verið á leiktíðinni. Nú og
gangi rófan ekki um helgina þá er
lokaleikurinn gegn Alfreð Finnboga-
syni og félögum í Augsburg í öllu falli
eftir.
Raunar óttuðust margir að draum-
urinn um að slá metið væri úti þegar
Lewandowski meiddist í landsleik
undir lok mars en hann sneri aftur
fjórum vikum síðar og tók þegar í
stað til óspilltra málanna; gerði til að
mynda þrennu í 6:0-sigri á Borussia
Mönchengladbach um liðna helgi. Þá
fjórtándu í Búndeslígunni á ferlinum.
Farið fram eftir þrítugt
Það eru ekki ný tíðindi að Robert
Lewandowski skori mörk; það hefur
hann gert í akkorði undanfarinn ára-
tug en það merkilega er að honum
hefur farið fram eftir þrítugt, þegar
alla jafna hægist á sparkendum.
Hann náði þeim ótrúlega áfanga í
fyrsta skipti í fyrra, þá 31 árs, að
skora meira en mark í leik fyrir Bæj-
ara, samtals 55 mörk í 47 leikjum. Þá
voru deildarmörkin 34 sem var per-
sónulegt met. Það er nú fallið og ljóst
að Pólverjinn mun endurtaka leikinn,
það er skora meira en mark í leik í
vetur. Er þegar kominn með 46 mörk
í aðeins 38 leikjum.
Hver hefði trúað því að maður yrði
að skrifa þessi orð árið 2021; ekki
sparkskýrendurnir frá 1972, ef þeir
eru þá ennþá meðal vor. Í öllu falli
hljóta þeir að sprikla af eftirvæntingu
í gröfum sínum.
Óhætt er að fullyrða að ferill Lew-
andowskis hafi ekki farið af stað með
sama lúðrablæstri og ferill Lionels
Messis eða Cristianos Ronaldos.
Hann sleit sínum fyrstu fullorðins-
takkaskóm hjá Delta Varsjá í fásinn-
inu í fjórðu deild í Póllandi veturinn
2004-05, þá aðeins sextán ára. Gerði
fjögur mörk í 19 leikjum. Þaðan lá
leiðin í aðeins kunnari klúbb, Legia
Varsjá, þar sem pilturinn lék með B-
liðinu í þriðju deild. Þá komu tvö ár
hjá Znicz Pruszków, fyrst í þriðju og
síðan annarri deild, þar sem okkar
maður rauf 20 marka múrinn í fyrsta
skipti. Znicz Pruszków er mergjað
nafn á liði og ótrúlegt að nokkur mað-
ur geti hugsað sér að yfirgefa það en
Lewandowski sá þó sæng sína upp
reidda og færði sig yfir til stórliðs
Lech Poznan í efstu deild sem heitir
víst Ekstraklasa á móðurmálinu.
Vissuð þið það? Hljómar samt svolítið
eins og sænskur stórmarkaður, þar
sem gott úrval er af fersku grænmeti.
En það er önnur saga.
Kloppaður upp
Eftir að hafa gert 41 mark á tveimur
tímabilum fyrir Lech þótti tímabært
að kappinn, sem þá var orðinn 22 ára,
færði sig yfir til Þýskalands og
spreytti sig gegn sterkari vörnum.
Borussia Dortmund hreppti hnossið,
þar sem enginn annar en Jürgen
Klopp réð ríkjum. Hafi menn búist
við flugeldasýningu í fyrstu atrennu
varð þeim ekki kápan úr því klæðinu;
Lewandowski lét níu mörk í 43 leikj-
um í öllum keppnum duga. Svo brast
stíflan, ef stíflu skyldi kalla, næstu
þrjú tímabilin gerði hann 94 mörk í
öllum keppnum fyrir Dortmund,
mest 24 í Búndeslígunni, 2012-13.
Risinn í München gat að vonum
ekki látið það viðgangast og leysti
leikmanninn því til sín sumarið 2014.
Hann var til þess að gera rólegur
fyrsta veturinn; gerði „ekki nema“ 25
mörk á öllum mótum. Svo kynntist
hann samherjunum aðeins betur og
fór á sporbaug um jörðu. Haldið ykk-
ur nú fast meðan nýjustu tölur úr Há-
degismóum verða lesnar upp – 42, 43,
41, 40, 55 og alla vega 46. Við erum að
tala um mörk á öllum mótum. Og
mótin fyrir utan Búndeslíguna eru
engin Bautamót með amatörum,
heldur sjálfur þjóðarbikarinn og
Meistaradeild Evrópu. Á þeim vett-
vangi gerði Lewandowski til dæmis
15 mörk í 10 leikjum í fyrra. Ha, hætti
ég nú alveg? Nei, þetta er dagsatt.
Flettið þessu bara upp í opinberum
skjölum hjá UEFA!
Við þetta má bæta að Lewand-
owski hefur gert 66 mörk í 118 lands-
leikjum fyrir Pólland.
Farinn að skáka viðundrum
Hafandi séð þessar ótrúlegu tölur
hlýtur maður að blaða í sambæri-
legum gögnum er varða Lionel Messi
og Cristiano Ronaldo, fremstu spark-
endur sinnar kynslóðar í heiminum
og mögulega sögunnar frá upphafi.
Tökum þann slag við Pelunga og
Maradonnur þessa lands við annað
tækifæri. En alltént. Í tíu ára sam-
hengi fer Lewandowski halloka;
mörkin hans 386 á þeim tíma duga
skammt gegn 463 mörkum hjá Ron-
aldo og 491 hjá Messi. En á tveimur
síðustu árum hefur okkar maður á
hinn bóginn skilið þau viðundur eftir í
reykmekki; er með 101 mark á móti
„aðeins“ 72 hjá Ronaldo og 68 hjá
Messi. Sem er afar athyglisvert. Ron-
aldo fæddist 1985 en Messi 1987.
En hvernig stenst Lewandowski
samanburð við Þjóðarsleggjuna?
Hann hefur gert 292 mörk í 327 leikj-
um fyrir Bæjara og samtals 482 mörk
í 694 leikjum fyrir öll sín félagslið.
Müller gerði á hinn bóginn 563 mörk í
605 leikjum í öllum keppnum á fimm-
tán tímabilum hjá Bayern og alls 654
mörk í 716 leikjum með félagsliðum á
ferlinum. Og svo 68 mörk í aðeins 62
landsleikjum fyrir Vestur-Þýskaland.
Pælið í því!
Müller myndi vilja og skilja
Lewandowski á því ennþá nokkuð í
land en góðu fréttirnar eru þær að
hann er hvergi nærri hættur. Ætlar
að reynast slitgóður á velli eins og
erkikempur á borð við Messi og Ron-
aldo, að ekki sé talað um Zlatan Ibra-
himović sem fór á fáheyrt flug eftir
þrítugt og er enn að hrella markverði,
að verða fertugur.
Hansi Flick, fráfarandi sparkstjóri
Bæjara, staðfesti á dögunum við AFP-
fréttaveituna að það væri einbeittur
vilji Lewandowskis að slá Búndeslígu-
metið. Hann ætti það skilið enda byggi
hann yfir einstökum hæfileikum og
væri leikmaður á heimsmælikvarða.
Það þurfti svo sem ekki slíkan sér-
fræðing til að segja okkur það.
Sjálfur sagði Lewandowski við
Sport Bild fyrir skemmstu að kominn
væri tími til að slá met hins 75 ára
gamla Müllers sem því miður mun
líklega ekki verða mikið var við það
enda hefur hann glímt við elliglöp í
seinni tíð. „Slái ég metið myndi Gerd
Müller vilja og skilja það.“
Lewandis owsköp skorar maðurinn!
Robert Lewandowski fagnar
einu af þremur mörkum
sínum gegn Borussia Mönch-
engladbach um liðna helgi.
AFP
Gerd Müller í kunn-
uglegri stellingu í
landsleik með Vest-
ur-Þjóðverjum gegn
Austur-Þjóðverjum
á HM 1974.
AFP
49 ára gamalt markamet
Gerds Müllers gæti fall-
ið í Búndeslígunni um
helgina þegar Robert
Lewandowski leikur
með Bayern München
gegn Freiburg. Pólverj-
inn hefur verið í lygi-
legum ham með Bæj-
urum undanfarin ár,
einkum þau tvö síðustu,
og vex enn og dafnar á
velli, að verða 33 ára.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Vissir þú
að mbl.is
4%
11%
13%
31%
41%
er með hærra hlutfall
(%) flettinga en aðrir
miðlar *
mbl.is visir.is dv.is
ruv.is frettabladid.is
31%
fleiri flettingar en hjá
helsta samkeppnisaðila *
Notendur + flettingar = árangur
*
G
a
llu
p
to
p
p
lis
ti
Q
1
2
0
2
1