Fréttablaðið - 16.10.2021, Side 12
Enginn hefur lýst yfir
ábyrgð á voðaverkinu.
Um áttatíu prósent
fullorðinna á Spáni eru
fullbólusett.
gar@frettabladid.is
COVID -19 Lækkandi smittíðni
meðal skólabarna á Spáni er að
mati sérfræðinga vísbending um
að hjarðónæmi gegn Covid-19 sé þar
innan seilingar. Þetta kemur fram í
spænska stórblaðinu El País.
Þótt mánuður sé liðinn af skóla-
árinu segir El País að smittíðnin
haldi áfram að vera lág, jafnvel
meðal óbólusettra barna.
Óttast var að smitum kynni að
fjölga þegar 5,2 milljónir barna
undir tólf ára aldri myndu flykkj-
ast í skólann. Þetta hafi ekki gerst
á meðal þessa eina þjóðfélagshóps
sem ekki sé bólusettur. Því séu sér-
fræðingar nú bjartsýnir á að þjóðin
hafi náð þetta mikilli vernd með
því að nærri 80 prósent þjóðarinnar
séu fullbólsett að því megi líkja við
hjarðónæmi.
Þrátt fyrir að ekki sé búist við því
að sögn El País að veiran hverfi að
fullu, telji sérfræðingar senn komið
að því að nemendur eldri en sex ára
þurfi ekki lengur að bera grímur.
„Við erum í bestu sviðsmynd sem
við gátum búist við fyrir mánuði,“
hefur El País eftir Quique Bassat,
sem er faraldursfræðingur við
ISGlobal-stofnunina í Barcelona.
„Mjög hefur dregið úr samfélags-
smitum og það ásamt sóttvarna-
aðgerðum í skólum hefur reynst
duga, jafnvel gegn af brigði sem er
eins smitandi og delta,“ útskýrir
Bassat stöðuna fyrir El País.
Jesús Rodríguez Baño, yfirmaður
smitsjúkdómadeilar Virgen de la
Macarena spítalans í Sevilla, tekur
í sama streng að sögn El País.
„Ef við ætlum að finna skýringu
á því hvers vegna staðan á faraldr-
inum hefur batnað, einnig meðal
þeirra sem eru óbólsettir, með delta-
afbrigðið í umferð og okkur smám
saman að snúa aftur til eðlilegs lífs,
þá er eina trúlega skýringin sú að
eitthvað á borð við hjarðónæmi
sé þegar farið að virka,“ segir Jesús
Rodríguez Baño. n
Spánn á betri stað en óttast var og
hjarðónæmi talið handan við hornið
Spænskir skóladrengir heilsast að Covid-sið. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Einstaklingur
sprengdi sig
við öryggishlið
moskunnar sem
gerði næstu
árásarmönnum
auðvelt að
komast inn
í moskuna.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
LANDSBANKINN. IS
Samfélags-
styrkir
Landsbankans
Árið 2021 veitir Landsbankinn
15 milljónir kr. í samfélags-
styrki. Umsóknarfrestur er
til og með 28. október 2021.
Styrkjunum er ætlað að styðja við
fjölbreytt verkefni, meðal annars
á sviði mannúðarmála, menningar
og lista, menntamála og vísinda,
forvarna- og æskulýðsstarfs og
umhverfismála.
Veittir eru styrkir
í þremur þrepum:
•
•
•
Kynntu þér málið á landsbankinn.is
1.000.000 kr.
500.000 kr.
250.000 kr.
Tæplega fimmtíu manns
létust í sprengjuárás á mosku
í borginni Kandahar í Afgan-
istan í gær. Þetta er önnur
vikan í röð sem slík árás á sér
stað á bænastund sjíamús-
lima í landinu, en talið er að
fjórir einstaklingar hafi unnið
saman að voðaverkinu.
kristinnpall@frettabladid.is
AFGANISTAN Aðra vikuna í röð átti
sér stað sprengjuárás í Afganistan
þar sem tugir manna létust við
föstudagsbænastund í mosku þar í
landi. Árásin átti sér stað sama dag
og hópur ISIS á Khorasan svæð-
inu, ISIS-K, lýsti yfir að hann bæri
ábyrgð á sambærilegri árás í borg-
inni Kunduz, þar sem að minnsta
kosti fimmtíu manns létu lífið í
síðustu viku.
Hafiz Sayeed, leiðtogi menningar-
og upplýsingaráðuneytis talíbana í
Kandahar, sagði í samtali við fjöl-
miðla í gær að að minnsta kosti 47
hefðu látist í árásinni og sjötíu væru
særðir, en það gæti fjölgað í þeim
hópi á næstu dögum.
Sjónvarvottar lýstu í samtali við
fréttastofu AFP að líklegast hefðu
þrír eða fjórir menn verið að verki
í gær. Sjálfsmorðssprenging við
öryggishlið moskunnar gerði víga-
mönnum kleift að komast inn í
moskuna, þar sem þeir sprengdu
sjálfa sig einnig. Annar sjónarvott-
ur taldi sig hafa heyrt sprengingu
þar trúariðkendur þvoðu sér fyrir
bænastund.
Árásin átti sér stað í moskunni
Bibi Fatima, sem er f jölmenn-
asta moska sjíamúslima í Kunduz
sem er næstfjölmennasta borgin í
Afganistan á eftir Kabúl. Yfirleitt eru
um fimm hundruð samankomnir á
bænastundum sem þessum.
Stjórnvöld í Afganistan lýstu því
yfir eftir árásina í Kunduz í síðustu
viku að einstaklingarnir sem væru
ábyrgir fyrir árásinni yrðu látnir
svara til saka, en innanríkisráð-
herra Afganistan, Sayed Khosti,
lýsti yfir vonbrigðum sínum með
árásina og boðaði komu sérsveitar
á svæðið til að rannsaka málið
betur. n
Mannskæðar árásir halda áfram
kristinnpall@frettabladid.is
NOREGUR Á blaðamannafundi
lögreglunnar í Kongsberg í gær
var fullyrt að líklegast hefðu and-
leg veikindi orðið til þess að Espen
Andersen Brathen réðst á og banaði
fimm einstaklingum í Kongsberg
síðastliðið miðvikudagsk völd.
Hann hefði útskýrt fyrir lögreglu í
smáatriðum hvað hann hefði gert,
en lögreglan telur sig vita fyrir víst
að hann glími við andleg veikindi.
Hann var í gær úrskurðaður í
gæsluvarðhald og um leið f luttur
inn á heilbrigðisstofnun, eftir að
hafa gengist undir geðheilsumat.
Lögreglan var ekki tilbúin að til að
úrskurða hvort árásin f lokkaðist
sem hryðjuverk. n
Andleg veikindi
að baki árásar
Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra
Noregs minntist hinna látnu í gær.
12 Fréttir 16. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ