Fréttablaðið - 16.10.2021, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 16.10.2021, Blaðsíða 32
Við erum með pakk- aða dag- skrá en samt sem áður ætlast vinnuveit- andinn til þess að þú sitjir á skrif- stofunni í átta tíma. Sigríður En það er staðreynd að þegar horft er til þróunar starfa í framtíð- inni þá eiga um það bil 50 prósent eftir að hverfa, 30 prósent eftir að þróast, og 20 prósent eftir að vera eins. Alda Þær Alda Sigurðardóttir og Sigríður Sandholt vinna saman að nýju fyrirtæki, Fræðslu, sem þær segja stofnað til að bregðast við ákalli stjórnenda, í ljósi þeirra miklu breytinga sem nú ganga yfir á vinnumarkaði. Alda Sigurðardóttir hefur undanfarinn áratug starfað við stjórnenda-þjálfun fyrir einstakl-inga og fyrirtæki í gegn- um fyrirtæki sitt Vendum. Byggir hún nýtt fyrirtæki á þeirri reynslu ásamt því að sækja í reynslubanka Sigríðar Sandholt, framkvæmda- stjóra. Sigríður býr að áralangri reynslu af stjórnun úr f lugiðnaði og þekkir vel áskorunina sem felst í því að taka ábyrgð á eigin starfs- þróun, sem þeim stöllum er tíðrætt um þegar við setjumst niður og ræðum þróun starfa í heimsfaraldri og fjórðu iðnbyltingunni. „Með tilliti til Covid held ég að mörg fyrirtæki og sérstaklega stjórnendur hafi þurft að líta inn á við,“ segir Sigríður. „Allt þetta fýs- íska samband sem þeir voru vanir að eiga við starfsfólk sitt breyttist á örskotsstundu. Stjórnendur þurftu að hugsa hlutina upp á nýtt með til- komu fjarvinnu og skilgreina hvað það er sem þeir eru að leitast eftir frá starfsfólki.“ Öllum hent heim á einu bretti Sigríður bendir á að breytingarnar hafi jafnvel kallað á aukin samskipti og traust hafi skipt miklu máli. „Þegar fólk er ekki á sama staðnum skiptir miklu að treysta og vera í góðum og miklum samskiptum við fólkið sitt.“ Hún segir mörg fyrir- tæki hafa gert þetta mjög vel, haldið svokallaða „tékk-inn“-fundi og jafn- vel talað meira saman en þörf hafi verið á. „Því í rauninni var öllum bara hent heim á einu bretti og ég held að því hafi fylgt gríðarlega mikill lærdómur fyrir stjórnendur sem hreinlega þekktu ekki þetta starfsumhverfi,“ segir Sigríður og Alda bætir við: „Þetta er samt ekkert nýtt, fjar- vinna er búin að vera til staðar lengi og sjálf hef ég unnið með fjölda fólks rafrænt síðustu tíu ár víða um heim. Bæði tækni- og hug- búnaðurinn er gamall og mörg fyrirtæki hafa lengi haft fólk í fjar- vinnu. Það hefur bara ekki verið allur massinn – það er stóra breyt- ingin. Ég vinn mest hér á landi og hef oft boðið fólki að hitta mig raf- rænt en nánast allir velja augliti til auglitis. Ég skil það vel því það er ekkert sem toppar þessa mannlegu tengingu. Við erum félagsverur og tengslin og traustið sem skapast þegar þú hittir manneskju gerist ekki eins hratt rafrænt. En engu að síður er hægt að ná gífurlega mikl- um árangri með þeirri leið,“ segir Alda og er sannfærð um að blandað umhverfi sé framtíðin. „Rétt fyrir Covid kom upp óveður hér í bænum svo ég fékk viðskipta- vini til að hitta mig rafrænt. Þannig náði ég að ala upp nokkra stjórn- endur í þessum rafræna heimi og þeir sendu mér skilaboð þegar Covid skall á og þökkuðu mér fyrir að kynna sig fyrir Zoom – því þeir voru þá stjörnurnar á sínum vinnu- stað þegar Covid-ið kom,“ segir hún og hlær. Breytum hraðast þegar við höfum ekki val „Tæknin er mjög einföld en þegar við ætlum að hafa áhrif á hegðun fólks til frambúðar eru tvær hvata- leiðir, annars vegar viljum við sjá ávinning í framtíðarsýninni eða þá að það er einhver stór verkur eins og Covid var og við bara verðum. Við breytum hegðun hraðast þegar við höfum ekkert val,“ segir Alda. Þær eru sammála um að ýmsar breytingar séu komnar til að vera og stjórnendur muni svolítið flokka til framtíðar hvað eigi heima rafrænt og hvað ekki. „Skilvirkir upplýs- ingafundir sem ekki þarfnast mik- illar umræðu verða þá áfram teknir á netinu,“ segir Alda. „Ég held að hybrid-módelið sé komið til að vera. Við viljum flest mannleg samskipti, hittast við kaffivélina og fá hugmyndir,“ segir Sigríður og í ljós kemur að hún lauk námi í verkefnastjórnun í vor og vann lokaverkefni um fjarvinnu. „Viðmælendur mínir voru sam- mála um að framleiðni og skilvirkni starfsmanna minnkaði ekki með fjarvinnu. Annað hvort stóð hún í stað eða jókst.“ Lífsgæði starfsmanna jukust Sigríður bendir á að aukið frelsi hafi að vissu leyti aukið lífsgæði starfs- manna. „Höfum við ekki f lest öll verið föst í umferðinni á morgnana með börnin í bílnum? Við erum með pakkaða dagskrá en samt sem áður ætlast vinnuveitandinn til þess að þú sitjir á skrifstofunni í átta tíma. Allt þetta púsluspil í daglegu amstri fólks breyttist, en margir áttu það til að sitja jafnvel of lengi við tölvuna heima. Yfirmenn voru farnir að hvetja fólk til að standa upp og hreyfa sig og það eru ofsalega góðir stjórnunarhættir, að huga að vellíðan fólksins þíns. Þetta snýst um sveigjanleika sem skiptir svo miklu máli og þar er traustið stóra málið.“ Alda bendir á að áberandi hafi verið að þeim sem leið verst hafi verið fólkið sem var sent heim án þess að geta unnið heima, vegna eðlis starfs þeirra. „Það segir tölu- vert um okkur sem manneskjur, að fólkinu sem leið verst var það sem var sent heim á launum en fékk ekki að vinna. Við viljum gera gagn. Það var það sem maður sá í Covid, að fólk lagði rosalega mikið á sig því það vildi sanna sig og standa sig,“ segir hún og viðurkennir að þar hafi ótti um starfsöryggi líklega einnig komið til. Starfið mitt er að hverfa Hún bendir á að þegar viðvarandi ástandi er umbylt veki það mikið óöryggi hjá starfsfólki. „Ég skil það alveg, sérstaklega hjá starfsfólki sem veit að starf þess mun hverfa. Eðlilega kemur þessi ótti hjá fólki sem er komið vel yfir miðjan aldur og er ekkert endilega að fara að skipta um starfsvettvang. En góðu fréttirnar eru þær að ég hef unnið með fólki sem er akkúrat á þessum stað, fólk á besta aldri, en hefur tekið ábyrgð á sinni starfs- þróun. Þau hafa þá hugsað; „Starfið mitt er að hverfa, hvað get ég gert?“ Mannshugurinn á það til að fara í hamfarahugarfar og meirihluti þjóðarinnar hugsar: „Hvað er það versta sem getur gerst?“ í stað þess að hugsa: „Hvað er það besta sem getur gerst?“ „Þarna snýst þetta um ábyrgð einstaklingsins á sinni þróun. Við höfum auðvitað mismunandi tæki- færi, mismunandi menntun og svo framvegis. En það er staðreynd að þegar horft er til þróunar starfa í framtíðinni þá eiga um það bil 50 prósent eftir að hverfa, 30 prósent eftir að þróast, og 20 prósent eftir að vera eins. Sannað að allir geti lært Svo ef starfið þitt er ekki að fara að hverfa þá er það allavega að fara að breytast. Í stað þess að vera fórnar- lamb breytinganna er því mikilvægt að eiga þátt í að skapa þær og vaxa í gegnum þær. Þarna eru við komin að viðhorfinu og það er það sem við höfum sjálf vald yfir,“ segir Alda og bætir við: „Það er vísindalega sannað að það geta allir lært, þó það hægist aðeins á með aldrinum þá er hæfnin ávallt til staðar. Eldri starfs- menn meta oft meira að fá tækifæri til að læra sem hefur bein áhrif á starfsánægju,“ segir hún. Þær benda á að nú, þegar komið sé að fjórðu iðnbyltingunni, sé nauðsynlegt að viðhalda sér með því að læra eitthvað nýtt. „Ef þú ætlar ekki að læra og þróa þig ertu svolítið að stimpla þig út. Fólki líður vanalega ekkert vel í breytingum og það er eðlileg til- finning. En þá er mikilvægt að vera meðvitaður um að það er eðlilegt að líða illa tímabundið, ef maður veit að það á eftir að skila manni árangri seinna. Samkvæmt fullorðins- kennslufræði er örlærdómur eða „micro learning,“ að skila miklu. Við erum ekki að tala um að allir þurfi að fara í háskólanám heldur snýst þetta um að gera eitthvað smá á hverjum degi til að slípa hæfni þína og hugarfar,“ segir Alda. „Stóra málið er að byrja að læra og finna fókus. Spyrja hvað það er sem gleður mig og nærir og hvar liggja hæfileikar mínir? Ég er ekki að segja að allir muni ná hámarks- árangri alltaf, en þannig ertu alla- vega að færast í þá átt sem þér líður best með og líkur á árangri aukast,“ segir Alda að lokum. n Ef starf þitt hverfur ekki mun það breytast Þær Sigríður og Alda segja stjórnendur hafa þurft að líta inn á við í heimsfaraldri. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Björk Eiðsdóttir bjork @frettabladid.is 32 Helgin 16. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.