Fréttablaðið - 16.10.2021, Blaðsíða 108

Fréttablaðið - 16.10.2021, Blaðsíða 108
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Það gerist ekkert nema maður geri það sjálfur. Óskar Logi Ágústsson, gítarleikari og söngvari rokk- sveitarinnar Vintage Caravan, er með báða fætur á jörðinni og laus við alla stjörnustæla gengur hann um borgina og auglýsir útgáfutónleika sveitarinnar upp á gamla mátann, með því að líma upp plaköt á áberandi stöðum. odduraevar@frettabladid.is „Ég var kallaður Tommi tíma- skekkja þegar ég kom með plakötin inn í Tónastöðina,“ segir Óskar og hlær, þegar hann segir frá göngu- túr sem hann skellti sér í á fimmtu- daginn með bunka af auglýsinga- veggspjöldum fyrir útgáfutónleika fimmtu breiðskífu sveitarinnar, Monuments, sem kom út í apríl. „Það var nú alveg kominn tími á þetta,“ segir Óskar um tónleikana sem verða í Iðnó um næstu helgi. „Við erum líka búnir að fresta þessu einu sinni og svona, þannig að þetta verður bara ógeðslega gaman. Að fá að fagna með fólkinu okkar hér heima,“ segir Óskar og bætir við að plakataferðin í fyrradag hafi verið sú fyrsta af nokkrum. Bíða ekki við símann „Þetta var fyrsta lotan af nokkrum. Ég held ég hafi hent upp svona átta plakötum. En það verður meira. Ég lét gera tuttugu þannig að það ætti nú að duga,“ segir Óskar sem pældi ekkert í því hvort hann þætti gamal- dags við þessa iðju á samfélags- miðlaöld. „Ég pældi ekki einu sinni í því að þetta væri „old school“. Ég man eftir því að hafa gert þetta þegar við vorum kannski svona sautján ára og svo er bara aðeins lengra síðan maður var sautján ára en mann minnti. Þetta eru orðin rúm tíu ár,“ segir Óskar og hlær. „Svo var maður að spyrja fólk hvort maður mætti hengja þetta upp og sumir ráku upp stór augu og maður, eins og ég segi, kallaður Tommi tímaskekkja,“ segir Óskar og samsinnir því að hann sé með báða fæturna á jörðinni þrátt fyrir velgengni Vintage Caravan. „Það gerist ekkert nema maður geri það sjálfur. Margir bíða eftir símtölum og svona, en kannski er eitt af því sem einkennir okkur að við bíðum ekkert eftir símtalinu. Við bara hringjum og látum hluti gerast, förum niður í bæ og dreifum boðskapnum.“ Veisla í Iðnó Talið berst aftur að útgáfutón- leikunum í Iðnó næsta laugardag. „Okkur líður voðalega vel þarna. Það er einhver góður andi í hús- inu,“ útskýrir hann og bætir við að öll platan verði spiluð. „Og þetta er mjög krefjandi plata. Við tókum hana í heild sinni á Græna hatt- inum í september og það var mjög áhugavert og krefjandi að spila þessa plötu og ákaf lega gefandi. Svo hendum við í alveg gott þrjátíu mínútna sett eftir hana.“ Tread Lightly mun hita upp fyrir Vintage Caravan og Óskar lofar rokkveislu. n Tommi tímaskekkja rokkar En hvers vegna ætti ég að vera að pæla eitthvað í þessum manni? n Frétt vikunnar Karen Kjartansdóttir toti@frettabladid.is Fyrst fannst mér að fréttir vikunnar hlytu að tengjast þessum þing- manni sem var að færa sig úr Mið- flokknum. En hvers vegna ætti ég að vera að pæla eitthvað í þessum manni? Og hvað skiptir þá máli? Ég ætla að veðja á kóngafólk og ég kunni að meta ummæli Elísabetar drottningar um að það væri pirr- andi að þjóðarleiðtogar tali um að bregðast við loftslagsbreytingum en geri svo ekki neitt. Konungur suðursins, hann Sig- urður Ingi Jóhannsson, sagðist svo í lok vikunnar ekki eiga að þurfa að rökstyðja hvers vegna frelsi eigi að vera á Íslandi. Sóttvarnalög þurfi að rökstyðja en ekki hið eðlilega, venjulega ástand. Þau ummæli kann ég líka að meta. Mér fannst partíboð Ólafs Ragn- ars Grímssonar, sem hlýtur að telj- ast einhvers konar alfaðir okkar, einnig nokkur tíðindi, auk þess sem vert er að halda til haga fordæma- lausum vinsældum Katrínar Jakobs- dóttur og hvatningu til hennar um að halda grænum áherslum VG til streitu. Köllum hana laufadrottn- inguna. Jú, svo var danski prinsinn hérna og virkaði sérlega geðþekkur maður og myndarlegur með eindæmum. n Vika konunga og drottninga Karen Kjartansdóttir ráðgjafi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Óskar minnti á Stuðmenn í myndinni Með allt á hreinu þegar hann arkaði um stræti borgarinnar í lopapeysu og gallajakka, vopnaður plakötum um komandi tón- leika. Óskar og félagar verða með tónleika í Iðnó eins og flestir vita sem sjá veggspjöldin þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Aðeins 183.675 kr. Aðeins 81.630 kr. Aðeins 149.925 kr. LICATA tungusófi Tungusófi í tveimur litum af Kentucy áklæði, koníaksbrúnum og steingráum og einnig í River 66 Graphite áklæði. Hægri eða vinstri tunga. Svartir nettir járnfætur. Stærð: 265 x 165 x 82 cm. fullt verð: 244.900 kr. NATURE´S Rest Deluxe heilsurúm með Classic botni Svæðaskipt wave(bylgju) pokagormakerfi og því aðlagar dýnan sig einstaklega vel að líkamanum og veitir sérlega góðan stuðning. Sérstakt hægindarlag í toppi dýnunnar. 80, 120 og 140 cm. Má fara í stillanlegt rúm. 120 x 200 cm. með Classic botni og fótum. fullt verð: 104.900 kr. Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði RIGA hægindastóll með skemli Svart leður og krómfótur. Stillanlegur. B82 x H106 cm fullt verð: 199.900 kr. Við eigum afmæli og nú er veisla AFSLÁTTUR AFMÆLIS 25% AFSLÁTTUR AFMÆLIS 25% 30% AFSLÁTTUR af dýnu og 10% af botni. AFMÆLIS Verð og vöruupplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur. Tilboðin gilda til 31. október 2021 eða á meðan birgðir endast. www.DORMA.is 60 Lífið 16. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.