Fréttablaðið - 16.10.2021, Blaðsíða 104
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir vill halda sóttvarna
aðgerðum til streitu vegna haustflensu og RSvíruss. Þykir
mörgum nóg um áhættufælni hans, þegar meirihluti þjóðar
innar er fullbólusettur. Þessi nýja stefna Þórólfs er þó þannig að
hann getur haldið endalaust áfram að finna réttlætingar fyrir
sóttvarnaaðgerðum. Fréttablaðið aðstoðar því Þórólf að finna
fleiri tilefni fyrir tveggja metra regluna og grímuskyldu.
benediktboas@frettabladid.is
Fleiri sóttvarnaréttlætingar fyrir Þórólf og félaga
Andfýla
Gríman kom í veg fyrir að þeir
sem reykja önduðu sinni súru
andremmu framan í blásaklaust
fólk. Lyktin er líka alveg fáránlega
vond.
Mýkingarefni
Alltof margir,
sérstaklega
karlmenn, nota
alveg skelfi-
lega mikið af
mýkingar-
efni sem er
ekki aðeins
vont fyrir
umhverfið
heldur
kjánalegt.
Hugmyndir
Fátt er jafn bráðsmitandi og
hugmyndir. Þar sem margir koma
saman er jafnvel líklegt að eitt-
hvað gott gerist. Það verður að
girða fyrir allar slíkar samkomur.
Gleði
Bros er smitandi eins og geispi og
því mikilvægt að koma í veg fyrir
að fólk hafi gaman, geti heilsast
með handabandi og sé almennt
ánægt í leik og starfi.
Á þessum degi árið 2007 varð Dagur
B. Eggertsson borgarstjóri í fyrsta
sinn þegar hann tók við af Vil
hjálmi Þ. Vilhjálmssyni eftir meiri
hlutahrókeringar.
Þá staldraði hann þó stutt
við, eða þar til í janúar árið 2008
þegar Ólafur F. Magnússon tók
við keflinu eftir enn dramatískari
meirihlutahróker ingar. Ólafur ent
ist í 210 daga eða þar til Hanna Birna
Kristjánsdóttir tók við stöðunni til
2010. Síðan hafa borgarstjórar, aðal
lega Dagur, enst töluvert lengur.
Hvernig líður þér á þessum tíma-
mótum?
„Já, ég er búinn að vera borgar
stjóri í sjö ár um þessar mundir,“
segir Dagur, sem settist aftur í
borgarstjórastólinn 2014 og situr
sem fastast. „Hundrað dagarnir
voru skemmtilegur sprettur en
miklu frekar starfskynning heldur
en tímamót í mínum huga!“ n
Hundrað daga
starfskynning
Dagur B. Eggertsson.
n Horft um öxl
Hafragrautur og afgangar
svavamarin@frettabladid.is
Þorvaldur Sveinn
Sveinsson
annar eigandi
Avista Digital
„Vanalega gríp ég
eitthvað tref ja
ríkt sem er við
höndina. Hafra
graut og banana. Í
hádegismat reyni
ég að taka með mér afgang af Eldum
rétt frá kvöldinu áður, þar sem ég og
konan mín erum oftast ansi snjöll
að panta fyrir þrjá og splitta svo í
nesti daginn eftir sem kemur sér
afar vel.“ n
n Nesti í vinnuna
Alba Mist Gunnarsdóttir var
nýflutt til Danmerkur þegar
hún fékk að elta leiklistar
drauminn og flutti ein síns
liðs, aðeins tíu ára gömul,
til ömmu og afa á Íslandi,
þar sem hún leikur í Karde
mommubænum í Þjóðleik
húsinu.
svavamarin@frettabladid.is
„Ég hafði enga reynslu í leik eða
dansi en ég æfði alltaf handbolta.
Það má segja að leiklistarbakterían
hafi kviknað þegar ég lék aðalhlut
verk í skólaleikriti í Danmörku,“
segir Alba og móðir hennar, Elísabet
Gunnarsdóttir, bætir við að dóttirin
hæfileikaríka hafði aðeins búið þrjá
mánuði í Danmörku þegar hún tók
stefnuna á Kardemommubæinn á
Íslandi.
Alba Mist hefur komið víða við
á stuttri ævi og hefur alist upp
víða um Evrópu, þar sem pabbi
hennar, Gunnar Steinn Jónsson,
var atvinnumaður í handbolta.
Þannig var hún aðeins þriggja
mánaða þegar fjölskyldan flutti til
Svíþjóðar og hefur síðan þá einnig
búið í Frakklandi, Þýskalandi og
Danmörku.
„Ég talaði öll tungumálin en tala
núna dönsku og sænsku þar sem ég
var svo lítil þegar ég bjó í Frakklandi
og Þýskalandi,“ segir Alba.
Meiri töffari en mamma
Elísabet lýsir dóttur sinni sem sjálf
stæðum töffara, „Hún hefur alltaf
verið ófeimin og talað við alla.“
Tíðir f lutningar á milli landa með
tilheyrandi skólaskiptum og nýjum
og nýjum vinum hafa, ef að líkum
lætur, þroskað Ölbu Mist og ýtt
undir sjálfstæði hennar. „Það þarf
ansi sterkan karakter til að tækla
þetta svona vel,“ segir Elísabet.
Mæðgurnar voru staddar á
Íslandi þegar Alba komst óvænt
áfram í prufunum.
„Leikstjórinn hringdi í mig og bað
um leyfi fyrir því að hún yrði með
í leikritinu, þar sem hann vissi að
við byggjum í Danmörku. Við for
eldrarnir vildum ekki taka þetta frá
henni. Þetta fór svo ekki alveg eins
og á horfðist þegar kórónuveiran
skall á, þau máttu ekki sýna en gátu
æft. Frumsýningin frestaðist og
óvissan um hvenær við gætum hitt
hana var mikil.“
Elísabet reyndi að fá Ölbu Mist
til Danmerkur en öllum bókuðum
f lugferðum var af lýst jafnóðum.
Elti drauminn ein milli landa
Alba, Gunnar Manuel og Elísabet við
Þjóðleikhúsið. MYND/AÐSEND
Alba Mist var tíu ára þegar hún elti leikhússdrauminn. MYND/AÐSEND
Það er alltaf líf
og fjör í Karde-
mommubæ.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Kominn tími á pabba
Fjögurra manna fjölskyldan bjó um
tíma dreifð í þremur löndum, sem
Elísabet segir að hafið verið orðið
ansi einmanalegt. „Það var alls ekki
í plönunum að flytja heim en hún
náði að draga fjölskylduna með sér.“
„Það var kominn tími til að pabbi
myndi elta mig,“ bætir Alba Mist við
glettin, með vísan til þess að ferill
pabba hennar hefur lengst af ráðið
för.
Eru að venjast Íslandi
Fjölskyldan keypti nýlega hús í
Skerjafirði sem þau eru hægt og
rólega að gera upp. „Þetta tekur allt
tíma og mér finnst mjög skrítið að
segjast búa á Íslandi eftir öll þessi
ár. Við ætlum allavega að reyna að
prófa að búa á Íslandi en mamman
er aðeins að melta þetta. Ég hefði
örugglega ekkert komið heim eftir
öll þess ár nema ég hefði verið dreg
in svona,“ segir Elísabet.
Alba Mist, sem dró fjölskylduna
til Íslands, hefur sjálf í nógu að
snúast þessa dagana. Líklega mun
fleiru en margir jafnaldrar hennar,
en á milli þess sem hún er í leikhús
inu æfir hún handbolta með Val og
er í 6. bekk í Álftamýrarskóla. „Það
er nóg að gera en þetta virðist virka,“
segir Elísabet.
„Hópurinn er geggjaður, allir
krakkarnir eru svo góðir vinir,
skemmtilegir og opnir. Við erum
tólf börn, sem maður hittist oftast,
í hverjum hóp í sýningunum,“ upp
lýsir Alba og bætir við að það séu
sýningar hjá henni allar helgar en
þó aðeins annan hvorn daginn. n
„Þetta var í fyrsta skipti í tólf ár sem
við fundum mikið fyrir því að við
bjuggum í útlöndum, þar sem við
höfum alltaf verið dugleg að koma
heim,“ upplýsir Elísabet.
„Um páskana var sett upp neyðar
f lug til Stokkhólms og þá tók
yndisleg fjölskylda Ölbu með sér til
SuðurSvíþjóðar og við keyrðum frá
Danmörku til Kristianstad í Svíþjóð,
sem er gamli heimabærinn okkar.
Þar náðum við loksins að fá hana
til okkar. Það voru miklir fagnaðar
fundir og eftirminnilegir páskar.“
Eftir það var Alba í faðmi fjöl
skyldunnar í Danmörku og klár
aði skólann þar. Nú í vor hóf hún
íslenska skólagöngu og hefur þetta
verið langt og strangt ferli þar til þau
fluttu öll saman heim í sumar.
56 Lífið 16. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 16. október 2021 LAUGARDAGUR