Fréttablaðið - 16.10.2021, Blaðsíða 40
Dæmi um það sem
er innifalið í verðinu:
Allir bílarnir koma með
105AH lithium rafhlöðum.
Álfelgur, kælibox, boltahreinsir,
premium sæti, fellanleg framrúða,
USB tengi, kemur með ljósum og
stefnuljósum, hlíf yfir golfsettið,
einnig fylgir létt regnhlíf.
Akralind 8 | 2. hæð | 201 Kópavogur
Excar golfbílar
til sölu
Síðasti dagur til að panta
bíl fyrir næsta sumar er
15. nóvember.
Eigum ennþá nokkra bíla
óselda sem koma um
áramótin.
Excar bílarnir hafa verið
notaðir á Íslandi í mörg ár
og reynst vel. Þeir koma
mjög vel út búnir.
Golfbílar
Verð
aðeins
1.350.00
0
m.vskVið erum á Facebook
Kristín María Þorsteinsdóttir
er mótastjóri hjá Golfsam-
bandi Íslands. Hún hefur æft
golf frá barnsaldri og þekkir
golfheiminn því mjög vel.
Árlega eru haldin í kringum
1.500 golfmót á landsvísu
sem eru afar fjölbreytt.
elin@frettabladid.is
Kristín María segir að Golfsam-
bandið haldi 18 Íslandsmót í golfi
fyrir kylfinga á öllum aldri víðs
vegar um landið. „Hluti af mínu
starfi er að vinna að undirbúningi
fyrir mótin svo þau fari fram við
sem bestar aðstæður. Þar að auki
erum ég og fleiri fulltrúar GSÍ á
staðnum og sjáum um framkvæmd
Íslandsmótanna með góðum
stuðningi frá golfklúbbum þar
sem mótin fara fram. Mótin eru
fjölbreytt en eru öll til þess gerð
að finna bestu kylfinga landsins
hverju sinni,“ segir hún.
Kristín er ein fárra kvenna,
ungra kvenna, á Íslandi sem eru
mótastjórar. Hún segir það mjög
ánægjulegt hversu víðtækur áhugi
á golfi sé á Íslandi. „Það er afar
ánægjulegt að í ár er metfjöldi
kylfinga, eða rúmlega 22.000.
Mesta hlutfallslega fjölgunin í ár
var hjá kylfingum á aldrinum 16-39
ára, en einnig hefur fjölgað í elsta
aldurshópnum, 70 ára og eldri.
Þetta sýnir fram á hvað íþróttin
er aðgengileg fólki á öllum aldri,
en hver og einn getur spilað golf á
sínum forsendum hvort sem það er
keppni, fyrir hreyfingu, félagsskap
eða til að njóta náttúrunnar. Golf er
ein af örfáum íþróttagreinum þar
sem ömmur og afar geta leikið með
barnabarni og allt þar á milli.
Konur eru 33 prósent af félögum
í golfhreyfingunni sem er með
hærra hlutfalli í Evrópu en það er
áhugavert að konur á Íslandi spila
oftar golf en karlar. Það eru vissu-
lega fleiri karlar í golfhreyfingunni
en konum á öllum aldri sem stunda
íþróttina fer fjölgandi. Konur og
karlar geta auðvitað leikið golf
saman enda getur hver og einn
kylfingur valið sér teig við hæfi
til að leika af. Því geta allir keppt
við golfvöllinn út frá sinni getu og
högglengd, óháð kyni,“ segir Kristín
María.
Hún segir að sér finnist mjög
gaman að leika golf í golfhermum
og framboðið af þeim hafi aukist
til muna. „Margir golfklúbbar og
einkaaðilar hafa bætt við golf-
hermum sem bætir æfingaaðstöðu
kylfinga yfir vetrartímann vissu-
lega, bæði til æfinga og leiks. Það
er frábær viðbót þar sem tímabilið
hérlendis er stutt og margir enn
með mikinn áhuga á golfi þegar
líður á veturinn,“ segir hún og bætir
við að það besta við golfið sé að
allir geti verið með. „Sama hvort
viðkomandi er barn, ungmenni, á
miðjum aldri eða eldri borgari, þá
er eitthvað í boði fyrir alla. Margir
golfklúbbar bjóða upp á sérkjör
fyrir ungmenni og eldri borgara,
flestir klúbbar eru með námskeið
hjá golfkennurum og geta leitt
byrjendur í gegnum fyrstu skrefin
í golfinu.“
Það eru 62 golfklúbbar víðs vegar
um landið með 65 golfvelli, svo
flestir ættu að komast í golf hvar
sem viðkomandi er búsettur. Það
er mikill kostur að geta sameinað
hreyfingu, útivist, einbeitingu og
félagsskap á golfvellinum.
Hefur áhugi á golfi aukist með
góðum árangri afreksfólks á þessu
sviði?
„Við höfum horft upp á frábæran
árangur atvinnukylfinga síðustu
ár, sérstaklega kvennamegin.
Samhliða því hefur umfjöllun um
kylfingana aukist og ekki ólík-
legt að sýnilegar fyrirmyndir geti
spilað þátt í því að kylfingum hefur
fjölgað hérlendis. Þó eru margir
þættir sem spila inn í fjölgunina en
ég tel að góður árangur atvinnu-
kylfinganna eigi einhvern þátt í
því.“
Golf getur verið fyrir alla og
upplagt fyrir ungt fólk, það er
hægt að byrja með því að skrá sig á
námskeið en hér á landi eru góðir
þjálfarar og margir kröftugir að
útskrifast úr PGA kennaraskól-
anum. Fólk getur skráð sig á nám-
skeið hvort sem um einstakling er
að ræða eða heilan vinahóp. Eins er
hægt að byrja að fara á æfingasvæði
að slá, vippa og pútta eða að skrá sig
einfaldlega í golfklúbb.
Á heimasíðunni golf.is er flokkur
sem heitir „Komdu í golf“ en þar má
finna efni um atriði sem gott er að
vita fyrir kylfinga sem eru að stíga
sín fyrstu skref. n
Allur aldur sameinast í golfi
Kristín María
Þorsteinsdóttir
er mótastjóri hjá
Golfsambandi
Íslands, ein fárra
kvenna í því
starfi.
MYND/GOLFSAM-
BAND íSLANDS
4 kynningarblað 16. október 2021 LAUGARDAGURGolfhermAr