Fréttablaðið - 16.10.2021, Side 108
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Það gerist ekkert nema
maður geri það sjálfur.
Óskar Logi Ágústsson,
gítarleikari og söngvari rokk-
sveitarinnar Vintage Caravan,
er með báða fætur á jörðinni
og laus við alla stjörnustæla
gengur hann um borgina
og auglýsir útgáfutónleika
sveitarinnar upp á gamla
mátann, með því að líma upp
plaköt á áberandi stöðum.
odduraevar@frettabladid.is
„Ég var kallaður Tommi tíma-
skekkja þegar ég kom með plakötin
inn í Tónastöðina,“ segir Óskar og
hlær, þegar hann segir frá göngu-
túr sem hann skellti sér í á fimmtu-
daginn með bunka af auglýsinga-
veggspjöldum fyrir útgáfutónleika
fimmtu breiðskífu sveitarinnar,
Monuments, sem kom út í apríl.
„Það var nú alveg kominn tími á
þetta,“ segir Óskar um tónleikana
sem verða í Iðnó um næstu helgi.
„Við erum líka búnir að fresta þessu
einu sinni og svona, þannig að þetta
verður bara ógeðslega gaman. Að
fá að fagna með fólkinu okkar hér
heima,“ segir Óskar og bætir við að
plakataferðin í fyrradag hafi verið
sú fyrsta af nokkrum.
Bíða ekki við símann
„Þetta var fyrsta lotan af nokkrum.
Ég held ég hafi hent upp svona átta
plakötum. En það verður meira. Ég
lét gera tuttugu þannig að það ætti
nú að duga,“ segir Óskar sem pældi
ekkert í því hvort hann þætti gamal-
dags við þessa iðju á samfélags-
miðlaöld.
„Ég pældi ekki einu sinni í því
að þetta væri „old school“. Ég man
eftir því að hafa gert þetta þegar við
vorum kannski svona sautján ára
og svo er bara aðeins lengra síðan
maður var sautján ára en mann
minnti. Þetta eru orðin rúm tíu ár,“
segir Óskar og hlær.
„Svo var maður að spyrja fólk
hvort maður mætti hengja þetta
upp og sumir ráku upp stór augu
og maður, eins og ég segi, kallaður
Tommi tímaskekkja,“ segir Óskar
og samsinnir því að hann sé með
báða fæturna á jörðinni þrátt fyrir
velgengni Vintage Caravan.
„Það gerist ekkert nema maður
geri það sjálfur. Margir bíða eftir
símtölum og svona, en kannski er
eitt af því sem einkennir okkur að
við bíðum ekkert eftir símtalinu.
Við bara hringjum og látum hluti
gerast, förum niður í bæ og dreifum
boðskapnum.“
Veisla í Iðnó
Talið berst aftur að útgáfutón-
leikunum í Iðnó næsta laugardag.
„Okkur líður voðalega vel þarna.
Það er einhver góður andi í hús-
inu,“ útskýrir hann og bætir við að
öll platan verði spiluð. „Og þetta er
mjög krefjandi plata. Við tókum
hana í heild sinni á Græna hatt-
inum í september og það var mjög
áhugavert og krefjandi að spila
þessa plötu og ákaf lega gefandi.
Svo hendum við í alveg gott þrjátíu
mínútna sett eftir hana.“
Tread Lightly mun hita upp fyrir
Vintage Caravan og Óskar lofar
rokkveislu. n
Tommi tímaskekkja rokkar
En hvers
vegna ætti
ég að vera
að pæla
eitthvað í
þessum
manni?
n Frétt vikunnar
Karen Kjartansdóttir
toti@frettabladid.is
Fyrst fannst mér að fréttir vikunnar
hlytu að tengjast þessum þing-
manni sem var að færa sig úr Mið-
flokknum. En hvers vegna ætti ég
að vera að pæla eitthvað í þessum
manni? Og hvað skiptir þá máli?
Ég ætla að veðja á kóngafólk og ég
kunni að meta ummæli Elísabetar
drottningar um að það væri pirr-
andi að þjóðarleiðtogar tali um að
bregðast við loftslagsbreytingum en
geri svo ekki neitt.
Konungur suðursins, hann Sig-
urður Ingi Jóhannsson, sagðist svo
í lok vikunnar ekki eiga að þurfa að
rökstyðja hvers vegna frelsi eigi að
vera á Íslandi. Sóttvarnalög þurfi
að rökstyðja en ekki hið eðlilega,
venjulega ástand. Þau ummæli kann
ég líka að meta.
Mér fannst partíboð Ólafs Ragn-
ars Grímssonar, sem hlýtur að telj-
ast einhvers konar alfaðir okkar,
einnig nokkur tíðindi, auk þess sem
vert er að halda til haga fordæma-
lausum vinsældum Katrínar Jakobs-
dóttur og hvatningu til hennar um
að halda grænum áherslum VG til
streitu. Köllum hana laufadrottn-
inguna.
Jú, svo var danski prinsinn hérna
og virkaði sérlega geðþekkur maður
og myndarlegur með eindæmum. n
Vika konunga og drottninga
Karen Kjartansdóttir ráðgjafi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Óskar minnti
á Stuðmenn í
myndinni Með
allt á hreinu
þegar hann
arkaði um stræti
borgarinnar
í lopapeysu
og gallajakka,
vopnaður
plakötum um
komandi tón-
leika.
Óskar og félagar verða með tónleika í Iðnó eins og flestir vita sem sjá veggspjöldin þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Aðeins 183.675 kr.
Aðeins 81.630 kr.
Aðeins 149.925 kr.
LICATA tungusófi
Tungusófi í tveimur litum af Kentucy áklæði, koníaksbrúnum og
steingráum og einnig í River 66 Graphite áklæði. Hægri eða vinstri tunga.
Svartir nettir járnfætur. Stærð: 265 x 165 x 82 cm.
fullt verð: 244.900 kr.
NATURE´S Rest Deluxe
heilsurúm með Classic botni
Svæðaskipt wave(bylgju) pokagormakerfi
og því aðlagar dýnan sig einstaklega vel að
líkamanum og veitir sérlega góðan stuðning.
Sérstakt hægindarlag í toppi dýnunnar.
80, 120 og 140 cm. Má fara í stillanlegt rúm.
120 x 200 cm. með Classic botni og fótum.
fullt verð: 104.900 kr.
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
RIGA
hægindastóll
með skemli
Svart leður og krómfótur.
Stillanlegur. B82 x H106 cm
fullt verð: 199.900 kr.
Við eigum afmæli
og nú er veisla
AFSLÁTTUR
AFMÆLIS
25%
AFSLÁTTUR
AFMÆLIS
25%
30%
AFSLÁTTUR
af dýnu og 10%
af botni.
AFMÆLIS
Verð og vöruupplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur.
Tilboðin gilda til 31. október 2021 eða á meðan birgðir endast.
www.DORMA.is
60 Lífið 16. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ