Fréttablaðið - 16.10.2021, Side 34
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Stefán er sterkasti maður Íslands
árið 2021. Hann stundar stífar
æfingar á hverjum degi og þegar
hann er ekki að æfa er hann að
hugsa um næstu æfingu, hvernig
hún geti verið sem best. „Ég set
rosalega mikið álag á hnén á
mér, olnboga og mjaðmir í öllum
þessum þungu lyftingum og bar
smíðum sem maður er að setja
líkamann á sér í gegnum. Ég finn
mikinn mun á fótleggjum og oln
bogum,“ segir Stefán.
„Ég þjáðist af bólgum, sérstak
lega í olnbogum og þær hafa
minnkað mikið. Þetta er í raun
að halda mér gangandi, ég get
æft af miklum ákafa eftir að ég
fór að taka Active JOINTS reglu
lega,“ segir Stefán. „Það var móðir
mín sem kynnti mig fyrir þessum
bætiefnum frá Eylíf. Ég prófaði
þau fyrst hjá henni, svo var ég í
Krónunni einhvern tímann, sá þau
og keypti. Ég hef ekki hætt að taka
þau inn síðan. Mér finnst þau virka
vel fyrir mig, finn mikinn mun
þegar ég er ekki að taka þau inn.
Þetta kemur sér vel í þessu sporti
sem ég er í.“
Stefán velur að nota vörurnar
frá Eylíf af því þær eru íslensk
fæðubótarefni. Auk Active JOINTS
tekur Stefán inn Happier GUTS
sem hann segir einstakt efni fyrir
mann eins og hann, sem þarf að
borða mikið. „Ég er að lyfta alls
konar grjóti, keppa í réttstöðulyftu
og draga vörubíla. Ég þarf að borða
nánast 7.000 kaloríur á dag. Það
er ekki hollt fyrir þig til lengdar.
Maður verður þrútinn og uppblás
inn og getur verið bumbult allan
daginn. Eftir að ég fór að taka inn
Happier GUTS, sem er fyrir melt
inguna, þá líður mér miklu betur í
líkamanum. Maður verður glaðari
yfir daginn,“ útskýrir Stefán.
„Aflraunir eru mjög óheilbrigt
sport fyrir líkamann en ég vil
auðvitað stunda það á sem heil
brigðastan hátt. Þá verður maður
að hugsa um allar hliðar næringar
lega séð. Ef maður finnur einhver
svona bætiefni sem hjálpa þá notar
maður þau hiklaust.“
Stefán segist hiklaust mæla með
Happier GUTS og Active JOINTS.
„Þetta er ekki bara fyrir fólk eins
og mig sem stundar lyftingar.
Móðir mín hefur líka tekið þetta
inn í dálítinn tíma og hún finnur
mikinn mun á sér. Þetta er í raun
fyrir alla.“
Úr hreinum íslenskum
hráefnum
Vörulínan Eylíf býður upp á fjórar
vörur, Active JOINTS, Stronger
BONES, Smoother SKIN & HAIR,
og Happier GUTS, allt vörur sem
hafa reynst fólki vel. Vörurnar
eru unnar úr hreinum, íslenskum
hráefnum, engum aukefnum
er bætt við og framleiðslan er
á Íslandi. „Vinsælasta varan er
Active JOINTS sem inniheldur
fjögur íslensk næringarefni og
margra ára rannsóknir sýna fram
á jákvæð áhrif þeirra,“ segir Ólöf
Rún Tryggvadóttir, stofnandi vöru
línunnar.
Active JOINTS er sérhönnuð
blanda sem inniheldur kalk
þörunga, smáþörunga, GeoSil
ica kísil og birkilauf. Margra ára
rannsóknir sýna fram á jákvæð
áhrif næringarefnanna á bein, liði,
meltingu og húð. Auk þess inni
heldur bætiefnið C og D3víta
mín. Happier GUTS inniheldur
einnig fjögur íslensk hráefni, þau
eru: Kítósan, unnið úr rækjuskel,
það eru náttúrulegar trefjar sem
reynast vel fyrir meltinguna og
draga í sig fituefni úr meltingar
veginum. Kalkþörungar, sem eru
mjög kalkríkir og innihalda 74
stein og snefilefni úr náttúrunni.
GeoSilica kísillinn sem hefur
reynst vel og rannsóknir staðfesta
virkni og að lokum fjallagrös sem
eru vel þekkt fyrir sín góðu áhrif á
meltinguna. Blandan er styrkt með
meltingarensímum, Cvítamíni,
krómi, joði og sinki.
Ólöf Rún stofnaði Eylíf vegna
þess að hana langaði að setja
saman þau frábæru hráefni sem
eru framleidd á Íslandi á sjálf
bæran hátt frá náttúrulegum auð
lindum landsins og auka þannig
aðgengi fólks að þeim hráefnum.
Framleiðslan fer fram á Grenivík
og þróun varanna er í samstarfi við
sérfræðinga frá Matís. ■
Eylíf vörurnar fást í öllum apó
tekum, Fjarðarkaupum, Hagkaupi,
Krónunni, Heilsuhúsinu, Mela
búðinni og Nettó. Ókeypis heim
sending af eylif.is. Fæðubótarefni
koma ekki í staðinn fyrir fjöl
breytta fæðu. Ekki ætlað börnum
eða barnshafandi konum. Ekki er
ráðlagt að taka meira en ráð
lagður dagskammtur segir til um.
Geymist þar sem börn ná ekki til
Vörulínan Eylíf býður upp á fjórar vörur úr hreinum íslenskum hráefnum. Active JOINTS, Stronger BONES, Smoother SKIN & HAIR og Happier GUTS.
Heilsan er dýrmætust
Rakel Jónasdóttir starfar sem snyrtifræðingur og vinnur oft mjög langa vinnudaga. Rakel hefur verið
greind með beinþynningu og þarf að fá nægilegt kalk og Dvítamín. Hún segir að Stronger Bones frá Eylíf
hafi reynst sér mjög vel til að styrkja sig.
Rakel segist hafa verið að prófa allar vörur frá Eylíf og líkað þær virkilega vel. „Þar sem ég hef verið með
beinþynningu hef ég þurft að passa mjög vel upp á að fá nægt kalk og Dvítamín,“ segir hún. „Þegar ég
heyrði um Stronger Bones frá Eylíf var ég mjög spennt að prófa þessa vöru, þar sem hún inniheldur nátt
úrulegt kalk og auk þess ríkulegt magn af stein og snefilefnum sem öll eru fengin úr náttúrunni. Ég hef
fulla trú á að hrein, íslensk hráefni séu betri fyrir líkamann en þau efni sem eru venjulega í kalktöflum,“
segir hún. „Það er síðan bara bónus að þetta eru tuggutöflur sem eru mjög góðar á bragðið.“
Rakel segir að Stronger Bones hafi reynst sér mjög vel. „Ég vildi taka á vanda mínum og sporna við bein
þynningunni án þess að taka inn lyf. Ég finn mikinn mun á mér með Stronger Bones og það hefur komið
mér á óvart hversu góð áhrif það hefur á meltinguna,“ segir hún. „Ég hef líka prófað Smoother Skin & Hair
frá Eylíf sem virkar mjög vel á bæði húð og hár. Kollagenið er efni sem er frábært fyrir húðina og ég hef
fundið mun á henni og hárinu. Mér finnst nauðsynlegt að taka inn kollagen,“ segir Rakel og tekur fram að
hún sé sérstaklega ánægð með vörurnar frá Eylíf.
„Ég hef deilt ánægju minni með öllum sem ég þekki og hafa áhuga á að bæta heilsuna. Ég ætla að halda
áfram að nota þessar vörur enda finn ég mikinn mun á mér,“ segir hún.
Líður undurvel á líkama og sál
Ólafía Ingólfsdóttir var á leið í hnjáskiptaaðgerð þegar hún komst á snoðir um bætiefnið
Active Joints frá Eylíf. Á örskömmum tíma var hún farin að hreyfa sig sem aldrei fyrr. Ólafía
starfaði sem rekstrarstjóri á N1 á Hvolsvelli. „Ég vann langar vaktir, var mikið á ferðinni og
var orðin svo slæm í hnénu að ég tók stundum hátt í tíu verkjatöflur á dag og svaf mjög
slitrótt vegna verkja,“ útskýrir Ólafía.
Það var svo í fyrrasumar sem Ólafía var á leið í hnjáliðaskipti að hún sá auglýsingu um
Active Joints frá Eylíf. „Ég hugsaði með mér að ég hefði engu að tapa og ákvað að prófa að
taka það inn. Árangurinn lét ekki á sér standa, hann kom fram innan þriggja vikna og í sept
ember var ég farin að sofa betur og orðin það góð að ég þurfti ekki lengur að taka verkja
töflur dagana langa,“ upplýsir Ólafía, alsæl með góðan árangur Active Joints á heilsu sína.
„Ég finn líka mikinn mun á meltingunni og mér líður almennt mikið betur líkamlega og
andlega. Núna fer ég í jóga og get gert allar æfingar sem ég gat aldrei áður gert. Mér finnst
orðið svo auðvelt að hreyfa mig og núna get ég gengið um allt án vandræða, sem ég gat
ekki áður,“ segir Ólafía. „Svo er gaman að segja frá því að í kringum mig eru tíu manns sem
eru einnig að taka inn Active Joints og finna sömuleiðis mikinn mun á sér líkamlega til hins
betra.“
Rakel Jónas
dóttir hefur
glímt við bein
þynningu
og leitaði að
íslenskri, nátt
úrulegri vöru til
að takast á við
það. Hún valdi
Stronger Bones
og er mjög
ánægð með þá
vöru.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Ólafía þurfti að taka inn verkjalyf daglega til að
draga úr sársauka í hnjám en hefur nú endurheimt
liðleika vegna Active Joints . FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
Ég er að lyfta
grjóti, keppa í
réttstöðulyftu og draga
vörubíla. Ég þarf að
borða nánast 7.000
kaloríur á dag.
Stefán Torfason
2 kynningarblað A L LT 16. október 2021 LAUGARDAGUR