Fréttablaðið - 16.10.2021, Síða 45
hagvangur.is
Park Inn by Radisson leitar að öflugum leiðtoga til að leiða sölu- og
markaðsmál hótelsins. Leitað er að víðsýnum einstaklingi í ábyrgðarmikið
og krefjandi starf. Sölu- og markaðsstjóri tekur þátt í stefnumótun
og áætlanagerð hótelsins. Hann vinnur enn fremur að stafrænni
markaðssetningu fyrirtækisins.
Helstu verkefni
• Ábyrgð á sölu- og markaðsmálum hótelsins
• Samningagerð við stærri viðskiptavini
• Tilboðsgerð fyrir ferðaskrifstofur
• Tekjustýring í samráði við hótelstjóra
• Nýsköpun og þróun viðskiptatækifæra
• Áætlanagerð og eftirfylgni
• Aðstoð og afleysing hótelstjóra
• Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfnikröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Þekking og reynsla af sölu- og markaðsmálum úr ferðaþjónustu nauðsynleg
• Reynsla á sviði hótelstjórnunar-/veitingadeildar er kostur
• Framúrskarandi þekking á stafrænni markaðssetningu
• Þjónustulund og rík færni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og drifkraftur
• Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
• Leiðtogahæfileikar, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
Umsóknarfrestur er til og með
25. október nk. Umsóknir óskast fylltar
út á hagvangur.is
Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá
og kynningarbréf.
Nánari upplýsingar veita Þórdís Sif Arnarsdóttir,
ráðgjafi, thordis@hagvangur.is og Katrín
S. Óladóttir, katrin@hagvangur.is
Park Inn by Radisson Reykjavik Keflavik Airport
er hluti af alþjóðlegu Radisson hótelkeðjunni sem
er með yfir 1400 hótel víðsvegar um heim. Innan
keðjunnar eru Radisson Collection, Radisson blu,
Radisson RED, Park Plaza, Park Inn by Radisson,
Country Inn & Suites by Radisson og Prizeotel.
Hótelið er 116 herbergja flugvallar- og ráðstefnuhótel
ásamt veitingastaðnum Library-Bistro.
Sölu- og markaðsstjóri
hagvangur.is
Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu leitar að öflugum skrifstofustjóra.
Hlutverk skrifstofustjóra er að tryggja framkvæmd þeirra ákvarðana sem
teknar eru í rekstri og mannauðsmálum félagsins í samstarfi við formann.
Leitað er að einstaklingi sem býr yfir ríkri leiðtogafærni og hefur góða
reynslu og skilning á rekstri starfseininga.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Dagleg stjórnun rekstrar og þjónustu skrifstofunnar
• Umsjón mannauðsmála innan skrifstofu félagsins
• Stjórnun þverfaglegra verkefna
• Þróun gæðahandbókar og gæðaviðmiða í starfi félagsins
• Umsjón með skjalavistun og málaskráningu
• Þátttaka í erlendu samstarfi
• Önnur verkefni sem snúa að vinnuumhverfi skrifstofunnar
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af stjórnununarstörfum
• Góð þekking á mannauðsmálum og verkefnastjórnun
• Leiðtogafærni, drifkraftur og mikil lipurð í samskiptum
• Greiningarhæfni og lausnamiðuð hugsun
• Góð almenn þekking á rafrænu vinnuumhverfi og UT kerfum
• Gott vald á íslensku og ensku skilyrði og vald á norrænu tungumáli væri kostur
Með umsókninni skal fylgja ferilskrá og
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknarinnar og hæfni viðkomandi
til að gegna starfi skrifstofustjóra rökstudd.
Umsóknarfrestur er til og með
25. október nk. Umsóknir óskast fylltar út
á www.hagvangur.is.
Nánari upplýsingar veita Gyða Kristjánsdóttir,
gyda@hagvangur.is og Þórdís Sif Arnarsdóttir,
thordis@hagvangur.is
Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu er stærsta
stéttarfélagið á opinberum vinnumarkaði. Félagið
þjónar rúmlega 12500 félagsmönnum um land allt.
Á skrifstofu félagsins starfa 17 starfsmenn.
Sjá nánar á sameyki.is
Skrifstofustjóri
ATVINNUBLAÐIÐ 5LAUGARDAGUR 16. október 2021