Fréttablaðið - 16.10.2021, Síða 50
Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Landspítala.
Landspítali er aðalsjúkrahús landsins og háskólasjúkrahús. Á spítalanum er veitt sérhæfð sjúkrahús-
þjónusta, m.a. á göngu- og dagdeildum, fyrir alla landsmenn og almenn sjúkrahúsþjónusta fyrir íbúa
heilbrigðisumdæmis höfuðborgarsvæðisins. Nánar er kveðið á um hlutverk hans í lögum nr. 40/2007,
um heilbrigðisþjónustu. Á Landspítala starfa á sjötta þúsund starfsmenn og er spítalinn einn stærsti
vinnustaður landsins.
Forstjóri ber ábyrgð á að Landspítali starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf sem
heilbrigðisráðherra setur. Forstjóri ber ábyrgð á þeirri þjónustu sem spítalinn veitir, að rekstrarút-
gjöld og rekstrarafkoma sé í samræmi við lög um opinber fjármál nr. 123/2015 og að fjármunir séu
nýttir á árangursríkan hátt.
Lögum samkvæmt skal forstjóri hafa háskólamenntun og/eða reynslu af rekstri og stjórnun sem
nýtist honum í starfi.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á framhaldsstigi sem nýtist í starfi er skilyrði.
• Reynsla af rekstri og stjórnun, þ.m.t. mannaforráð, sem nýtist í starfi er skilyrði.
• Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum er skilyrði.
• Reynsla af stefnumótun og innleiðingu nýjunga er skilyrði.
• Skýr framtíðarsýn.
• Þekking á sviði heilbrigðisþjónustu.
• Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu.
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Mjög gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti er skilyrði.
• Góð kunnátta í ensku og kunnátta í a.m.k. einu Norðurlandamáli.
Kostur er að umsækjandi hafi þekkingu á fjármálum hins opinbera.
Hæfni umsækjenda verður metin af hæfnisnefnd skv. 2. mgr. 9. gr. laga nr. 40/2007 um heilbrigðis-
þjónustu sjá nánar á https://www.stjornartidindi.is/Advert.aspx?RecordID=71e0916e-aa9f-4a22-861b-
04ff64e3a866
Um laun forstöðumanns fer eftir 39. gr. a í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til 5 ára frá 1.mars 2022.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásta Valdimarsdóttir, ráðuneytisstjóri,
asta.valdimarsdottir@hrn.is
Umsóknir með upplýsingum um núverandi starfsheiti umsækjenda ásamt ítarlegum upplýsingum
um menntun, fyrri störf og afrit af prófskírteinum skulu berast heilbrigðisráðuneytinu, í gegnum
ráðningarkerfi ríkisins eða á netfangið: hrn@hrn.is eigi síðar en 1. nóvember nk.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun í embættið hefur verið tekin.
Heilbrigðisráðuneytinu, 15. október 2021
Embætti forstjóra Landspítala
Stjórnarráð Íslands
Heilbrigðisráðuneytið
Þátttakandi í íslensku
atvinnulífi í 50 ár
hagvangur.is