Fréttablaðið - 16.10.2021, Side 58
Nánari upplýsingar um starfið veita Gísli Óttarsson, áhættustjóri (gisli.ottarsson@sedlabanki.is) og Erla Traustadóttir sérfræðingur
á mannauðssviði (mannaudur@sedlabanki.is). Umsóknarfrestur er til og með 27. október.
SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða öryggisstjóra til starfa í deild áhættustýringar á skrif-
stofu bankastjóra.
Öryggisstjóri ber ábyrgð á eftirliti með öryggismálum bankans, jafnt raunlægu öryggi (CSO-hlutverk) og net- og upplýs-
ingaöryggi (CISO-hlutverk). Öryggisstjóri starfar í þágu rekstraráhætturáðs bankans og situr fundi ráðsins.
Öryggisstjóri
SEÐL ABANKI ÍSL ANDS
Helstu verkefni:
• Leiðir mótun stefnu í öryggismálum og hefur eftirlit
með framkvæmd hennar
• Setur fram kröfur á öryggis- og vöktunarbúnað og
kemur að innleiðingu, þróun og eftirfylgni með
verklagi í öryggismálum
• Tryggir þróun og prófun áætlunar um samfelldan
rekstur og sér til þess að áætlunin sé virkjuð ef upp
koma alvarleg öryggisfrávik
• Tryggir framkvæmd og eftirfylgni prófana á
öryggisviðbúnaði
• Fylgist með því að öryggisfrávik séu tilkynnt,
skrásett og að hugað sé að úrbótum
• Veitir stjórnendum og starfsmönnum ráðgjöf um
framkvæmd öryggismála og hefur umsjón með
þjálfun í raunlægu öryggi og net- og upplýsingaöryggi
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf sem nýtist í starfi, s.s. á sviði
upplýsinga tækni eða raunvísinda
• Reynsla og þekking af framkvæmd, eftirliti og
stefnumótun í öryggismálum
• Þekking á stjórnkerfum upplýsingaöryggis skv.
ISO 27001
• Metnaður til að móta og efla raunlægt öryggi og
net- og upplýsingaöryggi
• Færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri
teymisvinnu
• Frumkvæði, drifkraftur og sjálfstæði í starfi
• Gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá
sig í ræðu og riti
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans
er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal
bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjald-
eyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur
bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af trausti, fagmennsku,
þekkingu og framsækni.
Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Sótt er um starfið á heimasíðu Seðlabanka
Íslands, www.sedlabanki.is/storf. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein
fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans. Laun greiðast
samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað
þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr.
37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
2019 - 2022
Þátttakandi
í íslensku
atvinnulífi
í 50 ár
RÁÐUM EHF • Sími 519 6770
www.radum.is • radum@radum.is
Þarftu að ráða
starfsmann?
Ráðum sérhæfir
sig í ráðningum og
mannauðs ráðgjöf.
Við komum til móts
við þarfir fyrirtækja
og sérsníðum
lausnir sem henta
hverjum viðskiptavini.