Fréttablaðið - 16.10.2021, Side 73
Ef þú kemur í
greiningu til mín
og ég segi þér að þig vanti
styrk á einum stað og
liðleika annars staðar til
þess að geta golfað leng-
ur og slegið lengra þá
hlýtur það að vera góð
gulrót í þjálfuninni.
Bjarni Már Ólafsson
Í Golfstöðinni í Glæsibæ er
glæsileg aðstaða þar sem
finna má bæði Trackman og
Puttview púttherma. Þar er
hægt að æfa, leika sér og fá
hreyfigreiningu og sjúkra-
þjálfun til að bæta sveifluna.
Í splunkunýju stúdíói Golf
stöðvarinnar í Glæsibæ er boðið
upp á hreyfigreiningu og sjúkra
þjálfun sérsniðna að golfurum, en
það er eina golfhermastúdíóið sem
býður upp á slíka þjónustu hér á
landi. Í stöðinni er glæsileg aðstaða
þar sem finna má bæði Trackman
og Puttview púttherma þar sem
hópar og einstaklingar geta æft
sveifluna eða spilað golf á hinum
ýmsu golfvöllum heims.
„Golfstöðin var opnuð í Glæsibæ
í lok sumars. Stöðin er sameign og
samstarfsverkefni mitt og Freys
bróður míns, en síðasta hálfa árið
höfum við verið að taka hús
næðið algerlega í gegn og koma
aðstöðunni upp,“ segir Bjarni Már
Ólafsson. „Þetta gerðum við með
þrotlausri hjálp bræðra okkar, sem
allir búa í nágrenninu. Við erum
með tvo Trackman 4 golfherma og
einn Puttview pútthermi.“
Pútthermirinn spennandi viðbót
„Það eru nokkur atriði sem við í
Golfstöðinni erum sérstaklega
stoltir af. Í fyrsta lagi er stað
setningin okkar mjög miðsvæðis á
höfuðborgarsvæðinu og í öðru lagi
er aðstaðan mjög notaleg og býður
upp fullkomið næði, því það er
hægt að loka alveg að sér í herm
inum ef maður vill vera út af fyrir
sig,“ segir Bjarni.
„Svo er það pútthermirinn okkar
frá Puttview, sem okkur finnst
gríðarlega spennandi viðbót við
innigolfiðkun. Það er alveg tilvalið
að sinna stutta spilinu samhliða
æfingum í hefðbundnu golfherm
unum,“ segir Bjarni. „Þar geturðu
æft þig að lesa brot í landslagi,
fengið sjónrænar leiðbeiningar
um það hvernig er best að pútta
og svo það sem best er, það er
alveg hægt að gleyma sér í leikjum
og æfingum í þessari græju. Við
ætlum að hafa púttherminn opinn
og ókeypis þeim sem koma í Golf
stöðina á næstu vikum til kynn
ingar.“
Bjóða hreyfigreiningar
og sjúkraþjálfun
„Golfstöðin er fyrsta golfherma
aðstaðan sem býður upp á
þjónustu sjúkraþjálfara og um leið
fyrsta sjúkraþjálfunaraðstaðan
sem býður upp á golfherma,“ segir
Bjarni. „Ég hef starfað sem sjúkra
og einkaþjálfari í líkamsræktar
stöðinni Hreyfingu í sex ár og í
Golfstöðinni er ég með herbergi
þar sem ég mun bjóða upp á bæði
hreyfigreiningu og sjúkraþjálfun
fyrir golfara.
Hreyfigreiningin byggir á kerfi
TPI (Titleist Performance Institute)
sem gengur út á það að skima hreyf
ingar líkamans og finna út hvort
eitthvað vanti upp á hreyfistjórn
eða liðleika hjá fólki með tilliti til
þess að þau geti sveiflað golfkylfu
með góðu móti,“ segir Bjarni. „Þetta
eru fimmtán mælingar sem taka til
hreyfanleika í öxlum, mjöðmum og
baki, svo dæmi séu tekin.
Fólk getur komið til mín í hreyfi
greiningu og fengið niðurstöður
úr henni á klukkutíma. Ég mun
svo annað hvort bjóða fólki upp
á æfingaplan sem ég set saman
sjálfur til þess að vinna á veik
leikunum eða bjóða þeim að koma
til mín í einkaþjálfun í Hreyfingu,
þar sem unnið verður í þessum
þáttum,“ segir Bjarni. „Ef þátttaka
verður góð sé ég alveg fyrir mér
að mynda litla æfingahópa með
fólki sem er að vinna í svipuðum
hlutum.
Mig langar að hjálpa fólki að
finna tilgang með hreyfingu
og líkamsrækt. Ef þú kemur í
greiningu til mín og ég segi þér
að þig vanti styrk á einum stað og
liðleika annars staðar til þess að
geta golfað lengur og slegið lengra
þá hlýtur það að vera góð gulrót í
þjálfuninni,“ útskýrir Bjarni.
Opið lengi og hentar hópum
„Golfhermarnir okkar eru opnir
öllum frá 6.0024.00 alla daga
vikunnar í sjálfsafgreiðslufyrir
komulagi. Þú bókar á netinu og
færð tölvupóst og sms með kóða
sem þú svo notar til þess að komast
inn þegar þú átt bókaðan tíma,“
segir Bjarni. „Við gefum líka góð
verð í fastabókanir, en það er best
að senda okkur tölvupóst með
fyrirspurn um slíkt.
Að sama skapi leigjum við allt
rýmið til fyrirtækja eða hópa,“
segir Bjarni. „Vinnustaðaferðir,
afmæli, „reunion“, vísindaferðir
og alls konar hópar hafa skemmt
sér mjög vel hjá okkur, enda geta
allir notið sín í Golfstöðinni, hvort
sem það er í púttherminum eða í
Trackmanhermunum.“ ■
Golfstöðin er í austurbyggingu
Glæsibæjar, beint fyrir ofan Ölver
sportbar. Hægt er að hafa sam-
band við Golfstöðina í gegnum
netfangið golfstodin@golf-
stodin. is.
Golfhermar og sjúkraþjálfari undir sama þaki
Bjarni Már Ólafsson hefur starfað sem sjúkra- og einkaþjálfari árum saman og ætlar að bjóða upp á bæði hreyfigrein-
ingu og sjúkraþjálfun fyrir golfara í Golfstöðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Pútthermirinn frá Puttview er gríðarlega spennandi viðbót við innigolfiðkun
og næstu vikur verður hægt að prófa hann ókeypis.
Allir geta
notið sín í Golf-
stöðinni, hvort
sem það er í
púttherminum
eða í Trackman-
hermunum.
Í púttherminum
er hægt að æfa
sig að lesa brot
í landslagi og fá
sjónrænar leið-
beiningar um
hvernig er best
að pútta.
kynningarblað 5LAUGARDAGUR 16. október 2021 Golfhermar