Fréttablaðið - 16.10.2021, Page 82

Fréttablaðið - 16.10.2021, Page 82
Merkisatburðir Ég er vel komin að þessu en maður er samt alltaf að læra. 1612 Eldgos brýst út í Kötlu. 1793 Marie Antoinette Frakklandsdrottning og eigin- kona Loðvíks XVI. er hálshöggvin í kjölfar frönsku byltingarinnar. 1890 Landshöfðingi vígir fyrsta síma sem lagður er á Íslandi, milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar. Í Fjall- konunni er fyrirbærið kallað málþráður. 1902 Landakotsspítali er tekinn í notkun, hann var reistur og rekinn af Sankti Jósefssystrum. 1923 Walt Disney stofnar fyrirtækið Disney ásamt bróður sínum, Roy O. Disney. 1946 Helstu sakborningar í Nürnberg- réttarhöldunum eru líflátnir. 1995 Milljónagangan, mótmælaganga þeldökkra Bandaríkjamanna til Washington D.C., fer fram. 1997 Fyrsta litmyndin birtist á forsíðu The New York Times. Alexandra samdi tónlist og handrit verksins og fer jafnframt með hlutverk Vigdísar. MYND/JÓN RÚNAR HILMARSSON Vigdís Finnbogadóttir fagnar sigri í forsetakosningum 1980 ásamt Ástríði dóttur sinni. Ævi og störf Vigdísar Finnboga- dóttur eru rakin í nýju frum- sömdu óperunni Góðan daginn, frú forseti. arnartomas@frettabladid.is Óperudagar standa nú yfir og næstu helgi verður glæný ópera, Góðan daginn, frú forseti, frumflutt í Grafarvogskirkju. Um er að ræða frumsamda óperu í þrem- ur þáttum sem segir frá ævi og störfum Vigdísar Finnbogadóttur. „Hugmyndin að óperunni kom til mín fyrir sjö árum,“ segir Alexandra Cherny- shova höfundur verksins, sem fer jafn- framt með hlutverk Vigdísar í sýning- unni. „Ég var nýbúin að frumsýna fyrstu óperuna mína sem fékk góðar viðtökur og það gaf mér styrk og trú á sjálfri mér sem tónskáldi – að ég gæti samið óperu.“ Alexandra segir Vigdísi vera ótrúlega manneskju þótt hún hafi ekki haft per- sónuleg kynni af henni. „Ég þekkti til hennar út frá viðtölum og hitti hana stundum á frumsýningum því hún er dugleg að sækja leikhús,“ segir Alex- andra. „Ég var mikið að stúdera lífið hennar og allt það sem leiddi til þess að hún var kosin forseti Íslands. Þetta fór á f lug hjá mér þegar ég heyrði að hún hefði ekki einungis verið fyrsti kvenfor- seti heims, heldur líka fyrsta einstæða foreldri Íslands til að ættleiða barn.“ Valkyrjur jafnréttis Sýningin er ansi veigamikil, en þar kemur fram 22 manna hljómsveit undir stjórn Garðars Cortes, 12 einsöngvarar, karlakór og kvennakór. Sýningin skiptist í þrjá þætti auk forleiks og eftirleiks. „Forleikurinn hefst á því að fram koma fimm baráttukonur “ segir Alex- andra. „Þetta eru fimm íslenskar val- kyrjur sem stíga fram ásamt Vigdísi og kórunum tveimur og sýna boðskapinn um samstöðu kvenna og karla. Að við náum árangri ef við stöndum saman.“ Eftir forleikinn hefst óperan á því þegar Vigdís er ung stúlka í þann mund að ferma sig. „Ég vil ekki segja of mikið, heldur er betra ef fólk komi og sjái sýn- inguna!“ segir Alexandra og hlær. Aðspurð segir Alexandra að það sé skemmtilegt að halda utan um svona stóra sýningu en hún er þeim ansi kunnug. „Ég stofnaði óperu Skagafjarðar 2006 þar sem við settum upp fimm óper- ur, og þar fyrir utan hef ég sett tvær af mínum eigin óperum upp. Þetta er því áttunda stórvirkið sem ég set upp,“ segir Alexandra. „Ég er vel komin að þessu en maður er samt alltaf að læra.“ Samkvæmt Alexöndru fylgdu verkefn- inu ýmsar áskoranir en hún er þakklát því frábæra fólki sem hún hefur fengið sér til liðs. „Allt fólkið í sýningunni er ástríðufullt fyrir óperunni og vill heiðra Vigdísi og láta sögu hennar heyrast í tón- listinni. Ég ber mikla virðingu fyrir frú Vigdísi Finnbogadóttur.“ Frumsýningin fer fram í Grafarvogs- kirkju laugardaginn 23. október klukk- an 20. Hægt er að nálgast miða á tix.is. ■ Frú forseti heiðruð með óperu Auðbrekku 1, Kópavogi Sverrir Einarsson Jóhanna Eiríksdóttir síðan 1996 Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár 34 Tímamót 16. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐTÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 16. október 2021 LAUGARDAGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.