Fréttablaðið - 16.10.2021, Page 106

Fréttablaðið - 16.10.2021, Page 106
Við ætlum að fara yfir mismunandi áhöld. KOMIN Í BÍÓ LEIÐINLEGT AÐ SJÁ ÞIG AFTUR KOMIN Í BÍÓ LEIÐINLEGT AÐ SJ ÞIG AFTUR KOMIN Í BÍÓ ÁLFABAKKI A dd am sF am il y 2 M ee tT he A dd am s D is tri bu te d Th ro ug h U ni te d Ar tis ts R el ea si ng . © 2 02 1 M et ro -G ol dw yn -M ay er P ic tu re s In c. T he A dd am s Fa m ily ™ T ee a nd C ha rl es A dd am s Fo un da ti on . A ll R ig ht s R es er ve d. 58 Lífið 16. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ 38 árum eftir að hafa líklegast myrt eiginkonu sína Kathleen Durst, myrt vinkonu sína Susan Berman árið 2000 og nágranna sinn Morris Black árið 2001, er milljónamær­ ingurinn Robert Durst loksins á leiðinni í steininn. Þó aðeins fyrir eitt morðanna. odduraevar@frettabladid.is Hinn 78 ára gamli Durst leit illa út þegar dómur var upp kveðinn í rétt­ arsal í Los Angeles á fimmtudaginn. Hann var dæmdur í ævilangt fang­ elsi fyrir að hafa myrt Susan Ber­ man þann 23. desember árið 2000 á heimili hennar í Los Angeles. Dómurinn markar tímamót, enda hefur milljónamæringurinn gengið laus án dóms og laga allar götur frá því að konan hans hvarf með dular­ fullum hætti árið 1982. Ekki hefur sést tangur né tetur af henni síðan, en vinkona Roberts, Susan Berman, átti bókaðan fund með lögreglu árið 2000. Er talið að þar hafi hún ætlað að ræða aðstoð sína við milljóna­ mæringinn við að fela slóðina eftir morðið á eiginkonunni Kathleen Durst árið 1982. Hún komst aldrei til fundarins þar sem hún fannst látin á heimili sínu, skotin í hnakkann. The Jinx komu upp um hann Saga milljónamæringsins er lyginni líkust. Hann var ekki meðal grun­ aðra vegna morðsins á Susan Berm­ an um margra ára skeið, en viðtöl við Durst í heimildaþáttunum The Jinx: The Life and Deaths of Robert Durst, sem kom út árið 2015, breyttu öllu. Óhætt er að mæla með að horfa á þá og eru þeir líklegast einhverjir bestu glæpaheimildaþættir sam­ tímans. Í þáttunum var varpað ljósi á ný sönnunargögn sem bendluðu Durst með beinum hætti við morðið á Susan Berman, auk þess sem millj­ ónamæringurinn kom upp um sig með lygilegum hætti. Alltaf að myrða Hér er ekki einu sinni búið að minn­ ast á að Durst tókst að myrða einn til viðbótar eftir að hafa myrt Susan og Kathleen og löngu áður en hann ræddi mál sín við kvikmyndagerð­ armanninn Andrew Jarecki í The Jinx. Árið 2001 hafði Durst flust búferl­ um lengst út í buskann, til Galve­ ston­borgar í Texas. Þar fundust óvænt líkamsleifar í poka í október og kom í ljós að þar var á ferðinni gamalmennið Morris Black. Sá var svo óheppinn að búa við hliðina á Durst. Með lygilegum hætti og pening­ um komst Durst þó undan réttvís­ inni. Bestu lögmenn Bandaríkjanna sannfærðu kviðdómendur um að Durst hefði drepið Black í sjálfsvörn. Því fór sem fór og Durst gekk laus þrátt fyrir allt. Lögreglumenn telja að líklega hafi Morris ætlað að kúga Durst og hafa af honum fé. Sögunni ekki lokið Durst bar nú í réttarhöldunum í Los Angeles ítrekað fyrir sig heilsu­ leysi. Allt kom fyrir ekki og hann var sekur fundinn. Lögfræðingar hans hyggjast þó áfrýja málinu, svo mögulega getur milljónamæringurinn skrifað enn eina lygasöguna í bókina um ævi sína. Hvar Kathleen Durst er, veit hins vegar enginn og verður það sjálfsagt aldrei upplýst. n Lukkan yfirgaf Durstinn Bandarísk blöð voru gjörsamlega gáttuð á kviðdómendum, sem kok- gleyptu skýringar Durst. Æviskeið milljónamæringsins er lyginni líkast. Hann hefur komist upp með allt, þar til nú. Durst er orðinn 78 ára gamall og ansi hrörlegur að sjá. Hann hefur reglulega borið heilsuleysi fyrir sig í réttarsal. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY BDSM á Íslandi stendur í næstu viku fyrir námskeiðinu Flengingar 101, þar sem farið verður yfir helstu grunnatriði: upplýst samþykki, öryggi og tilgang flenginga. odduraevar@frettabladid.is Brynjar Benediktsson er kennari ásamt Alrúnu Ösp Herudóttur. Hann segir námskeiðið hugsað fyrir öll þau sem hafa áhuga á að kynnast þeim fjölbreyttu aðferðum og tólum sem hægt er að nota til f lengileikja. Farið verður yfir grundvallaratriði f lengileikja, uppbyggingu góðra flengileikja og hvað beri að varast. „Og við ætlum að fara yfir mis­ munandi áhöld,“ segir Brynjar, sem hefur áður kennt á námskeiðum á vegum BDSM félagsins. Hann hefur þó ekki kennt hýðingar áður nema í aðstoðarhlutverki. Brynjar segir BDSM­námskeiðin gjarnan vel sótt og fólk mæti í fullri alvöru og þau hafi verið laus við háðfugla. „Nei, það hefur ekki verið að koma fyrir. Við höfum verið blessunarlega laus við það,“ segir Brynjar, í takti við tíðarandann og upplýstari umræðu. „Það hefur mikið breyst síðustu fimm, sex árin. Við tókum sérstak­ lega eftir því í kringum þá miklu vitundarvakningu sem varð þarna í kringum 2015­2016,“ útskýrir Brynjar. Framhaldsnámskeiðið Fleng­ ingar 102 verður í boði í kjölfarið, en Spektrum Reykjavík heldur það í samstarfi við Magnús Hákonarson, sem var formaður BDSM á Íslandi til margra ára. Það námskeið er hugsað fyrir þá sem hafa flengt lengi en vilja dýpka skilning sinn. Flengingar 101 verður á miðviku­ daginn 20. október í húsakynnum Spektrum á Hringbraut frá kl. 20 til 22. n Lærðu að flengja rétt með samþykki Boðið er upp á framhaldsnámskeið í flengingum fyrir lengra komna. Vel verður tekið á móti nýliðum sem og þaulreyndum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.