Fréttablaðið - 22.10.2021, Blaðsíða 2
Ef ég get hjálpað þeim
með eitthvað þá geri ég
það að sjálfsögðu en
annars sigla þau sinn
sjó.
Guðni Kjartan Franzson
Sérsveitin stóð í ströngu
VIÐ VESTURLANDSVEG
Renndu við í lúguna
BÍLAAPÓTEK
9-22
OPIÐ ALLA DAGA
Framlag Íslands til Óskars-
verðlaunanna á næsta ári
verður Dýrið en tónlistina í
myndinni semur Þórarinn
Guðnason, bróðir Hildar sem
vann Óskarsverðlaunin fyrir
Jókerinn í fyrra.
benediktboas@frettabladid.is
TÓNLIST „Auðvitað er maður glaður
þegar vel gengur hjá þeim,“ segir
Guðni Kjartan Franzson, kennari
við Tónlistarskóla FÍH og Lista-
háskóla Íslands og faðir Óskars-
verðlaunatónskáldsins Hildar og
Þórarins sem sér um tónlistina í
Dýrinu – sem verður framlag Íslands
á Óskarsverðlaununum á næsta ári.
Þó að Þórarinn sé ekki tilnefndur
fyrir tónlistina í myndinni hefur
hún fengið mikið lof. Mun hann
því klæða sig upp á fyrir Óskars-
verðlaunin 2022 og feta þar með í
fótspor systur sinnar en hún hlaut
styttuna eftirsóttu í fyrra fyrir tón-
listina í Jókernum. Guðni er einn af
af okkar fremstu klarínettleikurum
þó að hann sé aðeins farinn að setja
blásturinn á hilluna og einbeita sér
að stjórnun, en hann stýrir gjarnan
Caput-hópnum sem hann kom að
stofnun á árið 1987. Þá hefur hann
stundum stýrt Sinfóníuhljómsveit
Íslands og þá stýrði hann hljóm-
sveitinni í útskriftarverki Þórarins.
Sjálfur hefur hann hlotið verðlaun
fyrir tónsmíðar sínar.
„Ef ég get hjálpað þeim með eitt-
hvað þá geri ég það að sjálfsögðu
en annars sigla þau sinn sjó,“ segir
Guðni sem var í hádegishléi í sjó-
birtingsveiði þegar Fréttablaðið sló
á þráðinn til hans.
Tenging fjölskyldunnar í tónlist er
í gegnum tónskáldið Jóhann heitinn
Jóhannsson þó að þau Hildur og
Þórarinn hafi unnið töluvert saman.
„Þau voru bæði að vinna með Jóa. Ég
var með honum lengi á tímabili og
Svolítið montinn af þessu
Óskarsverðlaunabrölti
Dýrið hefur fengið góða dóma eins og tónlistin eftir Þórarin. Myndin er
framlag Íslands til Óskarsverðlauna næsta árs. MYND/SKJÁSKOT
ætli hann tengi okkur ekki saman
tónlistarlega. Í gegnum hann hafa
leiðir okkar aðeins krossast.“
Guðni segir að tónlist hafi vissu-
lega verið fyrirferðarmikil á heimil-
inu. „Þau hafa verið í kringum tón-
list frá blautu barnsbeini.
Ég hef ekkert verið að kenna
þeim eða segja hvað þau eigi að
gera – þau hafa farið bara sína leið.
Kannski hefur það áhrif að ég hafi
verið í þessu,“ segir hann um leið og
hádegishléið er búið í veiðinni.
Það er kominn tími til að klæða
sig í vöðlurnar á ný og kasta út. ■
Þórarinn
Guðnason
Guðni Kjartan
Franzson
Hildur
Guðnadóttir
Jóhann
Jóhannsson
benediktboas@frettabladid.is
SAMFÉLAG Jóakim, sem er eitt
af stærstu tölvukerfum lífeyris-
sjóðanna, hefur verið tekið yfir
af Reiknistofu lífeyrissjóða, sam-
kvæmt tilkynningu.
Kveikur upplýsti að eigendur Init
hefðu undanfarinn áratug eða svo
reynt að fela raunverulegan hagnað
sinn af vinnu við kerfið.
Í tilkynningunni segir að brot Init
hafi verið staðfest í óháðri úttekt. ■
Jóakim var tekinn
úr höndum Init
Almar
Guðmundsson,
framkvæmda-
stjóri
Séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar var ræst út vegna torkennilegs hlutar sem fannst í nágrenni við Þorlákshöfn í gær. Ekki reyndist vera hætta á ferðum
vegna hlutarins. Meðan á framangreindri aðgerð stóð fékk sveitin hins vegar í hendurnar fallbyssukúlu úr síðari heimsstyrjöldinni sem reyndist virk.
Sprengjusérfræðingar Gæslunnar eyddu kúlunni umsvifalaust. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
gar@frettabladid.is
HVERAGERÐI „Skjálftar sem valdið
geta óþægindum í nærliggjandi
byggðarlögum eins og Hvergerð-
ingar hafa ítrekað upplifað eru
aldrei ásættanlegir,“ segir bæjarráð
Hveragerðis.
Bæjarráðið tók fyrir í gær erindi
frá Skipulagsstofnun þar sem óskað
var umsagnar vegna „mögulegrar
skjálftavirkni vegna fyrirhugaðrar
aukningar á massavinnslu jarð-
hitavökva“ hjá Orku náttúrunnar
á Hellisheiði.
„Hvergerðingar ha fa ávallt
furðað sig á því að umhverfisáhrif
Hellisheiðarvirkjunar og tengdra
f ramk væmda haf i ek k i ver ið
metin með skýrari hætti gagn-
vart Hvergerðingum en raun var á
í umhverfismati virkjunarinnar á
sínum tíma. Þar var hvergi minnst
á að jarðskjálftar væru fylgifiskar
niðurdælingar og lítið gert úr
áhrifum mengunar sem nú hefur
þó verið bætt úr,“ bókar bæjarráðið
um málið.
„Bæjarráð telur með öllu óásætt-
anlegt ef að aukin skjálftavirkni
muni fylgja fyrirhuguðum fram-
kvæmdum á Hellisheiði eins og
fram kemur að geti verið raunin,“
halda Hvergerðingar áfram og
segja að leita verði allra leiða til að
hindra að slíkt verði raunin. „Íbúar
verða ávallt að geta treyst því að
hagsmunir þeirra séu settir framar
öðrum hagsmunum þegar kemur
að ákvörðunum og framkvæmdum
á svæðinu.“ ■
Hvergerðingar
segja skjálfta
óásættanlega
Orka náttúrunnar rekur Hellis-
heiðarvirkjun. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Aldís Hafsteins-
dóttir, bæjarstjóri í
Hvergerði
2 Fréttir 22. október 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ