Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.10.2021, Qupperneq 9

Fréttablaðið - 22.10.2021, Qupperneq 9
Svona eru íslenskar deilur undarlegar og skemmtilegar. Mjög heitar. En oft um lítið. Um íslensku þjóðina verður seint sagt að hún kunni afburðavel að rökræða. Fjölmargir þjóðfélags- hugsuðir hafa tekið eftir því í gegnum tíðina hversu ömur- legir Íslendingar eru í þeirri list að kryfja mál til mergjar. Flestar þær deilur sem einkenndu barnæsku mína í þjóðfélagslegu tilliti eru enn deilur dagsins í dag. Kvótinn. ESB. Einkavæðing heilbrigðisþjónustu. Flugvöllurinn. Landbúnaðar- kerfið. Listinn er langur og allt er meira og minna án niðurstöðu. Sé upp á þessum málum bryddað í boðum er jafnvíst og áður að boðið hverfist í tvær fylkingar með tilheyrandi fingrabendingum og upphrópunum. „Þú sagðir!“ „Nei, þú sagðir!“ „Má ég klára!?“ „Óþarfi að æpa á mann!“ Og svo framvegis. Ég hef æði oft staðið í hringiðu slíkra deilna í eldhúspartíum og játa mig fúslega sekan um að espast iðulega upp og verða full beittur, svo ófært er jafnvel að ljúka orðaskakinu öðruvísi en með auðmjúkri afsökunarbeiðni á Messenger daginn eftir og langri útlistun á því hvernig maður hafi ekki verið með sjálfum sér. Allir Íslendingar kannast við þetta. Svo rammt kveður að þessu stundum – þessari vangetu þjóðarinnar til skoðanaskipta – að heilu byggðar- lögin á afskekktum stöðum á landinu hafa lítið sem ekkert talast við í árhundruð, bændur í gnauð- andi veðravítum og hráslaga yrða ekki hver á annan þótt engir búi í dalnum aðrir en þeir og fjölskyldur þurfa kvíðameðferð út af væntan- legum fermingarveislum. Af öllum þessum sökum var það svo ótrúlega skiljanlegt að síðasta kosningabarátta skyldi í raun og veru ekki fjalla um neitt. Slagorðin voru svona: Stöðug- leiki. Loftslagsaðgerðir. Betra líf. Tækifæri. Lýðræði. Slagorðin mynduðu að þessu sinni einhvers konar rammgerðan virkisvegg til að koma í veg fyrir deilur. Um þessi orð var ekki hægt að deila. Enginn vildi deila. Svo yfirgripsmikil er hin samfélagslega meðvitund um fánýti íslenskra deilna, að jafnvel í kosningabaráttu stjórnmálaflokka til Alþingis var reynt eftir fremsta megni að sneiða hjá rökræðum um öll helstu álitamál þjóðarinnar með því að hafa slagorðin eins þýðingarlítil og hægt er. Í eftirleik kosninganna hefur verið reynt eins og kostur er að deila ekki um hvort talningin í einu kjördæminu hafi verið rétt. Allir eru að vanda sig. Málið rann- sakað. Formaður yfirkjörstjórnar er þó hrokkinn í gírinn virðist vera með nýlegu svarbréfi sem efnislega má túlka á þann veg að hann hafi ekki gert neitt rangt og að aðrir, sem gagnrýna hans störf, séu vit- leysingar. Hér stefnir í afsökunarbeiðni á Messenger. Nú má ekki misskilja mig. Mér þykir ákaflega vænt um þjóðarsálina og kannski einkum og sér í lagi þennan krúttlega, bælda blóðhita sem sprengir þurrar varir í frosthörkum. Hið fyndnasta við íslenskar deilur – og kannski deilur víðar um heim – er þó þetta: Á meðan fólk deilir eða reynir að deila ekki, hefur veröldin sinn gang. Hún breytist. Hún þró- ast. Einhvers staðar eru ákvarðanir teknar. Mál gerast. Um þetta ætla ég nú að taka dæmi: Halda mætti að eilífðardeilan um inngöngu í Evrópusambandið snerist um það hvort við vildum vera óháð Evrópu, algjörlega sjálf- stæð, eða tilheyra samvinnu Evr- ópuríkjanna. Um þetta getur fólk rifist eins og hundur og köttur, svo mikið að deilan er nánast hætt því fáir treysta sér í hana. Hið fyndna er þó, að þetta skip er eiginlega löngu farið. Þjóðin er meira eða minna í Evrópusambandinu. Mest af löggjöf okkar kemur þaðan, við njótum evrópskra réttinda og öxlum evrópskar skyldur. Aðeins á eftir að innleiða evrópskan efna- hagsstöðugleika og fá kosningarétt innan ESB. Deilur um opinberan rekstur eða einkarekstur í heilbrigðis- kerfinu dúkka líka reglulega upp, og eru sama marki brenndar. Fólk treystir sér varla í rifrildið. Staðreyndin er hins vegar sú að þetta skip er eiginlega líka farið. Upp undir helmingur kerfisins er þegar einkarekinn og mun stærri ef talinn er með sá hluti velferðar- þjónustu sem er í raun rekinn af aðstandendum. Hvort eigi að einkavæða er því að stórum hluta marklaus deila. Svo er það sæstrengurinn. Er þar komin enn ein eilífðardeilan sem auðveldlega getur splundrað fermingarveislu. Á að leggja orkusæstreng til Bretlands? Halda mætti að deilan snerist um hvort selja eigi útlendingum íslenska orku eða hvort við viljum nota hana alla sjálf. Gaman væri að sjá svipaða rökræðu tekna um þorskinn, en hvað um það. Þessi deila er, eins og hinar, efnislega mjög þýðingarlítil. Einu sinni, fyrir langa löngu, þegar sæstrengur var ekki mögulegur, var ákveðið að færa útlendingum nánast alla orku Íslendinga í gegnum álverksmiðj- ur. Það er mun óhagkvæmari og óumhverfisvænni leið en nokkurn tímann sæstrengur þótt hún geri það sama. Svona eru íslenskar deilur undarlegar og skemmtilegar. Mjög heitar. En oft um lítið. En um það má sjálfsagt deila. ■ Íslenskar deilur Guðmundur Steingrímsson ■ Í dag úúú ... draugapizza! Allir d ag ar e ru Mmm ... PIZZA DAGAR Pssst... Þú finnur allt á einum stað í næstu Krónu verslun. Afgreiðslutímar á www.kronan.is Lögreglan hélt blaðamannafund vegna Rauðagerðismálsins í lok mars á þessu ári og stærði sig af árangri í því sem hún sagði vera „… með umfangsmestu rann- sóknum á starfstíma lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu“. Niður- stöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í gær er vart hægt að túlka öðru- vísi en að einnig sé um að ræða eitt umfangsmesta klúður í sögu embættisins. Ekki eingöngu vegna sýknudómanna sem féllu, heldur einnig vegna augljósrar vandlæt- ingar dómarans sem telur vinnu- brögð lögreglunnar ámælisverð. Mér er málið skylt. Skjólstæð- ingur minn var hnepptur í u.þ.b. tveggja vikna gæsluvarðhald með dylgjum um að hann væri mögu- lega höfuðpaurinn í málinu. Í kjöl- farið fylgdu hefðbundnar aftökur á alþingi götunnar. Hann var síðan með klækjabrögðum sviptur lög- manni sínum og verjanda, vegna meintrar vitnaskyldu sem hafði enga þýðingu, eins og sýknudóm- arnir vitna um. Alls fengu fjórtán réttarstöðu sakbornings í málinu Níu þeirra voru settir í gæsluvarðhald og sjö voru úrskurðaðir í farbann. Sex húsleitir voru framkvæmdar. Þegar mest var unnu hátt í 50 lögreglumenn samtímis að rann- sókninni sem sérstaklega var sögð beinast að starfsemi erlendra glæpagengja á Íslandi. Lögreglan lét ekki duga að láta leiðast út á villigötur í rannsókninni en lagði að auki fram skýrslu til dómsins með órökstuddum samsæriskenn- ingum um skipulagða morðaðför. Héraðsdómur af þakkar þetta „sérálit“, sem hann dæmir brot á hlutlægnisskyldu og segir vinnu- brögðin ámælisverð. Þá vekur líka furðu að lög- reglan hafi í margar vikur vitað um vopnið í höndum þess sem nú hefur verið dæmdur fyrir morðið í Rauðagerði. Hún segist hafa fylgst með manninum í langan tíma með vopnið í fórum sér án þess að hafa til þess leyfi. Eftir hverju var beðið með að taka það af honum? Á fyrrnefndum blaðamanna- fundi lögreglunnar sagði Margeir Sveinsson, þáverandi yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu, stjórnandi rannsókn- arinnar, m.a. að deild sín hefði „… lyft Grettistaki í rannsóknum, kortlagningu og þjálfun starfs- manna vegna rannsókna á skipu- lagðri brotastarfsemi […] og hefði sú þekking reynst vel í þessu máli.“ Á sama fundi sagði Hulda Elsa Björgvinsdóttir, sviðsstjóri ákærusviðs, að „… lögreglumenn og ákærendur þurfa ávallt að gæta að hæfi sínu þegar kemur að rannsókn sakamála og hið sama gildir um lögmenn.“ Sneiðin um vanhæfið var til mín og langt í frá í felulitum. Eftir þessa útreið í héraðsdómi hlýtur hins vegar að vera eðlilegt að draga hæfi lögreglunnar undir fyrrgreindri forystu stórlega í efa. Hún hefur orðið ber að því eina ferðina enn að brjóta á réttindum fjölmargra einstaklinga, gera þá að sakborningum, hneppa í gæslu- varðhald og valda þeim alvar- legum miska með glannalegum yfirlýsingum og margvíslegum öðrum hætti. Einfalda verkaskiptingin sem héraðsdómurinn var að minna lögregluna á í dómi gærdagsins er að lögreglan á að rannsaka mál til þess að leiða hið rétta í ljós. Ákærusvið lögreglunnar og sak- sóknari taka síðan við og ákæra ef tilefni þykir til. Dómstólar úrskurða að lokum um sekt eða sýknu og taka ákvörðun. Þetta er ekki f lókin verkaskipting en e.t.v. er engu að síður ástæða til þess að árétta hana á símenntunarnám- skeiðum fyrir stjórnendur lög- reglunnar – ef einhver slík eru þá haldin. ■ Umfangsmikið klúður lögreglunnar Steinbergur Finnbogason lögmaður FÖSTUDAGUR 22. október 2021 Skoðun 9FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.